Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Qupperneq 25
Yfirheyrsla | 25Helgarblað 3.–5. júní 2011
n Siv Friðleifsdóttir vill vernda börn og ungmenni fyrir tóbaki n Man ekki hvenær
hún reykti síðast n Viðurkennir að brask með sígarettur og tóbak gæti aukist
Þ
ingkonan Siv Friðleifsdóttir hefur ver-
ið áberandi í umræðunni undanfar-
ið vegna tóbakstillögunnar svokölluðu
sem hún og fleiri þingmenn lögðu fram
í vikunni. Samkvæmt tillögunni á að banna
reykingar á almannafæri í skrefum ásamt því
að takmarka sölu tóbaks þannig að á endan-
um muni það einungis vera selt í apótekum.
Hávær umræða hefur skapast í kjölfar tillög-
unnar. Sumir tala um forræðishyggju en aðrir
telja frumvarpið jákvæða þróun í átt að reyk-
lausu landi. Siv sjálf segir tillöguna ekki beinast
gegn þeim sem reykja heldur gangi hún út á að
vernda börn og ungmenni og koma í veg fyrir
að þau byrji að nota tóbak.
NaFN, aldur, StarFSHeiti:
Siv Friðleifsdóttir, 48 ára, alþingismaður.
HVerS VegNa Vilt þú að reykiNgar Verði
baNNaðar á alMaNNaFæri?
„Umræða um að takmarka reykingar á almanna-
færi fer nú fram víða erlendis. Í Bandaríkjunum
hefur borgarstjóri New York-borgar, Micha-
el Bloomberg, verið í fararbroddi aðgerða. Frá
og með 1. maí 2011 hefur það varðað sektum í
New York-borg að reykja víða á almannafæri.
Sama er uppi á teningnum í Kaliforníu, en þar
er nú bannað að reykja í almenningsgörðum og
á baðströndum. Í greinargerð tillögu okkar eru
sjö meginþættir. Einn er um frekari takmarkanir
á því hvar megi reykja. Þar kemur fram: „Stefna
þarf að því að afnema reykingar á almannafæri.
Verulegur árangur hefur náðst með því að fækka
stöðum þar sem tóbaksneysla er leyfileg. Fá ár
eru síðan reykt var í flugvélum, rútum og kvik-
myndahúsum, athæfi sem væri óhugsandi í dag
enda ástand sem fáir ef nokkrir vilja snúa aftur
til. Þó að efasemdaraddir hafi heyrst þegar slík-
ar reglur hafa verið settar hefur fljótt náðst góð
sátt um þær, einnig meðal langflestra reykinga-
manna. Áfram þarf að vinna að slíkum takmörk-
unum í góðri sátt landsmanna og stíga næstu
skref til að vernda þá sem ekki reykja.“
HVerju Heldur þú að algert tóbakSbaNN
MyNdi Skila Fyrir þjóðFélagið?
„Ekki er verið að tala um algert tóbaksbann
í tillögunni. Tillagan gengur út á að verja
börn og ungmenni, það er að hindra þau
í að hefja reykingar. Í dag reykja um 20%
ungmenna okkar. Á hverju ári byrja um 700
ungmenni að reykja á Íslandi, eða tvö á dag.
Helmingur þeirra mun falla frá fyrir ald-
ur fram vegna reykinga. Verði gerð tóbaks-
varnaráætlun á þeim nótum sem við gerum
ráð fyrir myndu mun færri ungmenni hefja
reykingar. Það myndi skila sér í betri lífs-
gæðum fólks. Einnig færi minna af skattfé
okkar til heilbrigðismála vegna afleiðinga
tóbaksreykinga.
HeFur þú glíMt Við tóbakSFíkN?
„Nei.“
HeFur þú reykt?
„Já, ég fiktaði áður fyrr.“
HVeNær reyktir þú SíðaSt?
„Man það ekki, það er það langt síðan.“
á að baNNa tóbakSFraMleiðSlu?
„Tillagan gengur ekki út á það.“
HVað Með aðrar Skaðlegar Vörur á borð
Við Sykur?
„Tillagan gengur ekki út á sykur.“
er þetta ekki HáMark ForræðiSHyggj-
uNNar?
„Ekki að mínu mati. Ég vann ásamt öðr-
um að því að banna reykingar á veitinga-
og skemmtistöðum árið 2007. Þá vildum við
vernda þá sem unnu á veitinga- og skemmti-
stöðum gegn óbeinum reykingum. Þá var
svipuð umræða uppi um forræðishyggju og
frelsi einstaklingsins. Nú er almenn ánægja
með það bann.“
er rétt að Selja Sígarettur SaMHliða
lyFjuM og HeilSuVöruM SeM eiga að bæta
HeilSuNa?
„Já, að mínu mati er rétt að takmarka aðgengi
að tóbaki til að vernda börn og ungmenni.
Apótek gætu séð um söluna.“
kæMi til greiNa að Fara SöMu leið og Selja
áFeNgi bara í apótekuM?
„Tillagan gengur ekki út á áfengi.“
Heldurðu að apótekuM koMi til Með að
Fjölga eF lögiN taka gildi? Nú er til dæMiS
tóbakSbúðiN björk að tala uM að Sækja
uM apótekaraleyFi.
„Ég held ekki að apótekum myndi fjölga. Hvað
varðar tóbaksbúðina Björk þá finnst mér koma
til greina að hún fengi undanþágu.“
Ýtir baNNið SeM þú leggur til ekki uNdir
ólöglegaN iNNFlutNiNg og braSk Með
Sígarettur og aNNað tóbak?
„Þótt slíkt gæti hugsanlega aukist lítillega er
samt rétt að vinna að þessari áætlun því að
hagsmunir barna og ungmenna eru í húfi.
Hér þarf að bera saman minni og meiri hags-
muni. Það felast miklir hagsmunir í því að
verja börn og ungmenni gegn því að hefja
tóbaksneyslu.“
er tóbakSNeySla VaNdaMál í þiNgSöluM?
„Í þingsal er ekki tóbaksneysla, nema
neftóbaks neysla nokkurra þingmanna. Ég
myndi ekki segja að hún væri sérstakt vanda-
mál fyrir þingstörfin, en hún er ekki til fyrir-
myndar að mínu mati. Neftóbak er nú not-
að í stórauknum mæli á rangan stað ef svo
má segja, þ.e. í munn eða vör. Um 20% ungra
drengja nota tóbak í munn eða vör. Í því eru
28 krabbameinsvaldandi efni og eykst hætta
á t.d. krabbameini í munni og brisi. Ég skora
á alla að verja börn og ungmenni fyrir því að
hefja tóbaksneyslu, hvort sem það eru reyk-
ingar eða það að setja tóbak í munn og vör.“
ert þú HiSSa á ViðbrögðuNuM SeM tillaga
þíN HeFur Hlotið?
„Ég er mjög ánægð með viðbrögðin og um-
ræðuna. Fólk skiptist í tvo hópa, þá sem segja
að þetta sé eðlilegt svo börn og ungmenni verði
varin og svo aðra sem segja að þetta sé forræð-
ishyggja. Ég er sannfærð um að eftir nokkur ár
verði megintillögur okkar að veruleika. Það er
einungis spurning um hvenær og hvernig þær
verða útfærðar.“
FiNNSt þér ViðbrögðiN alMeNNt HaFa
Verið NeikVæð eða jákVæð?
„Bæði jákvæð og neikvæð. Viðbrögðin eru á
mjög svipuðum nótum og þegar við unnum að
því að banna reykingar á veitinga- og skemmti-
stöðum.“
Valda reykiNgar á alMaNNaFæri þér aMa?
„Þær valda mér ekki sérstökum ama. Tillagan
gengur hins vegar út á það að verja börn og
ungmenni. Það er heila málið. Hún beinist ekki
gegn þeim sem reykja.“
keMur það ekki til Með að Vera koStN-
aðarSaMt að geFa út lyFSeðla Fyrir
tóbaki Verði FariN Sú leið að lækNar áVíSi
tóbakSFíkluM tóbaki?
„Nei. Sá kostnaður er margfalt lægri en sá
ávinningur sem við næðum ef færri ungmenni
hefja reykingar en nú er.“
HVerNig Sérð þú Fyrir þér að Fólki yrði
reFSað eF það bryti lögiN?
„Í tillögunni er talað um að herða viðurlög til
dæmis gagnvart þeim sölustöðum sem selja
börnum og ungmennum tóbak í núverandi
sölufyrirkomulagi. Ef velferðarráðherra myndi
útbúa tóbaksvarnaráætlun á þeim nótum sem
við leggjum til yrði ráðherrann að leggja til
hvernig viðurlögum yrði almennt háttað í sam-
ræmi við þau viðurlög sem nú gilda um brot á
tóbaksvarnarlöggjöfinni.“
„Ég fiktaði áður fyrr“
n engar eignir upp í 18 milljarða króna skuldir fjögurra dótturfélaga Stíms n keyptu 80 prósent af
hlutabréfum Stíms í glitni og Fl group eftir að bréfin hríðféllu n Sérstakur saksóknari með málið