Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Síða 35
Viðtal | 35Helgarblað 25.–27. mars2011 Að loknu stúdentsprófi úr Verzl­ unarskólanum starfaði Bragi um nokkurra ára skeið sem blaðamaður á Vikunni og Vísi og vann meira að segja sem ráðskona hjá Sverri Har­ aldssyni. Sverrir var litríkur lista­ maður og á heimilinu voru oft hald­ in partí. Bragi sá um að ekkert færi alvarlega úr skorðum á heimilinu. Það var í ráðskonuhlutverkinu sem ástin varð fyrst á vegi hans en í einu partíinu heima hjá Sverri hitti hann verðandi eiginkonu sína, Nínu Árna­ dóttur. Nína og Bragi urðu skjótt ástfangin, giftu sig árið 1966 og ári seinna fæddist þeim sonurinn Ari Gísli. Ari Gísli og Bragi hafa unnið sam­ an í meira en áratug að uppbyggingu verslunarinnar. Ari er kvæntur Sig­ ríði Hjaltested leirlistakonu. Árið 1973 fæddist þeim annar sonur, Valgarður, sem kvæntur er Huldu Vilhjálmsdóttur myndlist­ arkonu, og árið 1977 fæddist þriðji sonurinn, Ragnar Ísleifur, sem starf­ ar í dag við kvikmyndagerð. Bragi segist stoltur af öllum sonum sínum. Þeir séu ólíkir en eigi það þó allir sameiginlegt að búa yfir ljúfri lund og mikilli næmni. „Þeir hafa allir af­ rekað ýmislegt, synir mínir. Helst er ég stoltur af þeim fyrir að rata sína leið með sínum hætti.“ Bragi seg­ ir Ara vera hæglátan og hlýjan fjöl­ skyldumann, Valgarð bráðlátari hæfileikamann og þann yngsta, Ragnar Ísleif, sýna mikla hæfileika á sviði leikritunar og í kvikmyndagerð. Skugga bregður á lífið Á þessum árum meðan strákarn­ ir voru litlir, orti kona hans Nína heilmikið. Ljóðunum hennar var vel tekið og hún var orðin viður­ kennd á Íslandi. Spurður um sam­ líf þeirra hjóna segir hann fyrstu ár þeirra saman hafa einkennst af mik­ illi vinnu og ást. Nína vann ötullega að list sinni en skugga bar þó á gleði þeirra hjóna þegar Nína veiktist þar sem þau bjuggu í Kaupmannahöfn og stunduðu nám. Nína reyndi að svipta sig lífi. Það varð henni til lífs að nágrannakona kom að og kom henni á spítala. Nína jafnaði sig á þessum skyndilegu veikindum með aðstoð lyfja um sinn. Álagið reið hjónabandinu að fullu Bragi, Nína og strákarnir fluttust aftur heim til Íslands og Bragi opn­ aði fornbókaverslunina, þá á Skóla­ vörðustíg 20. Bragi segir áhugann hafa blundað í sér alla tíð. Kaup­ mennskunni kynntist hann svolítið þegar hann kynntist Sigurði Bene­ diktssyni, blaðamanni og listupp­ boðshaldara. „Sigurður lærði blaða­ mennsku hjá Politiken og kom svo heim og skrifaði fyrir Morgunblaðið. Þá varð hann ritstjóri Vikunnar og gaf út blöð, svo sem Hádegisblaðið. Hann höndlaði líka með bækur og listmuni og þannig fékk ég innsýn í þann heim. Ég vann fyrir hann ýmis smáverk upp úr tvítugu. Ég kynntist líka Helga Tryggvasyni bókbindara sem átti mikið af bókum og blöðum sem hann hafði sankað að sér í gegn­ um tíðina. Þannig trúi ég að bækur hafi smám saman orðið aðalvið­ fangsefni mitt.“ Veikindin Nínu sem áttu sér upphaf sumarið 1974 lituðu eftir það allt hennar líf. Eftir að heim var komið ágerðust veikindin og fjölskyldulífið litaðist mjög af þeim. Bragi segir tímana hafa verið aðra í þá daga. Í dag hefði Nína ef til vill fengið betri hjálp við að koma lífi sínu á réttan kjöl. Sú var ekki raun­ in í þá daga. Bragi sinnti heimilis­ haldinu í veikindum Nínu og hug­ aði að drengjunum sínum. Hann segist hafa reynt af fremsta megni að hafa úthald til þess að bæði skilja og bregðast við því sem Nína gekk í gegnum. Honum reyndist það hins vegar ofraun. Álagið reið hjónaband­ inu að fullu. Ástin í annað sinn Bragi fékk að kynnast ástinni í ann­ að sinn. Hann kynntist Jónínu Bene­ diktsdóttur. „Jónína var yndisleg manneskja og um leið og við hittumst varð ekki aftur snúið. Jónína hafði orku sem ég dróst að,“ segir hann. Þegar Bragi og Jónína hittust fyrst var hún fráskilin eftir áratuga hjóna­ band með Svavari Gestssyni. Með Svavari átti Jónína þrjú börn, Svan­ dísi, Benedikt og Gest. „Ég var kvæntur Nínu Björk þeg­ ar ég hitti Jónínu og því var samband okkar laumuspil fyrsta eina og hálfa árið. Þá skildum við Nína Björk og ég og Jónína hófum fjarbúð en vor­ um saman öllum stundum. Við fór­ um í rómantískar ferðir um heiminn og nutum lífsins. Þetta var yndislegur tími.“ Bragi átti góð ár með Jónínu og var hamingjusamur. Hann missti hana fyrir nokkrum árum og Nína Björk lést á heimili sínu árið 2000. Bragi syrgir þær báðar. „Ég syrgi þær báðar, og það er eðlilegt því báðar voru þær stór hluti af minni tilveru.“ Sjónvarpsstjarna á gamalsaldri Bragi hefur sést á sjónvarpsskján­ um síðustu misseri í þætti Egils Helgasonar, Kiljunni, á RÚV. Egill hefur þá heimsótt Braga í bókabúð­ ina og þeir tveir rætt um sitthvað fróðlegt sem Braga finnst áhuga­ vert. En hvað finnst honum um það að vera orðin sjónvarpsstjarna á gamalsaldri? „Ég er nú engin sjónvarpsstjarna,“ segir Bragi. „Er einhver að horfa á þetta?“ spyr hann. Blaðamaður jánk­ ar því og segist hafa verið sérlega ánægður þegar Bragi ræddi um Sig­ urð Kristófer Pétursson. Hann sé nú duglegur að finna upp á einhverju skemmtilegu að ræða um. Hvar væri Egill eiginlega án hans? Bragi skell­ ir upp úr. „Hann er nú svo ágætur og þarf ekkert frekar á mér að halda,“ segir hann. Ég hef nú reyndar sér­ staka ánægju af því að fjalla um menn eins og Sigurð Kristófer,“ segir Bragi og veit svo sem að blaðakonan minnist á hann sérstaklega vegna þess að hann er skyldur honum aftur í ættir. „Ég hef gaman af því að draga upp myndir af fólki eins og honum. Fólki veitir ekki af slíkri vitneskju en Sigurður Kristó­ fer er merkilegur vegna þess að hon­ um tókst að vinna þrekvirki þrátt fyrir að vera rúmfastur alla sína ævi. Hann var fjórtán ára þegar hann veiktist af holdsveiki og rúmfastur á Laugarnes­ spítala þýddi hann til dæmis Háva­ mál Indíalands, las mörg tungumál og meira að segja esperanto.“ Forvitið fólk kemur alltaf aftur Verslunin selur bækur til útlanda og rekur vefsíðuna bokin.is. Það er held­ ur ekki mikið á því að græða að selja konum með fortíðarþrá stöku ein­ tak af Hildu á Hóli. Umfang þessara viðskipta er töluvert og þá sérstak­ lega til safna erlendis. Bragi hefur byggt vel og framtíð verslunarinnar er að öllum líkindum björt og líklegt að áfram heimsæki fólk með fortíð­ arþrá fornbókabúðina hans í leit að gersemum og líti þá í hvert horn. Eða eins og Kristján Sigvaldason, fyrrver­ andi sögukennari og afgreiðslumað­ ur í Bókinni, sagði þegar hann kvaddi blaðakonuna einn miðvikudaginn í mars: „Forvitið fólk ræður ekkert við sig hérna inni. Það kemur alltaf aftur.“ Konur finna meira til og skilja heiminn betur „Ég syrgi þær báðar, og það er eðlilegt því báðar voru þær stór hluti af minni tilveru. „Mamma vann mikið úti og pabbi sá því oft um að taka á móti okkur og elda ofan í okkur. Það var líka ljúft á milli þeirra sem er öllum börnum hollt. Heima hjá Braga Bragi jafnar sig á bakmeiðslum og saknar þess að fara í sund. En sundferðir í Vesturbæjarlaugina voru fastur liður á hverjum degi. MYND SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON Lítill drengur Bragi ólst upp við mikið ástríki foreldra sína. „Það var ljúft á milli þeirra og það er öllum börnum hollt.“ Hér er Bragi með hundi sem hann lék sér við og sagðist gjarnan eiga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.