Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Side 52

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Side 52
Standa á bak við fjölda árása Suðurkóresk stjórnvöld segja stjórnvöld í Norður-Kóreu, sem leidd eru af Kim Jong-il, standi á bak við fjölda tölvuárása á hverju ári. 52 | Tækni Umsjón: Páll Svansson palli@dv.is 3.–5. júní 2011 Helgarblað N orðurkóresk stjórnvöld hvetja háskóla í landinu til að senda nemendur sem klárir eru á tölvur til útlanda í nám. Um er að ræða tilraun stjórn- valda til að fjölga hæfum einstakling- um í tæknideild norðurkóreska hers- ins. Þetta segir Kim Heung-kwang, flóttamaður frá Norður-Kóreu. Hann segir jafnframt að norðurkóresk stjórnvöld leggi mikið upp úr því að hafa öfluga tæknideild innan hersins til að geta nýtt sér tölvuárásir í hern- aðarlegum tilgangi. Fjölgað í tæknideildinni Suðurkóresk stjórnvöld segja norð- urkóreska herinn hafa staðið á bak við fjölda tölvuárása á suðurkóresk fyrirtæki á undanförnum mánuðum. Meðal annars víðtæka árás á suður- kóreskan banka sem varð til þess að starfsemi bankans lamaðist í apríl síðastliðnum. Kóreuríkin tvö eru í raun enn í stríði þrátt fyrir að samið hafi verið um vopnahlé í Kóreustríð- inu, frá 1950 til 1953. Er litið á tölvu- árásirnar sem hernaðarlegar árásir. Heung-kwang segir að fjölgað hafi verið í tæknideild norðurkór- eska hersins um allt að 2.500 starfs- menn en hann segir aukna áherslu hafa verið lagða á deildina á undan- förnum árum. Hann var gestur á ráð- stefnu sem fjallaði um ógnir tækni- hernaðar sem haldin var í Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu. Fá tækifæri til að búa í höfuð- borginni Heung-kwang, sem flúði Norður-Kór- eu árið 2003, segir að norður kóreska ríkið leiti uppi hæfileikarík ungmenni til að þjálfa sem tölvuhakkara. Hann starfaði sem prófessor í tölvunarfræði við háskóla í Pyong yang, höfuðborg Norður-Kóreu. Sjálfur segist hann enn vera í sambandi við nokkra ein- staklinga innan Norður-Kóreu. „Þess- ir einstaklingar fá besta mögulega umhverfið til að læra í, og ef þeir út- skrifast með góðar einkunnir, fá for- eldrar þeirra að flytja til Pyongyang,“ sagði Heung-kwang á ráðstefnunni. „Eftir að hafa lokið námi í háskóla fá þessir nemendur tækifæri til að læra í erlendum skólum.“ Hafa áhyggjur af þróuninni Sérfræðingar í málefnum Kóreu- ríkjanna tveggja sem Reuters-frétta- stofan ræddi við voru sammála um að raunveruleg ógn stafaði af tækni- deild norðurkóreska hersins. Telja þeir líklegra að Norður-Kórea grípi til hernaðarlegra aðgerða sem byggja á tölvu- og tækniárásum frekar en hefðbundnum hernaðaraðgerðum. Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa hótað hefndaraðgerðum komi til hefðbund- inna hernaðaraðgerða af hálfu ná- granna sinna í norðri. Ekki liggur fyrir hvernig ríkið mun taka á tækniárás- um komi til þeirra. Þó er ljóst að suð- urkóresk stjórnvöld fylgjast grannt með þróun mála í Norður-Kóreu og þá sérstaklega tæknideild norðurkór- eska hersins. Í gögnum varnarmála- ráðuneytis Suður-Kóreu komu fram áhyggjur stjórnvalda vegna mikillar þróunar tæknideildar hers nágrann- anna. Apple beið í 9 ár með kvörtun Nokkrum mánuðum eftir að Apple sendi frá sér fyrstu kynslóð iPod-tónlistarspilara árið 2002 festi ónafngreindur aðili kaup á léninu iPods.com. Það var þó ekki fyrr en á þriðjudag að Apple sendi frá sér formlega kvörtun yfir notkun á vörumerki fyrirtækisins í léni sem ótengdur aðili stjórnaði. Nú velta margir því fyrir sér hvort Apple láti önnur 9 ár líða þangað til þeir reyna að ná stjórn á léninu iPad.com sem líkt og iPods.com er stjórnað af aðilum algjörlega ótengdum Apple. n Það stafar ógn af tæknideild norðurkóreska hersins n Flóttamað- ur frá Norður-Kóreu segir ríkið leggja mikið upp úr þjálfun hakkara n Stjórnvöld í Suður-Kóreu uggandi yfir þróun í nágrannaríkinu Norður-Kórea þjálfar hakkara „Eftir að hafa lokið námi í háskóla fá þessir nemendur tæki- færi til að læra í erlend- um skólum. „Ég gerði mistök,“ segir stjórnarformaður Google: Google vildi samstarf við Facebook L eitarrisinn Google gerði mis- heppnaða tilraun til að sann- færa stjórnendur Face book um samstarf. Þetta viðurkenndi Eric Schmidt, stjórnarformaður og fyrrverandi forstjóri Google, á ráð- stefnu síðastliðinn þriðjudag. Sagð- ist hann sjá eftir því að hafa ekki gert meira til að sannfæra Face- book um samstarf. Með samstarfinu við Facebook vildi Google tryggja stöðu sína í stöðugt breyttu um- hverfi tæknifyrirtækja. Facebook er í dag eitt verðmætasta tæknifyrirtæki heims. Í máli sínu á ráðstefnunni viður- kenndi Schmidt að hann bæri ábyrgð á því að Google tókst ekki að tryggja stöðu sína sem leiðandi afl í þróun samfélagsmiðla á borð við Facebook. „Forstjórinn á að taka ábyrgð,“ sagði hann. „Ég gerði mistök.“ Schmidt var forstjóri Google í 10 ár, eða þangað til í apríl síðastliðinn þegar annar stofn- anda Google, Larry Page, tók við for- stjórastarfinu. Þrátt fyrir mistökin við að koma sér inn á samfélagsmiðlamarkað- inn hefur Google tryggt sér um jafn- virði rúmlega 3.300 milljarða króna í tekjur á árinu. Fyrirtækið hefur þá einnig haldið stöðu sinni sem stærsta leitarvélin á netinu. Stjórn- endur félagsins hafa þrátt fyrir það áhyggjur af framtíðinni. Samfélagssíður á borð við Face- book og Groupon hafa höggvið skarð í stærsta tekjustofn Google – aug- lýsingasölu. Þá hefur samkeppni Google við Apple á snjallsímamark- aði sett strik í reikninginn. Schmidt virðist þó ekki hafa neinar áhyggjur af Microsoft, stærsta hugbúnaðar- framleiðanda heims. Stóð upp fyrir stofnanda Eric Schmidt fór úr stóli for- stjóra Google fyrir Larry Page, annan stofnanda fyrirtækisins. Microsoft vill setja framleið- endum takmörk Microsoft vill að þau fyrirtæki sem ætla að framleiða örgjörva í spjaldtölvur sem nota næstu útgáfu Windows-stýrikerfisins sem fyrirtækið framleiðir versli einungis við einn framleiðanda. Vill Microsoft með þessu reyna að flýta vinnuferlinu við framleiðslu á spjaldtölvum með Windows. Þetta þýðir að framleiðendur geti aðeins framleitt örgjörva fyrir eina hönnun af spjaldtölvum í einu. Á takmörkunin að hvetja fyrirtækin til að flýta þróun svo þau geti unnið með fleiri fyrirtækjum. SolarCity fjár- festir fyrir 18 milljarða Bandaríska fyrirtækið SolarCity hefur sett jafnvirði 18 milljarða króna í sjóð sem fyrirtækið notar til að fjárfesta í þróun á sólarsellum fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Eftir aukaframlagið í sjóðinn ræður félagið nú yfir um 115 milljörðum króna til að fjárfesta í sólarorkugeiranum. Um fjórtán þúsund aðilar eru viðskiptavinir félagsins en það hefur um eitt þúsund starfsmenn í vinnu. Stefnir fyrirtækið á að nota sjóðinn til að ná fram enn frekari landvinningum í sölu á sólarorku til einstaklinga og fyrirtækja. Fjöldi sýktra við- bóta í Android Market Tuttugu og sex vírussýktar viðbætur fyrir Android-stýrikerfið frá Google fengust í Android Market, viðbótaverslun stýrikerfis- ins, um síðustu helgi. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar Lookout Mobile Security sem kannaði öryggi stýrikerfisins. Segir í færslu Lookout um niðurstöður rann- sóknarinnar að allar viðbæturnar virðist hafa verið gerðar af sömu aðilum og gerðu Droid- Dream í mars síðastliðnum sem vakti mikla athygli. Talið er að á bilinu 30 til 120 þúsund notendur hafi sótt sýktu viðbæturnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.