Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Síða 15
„Vorið kemur á laugardaginn!
Stormurinn hefur sjaldan verið
brattari að renna yfir kortin og það
er gleðilegt að sjá hlýleg kort birt-
ast hvert á fætur öðru, án þess að
þurfa að leggjast í pælingar um við-
varanir, “ segir Sigurður Þ. Ragnars-
son, Siggi stormur. Hann segir að
nú fari snjóinn að taka upp sunn-
an- og vestanlands og fólk geti far-
ið að draga fram grillin. Hann bæt-
ir þó við að ekki megi detta í algert
kæruleysi og hvetur fólk að huga að
Omega 3-fitusýrunum.
Mars með leiðinlegri mánuðum
Aðspurður segir hann að ekki sé
komið heildarmat á veturinn því
strangt tiltekið séum við enn í vetr-
armánuðunum. „Það er hægt að
segja að mars hafi verið risjóttur,
já, og bara hreint út sagt leiðinleg-
ur. Hann er að verða með leiðin-
legri mánuðum hvers árs. Janúar
og febrúar hafa verið miklu kyrr-
látari síðustu árin en endalausir
umhleypingar í mars hafa gert alla
vitlausa. Mánuðurinn hefur verið
svolítið eins og liðið á þinginu. Fer
bara í hringi og veit ekkert í hvaða
átt á að fara og er alveg snarringl-
aður.“
Ef við tökum mars út úr heildar-
myndinni þá er veturinn sem er að
líða einn af þeim betri, að mati Sig-
urðar. Honum sýnist í fljótu bragði
að þessi vetur sé einn af þeim
fimm til tíu bestu, bæði ef litið er
til hitastigs og snjóþunga. Hann
sé búinn að vera hægviðrasamari
og umhleypingar í tiltölulegu lág-
marki.
„Í sambandi við apríl þá eru
væntingar miklar, út frá talnalegu
sjónarmiði, að hann verði góður.
Þegar við skoðum veðurlagsspár
og meðaltöl þá gefur það okkur
væntingavísitölu í hærri kantin-
um,“ segir Sigurður en bætir við að
hann hafi meiri áhyggjur af maí en
sá mánuður hefur komið í bakið á
okkur undanfarin ár en til dæmis
fyrir fjórum árum gerði harðavet-
ur í maí með mikilli ofankomu á
Norðurlandi.
Höfum náð toppinum
í hlýindum
Sigurður segir að viss teikn séu
á lofti um að toppinum sé náð í
hlýindum síðustu ára. „Ég held
að við séum að renna inn í tíma-
bil þar sem við megum búast við
að sumrin verði hefðbundnari ís-
lensk sumur. Ekki er þar með sagt
að við séum að sigla inn í kulda-
tímabil eins og var í kringum 1965
en við megum búast við lægri hita
og vætumeiri sumrum.“ Hann
bendir einnig á að fyrir um það bil
20 árum voru landsmenn ánægð-
ir ef hitinn fór upp fyrir 13 stig. Við
séum búin að upplifa mikla toppa
á þessari öld en ekki sé hægt að
búast við því áfram.
Þrátt fyrir þetta segist Sigurð-
ur vera ansi brattur. „Ég hef bara
sjaldan verið brattari og hundur-
inn minn er jafnvel brattari en ég.
Hann finnur lyktina af vorinu, nefið
á honum er á fullu og það er mynd
af vorinu í augunum hans,“ segir
Sigurður að lokum.
Fréttir | 15Helgarblað 25.–27. mars 2011
• Granatepli er ofurávöxtur sem er mjög andoxunarríkur
• Sýnilegur árangur eftir 28 daga notkun á seruminu er niður-
staða á vísindilegri rannsókn framkvæmd af óháðum aðila
• Dagkrem sem inniheldur olíu úr granateplafræjum sem
þéttir og styrkir húðina
• Næturkrem sem stuðlar að endurnýjun húðfrumanna
meðan húðin sefur
• Serum er styrkjandi plöntusafi sem veitir húðinni öfluga
meðferð til lengri tíma
• Augnkrem sem hjálpar húðinni í kringum augun að
verða stinnari
• Engin gervi ilm-litar eða rotvarnarefni
• Lesið meira um lífrænar húðvörur á www.weleda.is
Útsölustaðir:
• Heilsuhúsið Kringlunni, Smáratorgi, Laugavegi, Lágmúla, Akureyri, Selfossi og Keflavík • Yggdrasill
• Lyfja Lágmúla, Smáralind, Laugavegi, Borgarnesi og Smáratorgi • Apótekið Spöngin • Apótek Vesturlands
Lyf og heilsa Kringlunni, Domus medica, JL húsinu og Austurveri • Apótekarinn Hafnarstræti • Árbæjarapótek
• Lyfjaval Mjódd • Maður lifandi Borgartúni og Hæðarsmára • Verslunin Vala Sólheimum
Weleda granatepla andlitslína
náttúrulegar snyrtivörur síðan 19
21-
Weleda 90 ára
n Siggi stormur spáir í vorið og komandi sumur
n Vorið er að koma n Mars hefur verið hundleiðin-
legur síðustu ár n Ástæða til bjartsýni í apríl„Mánuðurinn hefur
verið svolítið eins
og liðið á þinginu. Fer
bara í hringi og veit ekkert
í hvaða átt á að fara og er
alveg snarringlaður.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Siggi stormur „Við megum búast við lægri hita og vætumeiri sumrum.“
Loksins kemur vorið!
Sumar og sól Mikil hlýindi
hafa verið undanfarin sumur
og mörg hitamet fallið.
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi á
fimmtudag konu til að greiða Flug-
hótelinu í Keflavík rúmlega 340 þús-
und krónur vegna fermingarveislu
dóttur hennar sem haldin var í sal
hótelsins í fyrra.
Konan var ósátt við framkvæmd
veislunnar, sagði að matur hafi verið
framreiddur of seint og að ekki hefði
verið nóg af mat til að gestir gætu
fengið sér ábót. Þá hafi aðeins einn
starfsmaður sinnt því að bera fram
matinn og hafi framreiðslan því tek-
ið langan tíma. Konan efast einnig
um að jafnmargir gestir hefðu mætt
í veisluna og hótelið taldi.
Upphaflegi reikningurinn fyrir
veisluna hljóðaði upp á tæpar 560
þúsund krónur en konan hafði greitt
100 þúsund krónur inn á reikninginn
sem staðfestingargjald. Hún neitaði
að borga meira vegna óánægjunnar,
þrátt fyrir að forsvarsmenn hótelsins
hefðu lækkað reikninginn um 100
þúsund krónur.
Dómurinn taldi ekki sannað að
framkvæmd veislunnar hefði verið
með öðrum hætti en um var samið,
né heldur að gestirnir hefðu verið
færri en hótelið taldi. Konan var því
dæmd til að greiða hótelinu eftir-
stöðvar reikningsins, auk vaxta.
Dómsmál vegna fermingarveislu:
Þarf að borga veisluna
Fermingarveisla Konan þarf að borga ferm-
ingarveisluna þrátt fyrir að hafa verið ósátt.