Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Qupperneq 12
„Þetta er alveg hræðilegt og að geta
ekki verið á staðnum og ekki geta
farið,“ segir Borghildur Antonsdótt
ir um son sinn Brynjar Mettinisson
sem er í gæsluvarðhaldi í Bangkok
í Taílandi. Borghildur segir Brynjar
hafa verið handtekinn á mánudag
fyrir að vera í slagtogi við mann sem
hafði fíkniefni, sem talið er vera me
tamfetamín, í fórum sínum.
Borghildur hefur ekki fengið að
tala við son sinn en hún hefur ver
ið í sambandi við taílenska kærustu
hans. Hún segir son sinn og kærustu
hans hafa verið á gangi í Bangkok
þegar þau hittu strák sem þau könn
uðust við og gáfu sig á tal við hann.
Þau höfðu gengið með drengnum
smáspöl þegar lögreglan handtók
Brynjar og drenginn sem var með
þeim, að sögn móður hans. Utan
ríkisráðuneytið staðfesti að Brynjar
væri vistaður í fangelsi í Bangkok en
fulltrúi ráðuneytisins vildi ekki tjá sig
frekar um málið.
„Lögreglan handtók þennan
strák og son minn líka. Svo kallaði
hún strákinn númer eitt af því að
hann var með eiturlyf á sér og var
ekki þekktur þarna, þeir voru búnir
að vakta hann. Svo var sonur minn
númer tvö af því að hann var með
honum,“ segir Borghildur.
Fyrstu dagarnir hræðilegir
„Fyrstu tveir til þrír dagarnir voru
alveg hræðilegir því þeir lömdu og
börðu Brynjar og vildu að hann segði
að hann hefði verið með drengnum í
þessu en hann var það ekki og sagð
ist ekki ætla að segja annað, því hann
væri það ekki,“ segir Borghildur, sem
segir kærustu Brynjars hafa greint
sér frá þessu.
Borghildur segir kærustu Brynj
ars hafa sagt sér að hann liti illa út
eftir veruna í fangelsinu. „Hann fékk
ekkert að borða. Hún þarf að fara
með mat til hans einu sinni á dag.
Hún þarf að fara með allt sem hann
þarf, klósettpappír og allt, því hann
fær ekki neitt,“ segir Borghildur en
samkvæmt upplýsingum DV var
Brynjar færður í fangelsi þar sem
glæpamenn sem hafa verið dæmdir
fyrir eiturlyfjamisferli eru vistaðir.
„Það eru víst hræðilegar mútur í
gangi þarna. Þetta snýst allt um pen
inga,“ segir Borghildur sem óttast að
sonur sinn fái ekki sanngjarna máls
meðferð.
Hún segist hafa heyrt í ræðis
manni Íslands í Taílandi sem bíði eft
ir að fá grænt ljós til þess að útvega
Brynjari lögfræðing.
Ætlar til Taílands
Aðspurð segist hún ætla að reyna
að fara til Taílands og reyna að að
stoða son sinn. „Ég verð að gera það.
Maður fær víst ekki að vera þarna
nema þrjá mánuði í einu. Ég var að
hugsa að fara þá í byrjun júlí. Þá get
ég verið í júlí, ágúst og september og
þá verða kannski réttarhöld. Málið er
það að ég er nýflutt til Svíþjóðar með
dóttur mína og barnabörnin og ég er
öryrki. Svo ég er ekki með mikla pen
inga. Það er dýrt að fara til Taílands
og svo þarf maður einhvers staðar að
vera. Ég er mjög heppin með kær
ustuna hans, því ef hún væri ekki
þarna þá veit ég ekki hvað, þá fengi
hann ekki að borða.“
Á afmæli á bak við lás og slá
Þegar hún er spurð hvort hún telji
að Brynjar hafi vitað að félagi hans
var með eiturlyf á sér þá segist hún
ekki trúa því. „Nei, alls ekki. Hann
er búinn að fara þrisvar til Taílands
og hann hefur farið í munkaklaust
ur og verið þar í einhverjar vikur.
Þetta er drengur sem hvorki reyk
ir né drekkur og hann er mjög and
lega þenkjandi,“ segir Borghildur
sem segir Brynjar hafa átt að koma
heim 13. júní næstkomandi. „Svo
á hann afmæli á morgun greyið.
Hann verður 25 ára,“ segir Borg
hildur um son sinn sem mun eyða
25 ára afmælisdeginum í fangelsi í
Bangkok.
Brynjar hafði dvalið í Bangkok í
þrjá mánuði að sögn móður hans
þegar hann var handtekinn. „Hann
hefur komið hérna heim á milli og
vinnur myrkranna milli. Hann tek
ur tvær vaktir í einu og vinnur all
ar helgar, bara til að geta farið aftur
út því honum líkar mjög vel þarna.
Þar á hann kærustu og hefur alltaf
talað svo vel um Taíland og hvað
það er yndislegt,“ segir Borghildur.
Gæti fengið þungan dóm
„Ef Brynjar verður dæmdur í Taí
landi þá gæti hann fengið tíu ára
dóm og jafnvel tuttugu ára dóm
því dómarnir þarna eru svakalega
harðir, og hann yrði þá dæmdur
fyrir ekki neitt. Eða kannski fyrir að
hafa enga peninga,“ segir Borghild
ur.
Hún segist ekki geta trúað því
að sonur sinn sé eitthvað tengdur
fíkniefnasölu. „Maður heldur allt
af að sitt barn sé best en ég veit að
þetta er ekki Brynjar, þetta er ekki
hann. Maður getur ekki gert neitt.
Og að vita að hann hafi verði lam
inn í fangelsi og ekki geta gert neitt,
það er hræðilegt að hugsa til þess,“
segir Borghildur.
12 | Fréttir 3.–5. júní 2011 Helgarblað
SUMARHÚSIÐ
& GARÐURINN
Stútfull af hugmyndum og leiðbeiningum
fyrir garðeigendur
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
ATHYGLISVERÐ
HÖNNUNARBÓK
Fæst í bókabúðum um land allt
Einnig hægt að panta í
síma 578 4800 og á www.rit.is
„Fyrstu tveir til
þrír dagarnir voru
alveg hræðilegir.
„Þetta er hræðilegt“
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
n Brynjar Mettinisson er í fangelsi í Bangkok n Dæmdur í þriggja mánaða gæsluvarðhald vegna meints
fíkniefnabrots n Móðir hans hefur miklar áhyggjur af honum n Eyðir afmælisdeginum bak við lás og slá
Brynjar Mettinisson Var dæmdur í
þriggja mánað gæsluvarðhald í Bangkok.
Borghildur Antonsdóttir „Þetta er alveg hræðilegt og að geta ekki verið á staðnum og ekki geta farið,“ segir móðir Brynjars.