Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Page 32
32 | Viðtal 25.–27. mars 2011 Helgarblað
É
g var langyngstur á hjarta
deildinni,“ segir Svavar
Halldórsson, fréttamað
ur á RÚV, en fyrir fjórum
árum fékk hann hjarta
áfall aðeins 37 ára að aldri. Svavar seg
ir hjartaáfallið hafa komið til vegna
erfða, neysluvenja og ekki síst þess
mikla álags og streitu sem fylgi því að
vera fréttamaður. Því álagi fékk hann
til að mynda að kynnast í vikunni þeg
ar kveðinn var upp úrskurður í meið
yrðamáli Pálma Haraldssonar á hend
ur honum.
Svavar hlaut fulla sýknu í héraðs
dómi ásamt samstarfsfólki sínu, Maríu
Sigrúnu Hilmarsdóttur og Páli Magn
ússyni, en fagnaðarlæti brutust út í
dómsal þegar niðurstaðan lá fyrir.
Svavar segir málshöfðanir Pálma og
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á hendur
sér til að hræða blaðamenn og heim
ildarmenn þeirra. Svavar segist fyrr
láta dæma sig sekan en að gefa upp
heimildarmenn sína.
Svavar er mikill fjölskyldumaður og
á þrjár dætur úr fyrra sambandi auk
fimm ára sonar og tveggja ára dóttur
með sambýliskonu sinni, sjónvarps
stjörnunni Þóru Arnórsdóttur. Á góð
ærisárunum hafnaði hann hálauna
starfi til þess að geta eytt meiri tíma
með fjölskyldunni og einsetur hann
sér að vera manneskja sem börnin geti
verið stolt af.
Reyndi að fá tíma
hjá hjartalækni
„Þetta var mikið sjokk,“ segir Svavar um
hjartaáfallið en hann var í sumarfríi
með fjölskyldunni þegar hann hneig
niður. „Ég var mjög heppinn. Það kom
ekkert drep í hjartað sem hefði ver
ið mjög slæmt.“ Svavar var staddur á
Siglufirði í heimsókn hjá systur sinni
þegar hann fékk hjartaáfallið.
„Ég var búinn að reyna að panta
tíma fyrir sumarfríið. Ég hafði þegar
fundið fyrir mæði, einhverjum sting
og óþægindum.“ Það var kransæð sem
stíflaðist með fyrrgreindum afleiðing
um.
Svavar telur ástæðuna fyrir hjarta
áfallinu hafa verið margþætta. „Að
einhverju leyti gen, maður passaði sig
ekki nægilega vel í mat og drykk og
svo starfið sem ég valdi mér. Það er oft
gríðarlegt álag sem fylgir þessu starfi
og stíf tímapressa. Ég er mikið í stærstu
og þyngstu málunum og því fylgir auk
ið álag,“ segir Svavar en hann vill vera
þar sem mesti hasarinn er, fyrst hann
er í þessu starfi á annað borð. „Á með
an ég er í þessu starfi þá vil ég vera þar.
Í eldlínunni og í stóru málunum. Svo
vil ég auðvitað líka gera hverja og eina
frétt vel. Ef ég get gert fréttina vel og
það er aðalfréttin þá leggst ég sáttur á
koddann,“ segir hann og brosir. „Það
er viss umbun í því að eiga fyrstu frétt.
Þá finnst mér ég hafa skilað góðu dags
verki. Maður fær alla vega ekki umbun
í launaumslaginu í þessu starfi.“ Hins
vegar er starfið afskaplega gefandi og
skemmtilegt segir Svavar. „Samstarfs
fólkið á fréttastofunni er líka frábært,
valinn maður í hverju rúmi og eigin
lega engir veikir hlekkir.“ Álagið hafi
aukist gríðarlega frá hruni á sama tíma
og skorið hafi verið mikið niður. „Það
beita sko allir bjóðin sín og enginn sem
getur tekið því rólega á fréttastofunni.“
Allt getur breyst á augabragði
Svavar prísar sig sælan eftir áfallið en
hann er við góða heilsu í dag. „Þetta
fór betur en á horfðist og maður passar
sig mun betur í dag. Það skiptir mestu
máli að hreyfa sig reglulega.“ Það
breytti lífsviðhorfum Svavars að upp
lifa áfall af þessu tagi. „Maður áttar sig
á því hvað hlutirnir geta breyst hratt.“
Svavar segir ýmislegt koma upp í lífi
hvers og eins sem fái fólk til að endur
skoða hlutina og það hafi hann gert
fyrir um áratug. „Fyrir svona tíu árum
fór ég í ákveðna sjálfsskoðun og ákvað
að setja mér persónuleg prinsipp. Ég
reyndi að skoða mig eins hlutlaust og
hægt er. Hvernig manneskja ég væri og
hvernig manneskja ég vildi vera. Svo
reyndi ég að sníða agnúana af.
Ég hugsa þetta aðallega út frá því
að ég geti verið maður sem börnin
mín geti verið stolt af. Ef börnin mín
eru spurð að því hver sé pabbi þeirra
geti þau svarað því með stolti. Það er sá
maður sem ég vil vera. Þó svo að það
takist auðvitað ekki alltaf. En á með
an ég reyni þá held ég að ég nálgist
það.“ Hann segir þetta svipað í frétta
mennskunni. Ef maður reyni að vera
sanngjarn og hlutlaus en um leið
gagnrýninn og beittur, þá fari maður
væntanlega nærri því þótt það takist
kannski ekki alltaf.
Fjölskyldan númer eitt
Svavar leggur mikla áherslu á fjöl
skylduna og segir börnin alltaf vera í
fyrsta sæti. Annað komi einfaldlega
þar á eftir. Til að mynda bauðst Svav
ari vel launað starf utan fjölmiðlageir
ans í góðærinu en það hefði þýtt mikla
fjarveru frá börnunum og ferðalög er
lendis. „Fyrsta spurningin sem ég fékk
í atvinnuviðtalinu var: „Spilarðu golf?“
Ég hugsaði þá; vel launað starf þar sem
ég sé ekki börnin eða illa launað blaða
mannsstarf þar sem ég get átt góðan
tíma með börnunum. Valið var ekki
erfitt.“
Þegar Svavar skildi við barnsmóð
ur sína sem hann á stelpurnar þrjár
með ákvað hann að halda áfram að
taka virkan þátt í uppeldinu. „Ég ákvað
strax að ég ætlaði ekki að vera einhver
helgarpabbi sem setur pening í um
slag um jólin. Heldur ætlaði ég að vera
alvörupabbi og taka þátt í uppeldinu.
Ég hef gert það allan tímann og það
eru mjög góð tengsl þarna á milli. Sem
er mjög mikilvægt og þær eiga tvö frá
bær heimili.“
Svavar segir það þó auðvitað hafa
verið erfitt að ganga í gegnum skiln
að. „Tölum ekki um þegar þú ert með
þrjú börn á leikskólaaldri. Þetta er ekk
ert grín og ég mæli ekki með þessu við
neinn. En okkur hefur alltaf tekist að
hafa dæturnar í öndvegi og þetta hefur
gengið mjög vel.“
Sálufélaginn Þóra
Í dag er konan í lífi Svavars, eins og fyrr
sagði, Þóra Arnórsdóttir sjónvarps
kona. Þóra sagði frá því í viðtali við DV
fyrir nokkru að það hefði verið skrítið
að hugsa til þess að sálufélagi henn
ar hefði verið starfandi í sama húsi
og hún í þó nokkurn tíma áður en
þau kynntust. Þótt þau þekktust fyr
ir lágu leiðir þeirra fyrir alvöru saman
fyrir hálfgerða tilviljun þegar nokkrir
vinnufélagar hittust eftir vinnu. Meira
þurfti ekki til og ástin blómstraði. Sú
ást hefur alið af sér son sem er nú fimm
ára og dóttur sem er tveggja ára. Svav
ar er þakklátur fyrir konuna í lífi sínu
og fyrir þann stuðning sem þau veita
hvort öðru.
„Þóra er frábær og við erum mjög
samhent. Við vinnum í sama bransa
og höfum að minnsta kosti tvisvar
upplifað það að vinna á hvort á sínum
miðlinum. Það var ekkert vandamál.“
Svavar segir að engir árekstrar séu á
milli atvinnu og einkalífs, heldur þvert
á móti. „Það er frekar að við köstum
á milli okkar hugmyndum og ræðum
hlutina. Hún á til dæmis oft hugmynd
ir að málum sem ég er að vinna að og
öfugt.“
Svavar segir þau líka gagnrýna
hvort annað á uppbyggilegan hátt.
„Það er mjög gott að vera með sinn eig
in ráðgjafa í þessu. Það getur líka verið
óþolandi að horfa á fréttir með okkur
þar sem við ræðum hvert einasta smá
atriði í hörgul og veltum upp öllum
hugsanlegum vinklum.“
Sannleikur Svavars
Það var fyrir einskæra tilviljun að Svav
ar rataði yfirhöfuð í fréttamennsku.
Svavar fór í háskólanám um þrítugt en
fram að því hafði hann starfað í hinu
og þessu. Hann hafði meðal annars
verið á sjó og stofnað sitt eigið fyrir
tæki. Hann fór á endanum í stjórn
málafræði í Háskóla Íslands og tók svo
master í opinberri stjórnsýslu.
„Það var svo fyrir rælni að ég sótti
um starf hjá fréttastofu útvarpsins á
meðan ég var í háskólanum. Vinkona
mín sem var með mér í náminu var
að sækja um og ég skilaði líka inn um
sókn bara að gamni. Ég var svo boð
aður í fréttamannapróf og hef verið í
þessu síðan.“ Svavar hefur að auki tek
ið að sér nokkur verkefni þar sem hann
nýtir stjórnmálafræðimenntunina sér
staklega, meðal annars í samvinnu
við erlenda háskólamenn sem eru að
rannsaka hrunið. Hann er formaður
í Félagi stjórnmálafræðinga og fylgist
enn vel með í fræðunum.
Svavar er þakklátur fyrir að hafa
byrjað blaðamennskuferil sinn á
fréttastofu Útvarpsins því þar hafi
hann lært vönduð og góð vinnubrögð
sem hafi fylgt honum alla tíð. Svavar
er til að mynda sannfærður um að þau
vinnubrögð hafi hjálpað honum í mál
um eins og þeim sem Pálmi Haralds
son höfðaði gegn honum. En hvernig
var tilfinningin á þriðjudagsmorgun
þegar sýkna lá fyrir í málinu?
„Það var frábær tilfinning að fá
fulla sýknu. Maður var búinn undir
það versta en vonaði það besta,“ segir
Svavar en baráttan er einungis hálfn
uð því að Pálmi hefur áfrýjað mál
inu til Hæstaréttar. „Ég hef fulla trú
á Hæstarétti í málinu og hef í raun
engar áhyggjur. Ég hef sagt allan tím
ann að sannleikurinn sé mín megin.
Við hjá Ríkisútvarpinu skömmumst
okkar ekki neitt fyrir að leiðrétta vit
leysur sem kunna að rata út í frétta
tímanum. Kjarni málsins er hins vegar
sá að ég hef engu logið og engu stolið.
Fréttin var byggð á rannsóknarvinnu
og traustum heimildum. Hún stend
ur óhögguð þrátt fyrir harða atlögu
Pálma.“
Frétt Svavars af Fons
Fréttin sem Svavar sagði af Pálma var
um 2,5 milljarða sem Fons, fyrirtæki
Pálma, fékk að láni frá Glitni fyrir hrun
þar sem skuldaviðurkenning frá Baugi
var sett sem veð. Í fréttinni segir að
peningarnir hafi „horfið í reyk“ eins og
Svavar orðaði það. Pálmi kærði Svav
ar fyrir meiðyrði en hluti af málsvörn
Pálma var að það hefði verið Fons sem
tók lánin en ekki Pálmi persónulega.
„Við fundum yfir fimmtíu dæmi
þar sem hann hefur sjálfur samsamað
sig við Fons. Þannig að sá hluti máls
höfðunarinnar stenst enga skoðun.
Síðan kemur hann með nótur og segist
geta gert grein fyrir því hvað varð um
peningana. Þeir hafi að mestu farið í
að greiða upp lán í Landsbankanum.
Hann sýndi í raun bara fram á eina
færslu einhverra peninga á milli reikn
inga Fons í Glitni og Landsbankanum.
Ekkert endilega sömu peninga. Fyrir
tækið velti milljörðum á þessum tíma
og Fons fékk til dæmis annað lán hjá
Glitni í sömu vikunni upp á tíu millj
arða. Svo stendur skýrt í lánasamn
ingnum á milli Fons og Glitnis að féð
skuli fara til fjárfestinga. Hvernig getur
það talist fjárfesting að borga upp gam
alt lán? Ef Pálmi hefði í raun haft ein
hvern hug á því að sýna hvað varð um
þessa peninga þá hefði hann lagt fram
reikningsyfirlit, lánasamninga og mik
ið víðtækari gögn þar sem hann hafði
augljóslega aðgengi að bókhaldsgögn
um Fons. Hann sýnir í raun bara fram
á pínulítinn part af vegferð verðmæta
sem enduðu auðvitað einhvers staðar.
Hann tók lán í Landsbankanum, eng
inn veit hvert það fór, fékk svo annað
lán í Glitni og segist hafa notað það til
að borga upp Landsbankalánið. Stað
reyndin er eftir sem áður að hann
sýndi ekki fram á hvar verðmætin end
uðu. Svo er þetta ennþá ógreitt í Glitni
og Fons er í 40 milljarða gjaldþroti. Ég
sagði að peningarnir væru týndir sem
er rétt og þeir hafa aldrei verið greiddir
til baka. Staðreyndin er einfaldlega sú
að málatilbúnaður Pálma snerist um
að sýna fram á hvað varð um pening
anna, að fréttin væri röng að því leyti.
Honum mistókst það. Dómarinn sá
sem betur fer í gegnum þetta og fréttin
stendur.“
„Fyrr læt ég dæma mig“
Bæði Pálmi og Jón Ásgeir Jóhannes
son hafa svo stefnt Svavari vegna
frétta sem hann sagði af viðskipt
um Fons og Pace í Panama. „Fréttin
gengur í stuttu máli út á það að Fons
millifærði þrjá milljarða á Pace í Pan
ama. Sex dögum síðar var gengið frá
Svavar Halldórsson fréttamaður á RÚV fékk
hjartaáfall fyrir fáeinum árum. Hann segir hluta
ástæðunnar vera álagið sem fylgi starfinu. Svavar
segir það hafa verið erfitt að ganga í gegnum skilnað
með þrjú börn á leikskólaaldri en að hagur barnanna
hafi orðið ofan á. Hann nýtur stuðnings frá sálufélaga
sínum, Þóru Arnórsdóttur, í leik og starfi og fjölskyld-
an reynir að slá eigið tímamet í að tjalda í sumarfríinu.
Ásgeir Jónsson ræddi við Svavar um meiðyrðamálin
gegn honum, starfið sem hann hafnaði fyrir fjölskyld-
una í góðærinu og hótelið sem hann ætlar að reka
með fjölskyldunni í sumar.
LANGYNGSTUR
Á HJARTADEILDINNI
Fagnaðarlæti í dómsal Þóra og Svavar
faðmast eftir að hann, María Sigrún og Páll
Magnússon voru sýknuð.
MYND SIGTRYGGUR ARI
Ríkur maður Börnin hans Svavars.
„Ég var mjög hepp-
inn. Það kom ekk-
ert drep í hjartað sem
hefði verið mjög slæmt.