Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2011, Blaðsíða 52
Í slendingar eru yfirleitt fljótir að tileinka sér tækninýjungar. Ein nýjung hefur þó frá upphafi ekki ratað til landsins og skotið rótum en það eru rafbækur og útgáfa þeirra. Íslensk bókaforlög hafa hingað til ekki séð ástæðu eða forsendur fyrir því að gefa út samhliða bækur sínar á prenti og rafbókarsniði. Þetta vekur nokkra furðu þar sem kostnaður við útgáfu rafbóka er að- eins brot af prentkostnaðinum auk þess sem vinsældir les- og spjald- tölva hafa farið vaxandi með hverju ári. Rafbókasíða Íslenska rafbókasíðan lestu.is var sett í loftið nú í janúar og héldu þá margir að landinn hefði loks tekið við sér í þessum geira. Það varð þó ekki raun- in því þær bækur sem fyrirfinnast á síðunni eru í nær öllum tilvikum án höfundarréttar, það er ekki þarf leng- ur að greiða höfundi, þýðanda eða erfingjum þeirra vegna útgáfunn- ar. Hér er því um að ræða verk sem eru orðin meira en sjötíu ára gömul og því í nokkurri mótsögn við eitt af slagorðum lestu.is sem er „Fjölbreitt úrval bóka“. Lestu.is er áskriftarvefur og þurfa notendur að greiða mánaðarlega 1.290 krónur til að geta hlaðið niður þeim bókum sem í boði eru. Tímarit.is Það má kannski segja að Lands- bókasafn Íslands – Háskólabóka- safn hafi verið í fararbroddi við að bjóða landsmönnum menningararf- inn á stafrænu sniði. Safnið stendur að vefsvæðinu timarit.is en þar má nálgast nánast öll dagblöð og tíma- rit sem gefin hafa verið út á Íslandi, í Færeyjum og á Grænlandi í gegn- um tíðina. Notendur geta þar leitað að efni á ýmsan máta, svo sem eftir löndum og titlum, eða að völdu orði í öllum texta ritanna. Þeir geta einnig blaðað í gegnum efnið og prentað út eða vistað valdar síður. Rafbókasöfn í 40 ár Saga rafbókarinnar telur nú fjóra áratugi en það var árið 1971 sem Gutenberg-verkefnið (Project Guten berg) var sett á laggirnar í sjálfboðavinnu og er nú elsta staf- ræna bókasafn í veröldinni. Mark- mið verkefnisins var og er enn að gera almenningi kleift að sækja og lesa án kostnaðar þær bækur sem falla úr höfundarrétti vegna aldurs eða annarra ástæðna. Safnið býð- ur í dag upp á rúmlega 34 þúsund titla í algengum rafbókarsniðum eins og HTML, PDF, Epub, Mobi og Plucker. Bókasöfn í Bandaríkjunum hófu síðan árið 1998 útlán á rafbókum en aðeins var hægt að lesa bækurn- ar á vefsíðum safnanna og í flest- um tilvikum var um að ræða ein- hvers konar fræðibækur. Það var ekki fyrr en árið 2003 sem nokk- ur bókasöfn vestra gerðu almenn- ingi kleift að hlaða niður rafbókum í formi útlána. Hér var um að ræða bæði skáldsögur og aðrar vinsælar bækur. Almenningur tók þessari ný- breytni vel og næstu misseri buðu fleiri bókasöfn upp á þennan val- kost. Í fyrra var hlutfall bandarískra bókasafna sem bjóða upp á slík út- lán komið í 66 prósent. Les- og spjaldtölvur Síðustu ár hafa sérhæfðar lestölvur litið dagsins ljós og notið mikilla vin- sælda. Kostirnir við slík tæki eru veiga- miklir, hægt er að hafa með sér allt bókasafnið í ferðalagið eða sumarbú- staðinn, bækurnar skemmast ekki eða týnast, allt í tæki sem er á stærð við eina bók. Spjaldtölvubyltingin sem nú ríður yfir heimsbyggðina er þegar far- in að valda breytingum á lestrarhegð- un almennings og er líklegt að kröfur Íslendinga verði háværari um útgáfu íslenskra rafbóka í kjölfarið. 52 | Tækni Umsjón: Páll Svansson palli@dv.is 25.–27. mars2011 Helgarblað NóatúNi 17 - Sími 414 1700 GLERÁRGÖtU 30 - Sími 414 1730 miðvaNGi 2-4 - Sími 414 1735 aUStURvEGi 34 - Sími 414 1745HafNaRGÖtU 90 - Sími 414 1740 REykjavíkURvEGi 66 - Sími 414 1750 Reykjavík • akuReyRi • egilsstaðiR • keflavík • selfoss • HafnaRfjöRðuR BETRA ALLTAF VERÐ15,6” FARTÖLVA Toshiba Satellite C660-1F5 • 2.53GHz Intel Core i3-380M - Dual core • 4GB DDR3 1066MHz minni • 500GB SATA diskur • 512MB AMD Radeon HD 5470 DirectX 11 skjákort • DVD og CD-RW skrifari • 15.6" WXGA LED skjár • Windows 7 Home Premium 64-BIT • Vefmyndavél 119.990 Blackberry Playbook RIM, fyrirtækið sem framleiðir hina vinsælu Blackberry-síma, tilkynnti í vikunni að Blackberry Playbook-spjaldtölvan myndi koma á markað seinni hluta aprílmánaðar. RIM mun bjóða Playbook á sama verði og ódýrustu útgáfu iPad 2 eða 499 banda- ríkjadali. Talið er að RIM ætli með þessu að komast í samkeppni við Apple og ná sér í sneið af hinum almenna markaði en hingað til hefur RIM selt mestmegnis til fyrirtækja og stofnana. Playbook-spjaldtölvan er nokkuð smærri í sniðum en iPad og er með 7 tommu skjá samanborið við 9,7 tommu skjá iPad 2. Þessi fyrsta útfærsla af Playbook mun verða með 16GB geymslurými og Wi-Fi, hágæða- myndavél og Flash-stuðningi. Í kjölfarið koma síðan á markað dýrari útfærslur. Afhommunarforrit úr App Store Eftir að um 146 þúsund manns höfðu sett nafn sitt á undirskriftalista til stuðnings því að fjarlægja ákveðið forrit úr forritaverslun Apple virðist fyrirtækið hafa látið undan þrýstingnum. Forritið sem um ræðir lofar notendum þess „frelsi frá samkynhneigð með krafti Jesú Krists“. Að baki forritinu standa kristileg samtök; Exodus Internatio- nal, en þau hafa þá yfirskrift að „hjálpa öllum þeim í heiminum sem eru að berjast við að losna við samkynhneigð“. Forritið á að veita notendum leiðsögn í að „samræma trú sína og kynlífshegðun“. Forritið fór í sölu í versluninni þann 15. febrúar síðastliðinn en var síðan fjarlægt í vikunni. Athygli vekur að Apple hafði merkt forritið sem 4+ eða fyrir alla sem eru fjögurra ára og eldri. n Sífellt fleiri nýta sér þann möguleika að geta keypt bækur á stafrænu sniði og notið þeirra í les- og spjaldtölvum n Bókaforlög og bókasöfn um heim all- an hafa um árabil boðið upp á rafbækur en það er þó ekki raunin hér á landi Hvar eru allar nýju rafbækurnar? Rafbók skoðuð í iPad Kannski verður þróunin með bækurnar líkt og þegar vínylplötur umbreyttust í geisladiska og mp3. MYND REUTERS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.