Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Blaðsíða 40
E lizabeth Taylor var oft við dauðans dyr og líf hennar var jafn dramatískt og handrit kvik- myndanna sem hún lék í. En í þetta skiptið var komið að endastöð. Elizabeth lést úr hjartveiki á hinum fræga Cedars-Sinai-spítala í Los Ange- les umkringd börnum sínum úr þrem- ur af hjónaböndum sínum; Michael og Christopher Wilding, Lizu Todd og Mariu Burton. Þegar Elizabeth lést átti hún 10 barnabörn og fjögur barnabarnabörn, fimmtíu kvikmyndir að baki, tvenn Óskarsverðlaun, 100 aðgerðir og ótrú- legt ríkidæmi. Þrátt fyrir dramatík- ina og ástríðuna í lífi hennar eru börn hennar og barnabörn gríðarlega stolt af henni. Ekki síst vegna baráttu henn- ar gegn alnæmi. Taylor lét mikið fé af hendi rakna til samtaka sem berjast gegn alnæmi. Hún gerði þó vel við börn sín og barnabörn og þau erfa mikið fé auk þess sem þau hafa leyfi til þess að gefa út efni handskrifaðra dagbóka. Sársauki og fíkn Elizabeth var fædd með hryggskekkju og þjáðist af bakvandamálum alla ævi. Þessir bakverkir urðu upphaf fíknar hennar í verkjalyf og áfengi. Fíknina barðist hún við alla ævi og gafst aldrei upp í baráttunni. Elizabeth gekk í gegnum ótrúlegar heilsuraunir á síðari árum sínum, hún gekk í gegnum tvær mjaðmaskipti- aðgerðir, sigraðist á húðkrabbameini, heilaæxli, sykursýki, flogum og heila- blóðfalli. Á langri ævi sinni fór hún í 100 aðgerðir og þar af voru 20 stórað- gerðir þar sem óttast var um líf hennar. Elizabeth á forsíðu DV Kvikmyndaferill Taylor var blómlegur og langur. Hún hóf ferilinn sem barna- stjarna og sást fyrst níu ára í mynd- inni There‘s One Born Every Minute. Hún varð stjarna tveimur árum seinna í hlutverki sínu sem hestaþjálfari í myndinni National Velvet. Þekktustu myndir Taylor eru A Place in the Sun, Cleopatra, Cat on a Hot Tin Roof og Who´s Afraid of Virginia Woolf? Elizabeth hlaut Óskarsverðlaun fyrir hlutverk sín í Butterfield 8 og Who‘s Afraid Of Virginia Woolf? Síð- asta myndin sem hún lék í var These Old Broads árið 2001 og sú næstsíð- asta The Flintstones en þar léku tveir íslenskir drengir með Elizabeth og voru því gerð skil á forsíðu DV árið 1994 í viðtali sem Elín Albertsdóttir tók við foreldra drengjanna. Faðir þeirra, Sigurður Ómar, sagði eftirfarandi: „Það var mjög gaman að hitta Elizabeth Taylor og hún var mjög vina- leg við okkur. Hún hefur átt við veik- indi að stríða í mjöðm og haltraði svo- lítið þegar hún gekk um. Hins vegar var ekki nokkur leið að sjá það þegar hún var komin í gervið og hún lýsti í rauninni upp sviðsmyndina. Við sáum hana líka algjörlega ófarðaða í jogging- galla og það var svolítið skrýtið.“ Metnaður ungrar barnastjörnu Elizabeth fæddist í Bretlandi. For- eldrar hennar voru bandarískir og þegar stríð braust út fluttust þau til Beverly Hills. Móðir hennar hafði átt stuttan leikferil og einsetti sér að gera Elizabeth litlu að stjörnu. Fljótt kom í ljós að Elizabeth bjó sjálf yfir miklum metnaði. Þegar hún var tólf ára hafði hún leikið í tveimur kvikmyndum og sóttist eftir aðalhlutverkinu í Natio- nal Velvet. Henni var sagt að því mið- ur, þá væri hún of stutt. Elizabeth lét sér ekki segjast, gerði æfingar og át eins og hestur. Hún fór nokkrum vik- um síðar til leikstjórans og tilkynnti honum að hún hefði vaxið um nærri fimm sentimetra og fékk hlutverkið. Dramatískt ástalíf Fyrsta ástin reyndist henni mikill harmur. Hún gifti sig aðeins 18 ára ungum hótelerfingja, Nicky Hilton, sem var sjarmerandi maður og hrók- ur alls fagnaðar. Það var hins vegar grunnt á aðlaðandi framkomu hans. Nicky drakk mikið og gekk svo í skrokk á Elizabeth að hún missti fyrsta barn- ið sem hún bar undir belti. Elizabeth sleit sambandinu við Hilton og jafnaði sig í örmum Micha- els Wilding, sem var 20 árum eldri, með honum eignaðist hún tvö börn, 40 | Úttekt 25.–27. mars 2011 Helgarblað „Hún hafði gengið í gegnum tvær mjaðmaskiptiaðgerðir, sigrast á húðkrabbameini, heilaæxli, sykursýki, flogum og heilablóðfalli. Síðasta stjarnan Átta hjónabönd, 50 kvikmyndir, tvenn Óskars- verðlaun, 100 aðgerðir og ótrúlegt ríkidæmi. Líf Elizabeth Taylor var dramatískara en kvikmyndahandritin sem hún lék eftir. „Nicky Hilton drakk mikið og gekk svo í skrokk á Elizabeth að hún missti fyrsta barnið sem hún bar undir belti. Elizabeth verður stjarna Elizabeth sló í gegn í myndinni National Velvet. Michael Jackson dáði hana í þessu hlut- verki og íhugaði að fara í lýtaaðgerðir til þess að líkjast henni tólf ára. Barnastjarna Elizabeth Taylor mynduð af MGM- kvikmyndaverinu 8 ára. Ári áður en ferill hennar fór á flug. 1957 Með eiginmanninum Mike Todd og nýfæddri dóttur þeirra, Lizu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.