Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Síða 31
Umræða | 31Helgarblað 3.–5. júní 2011 Tvö mótsmet Hrafnhildur Lúthersdóttir, 19 ára gömul sundkona, setti mótsmet í 100 metra bringusundi og í 200 metra fjórsundi á Smáþjóðaleikunum í Liechtenstein og vann til þrennra gullverðlauna. Hver er konan? „Hrafnhildur Lúthersdóttir, landsliðskona í sundi.“ Hvar ert þú uppalin? „Í Hafnarfirði.“ Hver eru áhugamálin fyrir utan sund? „Bara þetta týpíska, hanga með vinunum, útivist, ferðalög og að versla.“ Hvenær byrjaðir þú að synda? „Ég byrjaði að synda þegar ég var níu eða tíu ára, ég var aðeins byrjuð að synda í Bandaríkjunum en svo prófaði ég nokkrar aðrar greinar þegar ég flutti heim og byrjaði svo að synda með Sundfélagi Hafnarfjarðar.“ Hver er þín sterkasta sundgrein? „Ég segi 100 metra bringusund en þjálfararnir mínir segja 200 metra bringusund.“ En veikasta sundgreinin þín? „Örugglega 200 metra baksund, sem ég keppi samt aldrei í.“ Hvernig gengur að synda og læra í Bandaríkjunum? „Mér gengur mjög vel þar fékk fínar einkunnir núna í vor og svo gengur mér vel í sundinu. Ég flutti út um jólin og er á fullum námsstyrk til að synda fyrir háskólann. Ég á reyndar eftir að velja mér námsgrein og er í almennu námi núna.“ Hvernig er að keppa í Liechtenstein? „Það er fínt, fyrstu dagana var samt rigning og við vorum að keppa í útilaug. Hótelið okkar er líka í Austurríki svo við þurfum að ferðast á hverjum degi frekar langa leið til að komast í laugina. Þess vegna er búið að vera smávesen á ferðalaginu.“ Fannstu þig vel í lauginni? „Bara mjög vel, það er búið að ganga vel hjá mér að keppa, ég er búin að setja tvö mótsmet og fá þrjá gullpeninga og var að klára að synda boðsund þar sem við fengum silfur.“ Hver eru markmið þín í sundinu? „Komast eins langt og ég kemst og gera eins vel og ég get. Mig langar mest að komast á Ólympíuleikana og komast í úrslit þar.“ Hvað er næst á dagskrá? „Næst á dagskrá er mótaröð í Banda- ríkjunum og svo er ég að byrja að æfa fyrir Heimsmeistaramótið í Shanghai.“ „Já, mér er illa við að verið sé að drepa óbreytta borgara í Afganistan og engir ætla að ráðast á Ísland og því óþarfi að styðja hernaðarbanda- lag NATO.“ Davíð Már Stefánsson 19 ára nemi í MH „Ég treysti mér ekki til þess að svara þessari spurningu að svo stöddu.“ Sunneva 25 ára heimasæta „Ég tel mig bara of fáfróða til að mynda mér skoðun á NATÓ. Þetta er bara of stórt mál til þess.“ Marín Björt, 23 ára nemi Ég hef nú ekki mikla skoðun á því. Ef ég yrði að ákveða það núna þá nei.“ Unnur Stefánsdóttir 17 ára nemi „Ég veit það ekki.“ Þórhildur Eyþórsdóttir 16 ára nemi og afgreiðslustúlka Maður dagsins Á Ísland að segja sig úr NATÓ? Vinna í Hörpunni Þótt búið sé að opna Hörpuna og tónleikahald sé hafið er vinna við húsið enn í fullum gangi. Hátt uppi í glerhjúpnum sat þessi og vann við fram- kvæmdir á húsinu á uppstigningardag, MynD: RóBERt REyniSSon Myndin Dómstóll götunnar Í bankahruninu hausið 2008 kom fljótt fram krafa um að hluti af þeim skuldum sem óðfluga uxu fólki yfir höfuð yrði færður til baka. Í verðbólgufellibylnum við frjálst fall krónunnar hlóðust verðbætur ofan á húsnæðislán á slíkum ógnarhraða að einsýnt þótti að ef ekkert yrði að gert færi allt í voða. Ansi fljótt. En bank- arnar höfðu mánuðina og misserin á undan grafið undan gjaldmiðlunum sem lánin voru veitt í. Því þótti sann- gjarnt að reyna að leiðrétta þetta misgengi með alla vega einhverjum smávægilegum hætti. Við þekkjum þessa sögu: Það varð forsendubrest- ur sem fólki þótti almennt rétt að leiðrétta. Kaldur klaki Ýmsar útfærslur voru í kjölfarið nefndar til að færa til baka svolitla agnarögn af ofteknum verðbótum. Sumir sögðu að færa mætti niður höfuðstól lána um tuttugu prósent, aðrir vildu skrúfa verðbætur niður að hluta á meðan þeir róttækustu vildu skera verðbólgukúfinn af í heilu lagi. Ekkert af þessu var hins vegar gert. Þess í stað kynntu stjórnvöld eftir langa töf ógnarflóknar margliða að- gerðir sem allar miðuðu að því að skera aðeins þá niður úr snörunni sem lengst höfðu gengið í lántök- uruglinu á uppgangstímanum. Á meðan óráðssíufólkið gat gengið að alls konar úrræðum var ráðdeildar- fólkið, sem hafði lagt fé sitt í húsnæði og tekið hóflegt lán út á það sem eftir stóð, skilið eftir á köldum klaka. Jafnvel þó svo að lánasafnið hefði verið fært niður um helming við endurreisn bankanna var okkur sagt að ekkert væri hægt að gera fyrir þá sem stæðu í skilum. Okkur var sagt að aðeins væri hægt að hjálpa þeim sem væru fyrir löngu hættir að borga skuldirnar sínar. Hagsýnu húsmóð- urinni var gefið langt nef. Samt hafði nokkru fyrr þótt sjálfsagt að tryggja bankainnistæður upp í topp – líka innistæður þeirra sem duglegastir voru að raka til sín lánsfé í bólunni og vissu ekki lengur aura sinna tal. Það þótti tæpast nokkuð tiltökumál. Þetta var að sögn gert til að vernda banka- kerfið. Okkur var smám saman talin trú um það. Einkaúrræði Bregður þá svo við núna í vikunni að Landsbankinn (af öllum fjármála- stofnunum) stígur fram fyrir skjöldu og býðst nú allt einu til að gera það sem staðið hafði upp á stjórnvöld og lýsir því einhliða yfir að bankinn hyggist endurgreiða viðskiptavin- um sínum tuttugu prósent af öllum vaxtagreiðslum frá því í hruni. Bara sísona. Spólum aðeins til baka: Fyr- ir nokkrum misserum héldu stjórn- völd því blákalt fram að ófært væri að færa til baka oftekna vexti af hús- næðislánum sem hækkuðu upp úr öllu valdi við verðbólguskotið. En nú gerir Landsbankinn einmitt og akk- úrat það. En það gildir vitaskuld aðeins fyrir viðskiptavini Landsbankans. Viðskiptavinir annarra fjármálafyr- irtækja sitja því áfram í sömu skulda- súpunni og áður. Er nema von að al- þýðufólk í þessu landi hristi höfuðið yfir aðgerðaleysi ráðamanna í þessu brýnasta hagsmunamáli heimil- anna. Verstu mistökin Ég leyfi mér að fullyrða að uppgjöf- in fyrir skuldavanda heimilanna séu verstu mistök núverandi stjórnvalda. Sem vissulega tók við hroðalegu búi – líkast til því versta sem nokk- ur ríkisstjórn hefur tekið við á lýð- veldistímanum. En einhverra und- arlegra og óútskýrðra hluta vegna hefur vinstristjórnin þverskallast við að leiðrétta ofteknar verðbætur sem fjármálafyrirtækin hrifsuðu af fólki í kjölfar hrunsins. Svo virðist sem blessuð félagshyggjustjórnin trúi í meiri blindi á meint lögmál fjár- málakerfisins en jafnvel harðsvíruð- ustu hægrimenn gera. Þessi undir- furðulega bókstafstrú hefur á liðnum misserum kostað vinstristjórnina stuðning almennings í þessu landi – sem í einfeldni sinni leit til vinstri sinnaðra stjórnvalda eftir almennum opinberum aðgerðum. Hvers virði já? Útspil Landsbankans sýnir og sannar að stjórnvöld höfðu einfaldlega rangt fyrir sér um bolmagn bankakerfis- ins til að færa til baka oftekið fé sem rifið var af reikningum almennings. Ríkisstjórnin ætti því nú að sjá sóma sinn í að þvinga önnur lánafyrirtæki til að veita viðskiptavinum sínum sömu fyrirgreiðslu og Landsbank- inn býður. Því hvers virði er annars félagshyggjustjórn sem heykist á því að vernda alþýðuna gegn ofríki fjár- málafyrirtækja? Langt nef Kjallari Dr. Eiríkur Bergmann„Því hvers virði er annars félagshyggjustjórn sem heykist á því að vernda alþýðuna gegn ofríki fjármálafyrirtækja?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.