Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Qupperneq 50
50 | Lífsstíll 25.–27. mars 2011 Helgarblað
A
ð hittast á eftirmiðdögum yfir „high tea“,
eða síðdegistei, er vinsæll siður í mörg-
um stórborgum heimsins og yfirleitt er
setið um að fá borð í slíkum teboðum
á fínustu hótelunum. Ungar konur sem aldnar
setja á sig sparihattana og klæða sig í sitt fínasta
púss.
High tea-veitingar eru yfirleitt bornar fram
á tveggja til þriggja hæða fallegum bökkum og
samanstanda af litlum samlokum án skorpu
með gúrku, hindberjum, jarðarberjum eða öðr-
um ferskum ávöxtum og fallegum litlum skons-
um með þeyttum rjóma og hindberjasultu. Með
þessu er gjarnan drukkið te með fínlegu bragði
og stundum er borið fram kampavín í fordrykk.
Að laga gott te
Þegar gestum er boðið í síðdegiste er venjan
að bjóða upp á fínni te og reiða það fram í fínni
bollum en venjulega. Darjeeling-te, Oolong-te,
jasmínu- eða lavenderte eða falleg blómate eru
tilvalin. Þegar hellt er upp á te skal nota tesíu,
þar sem mikilvægt er að fjarlægja laufin eftir til-
tekinn tíma svo að teið verði ekki rammt. Ein te-
skeið fyrir hvern bolla er hæfilegt magn. Sjóðið
vatn og hellið yfir telaufin. Breytilegt er eftir teg-
undum hve langan tíma það tekur telaufin að
gefa frá sér hæfilegt bragð og þá þarf að aðgæta
hitastig vatnsins sérstaklega þegar hellt er upp
á grænt te. Gróf telauf þurfa lengri tíma í vatn-
inu en fín. Fínustu tegundirnar frá Darjeeling
þarf til að mynda að varast að hafa ekki of lengi
í sjóðandi vatninu því annars verður bragðið of
rammt.
Konur með hatta mæta í te
Björk Óskarsdóttir á Vox gefur lesendum DV
uppskriftir að enskum skonsum og rjóma á
milli, heilsusamlegu og fallegu súkkulaðigóð-
gæti og bitum með lime og valmúa eða basil.
Í London bjóða mörg fínni hótel upp á hefð-
bundið high tea. Veitingastaðurinn Vox er eini
staðurinn á Íslandi sem hefur tekið upp þessa
hefð og Björk segir gestina af öllu tagi. „Við fáum
hingað konur sem hafa klætt sig upp og sett
upp hatt, mæðgur, vinkonur og stundum eru
hér haldnar erfidrykkjur líka. Við höfum reynt
að aðlaga siðinn Íslandi og höfum til að mynda
bætt seyddu rúgbrauði á matseðilinn svo ís-
lenskt hráefni fái sín notið.“
Skonsur
Breskar skonsur eru tilvaldar á borðið í
góðu teboði
n 300 g hveiti
n 2 tsk. lyftiduft
n Klípa af salti
n 50 g flórsykur
n 80 g smjör
n 1 egg
n 125 ml mjólk
n Egg eða mjólk til að pensla með
Aðferð:
1. Þeyta eggið og setja út í mjólkina.
2. Sigta hveiti, lyftiduft, flórsykur og
salt saman.
3. Blanda saman smjöri með fingrunum.
4. Hella mjólk og hræra með gaffli.
Deigið á að vera klístrað og mjúkt.
5. Hella deiginu á hveitstráð borð. Má
alls ekki hnoða mikið.
6. Fletja deigið út í 2 cm þykkt og stinga
út ca. 5 cm kökur.
7. Lagt á hvolf og bakað við 220°C í
10–12 mín.
8. Borið fram með skonsurjóma og sultu
Skonsurjómi
fyrir 4
n 100 g rjómaostur
n 1 tsk. sykur
n Klípa af salti
n 1 bolli þeyttur rjómi
Hollustusúkkulaði
fyrir síðdegiste
Fyrir þá sem vilja gæða sér á ljúffengum
sætindum en fara sér hægt má vel
mæla með því að skreyta gæðasúkkul-
aði með berjum og fræjum.
Bræðið 200 gr af lífrænu 56% eða 70%
súkkulaði. Setjið út í það:
n Goia-ber
n Graskersfræ
n Sólblómafræ
n Rúsínur
n Döðlur
Eða bara hvað sem manni dettur í hug.
Látið storkna og brjótið síðan í bita.
Basilbitar
n 150 gr smjör
n 150 gr sykur
n 3 egg
n 175 gr hveiti
n 25 gr kartöflumjöl
n 1 tsk. lyftiduft
n 1 msk. mjólk
n Ferskt basil skorið smátt og sett út
í deigið
n Bakað í litlum formum eða á
silíkonmottum
n Bakað við 150 gráður
Lime og valmúafræ
n 150 gr smjör
n 150 gr sykur
n 3 egg
n 175 gr hveiti
n 25 gr kartöflumjöl
n 1 tsk. lyftiduft
n 1 msk. mjólk
n Safi og börkur af lime sett út í deigið
n Bakað í litlum formum eða á
silíkonmottum
n Bakað við 150 gráður
Spariteboð
Á SUNNUDEGIGóðir tesiðir
Góðir tesiðir eru flestum Íslendingum líklega framandi og
líklega er flestum sama um það hvernig þú heldur á teboll-
anum og borðar skonsuna. En í teboði á fínu hóteli í Bretlandi
verður kunnáttuleysið þeim til vansa. Hér eru nokkur óbrigðul
ráð fyrir þá sem stendur ekki á sama:
n Haltu utan um tebollann með fingrunum, litli fingur má
vísa út í loft til að halda jafnvægi. Það þykir ekki fínt að setja
fingurinn í gegnum handfangið eða að halda á bollanum í
lófanum.
n Te á að súpa fínlega og í litlum sopum. Það á ekki að sötra te
eða drekka það í stórum sopum.
n Það þykir dónalegt að hræra stöðugt í bollanum í hringlaga
hreyfingum. Settu skeiðina ofan í bollann og hreyfðu hana
nokkrum sinnum í hálfhring.
n Ekki skilja teskeiðina eftir í bollanum. Ef þú ert ekki að nota
hana á hún að liggja hægra megin við bollann.
n Ef boðið er upp á sítrónusneiðar með teinu eru þær bornar
fram á diski, fínlega sneiddar með litlum gaffli til að setja þær
í bollann.
n Ef þú notar sítrónu í teið þá notar þú ekki mjólk og öfugt.
Gerir þú það hleypur mjólkin.
n Þegar þú situr við borðið settu þá servéttuna í kjöltuna. Hana
á aldrei að leggja á borðið meðan gestir sitja við það. Ekki einu
sinni ef staðið er upp frá borðinu. Þá skal leggja hana í sætið.
High tea High tea-
veitingar eru venjulega
bornar fram á tveggja
til þriggja hæða
bökkum.