Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Page 23
Fréttir | 23Helgarblað 25.–27. mars 2011
ÓJÖFNUÐUR JÓKST ÁN FORDÆMA
bankastjóra Arion banka og
Íslandsbanka að undanförnu hafi
ekki komið sér á óvart. „Nei, við
sjáum svona gagnrýni alls stað-
ar á Vesturlöndum. Enda sér fólk
að engar forsendur eru fyrir ofur-
laununum sem tóku að tíðkast í
bönkum á liðnum árum. Að segja
þau tengd „góðum árangri“ hljóm-
ar eins og súrrealískur brandari í
ljósi þess sem var að gerast í bönk-
um, ekki bara á Íslandi, þó hér hafi
menn augljóslega verið stórtækari
en annars staðar. Hvað þá að tengja
ofurlaunin við „mikla ábyrgð“ eig-
enda og stjórnenda bankanna,“ seg-
ir hann.
Að mati Stefáns hefur banka-
hrunið haustið 2008 leitt í ljós að
ábyrgð bankanna hafi legið hjá al-
menningi en ekki stjórnendunum
sem hafi þegið ofurlaun sín. „Ofur-
launin endurspegla einkum vald
til sjálftöku og lítið annað. Það er
að verða ljóst að sú þróun er skað-
leg í vestrænum samfélögum, enda
verður minna til skiptanna fyrir al-
menna launþega ef topparnir taka
svo stóran hluta veltunnar til sín,“
segir hann.
Tryggvi Þór segir gagnrýni á laun
bankastjóranna heldur ekki hafa
komið sér á óvart. „Nei, í sjálfu sér
ekki. Það er eðlilegt að þeim sem
hafa minna ofbjóði þegar þeir sem
meira hafa fá miklar launahækk-
anir. Hins vegar hefur umræða í
tengslum við laun bankastjóranna
verið í upphrópunarstíl og tæpast til
að varpa ljósi á málið,“ segir hann.
Ójöfnuður hefur lækkað
eftir bankahrunið
Eins og tafla frá Þjóðmálastofnun
sem birtist með úttektinni sýnir sést
að Gini-stuðullinn á Íslandi hef-
ur verið að lækka eftir bankahrun-
ið. Að mati Stefáns er þetta jákvætt.
„Minnkun ójafnaðar 2008 og 2009
á Íslandi er af hinu góða að mínu
mati. Með því nálgumst við aftur hin
norrænu samfélögin,“ segir hann.
Það sé líka til marks um að há-
tekjufólk fái á sig meiri tekjuskerð-
inug en lágtekjufólk. „Það þýðir að
meiri byrði leggst á breiðu bökin
sem betur ráða við kjaraskerðingu
um leið og lágtekjufólki hefur verið
hlíft að nokkru leyti með mildandi
aðgerðum. Þannig er aukinn jöfn-
uður í tekjuskiptingunni til marks
um að byrðunum er deilt með öðr-
um hætti en var fyrir hrun,“ segir
hann.
Tryggvi Þór er ekki eins jákvæð-
ur gagnvart launaþróuninni eftir
bankahrunið. „Ég tel að það sé nei-
kvætt að þvinga alla á sömu lágu
launin. Það tekur alla hvata til að
leggja á sig út og leiðir á endanum
til þess að lífskjör hér verða verri en
í samanburðarlöndum okkar,“ segir
hann.
Nálgumst Norðurlöndin
Þrátt fyrir að ójöfnuður hafi minnk-
að á Íslandi eftir bankahrunið sýnir
gagnrýni almennings á laun banka-
stjóra Arion banka og Íslandsbanka
að undanförnu fram á að ekki ríkir
full sátt hérlendis um mismunandi
launakjör. Aðspurður segir Stefán að
nýjustu mælingar á Gini-stuðlinum
hérlendis séu vel viðunandi í sam-
anburði við umheiminn almennt.
„Mér sýnist að ójöfnuður sé að
verða aftur svipaður og er á hinum
Norðurlöndunum frá og með árinu
2010. Norrænu þjóðirnar hafa byggt
upp farsælustu og sanngjörnustu
samfélög jarðarkringlunnar. Það er
held ég góður félagsskapur að vera
í fyrir Ísland. Í slíkum samfélögum
er flest í betra lagi en annars staðar
og þar er meiri sátt um launakjör al-
mennings og þar með minni for-
sendur skaðlegra stéttaátaka,“ segir
hann.
Auðvelt að hækka
laun sín á Íslandi
Tryggvi Þór segir að ójöfnuður hér-
lendis hafi ekki verið of mikill á und-
anförnum árum. „Rannsókn sem
gerð var á vegum Hagfræðistofnun-
ar fyrir nokkrum árum sýnir til að
mynda að neyslumynstur Íslend-
inga sýndi næstminnsta ójöfnuð af
94 löndum heims. Jafnframt sýndi
rannsóknin að færsla fólks úr lágum
í háar tekjur er mjög mikil á Íslandi.
Þannig voru 23 prósenta líkur á því
að Íslendingur sem var í lægstu tí-
und tekjudreifingarinnar árið 1988
væri þar ennþá árið 2000. Hins veg-
ar voru 50 prósenta líkur á að ein-
staklingur sem var í hæstu tíund-
inni 1988 væri þar ennþá 12 árum
seinna. Niðurstaðan er því að það er
auðveldara að hækka í launum hlut-
fallslega á Íslandi en lækka. Lág laun
eru því oft tímabundið ástand með-
an fólk er ungt og í námi,“ segir hann.
Skiptar skoðanir um
stefnu stjórnvalda
„Mér finnst að stjórnvöld eigi að ein-
beita sér að því að gefa öllum sem
mest tækifæri til að sjá sómasam-
lega fyrir sér og sínum,“ segir Tryggvi
Þór aðspurður hvort stjórnvöld eigi
að marka sér frekari stefnu til þess
að stuðla að minni ójöfnuði á milli
stétta. Það bæti ekki efnahagslega
velferð þess sem sé með mánaðar-
laun upp á 200 þúsund krónur að
einhver annar sé lækkaður í launum
úr 800 þúsund krónum í 500 þúsund
krónur.
Að mati Stefáns eiga stjórnvöld
á Íslandi að vera á varðbergi svo sú
launaþróun sem átti sér stað á land-
inu frá 1995 til 2007 endurtaki sig
ekki. „Hún var í senn óréttlát, ósjálf-
bær og óskynsamleg, enda hafa af-
leiðingar hennar nú lagt gríðarleg-
ar byrðar á almenning. Við munum
finna fyrir þessum afleiðingum vel
inn í framtíðina. Að standa þessa
vakt felur í sér að vernda það sem
er gott við íslenskt samfélag, vernda
hag almennings. Það er ekki nóg að
ríka fólkið græði á hagvextinum,
eins og frjálshyggjumenn segja og
framkvæma. Allir verða að græða.
Stjórnvöld síðasta áratugar fyrir
hrun hugsuðu bara um hag auð-
manna, fyrirtækja og fjárfesta en
fórnuðu hag almennings. Það má
ekki endurtaka sig,“ segir Stefán að
lokum.
Stjórar hækkuðu
Laun í
þúsundum
1998 2008 Hækkun
Stjórnendur 314 902 287%
Sérfræðingar 288 684 238%
Tæknar og sér-
menntað fólk
251 499 199%
Skrifstofufólk 149 347 233%
Þjónustu-,
sölu- og af-
greiðslufólk
149 325 218%
Iðnaðarmenn 251 479 191%
Verkafólk 158 339 215%
Póstnúmer Bæjarfélag Ginistuðull
170 Seltjarnarnes 0,450
765 Djúpivogur 0,420
625 Ólafsfjörður 0,407
755 Stöðvarfjörður 0,397
240 Grindavík 0,384
545 Skagaströnd 0,378
210 Garðabær 0,369
101 Reykjavík 0,359
675 Raufarhöfn 0,246
630 Hrísey 0,237
720 Borgarfj. eystri 0,237
233 Hafnir 0,199
670 Kópasker 0,191
870 Vík í Mýrdal 0,182
Land Stuðull
Bretland 0,324
Spánn 0,323
Ítalía 0,315
Sviss 0,302
Frakkland 0,298
Ísland 0,296
Lúxemborg 0,292
Þýskaland 0,291
Írland 0,288
Holland 0,272
Danmörk 0,270
Finnland 0,259
Austurríki 0,257
Tékkland 0,251
Svíþjóð 0,248
Ungverjaland 0,247
Noregur 0,241
Slóvenía 0,227
*Heimild: Eurostat. 0 þýðir lítill ójöfnuður
og 1 að öll laun séu á hendi eins aðila.
Meðalheildarlaun á
Íslandi 1998 og 2008
Gini-stuðull eftir sveitarfélögum
á Íslandi árið 2000:
Gini-stuðull Evrópulanda
árið 2009:
Aukningin á Vesturlöndum á sér
engin fordæmi Stefán Ólafsson, prófessor
í félagsfræði við Háskóla Íslands, segir að
aukning ójafnaðar á Íslandi á árunum 1993 til
1995 eigi sér engin fordæmi á Vesturlöndum
frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar.
Ójöfnuður ekki slæmur Tryggvi Þór
Herbertsson, prófessor í hagfræði og
alþingismaður, segir að aukinn ójöfnuður
á Íslandi vegna aukinna fjármagnstekna
fyrir bankahrunið hafi ekki alfarið verið
slæm þróun.
Rannsóknir Stefáns Ólafssonar og Arnaldar Sölva Kristjánssonar:
Ójöfnuður stórjókst
frá 1995 til 2007
Þeir Stefán Ólafsson, prófessor í fé-
lagsfræði við Háskóla Íslands, og
Arnaldur Sölvi Kristjánsson hag-
fræðingur hafa ítarlega rannskak-
að tekjuskiptingu á Íslandi á veg-
um Þjóðmálastofnunar Háskóla
Íslands. Hafa rannsóknir þeirra
leitt í ljós að ójöfnuður jókst afar
mikið á tímabilinu frá 1995 til 2007.
Tekjuskipting hefur hins vegar orð-
ið jafnari á árunum 2008 og 2009.
Í grafi með mynd má sjá breyt-
ingu á hinum svokallaða Gini-
stuðli. Á árunum 1995 til 2004
hækkaði stuðullinn um 48 pró-
sent á Íslandi. OECD lítur á hækk-
un umfram 12 prósent á tíu ára
tímabili sem „mikla aukningu“. Á
Íslandi varð hún hins vegar fjór-
um sinnum meiri. Á sú þróun sér
engin fordæmi innan ríkja OECD á
síðustu áratugum.
Í rannsóknum Þjóðmálastofn-
unar er Gini-stuðullinn mun
hærri en í mælingum Hagstof-
unnar og Eurostat, opinberrar
tölfræðistofnunar Evrópusam-
bandsins. Skýrist það af því að í
mælingum Þjóðmálastofnunar
eru fjármagnstekjur einstaklinga
líka teknar inn en ekki hjá Hag-
stofunni og Eurostat. Fjármagns-
tekjur í formi arðgreiðslna og
hagnaður af sölu hlutabréfa var
nokkuð sem stórjókst hjá fjölda
einstaklinga á Íslandi á árunum
2004 til 2008. „Frá 2005 til 2007
tók ójöfnuðurinn síðan stórt stökk
upp á við, í ofþenslu bóluhagkerf-
isins,“ segir í skýrslu Þjóðmála-
stofnunar. Áhrifin hafi þó byrj-
að að koma fram eftir árið 1999
og síðan stigmagnast allt fram að
hrunárinu 2008.