Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Side 32
G
uðbergur býr í útsýnisíbúð við sjávar-
síðuna í Reykjavík og býður til sæt-
is á móti Esjunni. Hann sest í leður-
stól, krossleggur fæturna og segist líða
ágætlega í íbúðinni. „Jú, hér hef ég
verið í 10 ár og það er ágætt útsýni hér en sól-
in skín ekki hingað, hún getur víst ekki farið að
skína úr norðri fyrir mig enn þá, segir hann og
brosir.
Guðbergur kom til Reykjavíkur ungur
maður úr Grindavík. Á milli Grindavíkur og
Krísuvíkur er að finna æskuheimili Guðbergs,
Ísólfsskála. „Þar býr enginn í dag og Guðbergur
heimsækir æskuslóðirnar oft. Húsinu er hald-
ið vel við og er sérlega fallegt þótt það sé eyði-
býli, en þótt ég fari þangað stundum þá sef ég
aldrei í húsinu,“ segir Guðbergur. „En það geta
aðrir gert því Guðbergur segir húsið leigt út til
skemmri tíma. Þar er rafmagn og hiti og allt
saman og nú er kominn góður vegur svo það
tekur enga stund að fara þangað. Húsið stend-
ur á óskaplega stórri jörð, nær næstum yfir all-
an Reykjanesskaga að Selatöngum. Ég erfði
hluta af þessari jörð svo ég er merkilegur stór-
jarðeigandi,“ segir hann og brosir út í annað.
Fékk Flugvöll í arF
Þótt Guðbergur gantist með það að vera merki-
legur stórjarðeigandi þá má það til sanns vegar
færa.
Í fréttum nýverið var því slegið upp að hann
hefði erft miklar eignir eftir spænskan vin sinn.
En fyrir skömmu lést spænskur vinur hans og
sambýlismaður á Spáni um áratugaskeið.
En er eitthvað til í þeim sögusögnum? Á
hann ef til vill meira en brot í náttúrufegurðinni
á Reykjanesskaganum? Guðbergur kinkar kolli
og útskýrir fyrir blaðamanni að hann hafi erft
jarðir, fasteignir og heilan flugvöll í Alicante á
Spáni.
„Ég er á leiðinni til Spánar með lögfræð-
ingi mínum og ætla að ganga frá þessu. Ég hef
ákveðið að afsala mér miklu af þessum ný-
fengnu eigum mínum og mun velja og hafna,“
segir Guðbergur. „Ég var að því kominn að
eignast heilan flugvöll. Ég hef ekkert að gera
við flugvöllinn í Alicante, þangað flýgur Iceland
Express,“ segir hann og brosir breitt.
Er milljarðamæringur á pappírum
„Ég held að það standi styr um þetta lagalega
séð því þetta var tekið eignanámi á tímum
Francos eins og svo margt annað og svo átti
ég að erfa þetta og landareignina í kring. En
ég held að ég sé svo heppinn að geta afsalað
mér þessu. Maður sem hefur ekkert við þetta
að gera og kann ekki einu sinni á bíl og á ekki
mótorhjól og alls ekki flugvél.“
Þetta eru miklar eignir sem Guðbergur ræð-
ir um, flugvöllurinn í Alicante er sjötti stærsti
flugvöllur Spánar, þangað ferðast tugmilljónir
á hverju ári og á síðasta ári var 44 milljóna evra
hagnaður af rekstri flugvallarins á Alicante.
Flestir flugvellir á Spáni eru víst reknir með tapi
en sá sem Guðbergur segist hafa fengið í arf er
verðmætari en flestir þeirra. Í ár var byggð ný
álma við flugvöllinn og verðmæti hennar er
mörg hundruð milljónir evra. Það er því ljóst
að Guðbergur er á pappírum orðinn milljarða-
mæringur.
ætlar að aFsala sér miklum
Eignum
Guðbergur segist ekkert hafa á móti því að eiga
hluti en hann hefur alls engan áhuga á að eiga
nokkuð jafnflókið og flugvöll og hann held-
ur að það muni taka marga mánuði að ganga
frá lagalegum atriðum er varða afsal á þessum
eignum.
„Ég reyni svona að halda í það sem ég hef
safnað að mér en ég vil ekki halda í flugvelli.
Ég fékk fleira í arf frá vini mínum en það mun
taka marga mánuði að ganga frá þessu. Ég
losna ekki undan því, ég vildi að þetta væri ekki
svona óskaplega flókið en það er það.“
Fljótur að hugsa
Guðbergur hefur dvalið mikið á Spáni í heima-
landi síns kæra vinar. Vissulega andstæðir
pólar, Spánn og Ísland. Hann fór fyrst utan til
náms á sjötta áratugnum til Barselóna og seg-
ist hafa lært margt af spænskum vinum sínum,
meðal annars það að vera skjótur í tilsvörum.
„Ég lærði það á Spáni að vera fljótur að
svara. Þeir eru voðalega fljótir Spánverjar, heil-
inn er hraður en þeir verða snemma þroskaðir
og síðan standa þeir í stað og síðan kemur fram
hjá þeim hrörnun. Þar sem þeir reykja mikið og
drekka mikið þá hrörna þeir fyrr og þá nota þeir
yngri kynslóðina sem hjálparhellu og segja:
Strákurinn hann man það. Þannig var þetta að
minnsta kosti, nú hafa allir tölvur sem hjálpar-
hellur þegar hrörnunin gerir vart við sig. “
ósætti Er undirstaða þroska
Guðbergur segist líka hafa lært að þekkja ým-
islegt um ósætti sem undirstöðu þroska á
Spáni. „Það er líka nauðsynlegt að það séu
deilur. Ósætti er undirstaða þroska. Sérstak-
lega innan fjölskyldunnar vegna þess að þá
lærir þú að verja þig. Til dæmis við matar-
borðið, þú situr þar og einhver er beint á móti
þér. Þú getur staðið upp og hörfað en ákveður
að verja þig. Börn sem koma frá heimilum þar
sem er rökrætt og deilt standa sig betur í lífinu.
32 | Viðtal 3.–5. júní 2011 helgarblað
Stórauðugur
maður en er
Sama u uðæfin
Guðbergur Bergsson hefur alltaf farið eigin leiðir í lífinu, nú er
hann auðugur maður og á flugvöll í Alicante á Spáni og fleiri eignir
sem hann fékk í arf eftir spænskan vin sinn og sambýlismann um
áratugaskeið. Verðmæti eignanna eru líklega margir milljarðar. En
Guðbergur segist ekkert hafa við flugvöll að gera og er á leiðinni út
til að afsala sér þeirri eign. Guðbergur ræddi við kristjönu guð-
brandsdóttur um veraldleg og andleg auðæfi.
„Ég fékk fleira
í arf frá vini
mínum en það mun
taka marga mánuði
að ganga frá þessu.
„ég var að því kominn
að eignast heilan flug-
völl. ég hef ekkert við flug-
völlinn í alicante að gera.
afsalar sér milljarðaeign „Ég hef ákveðið að afsala
mér miklu af þessum nýfengnu eigum mínum, og mun
velja og hafna,“ segir Guðbergur. „Ég var að því kominn
að eignast heilan flugvöll. Ég hef ekkert við flugvöllinn í
Alicante að gera.“