Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2011, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 6.–8. maí 2011 Helgarblað Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Gott í vorverkin Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum Black&Decker háþrýstidæla 110 bar 13.900 Hjólbörur 90L 4.490 Garðslanga 15 m með úðabyssu 890 Bakkabræður kæra úrskurð sýslumannsins á Hvolsvelli: Vilja fella forkaupsrétt úr gildi Bræðurnir Ágúst og Lýður Guð- mundssynir hafa kært nýlegan úr- skurð sýslumanninsins á Hvolsvelli um að fella ekki úr gildi kvöð á jörð- inni Lambalæk í Rangárvallasýslu um að afmá forkaupsrétt af jörðinni. Lambalækur er nánar tiltekið í Úthlíð og þar hafa þeir reist eitt glæsilegasta sumarhús landsins. Deila bræðranna við sýslumann- inn snýst um að þegar bræðurnir keyptu 9,7 hektara landspildu í jörð- inni Lambalæk í byrjun árs 2005, var þessi kvöð í gildi. Samkvæmt upp- lýsingum frá embætti sýslumannsins á Hvolsvelli hafði verið gert ákveð- ið samkomulag á milli nokkurra að- ila um gagnkvæman forkaupsrétt á jörðinni. Þegar bræðurnir keyptu spild- una töldu þeir að fallið hefði verið frá þessum forkaupsrétti. Þeir fóru fram á við sýslumanninn á Hvolsvelli að þessi kvöð um forkaupsréttinn yrði tekin út af þinglýsingabók fyrir spilduna. Þessari kröfu synjaði sýslu- maður og hafa bræðurnir því kært þá synjun. Héraðsdómur Suðurlands mun síðan taka afstöðu til kröfunnar. Talsvert hefur verið fjallað um sumarhús bræðranna á Lambalæk enda var ekkert til sparað þegar hús- ið var byggt og íburðurinn eftir því. Stærð hússins er skráð 567 fermetrar og eiga bræðurnir húsið saman sam- kvæmt upplýsingum úr Þjóðskrá. Lambalækur Ágúst og Lýður Guðmundssynir hafa kært úrskurð sýslumannsins á Hvolsvelli um að fella ekki úr gildi kvöð sem er á land- spildu á jörðinni Lambalæk sem er í þeirra eigu. Tryggvi Jón Jónatansson, 15 ára drengur frá Akureyri, lést á heimili sínu aðfaranótt mánudagsins 2. maí. Tryggvi hafði háð erfiða baráttu við sjaldgæfan hrörnunarsjúkdóm sem dró hann að lokum til dauða. Tryggvi fæddist alheilbrigður en við 9 ára aldur var hann greindur með sjúk- dóminn. Síðustu tvö ár höfðu verið honum erfið og frá því í ágúst í fyrra hrakaði honum hratt. Undir það síð- asta hafði hann tapað bæði sjón og heyrn auk þess sem sjúkdómurinn herjaði á jafnvægisskyn hans svo hann þurfti að nota hjólastól. Þrátt fyrir að hafa glímt við erfiðan sjúk- dóm segir Ásta Freygerður Reynis- dóttir móðir hans að hann hafi sýnt æðruleysi og lífsgleði fram á síðasta dag. Tók þátt í 1. maí-hlaupinu „Hann átti rosalega góðan dag síð- asta daginn sinn. Hann vildi kom- ast í 1. maí-hlaupið enda var hann keppnismaður mikill. Hann samdi við skólabræður sína um að hlaupa með hjólastólinn í hlaupinu og hann var afskaplega hamingjusamur. Skólasystkini hans voru afskaplega dugleg að heimsækja hann,“ segir Ásta móðir hans. Þrátt fyrir að vera orðinn mjög þreyttur síðustu mánuði lífs síns, náði hann að láta stóra drauminn sinn rætast í mars á þessu ári eins og móðir hans útskýrir: „Það hefur verið erfitt að finna stærri aðdáenda Manchester United. Hann átti sér þann stóra draum að komast á Old Trafford og hann fékk drauminn sinn uppfylltan. Þetta var það sem hann þráði heitast í lífinu. Ég er svo þakklát fyrir að hann fékk þann draum upp- fylltan. Hann fór á leik 12. mars og að sjálfsögðu var það sigurleikur.“ Heilbrigður fyrstu árin Tryggvi fæddist heilbrigður en um níu ára aldur fóru læknar að gera sér grein fyrir því að hann væri með hrörnunarsjúkdóm. Móðir hans seg- ir að hún hafi þó verið búin að átta sig á því fyrr, enda hafi sjúkdómsein- kennin verið mjög dulin í upphafi. „Þetta byrjaði með heyrnarskerðingu og það var ekki hefðbundin heyrnar- skerðing. Hann heyrði öll hljóð en orðin skiluðu sér ekki. Þar af leið- andi lenti ég í svolitlu basli því það var ekki talið neitt annað að honum en óþekkt. En hann var afskaplega sannur og samviskusamur og sýndi aldrei neina óþekkt.“ Fram að níu ára aldri, þegar hann greindist með sjúkdóminn, og fyrstu árin þar á eftir gat Tryggvi lifað nokk- uð eðlilegu lífi að sögn móður hans. Síðustu tvö ár voru hins vegar erfið því sjúkdómnum fylgdi jafnvægis- skerðing sem leiddi til þess að hann þurfti að nota hjólastól. Auk þess var hann búinn að missa hreyfigetu í höndunum. Barðist fyrir réttindum fatlaðra Ásta lýsir Tryggva sem baráttumanni sem lét veikindi sín ekki stöðva sig. „Honum var mjög hugleikið að berj- ast fyrir réttindum fatlaðra. Hon- um fannst vera vegið að sínum rétt- indum. Þó hann væri með þennan hrörnunarsjúkdóm og líkaminn hrörnaði, þá var hann afskaplega vel gerður og skynsamur drengur sem vildi vera í sínu umhverfi. Honum fannst hann eiga rétt á því að geta verið heima,“ segir Ásta. Mæðginin vöktu mikla athygli í nóvember í fyrra þegar Stöð 2 fjallaði um aðbúnað fjölskyldunnar, en vegna veikinda Tryggva þurfti að ráðast í miklar breytingar á heimili þeirra. Þau leituðu eftir aðstoð hjá Akureyrarbæ en fengu enga aðstoð. Í viðtali við sjónvarpsstöðina var hann spurður hvað honum þætti mikil- vægast að koma á framfæri við fólk? Tryggvi svaraði: „Ég vil að fólk átti sig á því hvað er erfitt að vera með svona sjúkdóm og að fólk sem er með sjúk- dóma valdi ekki að vera með þá. Þetta getur komið fyrir hvern sem er.“ Ástu sárnaði skilningsleysi yfir- valda á þeim tíma sem þau þurftu að standa í framkvæmdum á heimilinu. „Við þurftum að gera miklar breyt- ingar á húsnæðinu til að gera honum kleift að vera hérna heima. Við leit- uðum eftir aðstoð hjá Akureyrarbæ, sem kallar sig fjölskyldubæinn, þar var enga aðstoð að fá í svona breyt- ingar. Það hefði verið hægt að vista hann á stofnun þar sem hann átti ekki heima því hann var með meira fulla skynsemi. Hann var bæði af- skaplega vel gerður og mjög greind- ur,“ segir Ásta. Hún segist að lok- um vilja koma á framfæri þakklæti til allra sem hafa sýnt fjölskyldunni stuðning á þessum erfiðu tímum. Lífsglaður til síðasta dags Lífið Ég lifi fyrir mig Þú lifir fyrir þig Maður lifir fyrir sjálfan sig og saknar hinna. Ég elska að vera til Ég elska að vera ég Ég elska hver ég er Ég elska að vera til í þessum stóra heimi. Höfundur: Tryggvi Jón Jónatansson Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Tryggvi Jón Jónatansson Daginn áður en hann lést tók hann þátt í 1. maí-hlaupinu þar sem skólasystkini hans hlupu með hjólastólinn hans. Móðir hans segir hann hafa verið afskaplega hamingjusaman þann dag. Tekist á um World Class: Selt á gjafverði til tengdra aðila Tvö mál sem þrotabú ÞS69 ehf. hef- ur höfðað gegn Laugum ehf., í eigu Björns Leifssonar, voru tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtu- dag. Þrotabúið krefst þess meðal annars að sölu á World Class úr ÞS69 verði rift þar sem líkamsræktarveldið hafi verið selt allt of lágu verði til tengdra aðila. ÞS69 ehf. hét áður Þrek ehf., en Björn Leifsson og Hafdís Jónsdótt- ir, keyptu rekstur World Class út úr þrotabúinu og greiddu einungis 25 milljónir króna fyrir. Þrek ehf. hafði farið í þrot árið 2009 og nema kröfur í þrotabúið 2,2 milljörðum króna. Skiptastjóri þrotabúsins, Sigur- björn Ársæll Þorbergsson, lítur hins vegar svo á að kaupsamningurinn hafi verið gjafagerningur og vill að dóm- stólar rifti kaupunum enda sé World Class að minnsta kosti 500 til 700 milljóna króna virði. Annað mál sem tekið var fyrir á fimmtudag snýr að viðskiptum með fasteign á Seltjarnar- nesi sem hýsir starfsemi World Class þar í bæ. Krefjast riftunar á milljóna greiðslum Riftunarmál slitastjórnar Lands- bankans á hendur Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, var tekið að nýju fyrir í héraðsdómi á fimmtudag. Mánuður er síðan héraðsdómur hafnaði frávísunarkröfu Sigur- jóns en slitastjórninn krefst þess að hundruð milljóna króna launa- greiðsla til Sigurjóns rétt fyrir hrun verði rift. Sams konar mál var einnig höfð- að gegn Halldóri J. Kristjánssyni, fyrrverandi bankastjóra Lands- bankans, en samkvæmt heimildum DV er enn þónokkuð í að aðalmeð- ferð í málunum hefjist. Meðal þess sem leggja þarf mat á er gjaldfærni bankans þegar launagreiðslur til bankastjóranna voru reiddar af hendi. Þetta er ekki eina dómsmálið sem hangir yfir bankastjórunum fyrrverandi enda krefur slitastjórnin þá um 37 milljarða króna í skaða- bætur vegna meintrar vanrækslu við störf í aðdraganda hrunsins. n Tryggvi Jón Jónatansson lést á heimili sínu aðfara - nótt 2. maí n Skólabræður hlupu með hann í hjólastól í 1. maí- hlaupinu n Fæddist heilbrigður en hrakaði hratt síðustu mánuðina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.