Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Qupperneq 2
2 | Fréttir 3.–5. júní 2011 Helgarblað Flúðu pabbann „Ég vil koma fram og segja sögu mína því veit að hún er ekki einsdæmi,“ segir Jóna Sigur- björg Guðmunds- dóttir, móðir átta ára drengs, sem flúin er til Svíþjóð- ar undan barnsföður sínum. Faðir drengsins og frændi voru kærðir fyrir kynferðisbrot gegn drengnum og er málið nú í höndum Ríkissaksóknara. Við húsleit á heimilum mannanna fundust fíkniefni, maríjúana og hvítt efni sem lögreglan taldi vera kókaín. Málið vakti mikla athygli þegar það kom upp fyrr á árinu en faðir drengs- ins var metinn hæfur af barnavernd Hafnarfjarðar árið 2007 til að umgang- ast drenginn þrátt fyrir að eiga að baki langa sögu fíkniefnamisnotkunar og fjölda dóma. Hringurinn reif af fingur „Þetta var rosa- lega óhugnan- legt en virkaði í raun ótrúlega lítið mál,“ segir Aðalsteinn Svan Hjelm sem missti baugfingur hægri handar í slysi fyrir ári. Hann var að spila fótbolta með syni sínum við Áslandsskóla í Hafnarfirði þegar boltinn festist uppi í tré á bak við markið. Til að sækja boltann klifraði Aðalsteinn upp á girðinguna sem umlykur fótboltavöll- inn og er tæpur tveir og hálfur metri á hæð. Þegar hann stökk niður af girð- ingunni vildi ekki betur til en svo að trúlofunarhringur hans festist í teini sem stendur upp úr girðingunni og fingurinn varð eftir. Deila hart á tóbaksbann „Mér finnst það vera skylda stjórnvalda að taka þetta eitur úr almennri um- gengni með tím- anum,“ segir Ólína Þorvarðardóttir, þingkona Samfylk- ingarinnar. Hún er einn níu þingmanna sem leggja til að almenn sala á tóbaki verði bönnuð í skrefum. Um er að ræða tíu ára áætl- un sem þingmennirnir vilja að vel- ferðarráðherra vinni að og miði að því að takmarka sölu tóbaks við apótek. Á meðal flutningsmanna auk Ólínu, eru Árni Johnsen, Álfheiður Ingadóttir, Siv Friðleifsdóttir og Þór Saari. Málið hefur vakið töluverða athygli. Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, segir tillöguna vera bilun. Fréttir vikunnar í DV 1 2 3 Ný kynslóð Rafskutlur -frelsi og nýir möguleikar Einfaldar í notkun og hagkvæmar í rekstri Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Opið virka daga kl. 9 -18, lokað á laugardögum 1. maí til 31. ágúst „PERRAR MYNDU NÝTA SÉR ÞETTA“ „Mér finnst menn taka mikla ábyrgð með því að beina fólki til hinna og þessara ökumanna. Ég myndi ekki þora þessu sjálfur og myndi ekki vilja sjá að unglingarnir mínir væru að nota þetta,“ segir Valdimar L. Gísla- son, eigandi Flugrútunnar á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar. Valdi- mar er sérleyfishafi á fólksflutning- um á milli bæjanna. Nú hefur hins vegar verið sett upp sérstakt skilti við bæjarmörkin á báðum bæjum þar sem fólki er bent á að safnast saman og „húkka“ far með bílum sem eru á leið á milli bæja. Þeir sem þiggja far borga vægt gjald fyrir. 200 krónur í startgjald og síðan eru greiddar 10 krónur fyrir hvern kílómetra fyrstu 100 kílómetrana. Hvatamaðurinn að skiltinu er Jónas Guðmundsson, sýslumað- ur í Bolungarvík. Hann segir helstu ástæðuna fyrir þessari hugmynd vera aukinn eldsneytiskostnað og veikar almenningssamgöngur. „Þetta er til- raun til að prófa hvernig svona lag- að gerir sig og það er alveg á hreinu að ég er ekki að græða á þessu,“ segir Jónas. Óttast perra Valdimar sérleyfishafi segir þessa hugmynd vera skref aftur á bak í ör- yggi almenningssamgangna. „Vega- gerðin og allir segja að þetta sé lög- legt en mér finnst þetta vera afturför í sjálfu sér í öryggi ferða. Svo er alltaf verið að tala um barnaníð og annað slíkt. Væri þetta nú ekki eitthvað fyr- ir þá að vera í; að menn fengju svona hálfpartinn leyfi til að bjóða hinum og þessum upp í bílinn til sín. Það er aðallega fyrirvarinn sem ég geri við þetta. Einhverjir perrar myndu nýta sér þetta og ef eitthvað slíkt kæmi upp þá væri nú verra af stað farið en heima setið. Ef þetta yrði al- mennt víðar þá held ég að þetta gæti orðið misnotað af einhverjum,“ segir Valdimar. DV hefur rætt við aðra íbúa Ísafirði sem hafa lýst sambærilegum áhyggjum. Aðspurður um hættuna af því að perrar nýttu sér þetta tækifæri, seg- ir Jónas: „Já, já, það er nú hætta að því, en hér tel ég að menn þekki hver annað það vel og í texta á skiltinu er fólk hvatt til að vera varkárt og minnt á að það sé á eigin ábyrgð. Þetta er auðvitað viss áhætta en ég tel að þetta sé tilraunarinnar virði,“ segir Jónas. Algjörlega einangraður Þó að þessi möguleiki hafi ekki ver- ið mikið notaður hingað til þá segir Jónas mikilvægt að hann sé til stað- ar. Samgöngur á milli séu ekki nógu góðar og dýrt að treysta á einkabíl- inn. „Ef frúin fer í burtu á bílnum þá finnst manni maður vera algjörlega einangraður. Þarna er þó möguleiki, ekki fer ég að hringja eftir leigubíl,“ segir hann. Á skiltinu sem sett var upp í Bolungarvík er aldurstakmark- ið skráð16 ár. Jónas segist þó búast við því að breyta því þannig að 18 ára aldurstakmark verði til að nýta sér þjónustuna. „Ég kem ekki að þessu sem sýslumaður. Ég er svolítið eins og litla gula hænan og vildi láta reyna á þetta þegar bensínverð er komið í hæstu hæðir og almenningssam- göngur eru á fallandi fæti.“ n Sérleyfishafi óttast umferðaröryggi vegna framtaks sýslumanns í Bolungarvík n Auðveldar fólki að komast á milli staða gegn vægu gjaldi Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Jónas Guðmundsson „Þetta er tilraun til að prófa hvernig svona lagað gerir sig og það er alveg á hreinu að ég er ekki að græða á þessu.“ „Svo er alltaf verið að tala um barnaníð og annað slíkt. Væri þetta nú ekki eitthvað fyrir þá að vera í; að menn fengju svona hálfpartinn leyfi til að bjóða hinum og þessum upp í bílinn til sín. Skilmálar Fólki er bent á að það sé á eigin ábyrgð ákveði það að þiggja far með ókunugum. Bolungarvík Ekki eru allir sammála um framtak Jón- asar sem lét setja upp skilti þar sem fólk getur komið saman til að fá far með bílum sem aka framhjá. Borgin svarar til um styrk Aðsóknin hefur aukist „Nei, ekki er verið að styrkja kaffi- húsarekstur beint heldur atvinnu- skapandi verkefni sem Fjallkon- ubakaríið stendur fyrir,“ segir í svari Reykjavíkurborgar vegna fyrirspurn- ar um rúmlega tveggja milljóna króna styrk sem Fjallkonubakaríið fékk í fyrrahaust úr sjóðnum: Vertu með í skapa betri borg. Sjóðnum er ætlað að styrkja ungt fólk til nýsköp- unar og auðga mannlíf borgarinnar. Fimm manna fagnefnd fór yfir um- sóknir og tók ákvarðanir um úthlut- un styrkjanna. Umræddum styrk var ætlað að standa straum af viðburða- dagskrá fyrir börn og barnagæslu á kaffihúsinu, sem hann hefur gert. DV fjallaði um málið í síðustu viku og sendi jafnframt fyrirspurn til borgarinnar vegna málsins þar sem meðal annars var spurt hvort það væri ekki óeðlilegt að styrkja fyrir- tæki í samkeppnisrekstri til að halda úti slíkri þjónustu. Í svari borgar- innar segir: „Þegar ákvörðun var tekin um styrkveitingu var Fjallkon- ubakaríið eina fyrirtækið sem bauð fram sérstakt viðburðadagatal og sérhæfða þjónustu fyrir barnafólk á Laugavegi. Það var mat fagnefnd- arinnar að hér væri um að ræða nýsköpunarverkefni og að sá þáttur fyrirtækisins sem væri styrktur væri ekki í samkeppnisrekstri.“ Líkt og kom fram í umfjöllun DV í síðustu viku má ætla að sjálfur rekstur Fjall- konubakarísins sem kaffihúss njóti góðs af styrknum, en í svari borgar- innar segir að aðsókn á viðburðina hafi aukist jafnt og þétt. Það er því líklega óhætt að segja að borgin styrki á vissan hátt rekstur kaffihúss- ins þrátt fyrir að það hafi ekki verið ætlunin með sjálfum styrknum. Efast um skaðsemi óbeinna reykinga „Frjáls einstaklingur hefur með- fæddan rétt til athafna svo lengi sem hann skaðar ekki aðra. Í heimi vís- indanna er mjög deilt um skaðsemi óbeinna reykinga og því fráleitt að byggja víðtækt bann á þeim hluta rannsókna sem þjóna hagsmunum ofstopans,“ segir í umsögn Heim- dallar um þingsályktunartillögu sem felur í sér að eftir 10 ár verði tóbak aðeins selt í apótekum gegn lyfseðli. Ungir sjálfstæðismenn virðast efast um skaðsemi óbeinna reykinga og benda á að undirheimar taki við við- skiptum með bannaðar vörur líkt og í áfengisbanninu og nú í fíkniefna- banni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.