Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Qupperneq 36
Aníta fæddist á Akureyri og ólst þar upp. Hún var Lundaskóla og Gagnfræðaskóla Akureyrar,
stundaði nám við Verkmenntaskól
ann á Akureyri og stundar nú nám
í kennslufræðum við Háskólann á
Akureyri.
Aníta vann í sumarvinnu í rækju
hjá Samherja, starfaði síðan við leik
skólann í Grenivík í tvö ár, var að
stoðarmaður tannlæknis á Akureyri
um skeið og hefur stundað nám við
Háskólann á Akureyri frá 2009.
Aníta æfði og keppti í frjáls
um íþróttum með UFA á unglings
árunum og var m.a. Akureyrarmeist
ari í hástökki, þrístökki án atrennu,
spretthlaupi og kringlukasti.
Aníta hefur málað töluvert í frí
stundum, tekið þátt í sýningu á veg
um Verkmenntaskólans og samsýn
ingu með nokkrum vinum sínum,
auk þess sem hún á tvo hunda og
hefur mikinn áhuga á hundaþjálfun.
Fjölskylda
Eiginmaður Anítu er Jóhann Stefáns
son, f. 17.11. 1982, sjómaður.
Börn Anítu og Jóhanns eru Gabríel
Orri Jóhannsson, f. 11.8. 2003; Natalía
Ösp Jóhannsdóttir, f. 3.11. 2010.
Systkini Anítu eru Reynir Björns
son, f. 28.3. 1972, fasteignasali og
nemi við Háskólann í Reykjavík;
Rakel Sveinsdóttir, f. 12.8. 1976, hús
freyja að Brúarási; Árný Björnsdóttir,
f. 1.11. 1977, íþróttakennari og sund
þjálfari við Grunnskólann á Húsavík;
Helena Björnsdóttir, f. 16.3. 1988,
verslunarmaður á Akureyri.
Foreldrar Anítu eru Soffía Guð
mundsdóttir, f. 9.8. 1959, stuðnings
fulltrúi við Giljaskóla á Akureyri, og
Björn Hróar Ragnarsson, f. 18.11.
1952, húsasmíðameistari á Akureyri.
Jóhanna fæddist á Hauganesi og ólst þar upp. Hún var í Síðuskóla á Akureyri og í Framhaldsskólanum
á Laugum í Þingeyjarsýslu og stund
aði nám við Verkmenntaskólann á
Akureyri og lauk prófum frá Snyrti
akademíunni í Kópavogi.
Jóhanna vann við fiskvinnslu
hjá Laugafiski með námi, starfaði
á snyrtistofunni Lind á Akureyri og
starfaði við Make Up Gallerí á Akur
eyri um skeið.
Jóhanna æfði og keppti í hand
bolta með Þór á unglingsárunum.
Fjölskylda
Eiginmaður Jóhönnu er Hjörtur Hólm
Hermannsson, f. 14.2. 1975, grunn
skólakennari á Akureyri.
Börn Jóhönnu og Hjartar eru Tanía
Sól Hjartardóttir, f. 26.1. 2005; Viktor
Breki Hjartarson, f. 8.7. 2007.
Hálfsystur Jóhönnu, sammæðra,
eru Arna Ósk Rúnarsdóttir, f. 13.11.
1987, nemi í Danmörku; Elfa Rán
Rúnarsdóttir, f. 12.5. 1990, húsmóðir
á Akureyri.
Hálfsystur Jóhönnu, samfeðra, eru
Svanhildur Ýr Sigþórsdóttir, f. 25.11.
1985, nemi við Háskólann á Akureyri;
Erla Rún Sigþórsdóttir, f. 2.3. 1989,
nemi á Akureyri; María Björk Sig
þórsdóttir, f. 8.2. 1992, nemi við Verk
menntaskólann á Akureyri.
Foreldrar Jóhönnu eru Sæunn Jó
hannsdóttir, f. 17.1. 1958, ritari hjá
Starfsendurhæfingu Norðurlands, og
Sigþór Kjartansson, f. 3.10. 1960, sjó
maður á Akureyri.
Eiginmaður Sæunnar og fóstur
faðir Jóhönnu er Rúnar Steingríms
son, f. 8.4. 1961, verslunarmaður á
Akureyri.
Eiginkona Sigþórs er Sigríður Jó
hannsdóttir, f. 12.10. 1965, húsmóðir
á Akureyri.
Gyða fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Hlíðunum. Hún var í Ísaksskóla og Æfingadeild
Kennaraháskólans, stundaði nám
við Menntaskólann við Hamrahlíð
og lauk þaðan stúdentsprófi auk þess
sem hún var skiptinemi í Gvatemala
er hún var sautján ára, stundaði nám
í mannfræði við Háskóla Íslands í eitt
ár og lauk BAprófi í viðskiptafræði
við London South Bank 2007. Auk
þess stundaði hún jógakennaranám
í Taílandi haustið 2010.
Gyða var í hlutastarfi hjá Body
Shop í sex ár með námi, starfaði á
McDonald‘s, sinnti lagerstörfum hjá
álverinu í Straumsvík, var gjaldkeri
hjá Íslandsbanka í eitt sumar, vann
á elliheimili í Kaupmannahöfn með
skóla, var flokksstjóri hjá Vinnuskól
anum í Reykjavík auk þess sem hún
hefur unnið á hóteli og á bar á Spáni.
Hún hóf störf hjá Brimborg 2007, var
þar fyrst markaðs og gæðafulltrúi en
hefur verið gæðastjóri þar frá 2010 og
hefur verið yogakennari sl. hálft ár.
Gyða var skólastjórnarfulltrúi
nemendafélags MH og gjaldkeri í
Lagningadagaráði. Þá var hún sjálf
boðaliði hjá AFS eftir að hún kom
heim úr skiptinemanámi. Þá stund
aði hún afró í Kramhúsinu í nokkur
ár og var meðlimur í danshópnum
Bassikolo.
Fjölskylda
Bróðir Gyðu er Ágúst Ragnar Péturs
son, f. 12.8. 1975, mjög svo sjarmer
andi söluráðgjafi hjá Sjóvá (P.S. ein
hleypur).
Foreldrar Gyðu eru Kristín Jóns
dóttir, f. 28.5. 1954, starfsmaður í
starfsmannahaldi Air Atlanta, og
Pétur Þórir Pétursson, f. 27.2. 1954,
framkvæmdastjóri Gasfélagsins ehf.
36 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 25.–27. mars 2011 Helgarblað
Lára fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún var í Álftamýrarskóla, stundaði nám við MH,
lauk prófum í tækniteiknun frá Iðn
skólanum í Reykjavík, lauk próf
um frá Tækniskóla Íslands og lauk
B.Ed.prófi frá Kennaraháskóla Ís
lands.
Lára starfaði við leikskóla víða í
borginni á unglingsárunum og fram
yfir tvítugt, starfaði auk þess á ýms
um börum bæjarins, var verslun
armaður hjá Nóatúni og hjá Griffli
um skeið og var innkaupastjóri hjá
Office One.
Lára hóf störf sem fréttamaður
á NFS 2005, var fréttmaður á Stöð 2
2006–2008, m.a. við Kompás, starf
aði hjá Iceland Express um skeið
2008, var blaðamaður við Blaðið
skamma hríð 2008 og hefur verið
fréttmaður á RÚV frá því í mars 2009.
Lára gaf út bókina Hagsýni og
hamingja, árið 2009.
Lára var framkvæmdastjóri knatt
spyrnudeildar Ármanns 1994–99 er
deildin var lögð niður.
Fjölskylda
Eiginmaður Láru er Haukur Olavs
son, f. 16.2. 1970, rekstrarstjóri
Griffils.
Börn Láru og Hauks eru Lilja
Sóley Hauksdóttir, f. 1.9. 1990; Ið
unn Hulda Hauksdóttir, f. 2.7. 1994;
Helga Rut Hauksdóttir, f. 28.11. 1996;
Hekla Sól Hauksdóttir, f. 30.11. 1999;
Haukur Lár Hauksson, f. 12.1. 2004.
Systkini Láru eru Jónína Ómars
dóttir, f. 29.4. 1962, kennari, búsett
í Reykjavík, gift Óskari Olgeirssyni
vélvirkja og eiga þau fimm börn;
Ragnar, f. 21.9.1963, byggingafræð
ingur, búsettur í Reykjavík, kvæntur
Kristbjörgu Clausen söngkonu og
eiga þau tvo syni; Þorfinnur, f. 25.10.
1965, fjölmiðlamaður í Brussell en
sambýliskona hans er Ástrós Gunn
arsdóttir, balletdansari, danshöf
undur og leikstjóri, og á hann tvo
syni úr fyrra hjónabandi með Önnu
Hauksdóttur; Örn, f. 22.11. 1967, bú
settur í Reykjavík; Iðunn, f. 8.10.1972,
kennari, búsett í Mosfellsbæ, gift
Friðrik Sigurðssyni kennara og eiga
þau fjögur börn; Alma, f. 9.9. 1974,
kennari, búsett í Mosfellsbæ, en
sambýlismaður hennar er Ingi R.
Ingason kvikmyndagerðarmaður og
eiga þau tvö börn auk þess sem Alma
á son úr fyrri sambúð með Ægi Erni
Símonarsyni.
Foreldrar Láru eru Ómar Ragn
arsson, f. 16.9. 1940, dagskrárgerðar
maður, skemmtikraftur og fyrrv.
fréttamaður, og Helga Jóhannsdóttir,
f. 25.11. 1942, forstöðumaður.
Ætt
Bróðir Ómars er Jón Rúnar, fram
kvæmdastjóri og fyrrv. rallökumað
ur. Ómar er sonur Ragnars, bakara
og síðar borgarstarfsmanns í Reykja
vík Eðvarðssonar, bakarameistara
í Reykjavík, bróður Önnu, móður
Bjarna Jónssonar listamálara. Eðvarð
var sonur Bjarna, formanns í Reykja
vík Gíslasonar. Móðir Ragnars var
Sigurlaug Guðnadóttir, b. á Óspaks
stöðum í Hrútafirði Einarssonar og
Guðrúnar Jónsdóttur. Meðal syst
kina Sigurlaugar voru Einar, pró
fastur í Reykholti, faðir Bjarna, fram
kvæmdastjóra Byggðastofnunar, og
Guðmundar, forstjóra Skipaútgerðar
ríkisins. Annar bróðir Sigurlaugar var
Jón, pr. og skjalavörður, faðir rithöf
undanna Guðrúnar, Ingólfs, Torfa og
Eiríks.
Móðir Ómars var Jónína Rann
veig, systir Gunnlaugs, föður Gísla
Ágústs, lektors í sagnfræði. Jónína
Rannveig var dóttir Þorfinns, múr
ara í Reykjavik, bróður Guðbrands á
Prestbakka, föður Ingólfs, forstjóra
Útsýnar og söngstjóra, föður Þor
gerðar söngstjóra, Vilborgar hjúkr
unarfræðings, Rutar og Unnar Maríu
fiðluleikara og Ingu Rósar selló
leikara. Þorfinnur var sonur Guð
brands, b. á Orrustustöðum Jónsson
ar, b. í EfriVík Þorkelssonar. Móðir
Jóns var Málmfríður Bergsdóttir, pr.
á Prestbakka Jónssonar, og Katrín
ar Jónsdóttur, eldprests Steingríms
sonar. Móðir Þorfinns var Guðlaug,
ljósmóðir Pálsdóttir, b. á Hörgslandi
Stefánssonar og Ragnhildar Sigurð
ardóttur.
Móðir Jónínu er Ólöf, systir
Bjarna, hugvitsmanns á Hólmi Run
ólfsdóttir, b. í Hólmi í Landbroti
Bjarnasonar, b. í Hólmi Runólfs
sonar, bróður Þorsteins, afa Jóhann
esar Kjarval og Eiríks Sverrissonar
sýslumanns, langafa Eggerts Briem
í Viðey, föður Eiríks, fyrrv. forstjóra
Landsvirkjunar.
Helga er dóttir Jóhanns vélstjóra
á Patreksfirði Jónssonar, sjómanns
og fisksala í Reykjavík Jónssonar, b. á
Gaddsstöðum á Rangárvöllum Guð
mundssonar. Móðir Jóns sjómanns
var Vilborg Einarsdóttir. Móðir Jó
hanns var Jóhanna Arnbjörnsdóttir,
b. í Gerðum í Flóa Þorkelssonar, og
Gunnhildar Gísladóttur.
Móðir Helgu var Lára Stefanía
Sigfúsdóttir, sjómanns á Siglunesi og
síðar trésmiðs á Siglufirði Vormsson
ar, b. á Kárastöðum í Hegranesi Finn
bogasonar. Móðir Sigfúsar var Anna
Guðbjörg Stefánsdóttir. Móðir Láru
Stefaníu var Anna Hansdóttir, b. í
Ráeyrarkoti í Siglufirði Jónssonar, og
Arnbjargar Sumarliðadóttur.
Jóhanna fæddist í Reykjavík en ólst upp í Garðabæ. Hún lauk gagnfræðaprófi við Gagnfræða
skólann í Garðabæ í fyrsta árgangi
sem útskrifaðist þar. Hún stundaði
síðan nám við Húsmæðraskólann
að Laugalandi í Eyjafirði, stundaði
síðar nám í sjúkraliðun við Fjöl
brautaskólann í Breiðholti frá 1999
og lauk þaðan prófum 2001.
Jóhanna hefur unnið hin ýmsu
störf, m.a. í tólf ár á geðdeild Land
spítalans í Hátúni og síðan á Vífils
stöðum. Hún verið sjúkraliði á deild
B6 við Landspítalann í Fossvogi frá
2001.
Jóhanna hefur tekið virkan þátt í
starfi Sínawik, fyrst á Sauðárkróki og
síðan í Reykjavík, hefur setið í stjórn
þar og verið formaður klúbbsins í
eitt starfsár. Hún er nú trúnaðar
maður sjúkraliða á sinni deild.
Fjölskylda
Jóhanna giftist 27.12. 1975 Guðjóni
H. Finnbogasyni, f. 5.8. 1947,
kjötiðnaðar og matreiðslumanni.
Hann er sonur Finnboga R. Sigurðs
sonar, f. 20.12. 1906, d. 31.1. 1969,
fisksala í Reykjavík, og Sigurbjarg
ar G. Guðjónsdóttur, f. 19.2. 1916,
d. 26.9. 2005, húsmóður og verka
konu.
Börn Jóhönnu og Guðjóns eru
Lilja Hafdís Guðjónsdóttir, f. 4.6.
1970, kjötiðnaðarmaður hjá Kaupási,
búsett í Reykjavík, gift Pálma H. Lord
og eiga þau fjóra syni; Sigurbjörg G.
Guðjónsdóttir, f. 28.6. 1975, nemi,
búsett í Reykjavík en maður hennar
er Friðgeir Gíslason og eiga þau eina
dóttur; Rósa María Guðjónsdóttir, f.
21.3. 1980, verslunarmaður, búsett í
Reykjavík en maður hennar er Stefán
Sigurðsson og eiga þau fimm börn;
Sunna Dögg Guðjónsdóttir, f. 20.9.
1986, nemi, búsett í Reykjavík.
Systkini Jóhönnu eru Sigurður
Hafsteinsson, f. 28.5. 1945, flugvirki,
búsettur í Reykjavík, kvæntur Brynju
Traustadóttur; Hans Hafsteinsson, f.
5.8. 1946, rafvirki, búsettur í Hafnar
firði, kvæntur Fríðu Kristínu Guð
jónsdóttur; Ingibjörg Hafsteinsdótt
ir, f. 7.4. 1956, þroskaþjálfi, búsett á
Akranesi, gift Hákoni Pálssyni.
Foreldrar Jóhönnu: Hafsteinn
Hansson, f. 24.3. 1925, d. 15.10. 2002,
bifreiðastjóri í Reykjavík, og Lilja Ing
ólfsdóttir, f. 20.10. 1923, d. 18.6. 1996,
húsmóðir og verkakona.
Lára Ómarsdóttir
Fréttamaður á RÚV
Jóhanna Jóna Hafsteinsdóttir
Sjúkraliði við Landspítalann í Fossvogi
Aníta Lind Björnsdóttir
Nemi í uppeldis- og kennslufræði við Háskólann á Akureyri
Jóhanna Sif Sigþórsdóttir
Húsmóðir á Akureyri
Gyða Pétursdóttir
Gæðastjóri hjá Brimborg og hot jógakennari hjá Sporthúsinu
40 ára á sunnudag
60 ára á föstudag
30 ára á föstudag
30 ára á laugardag
30 ára á sunnudag