Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Page 33
Viðtal | 33Helgarblað 25.–27. mars 2011
lánasamningi. Í yfirlýsingu frá Pálma
vegna fyrri frétta af málinu sagði hann
að þessir peningar hefðu átt að fara í
fasteignaverkefni og fleira þess hátt-
ar. En sama dag og gengið er frá lána-
samningum þá er þetta afskrifað í
bókhaldi Fons. Það eitt og sér er mjög
merkilegt. Við þetta hafa þeir félagar
ekki gert athugasemd.
Síðan sagði ég í niðurlagi fréttar-
innar að yfirvöld hefðu undir hönd-
unum gögn sem þau teldu að bentu til
að peningarnir hefðu runnið aftur til
baka í vasa Pálma, Jóns og Hannesar
Smárasonar. Það er það sem þeir gera
athugasemdir við. En þessi gögn eru
til og það er verið að rannsaka þetta.
Ég hef nákvæmlega engar áhyggjur af
þessum málaferlum. Jafvel þeim fínu
og dýru lögmönnum sem eru á mála
hjá Jóni Ásgeiri og Pálma tekst ekki að
snúa út úr grjóthörðum staðreyndum.“
Svavar telur að með þessum máls-
höfðunum eigi hann að verða víti til
varnaðar. „Það á að hræða mig, Ríkis-
útvarpið, aðra fjölmiðla og blaðamenn
frá því að fjalla um þessi mál á gagn-
rýninn hátt. Það fer eflaust líka í taug-
arnar á þeim þegar það heppnast að
taka svona flókið mál og útskýra það
á einfaldan hátt í stuttri sjónvarpsfrétt
með grafík svo að hvert mannsbarn
skilur. Grafíkerarnir uppi á RÚV eiga
heilmikið í þessum fréttum.“
Svavar segir að Pálmi og Jón Ásgeir
hafi viljað vita hvaðan heimildirnar
kæmu. „Fyrr læt ég dæma mig en að
gefa það upp.“ Svavar hefði getað gef-
ið upp heimildarmenn sína í málinu
sem dómur er nýfallinn í og kallað þá
fyrir réttinn til að styrkja mál sitt gegn
Pálma, en trúnaður við heimildar-
mann er heilagur í hans augum sem
og flestra blaðamanna. „Því þeir eru
ekki bara að reyna að hræða blaða-
menn heldur einnig að hræða fólk frá
því að tala við blaðamenn.“
Fær hnút í magann
En hvernig líður Svavari þegar hann
fær stefnu afhenta? „Maður fær auð-
vitað dálítinn hnút í magann. En eins
og ég segi þá lærði ég öguð og vönd-
uð vinnubrögð og þegar um er að
ræða svona stórar fréttir þá eru fleiri
sem fara yfir þetta. Passa upp á að
allt sé eins og það á að vera. Þannig
að maður er samt alveg rólegur þrátt
fyrir allt.“
En þó að Svavar hafi trú á sínum
málum þá auka þessir hlutir álagið til
muna. „Þetta er gríðarlegt aukaálag á
mig, fjölskylduna og aðra á fréttastof-
unni. Það auðvitað vita þeir og þess
vegna standa þeir í þessu. Það tekur á
að standa í þessu.
Það er mjög merkilegt að til dæmis
Jón Ásgeir, sem sagði fyrir rétti í Lond-
on að hann ætti ekki nema 200 millj-
ónir, skuli klípa af þeim litla pening
til að fara í meiðyrðamál við mig. Því
ef æra hans eða Pálma er löskuð þá
er það alveg örugglega ekki mér að
kenna.“
Hlustar á reggí
Svavar hefur sínar leiðir til þess að
takast á við þetta aukaálag og álagið
sem fylgir starfinu almennt. Hann
hlustar til dæmis á reggítónlist þeg-
ar hann færi tækifæri til. Við kom-
um svo aftur að fjölskyldunni sem er
rauði þráðurinn í lífi hans. „Við Þóra
förum í badminton einu sinni í viku
sem er mjög skemmtilegt. Við reyn-
um líka að eiga reglulega tíma bara
fyrir okkur. Eiga til dæmis morgn-
ana saman þegar ég er á frívakt. Hún
mætir aðeins seinna en ég en vinnur
líka lengur fram á kvöld. Þá förum við
stundum í bakaríið og kaupum rún-
stykki, setjumst svo niður með bakk-
elsið og blöðin og förum yfir það sem
er að gerast. Þóra er auðvitað stóra
ástin í lífi mínu og það besta sem ég
veit er að eiga stundir með henni og
krökkunum.
Við höfum líka reynt að skjótast í
helgarferðir til einhverra menningar-
borga en það er ekki oft sem tími gefst
til þess. Síðan höfum við notað sumr-
in til að ferðast mikið innanlands.
Við eigum 12 ára gamlan jeppa með
tengdamömmuboxi. Svo eru það bara
allir krakkarnir fimm í bílinn, tjaldið og
síðan þvælumst við um landið. Stund-
um svo vikum skiptir.“
Svavar og fjölskylda hafa ferðast
mikið um Ísland og reyna að taka einn
landshluta fyrir í einu. „Það er ekkert
vit í því að fara til útlanda yfir sum-
arið. Landið sem við búum á er því-
lík perla. Maður tekur bara með sér
stuttbuxur, lopapeysu og regngalla
og þá er maður klár í allt.“
Fjölskyldan er orðin svo vön því
að vera á ferðinni með tjaldið að
hún er búin að koma sér upp kerfi
þegar kemur að því að tjalda. Þau
taka jafnvel tímann og reyna að
bæta eigið met. Metið er 20 mín-
útur frá því að bíllinn stoppar.
Tjalda og koma öllu dótinu fyrir.
Það getur komið sér vel þegar illa
viðrar.“
Hótelrekstur á Vestfjörðum
Í sumar ætlar öll fjölskyldan
að eyða fríinu saman vestur á
fjörðum. „Við ætlum að taka að
okkur að reka litla bændagist-
ingu í Bjarnardal í Önundar-
firði. Við fáum svo sem lítið út
úr því nema bara fyrir kostn-
aðinum enda er það samver-
an sem við erum að leita eft-
ir.“ Svavar er mjög spenntur
fyrir verkefninu og seg-
ir að öll fjölskyldan muni
hjálpast að við það. „Stóru
stelpurnar munu fá sín
verkefni og smá laun fyr-
ir það. Þær verða í því að
undirbúa morgunmat-
inn og einhverju fleira.
Þetta verður svona fjöl-
skylduframtak að halda
staðnum gangandi og
við hlökkum mikið
til. Þannig ættum við
Þóra að geta hlað-
ið batteríin og mætt
tvíefld til leiks eftir
sumarfríið.“
asgeir@dv.is
LANGYNGSTUR
Á HJARTADEILDINNI
Svavar og Þóra „Við erum mjög sam-
hent. Við vinnum í sama bransa og höfum
að minnsta kosti tvisvar upplifað það að
vinna á hvort á sínum miðlinum. Það var
ekkert vandamál.“
MYND SIGTRYGGUR ARI
„Við Þóra
förum
í badminton
einu sinni í viku
sem er mjög
skemmtilegt.
„Fyrr læt
ég dæma
mig en að gefa
það upp.