Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Page 26
26 | Erlent 25.–27. mars 2011 Helgarblað Börnum hent út af Facebook Forsvarsmenn samskiptavefjarins Facebook hafa vart undan að eyða síðum sem börn undir þrettán ára aldri hafa komið sér upp. Reglur vefjarins kveða á um að börnum undir þrettán ára aldri sé óheim- ilt að koma sér upp síðu á þessum geysivinsæla vef. Er nú svo komið að tuttugu þúsund síðum er eytt á hverjum einasta degi. „Það er til fólk sem lýgur. Við fjar- lægjum tuttugu þúsund einstaklinga af Facebook á hverjum degi,“ segir Mozelle Thompson, yfirmaður ör- yggismála hjá Facebook, og hvetur hún foreldra til að fylgjast með börn- um sínum á netinu. Kínverjar banna reykingar Kínversk yfirvöld hafa stigið stórt skref í baráttunni gegn tóbaks- reykingum. Frumvarp þess efnis að reykingar verði bannaðar á al- menningsstöðum, svo sem börum, veitingahúsum og í strætisvögnum, var samþykkt á kínverska þinginu á fimmtudag. Bannið mun taka gildi frá og með 1. maí næstkomandi. Tal- ið er að allt að fjórðungur Kínverja, eða um 300 milljónir manna, reyki daglega og deyr yfir milljón manns af völdum sjúkdóma þeim tengdum á hverju ári. Þó svo að bannið nái yfir almenningsstaði verður fólki enn leyft að reykja á vinnustöðum sínum. Stofnun leitar að snjómanni Yfirvöld í Kemerovo-héraði í Síberíu í Rússlandi ætla að setja á laggirnar sérstaka stofnun sem verður falið það vandasama verkefni að rann- saka tilkynningar um snjómann- inn ógurlega. Á undanförnum árum hefur yfirvöldum borist fjöldi til- kynninga frá fólki sem telur sig hafa séð snjómanninn. Talið er að allt að 30 vísindamenn í Rússlandi vinni að rannsóknum á þessum tilkynning- um og er vonast til þess að þeir vinni saman hjá hinni nýju stofnun. Samkvæmt þjóðsögum á snjó- maðurinn rætur sínar að rekja til Himalajafjalla en innfæddir í Kemerovo-héraði eru á öðru máli. Á hverju ári er haldinn dagur sem er tileinkaður snjómanninum. Í ár verður til að mynda keppt um hver býr til flottustu íshöggmyndina af skepnunni ógurlegu. Dmitry Medvedev fékk kærkomna heimsókn frá Deep Purple: Medvedev hitti hetjur sínar Dmitry Medvedev, forseti Rússlands, hefur löngum rembst eins og rjúpan við staurinn við að búa til viðkunn- anlegri ímynd af sjálfum sér meðal Rússa. Er hann iðulega talinn kald- lyndur og litlaus stjórnmálamaður og lítið annað en strengjabrúða for- sætisráðherrans, Vladimirs Pútín. Einn liður í baráttu Medvedevs hef- ur verið að láta í ljós aðdáun sína á rokktónlist, en hann hitti meðal ann- ars Paul Hewson, betur þekktan sem Bono í hljómsveitinni U2, í fyrra. Á dögunum rættist langþráður draum- ur Medvedevs þegar hann hitti æskuhetjur sínar í bresku þunga- rokkshljómsveitinni Deep Purple. Íslandsvinirnir í Deep Purple brostu þegar þeir hittu Medvedev og hlustuðu af athygli þegar forsetinn lýsti yfir aðdáun sinni. Sagði Medve- dev frá því að hann hefði spilað tón- list sveitarinnar í sífellu þegar hann reyndi fyrir sér sem plötusnúður í framhaldsskóla. „Þau voru nokkuð sérstök diskótekin á þeim tíma, þar sem vinsælasta tónlistin sem var spiluð var þungarokk,“ sagði hann. Þetta var á tímum Sovétríkjanna sálugu og þurfti Medvedev í þá tíð að gefa fulltrúa Kommúnistaflokks- ins hljóðsnældu með þeim lögum sem hann hugðist spila, til að ganga úr skugga um að lögin væru ekki of pólitísk. Medvedev tók á móti Deep Purple í forsetabústaðnum í Gorkí- garði og sýndi Ian Gillian og félögum meðal annars plötusafnið sitt. Urðu þeir ekki fyrir vonbrigðum þegar í ljós kom að Medvedev hafði safnað vel flestum plötum sem Deep Purple hefur gefið út á ferlinum. „Þegar ég hóf að hlusta á Deep Purple grun- aði mig aldrei að ég ætti eftir að sitja við sama borð og þið sisvona,“ sagði Medvedev við hinar öldnu rokk- stjörnur. Ian Paice, trommuleikari sveitarinnar, ákvað að gefa Medve- dev áritaða trommukjuða að launum fyrir skjallið, sem forsetinn þáði með þökkum. Fékk trommukjuða Trommuleikarinn Ian Paice, trommuleikari, gaf Medvedev áritaða trommukjuða. Söngvarinn Ian Gillian fylgist með. Loftárásir bandamanna á Líbíu halda áfram og aðfaranótt fimmtudags var gerð árás á dval- arstað MuammarS al-Gaddafi, leiðtoga Líbíu, en hann hafði sett upp tjaldbúðir við al-Azizyia í norðvesturhluta Líbíu. Þrátt fyrir að leiðtogar vesturvelda hafi gefið þá yfirlýsingu að ætlun þeirra sé ekki að koma Gaddafi fyrir kattar- nef, mætti álykta annað miðað við skotmörk loftárásanna sem hófust síðastliðinn laugardag. Að koma Gaddafi fyrir kattarnef er þó hæg- ara sagt en gert, ekki síst vegna líf- varða hans – sem eru vægast sagt auðþekkjanlegir. Lífverðir Gadda- fis eru nefnilega konur, sem ganga ævinlega um í háhæluðum skóm, með rauðan varalit – samkvæmt óskum einræðisherrans. En það er ekki hver sem er sem verður þess heiðurs aðnjótandi að kom- ast í lífvarðarsveit Gaddafis. Áralöng þjálfun nauðsynleg Gaddafi stofnaði Kvennaskólann í hernaðarlistum í Trípólí árið 1979. Ástæðuna sagði hann vera þá að hann vildi auka hag líbískra kvenna. „Ég lofaði móður minni að ég myndi bæta stöðu kvenna,“ mun Gaddafi hafa sagt við það tækifæri. Móðir hans lifði alla tíð hirðingjalífi bedúína og lærði aldrei að lesa. Þær konur sem eru svo „heppn- ar“ að komast á annað borð í her- skólann þurfa svo sannarlega að hafa fyrir hlutunum. Námið tekur þrjú ár og í því felst nám í flestum sviðum hernaðarlistar. Nemend- urnir vakna klukkan 4.30 árdegis og hefja dag sinn ávallt með því að skokka í einn og hálfan tíma. Eftir morgunverð taka kennslustund- irnar við, en þar læra nemendur bardagalistir, meðferð skotvopna, að fljúga herþotum og að skjóta upp sprengjuflaugum. Tilbúnar að deyja Í skólanum eru 100 konur nem- endur hverju sinni, en þær láta sig allar dreyma um að verða einn góðan veðurdag hluti af líf- varðasveit Gaddafis. Í hana kom- ast aðeins bestu nemendurnir en sveitin er ávallt skipuð 40 konum. Þær konur sem komast í lífvarða- sveitina þurfa að sverja þess eið að helga Gaddafi líf sitt. Þær þurfa að vera svo trúar honum að þær verða að vera skírlífar – eini mað- urinn í þeirra lífi er Gaddafi. „Án leiðtogans væru konur í Líbíu einskis virði,“ sagði Fatia, 27 ára lífvörður Gaddafis, í viðtali við kanadísku blaðakonuna Jane Kokan. „Hann gaf okkur líf. Ég er tilbúin til að deyja fyrir hann. Hann er faðir, bróðir og vinur sem þú getur treyst. Þú hefur enga hugmynd um hversu auðmjúkur hann er.“ Gaddafi slapp, þökk sé lífverði Að minnsta kosti einu sinni hefur gerst að kona úr lífvarðasveitinni fórnaði lífi sínu fyrir Gaddafi. Árið 1998 var gert umsátur um bílalest leiðtogans þar sem öfgafullir mús- limar gerðu tilraun til þess að ráða hann af dögum. Kúlnahríð dundi á bifreið Gaddafis en lífverðir hans köstuðu sér fyrir byssukúlurnar hver af annarri. Ein þeirra, Aisha, lét lífið en hún féll eftir að hafa hlot- ið tugi skotsára. Tvær aðrar konur í lífvarðasveitinni særðust alvarlega, væntanlega ánægðar með að hafa sinnt skyldu sinni. Hreinar meyjar Gaddafis n Bandamenn halda sprengjuárásum á Líbíu áfram og hafa nú tvisvar gert árás á tjaldbúðir Gaddafis n Hann nýtur ætíð verndar 40 lífvarða, sem allir eru konur n Þær þurfa að vera hreinar meyjar og ganga ætíð í háhæluðum skóm n Eftirsótt staða sem krefst áralangrar þjálfunar„Hann gaf okkur líf. Ég er tilbúin til að deyja fyrir hann. Hann er faðir, bróðir og vinur sem þú getur treyst. Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is Gaddafi og lífverðirnir Á ráðstefnu í París. Í bak- grunni má sjá þrjár konur úr lífvarðasveit leiðtogans. Ávallt með rauðan varalit Ónafngreind stúlka í lífvarðasveitinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.