Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Side 39
Ættfræði | 39Helgarblað 3.–5. júní 2011
Til hamingju!
Afmæli 3.–5. júní
Föstudagur
40 ára
Iwona Bozena Jónasson Fróðengi 20, Reykjavík
Halldóra Pálmarsdóttir Ölduslóð 27, Hafnarfirði
Albert Ingi Gunnarsson Suðurgötu 35, Akranesi
Anna Margrét Tómasdóttir Laugavöllum,
Búðardal
Sigurður Birgisson Krossi 1, Húsavík
Hávarður Örn Hávarðsson Norðurbakka 23,
Hafnarfirði
Þórhallur Matthíasson Heimalind 11, Kópavogi
Halla Grétarsdóttir Hjallabraut 50, Hafnarfirði
50 ára
Michael A. Levin Hlunnavogi 15, Reykjavík
Guðni Ólason Fornastekk 13, Reykjavík
Sólrún Helga Óskarsdóttir Laugarásvegi 4a,
Reykjavík
Helga Ingjaldsdóttir Silungakvísl 31, Reykjavík
Helga Árnadóttir Þverási 3, Reykjavík
Jón Helgi Arnljótsson Ytri-Mælifellsá, Varmahlíð
María Elsa Erlingsdóttir Arahólum 2, Reykjavík
60 ára
Arndís Birgisdóttir Sævangi 34, Hafnarfirði
Ágústa Sveinbjörnsdóttir Tjarnargötu 40,
Reykjavík
Erla Kristín Jónasdóttir Kambsvegi 21, Reykjavík
Ástríður Sigvaldadóttir Gerplustræti 25, Mos-
fellsbæ
Jón Richard Sigmundsson Reyrengi 41, Reykjavík
Hulda B. Hákonardóttir Skipholti 36, Reykjavík
Hermann Ragnarsson Baughóli 46, Húsavík
Benedikt Óskar Sveinsson Blönduhlíð 20,
Reykjavík
Þuríður Guðnadóttir Háaleitisbraut 155, Reykjavík
Kristján Snorrason Bakkahlíð 19, Akureyri
Árni Páll Ragnarsson Hjallavegi 3, Reyðarfirði
70 ára
Margrét Sigríður Pálsdóttir Brúnavegi 3,
Reykjavík
Ragnhildur Magnúsdóttir Gýgjarhólskoti 1,
Selfossi
Dagný Karlsdóttir Vogatungu 17, Kópavogi
Sigurður Helgason Brennihlíð 2, Sauðárkróki
Þóra Sumarliðadóttir Skipalóni 4, Hafnarfirði
Kristjana Vilhjálmsdóttir Garðbraut 47, Garði
Ögmundur Magnússon Skaftahlíð 3, Reykjavík
Margrét Ólafsdóttir Hegrabjargi, Sauðárkróki
Sigrún Ólafsdóttir Hegrabjargi, Sauðárkróki
Sigurlaug Ólafsdóttir Kleif, Sauðárkróki
Guðsteinn Jónsson Lindargötu 57, Reykjavík
75 ára
Bjarnfríður Guðmundsdóttir Esjubraut 39,
Akranesi
Guðmann Sveinsson Hamraborg 36, Kópavogi
Anna Ágústsdóttir Höfðabraut 3, Hvammstanga
Ásbjörn Helgason Hafnargötu 24, Vogum
Sigurður H. Sigurðsson Breiðagerði 13, Reykjavík
80 ára
Margrét Kristjánsdóttir Háholti 16, Hafnarfirði
Aðalbjörn Sigurlaugsson Gunnólfsgötu 6,
Ólafsfirði
Svavar Jónatansson Rjúpnasölum 14, Kópavogi
Anna Kristín Jónsdóttir Þangbakka 10, Reykjavík
Haukur Ísaksson Ásbraut 15, Kópavogi
Helga Þórhallsdóttir Ormsstöðum, Egilsstöðum
85 ára
Óskar Sörlason Furugerði 1, Reykjavík
María Pétursdóttir Engihjalla 9, Kópavogi
90 ára
Heiður Júlíusdóttir Víðilundi 24, Akureyri
Ástríður Ingvarsdóttir Kleppsvegi Hrafnistu, RVK
Sigríður Bárðardóttir Engihjalla 19, Kópavogi
Sigríður J. Fannberg Snorrabraut 58, RVK
Guðjón Benediktsson Gunnarsbraut 8, Búðardal
Kristjana O. Kristinsdóttir Ásgötu 12, Raufarhöfn
95 ára
Guðrún Árnadóttir Barónsstíg 65, RVK
Laugardagur
40 ára
Krzysztof Królikowski Urðarholti 4, Mosfellsbæ
Snorri Gunnarsson Bjarkargötu 14, RVK
Magnús Logi Magnússon Kleifarseli 7, RVK
Helgi Friðrik Kemp Georgsson Hátúni 9, Eskifirði
Elínborg Sigurðardóttir Höfðahlíð 13, Akureyri
Ásta G. Hafberg Sigmundsdóttir Lágholti 23,
Mosfellsbæ
Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir Hlíðarvegi
20, Ísafirði
Fernando Jorge T. Ducamp Ofanleiti 23, RVK
Skarphéðinn Birkisson Hátúni 10a, RVK
Ingólfur Gissurarson Suðurgötu 100, RVK
Ragna María Björnsdóttir Dvergaborgum 8, RVK
Sólrún Bryndís Aradóttir Dalbraut 30, Bíldudal
50 ára
Paul Dmitri Nathan Snorrabraut 81, RVK
Guðrún Emilía Höskuldsdóttir Öndólfsstöðum,
Húsavík
Ari Sigursteinsson Bakkastíg 19, Eskifirði
Hjörleifur Hjálmarsson Hjallalundi 9d, Akureyri
Erla Ruth Harðardóttir Hraunbrún 29, Hafnarfirði
Árni Svavarsson Hlemmiskeiði 3, Selfossi
Þorsteinn Bjarnason Vallholti 27, Selfossi
Þorbjörn Jónsson Kaplaskjólsvegi 79, RVK
Þorbjörg Guðjónsdóttir Fljótaseli 28, RVK
Jón Ingi Björnsson Hólavegi 6, Laugum
Gunnar Kristófersson Fögrubrekku 40, Kópavogi
Jóhann Grétarsson Andarhvarfi 1, Kópavogi
60 ára
Guðmundur Jóhann Stefánsson Brautarási
2, RVK
Ragna Pálsdóttir Heiðarlundi 5g, Akureyri
Gíslína Matthildur Gestsdóttir Fjarðargötu
64, Þingeyri
Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir Kjarrhólma 8,
Kópavogi
Eyjólfur Sigurðsson Fagurhólstúni 14, Grundar-
firði
Irena Krawczuk Smárabarði 2d, Hafnarfirði
Jóhannes Hreggviðsson Víðigerði 3, Akranesi
Sigríður Jóna Ólafsdóttir Gerðakoti 3, Álftanesi
Hrefna Birgisdóttir Álftarima 11, Selfossi
Hafliði Kristinsson Bakkagerði 5, RVK
Vilborg Þóra Guðlaugsdóttir Krummahólum
55, RVK
70 ára
Gylfi Theódórsson Sóleyjarima 15, RVK
Guðrún Kristjana Ólafsdóttir Grænlandsleið
47, RVK
Ásdís Jónasdóttir Rauðarárstíg 41, RVK
Ágústa Halldórsdóttir Langholtsvegi 12, RVK
Ólafur Guðmundsson Hjallabrekku 29, Kópavogi
Ásdís Björg Ásgeirsdóttir Frostafold 21, RVK
75 ára
María Gísladóttir Urðarvegi 80, Ísafirði
Hjörvar Sævaldsson Kleppsvegi 62, RVK
80 ára
Jóhannes Kristófersson Finnmörk, Hvamms-
tanga
Sigríður Gísladóttir Litlu-Reykjum, Selfossi
Arnþór Björgvinsson Leirubakka 28, RVK
Ráðhildur Guðmundsdóttir Framnesvegi 20,
Reykjanesbæ
Esther Vilhjálmsdóttir Fannborg 8, Kópavogi
85 ára
Guðjón A. Friðleifsson Gerðhömrum 25, RVK
Ingiberg Halldórsson Linnetsstíg 2, Hafnarfirði
Albert Kristinsson RVKurvegi 52b, Hafnarfirði
90 ára
Jón Guðmundsson Skólabraut 4, Grindavík
Sunnudagur
40 ára
Sigurður Þórðarson Aflagranda 40, RVK
Ingibjörg Halldórsdóttir Suðursölum 1, Kópavogi
Guðmundur Birgir Guðmundsson Rofabæ
29, RVK
Þórður Ægir Jensson Skólabraut 12, Seltjarnarnesi
Berglind Ólafsdóttir Hraunbæ 144, RVK
Friðrika Kristín Stefánsdóttir Hagamel 32, RVK
Margrét Elísa Gylfadóttir Goðahrauni 9, Vest-
mannaeyjum
50 ára
Kristín M. Valdemarsdóttir Jónsgeisla 13, RVK
Friðrik Jónsson Birkiteigi 13, Reykjanesbæ
Sigrún Waage Dalakri 9, Garðabæ
Antonio Miguel M. Monteiro Bæjarhrauni 4,
Hafnarf.
Ragnheiður Helgadóttir Hörgsholti 15, Hafnarf.
Júlía Birna Birgisdóttir Suðurgötu 71, Siglufirði
Jónas Geirsson Jörundarholti 104, Akranesi
Eugenia Björk Jósefsdóttir Lækjasmára 78,
Kópavogi
Jón Halldór Gunnarsson Lækjargötu 34b,
Hafnarf.
Guðmundur Örn Flosason Hátúni 31, Reykja-
nesbæ
Arndís Arnardóttir Selbrekku 36, Kópavogi
Haukur Ragnarsson Álfabergi 10, Hafnarf.
Bjarni Hallgrímsson Dvergagili 36, Akureyri
Steinunn Jónsdóttir Kaplaskjólsvegi 53, RVK
60 ára
Sigríður Benediktsdóttir Fáfnisnesi 8, RVK
Hildur Kristjánsdóttir Norðurbakka 25c, Hafnarf.
Ásgeir Júlíus Ásgeirsson Bjargi, Grindavík
Steingrímur A. Long Vættaborgum 76, RVK
Sævar Leifsson Flókagötu 9, RVK
Áslaug Haraldsdóttir Garðhúsum 1, RVK
Inga Guðrún Hlöðversdóttir Blómsturvöllum
2, Stokkseyri
Trausti Jónsson Hátúni 8, RVK
Inga Jóna Einarsdóttir Baughúsum 27, RVK
70 ára
Björg Þórðardóttir Þorláksgeisla 12, RVK
Sigurður R. Ólafsson Ásgarði 18, RVK
Guðbjörg Ólafsdóttir Birkivöllum 34, Selfossi
Sigríður Þórarinsdóttir Dvergabakka 28, RVK
Stefán Stefánsson Stekkjargötu 59, Reykjanesbæ
Steinþór Haukur Oddsson Ránargötu 21, Akureyri
Gauti Indriðason Drekavöllum 26, Hafnarf.
Hjálmtýr Brandur Dagbjartsson Miðvangi 113,
Hafnarf.
Björk Gísladóttir Vesturgötu 4, Ólafsfirði
Vilhelmína Ægisdóttir Stóragerði 22, RVK
75 ára
Gróa Steinunn Guðjónsdóttir Skólagerði 56,
Kópavogi
Sigríður Ingimundardóttir Sólheimum,
Blönduósi
80 ára
Torfhildur Steingrímsdóttir Víðilundi 20, Akur-
eyri
Einar Þ. Guðmundsson Langagerði 29, RVK
Sveinn Hannesson Katrínarlind 5, RVK
Jónas Sigurmundsson Sólbrekku 25, Húsavík
Ragnvald Larsen Nýbýlavegi 44, Kópavogi
Anna Þóra Þorláksdóttir Boðagranda 7, RVK
85 ára
Hjördís Þórðardóttir Súluhólum 2, RVK
Sigrún Þórðardóttir Unufelli 32, RVK
90 ára
Bergþóra Gísladóttir Furugerði 1, RVK
95 ára
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir Dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi
Hjörtur Pálsson
Rithöfundur og staðarprestur og leiðsögumaður á Hólum í Hjaltadal
70 ára á sunnudag
Hjörtur Pálsson fæddist að Sörla-stöðum í Fnjóskadal í Suður-Þingeyjarsýslu og ólst upp í
Fnjóskadal og á Akureyri. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri 1961, lagði stund á íslenska
málfræði, bókmenntir og sögu við
Háskóla Íslands og útskrifaðist með
cand.mag.-próf í íslenskum fræð-
um 1972, stundaði nám í finnsku og
finnskum fræðum og bókmenntum
við Háskóla Íslands 1987–91, dvaldi
sumarlangt í Helsinki 1991 og sat á
sumarnámskeiði í finnsku í háskól-
anum í Tampere 1992, stundaði síðar
nám í guðfræði við Háskóla Íslands og
lauk þaðan guðfræðiprófi 2007.
Hjörtur var blaðamaður á Tímanum
1961–62 og Alþýðublaðinu 1963–64,
var bókavörður í Íslandsdeild bóka-
safns Manitoba-háskóla, Elizabeth
Dafoe Library, í Winnipeg 1963.
Hjörtur var fréttamaður og dagskrár-
fulltrúi í Ríkisútvarpinu með námi
1964–72, var dagskrárstjóri hljóð-
varpsdeildar Ríkisútvarpsins 1972–84,
var lektor í íslensku og íslenskum bók-
menntum við Árósaháskóla 1974–75
í forföllum annars og dvaldi í seinna
skiptið, 1982-83, við ritstörf í Digter-
hjemmet, Julius Bomholdts hus, á
Fanø. Hann var forstöðumaður Nor-
ræna hússins í Færeyjum 1984–85 en
hefur síðan stundað ritstörf og þýðing-
ar, málfarsráðgjöf, prófarkalestur og
fleiri skyld störf, einkum við útvarp og
í tengslum við bókaútgáfu. Hann var
við bókmenntarannsóknir í Lundi og
Stokkhólmi haustið 1992.
Hjörtur hefur frá 2008 verið sóknar-
prestur í afleysingum í Hofsós- og
Hólaprestakalli, Saurbæjarprestakalli
á Hvalfjarðarströnd og á Möðruvöllum
í Hörgárdal. Síðustu tvö sumur hefur
hann verið staðarprestur á Hólum í
Hjaltadal og leiðsögumaður um Hóla-
dómkirkju og verður þar nú þriðja
sumarið í röð.
Hjörtur var virkur í starfi Norræna
félagsins um margra ára skeið, var rit-
stjóri Norrænna jóla 1985–91, fulltrúi
í útgáfuráði Almenna bókafélagsins
í tíu ár og sat í dómnefnd af Íslands
hálfu um bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs 1976–82, var varamað-
ur í stjórn Norræna þýðingasjóðsins
um skeið og í stjórn Rithöfundasjóðs
Íslands og Rithöfundasjóðs Ríkis-
útvarpsins, sat í stjórn Rithöfunda-
sambands Íslands í átta ár og Suomi
félagsins frá 1998 og formaður þess frá
1999–2010. Þá var hann varamaður í
Þjóðleikhúsráði um skeið.
Hjörtur er höfundur fimm ljóða-
bóka: Dynfaravísur, ljóð 1972; Fimm-
strengjaljóð, ljóð 1977; Sofendadans,
ljóð 1982; Haust í Heiðmörk, ljóð,
1985; Úr Þegjandadal, ljóð 1998. Þá er
hann höfundur ritsins Alaskaför Jóns
Ólafssonar 1874, sagnfræðirit, útg.
1975.
Auk þess hafa ljóð eftir hann birst í
tímaritum. Hann hefur þýtt á fjórða
tug bóka í bundnu og óbundnu máli,
skáldverk, ferðabækur, barnabækur og
önnur rit úr ensku, þýsku og Norður-
landamálum, þ.á m. færeysku og
finnsku. Flestar þýðingarnar hafa verið
prentaðar á bók, en hinar birst í blöð-
um og útvarpi eða verið leiknar á sviði.
Auk þess er Hjörtur höfundur margra
útvarpsþátta og hefur birt greinar og
þýðingar í blöðum og tímaritum. Þá
hefur Hjörtur séð um útgáfu fjölda
bóka og búið þær til prentunar. Ljóð
og önnur skrif eftir Hjört hafa birst í
ýmsum safnritum, bæði hér á landi og
erlendis.
Hirti var veitt heiðursviðurkenning
Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins 1989;
veitt viðurkenning Rithöfundasjóðs Ís-
lands 1990; var bæjarlistamaður Kópa-
vogs 1990; vann til fyrstu verðlauna
í ljóðasamkeppni MENOR og Dags
1995, og smásagnasamkeppni sömu
aðila 1998; hlaut starfsstyrk lista- og
menningarráðs Kópavogs 2001. Hann
hlaut fyrstur Ljóðstaf Jóns úr Vör, í
ljóðasamkeppni árið 2002, og verð-
laun úr minningarsjóði Guðmundar
Böðvarssonar skálds og Ingibjargar
Sigurðardóttur, konu hans, árið 2008.
Fjölskylda
Hjörtur kvæntist 21.4. 1962 Stein-
unni Bjarman, f. 7.10. 1928, skjala-
verði og fyrrv. deildarstjóra í iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytinu. Hún er dóttir
Sveins Árnasonar Bjarman, aðalbók-
ara KEA, og Guðbjargar Björnsdóttur
Bjarman húsfreyju, sem bæði eru lát-
in.
Dætur Hjartar og Steinunnar eru
Hulda, f. 30.7. 1962, læknir og sérfræð-
ingur í kvensjúkdómum og fæðingar-
hjálp við kvennadeild Landspítalans
- Háskólasjúkrahúss, gift Eggert Pét-
urssyni myndlistarmanni; Guðbjörg, f.
18.10. 1963, myndlistarmaður í Lond-
on, var gift Michael R. Leaman bókaút-
gefanda; Þórunn, f. 28.2. 1965, mynd-
listarmaður í Reykjavík og lesari, var
gift Herði Bragasyni tónlistarmanni.
Stjúpdóttir Hjartar er Kristín Pálsdótt-
ir, f. 11.11. 1950, fulltrúi hjá Upplýs-
ingaþjónustu Reykjavíkurborgar, var
gift Ragnari Lár myndlistarmanni sem
er látinn.
Barnabörn Hjartar og Steinunnar
eru níu talsins og barnabarnabörnin
fimm.
Bróðir Hjartar er Hreinn Pálsson, f. 1.6.
1942, hrl. á Akureyri, kvæntur Margréti
Ólafsdóttur hjúkrunarfræðingi.
Foreldrar Hjartar: Páll Ólafsson, f.
27.11. 1908, d. 15.1. 1982, bóndi á
Sörlastöðum í Fnjóskadal, síðar iðn-
verkamaður á Akureyri, og k.h., Hulda
Guðnadóttir, f. 10.4. 1913, d. 11.11.
2002, húsfreyja.
Ætt
Páll var sonur Ólafs, b. á Sörlastöð-
um Pálssonar, b. á Sörlastöðum Jóns-
sonar, b. í Ytrabrekkukoti í Arnarnes-
hreppi Jónssonar. Móðir Ólafs var
Kristjana Guðlaugsdóttir, b. í Stein-
kirkju Eiríkssonar, b. í Steinkirkju
Hallgrímssonar. Móðir Páls Ólafsson-
ar var Guðrún, dóttir Ólafs, b. á Sörla-
stöðum Guðmundssonar og Guðnýj-
ar Jónsdóttur.
Hulda var dóttir Guðna Vilhjálms
Þorsteinssonar, b. í Skuggabjörgum,
Melum og á Hálsi í Fnjóskadal, og
Jakobínu Kristínar Ólafsdóttur, b. á
Ytrafjalli Guðnasonar, b. í Hlíðarhaga.
Móðir Jakobínu var Hildur Jóhannes-
dóttir, b. á Þverá í Reykjahverfi Hall-
dórssonar, b. á Brúnum Bjarnasonar.
Hjörtur mun messa í Hóladómkirkju
kl. 14.00 á afmælisdaginn en síðan
verður boðið upp á kirkjukaffi.
Böðvar fæddist í Reykjavík en ólst upp
á Skógum undir Eyjafjöllum til sex ára
aldurs en síðan í Reykholti í Biskups-
tungum. Hann var í Reykholtsskóla,
lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um á Laugarvatni 2001, stundaði nám
í húsasmíði við Fjölbrautaskóla Suður-
lands á Selfossi og er nú að ljúka þaðan
sveinsprófi í húsasmíði.
Böðvar stundaði sveitastörf með skóla
í Fellskoti í Biskupstungum, vann við
hestatamningar í Fellskoti og hjá Gísla
Guðmundssyni, vann síðan við girð-
ingar í tvö sumur, vann hótelstörf í
Austurríki veturinn 2002–2003 en hef-
ur síðan unnið við húsasmíðar á Suð-
urlandi.
Fjölskylda
Kona Böðvars er Agnes Þorsteinsdótt-
ir, f. 3.2. 1985, ljósmyndari og nemi í
félagsráðgjöf við Háskóla Íslands.
Börn Böðvars og Agnesar eru Embla
María, f. 29.12. 2005; Nökkvi Marel, f.
19.1. 2008.
Systkini Böðvars eru Gyða Vestmann,
f. 29.3. 1975, húsmóðir, kennari og
þroskaþjálfi í Svíþjóð; Einar Þór Stef-
ánsson, f. 2.8. 1985, starfsmaður hjá Ís-
taki í Noregi; Svavar Ingi Stefánsson, f.
13.9. 1994, nemi við Fjölbrautaskóla
Suðurlands.
Foreldrar Böðvars eru Anna Björg Þor-
láksdóttir, f. 2.1. 1954, læknaritari við
Heilsugæsluna á Selfossi, og Stefán
Magnús Böðvarsson, f. 14.12. 1949,
kennari við Vallaskóla á Selfossi.
30 ára á föstudag
Böðvar Stefánsson
Húsasmiður á Selfossi