Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Page 29
Umræða | 29Helgarblað 25.–27. mars 2011
„Ekkert álag,
bara gaman“
Yngvi Gunnlaugsson, þjálfari
karla- og kvennaliðs Vals í körfubolta,
vann það afrek að koma báðum
liðunum upp í úrvalsdeild með innan
við sólarhrings millibili. Þökk sé honum
verður Valur með karla- og kvennalið
allra stóru boltagreinanna í efstu deild
á hundrað ára afmæli félagsins.
Hver er maðurinn?
„Yngi Páll Gunnlaugsson, Kópavogsbúi,
fæddur 21.04.78.“
Hvar ertu uppalinn?
„Sleit barnsskónum á Kársnesinu, Hraun-
brautinni. Hef ég verið rótlaus síðan, búinn
að ferðast mikið.“
Hvað drífur þig áfram?
„Lífið, það er svo skemmtilegt.“
Hvar vildirðu helst búa ef ekki á Íslandi?
„Hvar sem er, ef konan mín og barn eru með
mér.“
Hver er uppáhaldskörfuboltamaðurinn
þinn?
„Allra tíma? Það er Isiah Thomas.“
Með hverjum heldurðu í NBA?
„Ég held samt með Chicago Bulls.“
Hvernig er tilfinningin að hafa klárað
tímabilið með svona svakalegum glans?
„Það auðvitað gerist ekki betra, nema
kannski með Íslandsmeistaratitli, en þetta
verður bara að duga í bili.“
Hversu mikið hefur álagið verið síðustu
vikur?
„Þetta er ekkert álag, bara skemmtun. Ég
væri til í að vera alla vega einn mánuð í
þessu í viðbót fyrir sumarfrí.“
Var ekki mikill léttir fyrir karlaliðið að
komast loksins upp?
„Jú, ég efa það ekki en þetta er auðvitað
bara annað árið sem ég er með það. Kannski
hefur þetta legið þungt á sálinni hjá leik-
mönnunum en þolinmæði þrautir vinnur
allar.“
Munt þú stýra báðum liðunum áfram?
„Það er bara of snemmt að segja.“
„Já, vitaskuld.“
Þórir Hrafn Gunnarsson
30 ára lögfræðingur
„Heldur betur.“
Ólöf Rut Stefánsdóttir
23 ára nemi við LHÍ
„Já, ég mun fara á HönnunarMars.“
Lovísa Arnardóttir
25 ára ráðgjafi hjá UNICEF
„Ekki spurning.“
Finnborg Salóme Steinþórsdóttir
25 ára nemi
„Já, sérstaklega sýninguna hjá Hlutlægu.“
Ari Tómasson
30 ára hipster
Maður dagsins
Ætlar þú að mæta á viðburði tengda HönnunarMars?
Segir skilið við Stundina okkar Björgvin Franz ræðir við samstarfsmenn sína á Markúsartorgi eftir að tökum lauk á síðasta þætti Stundarinnar okkar í umsjón
hans. MYND SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON
Myndin
Dómstóll götunnar
L öngum hefur verið til siðs að ræða ástand þjóðmálanna á fundum í alls konar félögum
hringinn í kringum landið undir þessu
heiti: Stjórnmálaviðhorfið – eða Stjórn-
málaástandið eins og það er reyndar
oft kallað líka þegar menn gerast djarf-
ari. Að vísu hefur þetta ágæta yfirheiti
dottið úr tísku undangengin ár. Í seinni
tíð hafa kynningarfulltrúar fundarboð-
enda gjarnan trommað upp með mun
ágengari og meira krassandi fundar-
heitum. Oft með áleitnum spurning-
um á borð við þessar: Er ríkisstjórnin
að falla? Er framtíðin fólgin í fallvötn-
unum? Drepur kvótakerfið byggðina?
Svona ágengni tíðkast einnig í pistla-
skrifum á borð við þessi – og jafnvel
enn fremur. Þessa vikuna gæti ég til
að mynda boðið upp á þessa: Icesave-
fjötrarnir varða leiðina til ánauðar. Ég
gæti lagt fyrir mig stuðlun og sagt: Jafn-
réttisráðherra brýtur jafnréttislög! Ef
sá væri gállinn á manni gæti ég einn-
ig slengt þessari fram: Alþingi er ónýtt!
Eða gerst persónulegur og sagt: Lýð-
skrumari fer í fýlu og skellir hurðum.
Það ætla ég hins vegar ekki að gera –
ekki að þessu sinni. Í þessari grein ætla
ég að rammíslenskum sið einfaldlega
að ræða stjórnmálaviðhorfið þessa vik-
una. Sem er að vísu ekki beysið.
Órólega deildin klofnar
Þegar þingmenn yfirgefa stjórnar-
meirihlutann hlýtur stjórnarliðið að
veikjast. Það segir sig eiginlega sjálft.
Samt hafa menn haldið því fram að
ríkisstjórnin hafi nú bara styrkst við
það að Atli Gíslason og Lilja Móses-
dóttir hafi yfirgefið þingflokk VG. Yfir-
leitt væru svona yfirlýsingar aðeins
hefðbundin öfugmælavísa að hætti
PR-deilda stjórnmálaflokkanna. En að
þessu sinni gæti að vísu verið einhver
innistæða fyrir slíku mati. Atli og Lilja
hafa ekki verið hluti af stjórnarliðinu
um langa tíð. Sem stjórnarandstæð-
ingar innan stjórnarliðsins höfðu þau
gríðarleg áhrif á þjóðmálaumræðuna
þegar þau settu sig upp á móti mál-
um ríkisstjórnarinnar. En nú eru þau
formlega komin í stjórnarandstöðu og
þar með fjarar um leið undan áhrifum
þeirra. Nú verða andmæli þeirra eins
og hvert annað kvak. Annars vakti það
mesta athygli mína hvað klofningurinn
varð lítill þegar hann loksins kom fram.
Hingað til hafa á bilinu fimm til sex
þingmenn VG verið taldir til órólegu
deildarinnar en við uppgjörið voru
það aðeins tveir sem gengu út. Það er
nefnilega ekki síður mikil yfirlýsing
fólgin í áframsetu hinna í þingliði VG.
Einvígið
Önnur Icesave-kosningin vofir nú yfir.
Bæði forsetinn og ríkisstjórnin hafa
þvert á fyrri skilning manna kappkost-
að að lýsa því yfir að kosningin hafi bar-
asta engin áhrif á stöðu þeirra. Hvorki
til né frá. Sem er auðvitað fráleit túlk-
un á stjórnskipaninni. Með ákveðnum
vilja er hægt að halda því fram að í fyrri
kosningunni hafi ekki farið fram eigin-
legt uppgjör milli forseta og ríkisstjórn-
ar því að þá þegar hafi tilboð um betri
samning legið fyrir. Fyrri Icesave-kosn-
ingin hafi því eiginlega verið marklaus.
Ekkert slíkt á við núna. Málið er núna
komið á endastöð. Forsetinn hafnaði
því að undirrita lögin um þann samn-
ing sem ríkisstjórnin gerði við Breta
og Hollendinga og hlaut yfirgnæfandi
stuðning á Alþingi. Því getur hvorki
forsetinn né ríkisstjórnin vikið sér und-
an þeirri stöðu að nú er komið á hreint
og klárt einvígi. Felli þjóðin Icesave-
lögin á ríkisstjórnin að mínu mati að
víkja. Það sama á forseti vitaskuld að
gera samþykki þjóðin lögin og gangi
þannig gegn synjun forsetans. Það að
þjóðaratkvæðagreiðslan hafi engin
áhrif á stöðu ríkisstjórnar eða forseta
er stjórnskipunarlegur bastarður og á
ekki að líðast.
Jóhanna og jafnréttismálin
Auðvitað er það neyðarlegt fyrir Jó-
hönnu Sigurðardóttur að Jafnréttisráð
hafi úrskurðað að við ráðningu Arn-
ars Þórs Mássonar í starf skrifstofu-
stjóra hafi verið gengið fram hjá Önnu
Kristínu Ólafsdóttur með ólögmætum
hætti. Sér í lagi í ljósi harðra yfirlýsinga
hennar um sambærileg mál þegar hún
var í stjórnarandstöðu. En hverjar eru
staðreyndir málsins?
Arnar Þór hefur meistaragráðu í
opinberri stjórnsýslu og hefur um ára-
bil unnið sem embættismaður innan
stjórnsýslunnar, bæði í fjármálaráðu-
neytinu og forsætisráðuneytinu þar
sem hann hefur leitt mörg stór stjórn-
sýsluverkefni. Hann hefur einnig kennt
stjórnsýslufræði við Háskóla Íslands
og unnið að uppbyggingu Stofnunar
stjórnmála- og stjórnsýslufræða í HÍ.
Anna Kristín Ólafsdóttir hefur sam-
bærilega menntun en einkum starfað
sem pólitískur aðstoðarmaður inn-
an Samfylkingarinnar, fyrst aðstoðaði
hún Ingibjörgu Sólrúnu í ráðhúsinu og
svo Þórunni Sveinbjarnardóttur í um-
hverfisráðuneytinu auk ýmissa ann-
arra starfa. Án þess að leggja mat á
hæfi þeirra hér þá liggur fyrir að ráðn-
ingarnefndin raðaði Önnu Kristínu í
fimmta sætið en Arnari Þór í það fyrsta.
Jafn neyðarlegur og úrskurður Jafn-
réttisráðs svo sannarlega er þá hefði
það auðvitað verið fullkomin mis-
beiting valds hefði Jóhanna Sigurðar-
dóttir ráðið flokkssystur sína alla leið-
ina úr fimmta sætinu og þar með fram
hjá hinum óháða embættismanni sem
ráðningarnefndin taldi hæfastan.
Vandlifað
Ég gæti týnt til ýmis önnur mál sem
féllu til í vikunni, svo sem stjórnlaga-
ráðið, kvótakerfið, álversframkvæmdir
og margt fleira. En þessi þrjú sem hér
hafa verið reifuð sýna að ansi vandlifað
er í íslenskum stjórnmálum um þessar
mundir.
Stjórnmálaviðhorfið
Kjallari
Dr. Eiríkur
Bergmann