Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2011, Blaðsíða 50
50 | Lífsstíll 6.–8. maí 2011 Helgarblað
VH ehf · Njarðarbraut 11 · 260 Reykjanesbæ · Sími 864-2400 · Sími í verslun 527-2400
Vel valið fyrir húsið þitt
AF GÆÐUNUM
ÞEKKIÐ ÞIÐ PALLAEFNIÐ
FRÁ VÖLUNDARHÚSUM
VH
/
11
-0
5
Pallaefni, panill, girðinga-
efni, undirstöður, skrúfur
og festingar á frábæru
vor-tilboðsverði.
Sjá nánar á heimasíðu
www.volundarhus.is
70 mm bjálki / Tvöföld nótun
Tilboð Gestahús 25 m²
kr. 1.689.000,- án fylgihluta
kr. 1.989.000,- með fylgihlutum
og byggingarnefndar teiknisetti.
31.5 m² kr. 2.149.000,- án fylgihluta
36.0 m² kr. 2.229.000,- án fylgihluta
39.0 m² kr. 2.499.000,- án fylgihluta
Sjá nánar á heimasíðu www.volundarhus.is
Garðhús og gestahús
í úrvali á frábæru verði
Sjá nánar á heimasíðu
www.volundarhus.is
Brann allt við?
Settu
pönnuna
í frystinn
Hver hefur ekki lent í því að
eyða góðum tíma í að skrúbba
burtu viðbrenndar leifar af mat
í pottum og á pönnum? En við
öllu eru ráð sem spara tíma og
fyrirhöfn. Ef þú lendir í því að
allt brenni við á steikarpönnu
eða í potti sem ekkert á að geta
fest sig við skaltu láta pönnuna
í frysti í að minnsta kosti hálf-
tíma. Þegar þú tekur hana út
aftur ætti það viðbrennda að
hafa losnað. Eftir að pannan
hefur náð að kólna er með létt-
um leik án allra skrúbbtilþrifa,
hægt að þrífa pönnuna og setja
aftur á sinn stað, hreina
og fína.
1. Um leið og þú hefur verið kynnt/ur fyrir nýrri
manneskju skaltu endurtaka nafnið. „Klara.
Gaman að kynnast þér Klara.“
2. Fljótlega í samtalinu skaltu orða spurningu
þannig að nafnið komi fyrir: „Hvar átt þú heima í
bænum Klara?“
3. Ef þú þekkir aðra manneskju með sama
nafni skaltu gera tengingu á milli þeirra tveggja.
Sjáðu fyrir þér báðar Klörurnar saman í kaffi.
4. Tengdu nafnið við sagnorð eða lýsingarorð.
Klara minnir til dæmis á orðið klára. Sjáðu Klöru
fyrir þér að klára glas af vatni eða á hestbaki
(klár).
5. Ef Klara á mann sem heitir Pétur og Pétur
hefur gaman af golfi skaltu prófa að sjá Klöru
og Pétur Pan (eða einhvern annan Pétur sem er
þér minnisstæður) saman að ríða klár á golfvelli.
Þannig geturðu hugsanlega líka munað nafnið á
manninum hennar og hverju þau hafa gaman af.
Næst þegar þú rekst á Klöru getur þú heilsað upp
á hana með nafni og spurt hvernig Pétri gangi
í golfinu. Samstundis hafið þið Klara náð betri
tengingu og óafvitandi finnst henni meira í þig
varið fyrir að muna eftir sér.
Þessar aðferðir gætu virst örlítið súrrealískar en
þær eru margprófaðar og reyndar af sérfræðing-
um í minnistækni og reynast einkar vel sé rétt að
þeim staðið.
Takist þér þetta máttu eiga von á
meiri félagslegum vinsældum en áður,
en eins og samskiptafrömuðurinn
Dale Carnegie sagði eru fá orð jafn
kær manneskju og hennar eigið nafn
og ekkert umræðuefni finnst fólki
skemmtilegra en einmitt það sjálft.
Hvernig muna skal nöfn
Margprófuð minnistækni sem virkar
Svolítið súrrealísk en góð.