Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Page 2
2 | Fréttir 1.–3. júní 2011 Helgarblað
Flestir ferðast
innanlands
38,4 prósent landsmanna ætla að
fara til útlanda í sumarfríinu. Þetta er
samkvæmt niðurstöðum könnunar
MMR á ferðatilhögun Íslendinga í
sumarfríinu. Könnunin var fram-
kvæmd dagana 9. til 15. maí og var
heildarfjöldi svarenda 867.
MMR kannaði hvort Íslendingar
ætluðu að ferðast innanlands eða
utan í sumarfríinu. Í tilkynningu sem
MMR sendi frá sér kemur fram að
um helmingur landsmanna ætli að
ferðast innanlands í sumarfríinu.
Af þeim sem tóku afstöðu til spurn-
ingarinnar sögðust 51,9 prósent ætla
eingöngu að ferðast innanlands, 28,5
prósent ætla að ferðast bæði innan-
og utanlands í sumarfríinu, 9,9 pró-
sent ætla eingöngu að ferðast utan-
lands og 9,7 prósent sögðust ekki
ætla að ferðast í sumarfríinu.
Lögreglan tekur á
leyfislausum
leigubílstjórum
Vegagerðin gerði athugun á leyfum
þeirra hóp- og leigubifreiða sem voru
á bílastæðinu á Keflavíkurflugvelli á
miðvikudag. Vegagerðin hefur um-
sjón og eftirlit með útgáfu rekstrar-
leyfa þessara bifreiða.
Við athugunina kom í ljós að nokkrir
aðilar voru ekki með leyfi sín í lagi og
voru þeir sendir af vettvangi með að-
stoð lögreglu og krafðir um að endur-
nýja leyfi sín eða sækja um þau.
Samtök ferðaþjónustunnar segja að
eftirlitsaðilar þurfi að gera betur til
að koma í veg fyrir leyfislausa aðila
innan ferðaþjónustunnar.
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að
könnun á leyfislausri starfsemi hafi
verið gerð á vegum samtakanna þar
sem upp hafi komist um fjölda leyfis-
lausra rekstraraðila.
„Við fórum í átak fyrstu fjóra mánuði
ársins þar sem við gerðum athuganir
á tilskildum leyfum ferðaþjónustuað-
ila. Þá komumst við að því að nokkur
fjöldi var án leyfa og við vinnum nú
að því að gera úrbætur á því,“ segir
Erna, sem fagnar þessu eftirliti Vega-
gerðarinnar og vill útrýma leyfislausri
starfsemi innan ferðaþjónustunnar.
„Ég er farinn að ganga,“ segir Pétur
Kristján Guðmundsson kvikmynda-
gerðarmaður sem lenti í alvarlegu
slysi í Austurríki um áramótin. Ótt-
ast var að Pétur hefði lamast var-
anlega fyrir neðan mitti en það er
ekki raunin. „Ég nota spelkur til að
ganga. Þær halda hnjánum læstum,“
útskýrir hann en bætir við að hann
gangi samt eins og spýtukall.
„Ætli það sé ekki svona einn og
hálfur mánuður síðan ég byrjaði að
ganga, það var svolítið erfitt í byrjun
og þá var ég bara í svona göngubrú,
það er að segja með handrið báðum
megin við mig. Ég byrjaði þar. Svo
byrjaði ég að labba með göngugrind
en fyrir svona tveimur eða þrem-
ur vikum byrjaði ég að ganga með
hækjur,“ segir Pétur.
Fær betri spelkur í ágúst
„Fyrst leit þetta þannig út að það
væri bara ekkert í gangi fyrir neðan
mitti en það er ekki þannig,“ útskýrir
Pétur. „Ég sagði frá byrjun að ég ætl-
aði alla leið og þetta er bara „check-
point“ í því.“ Pétur segist vera búinn
að fá samþykktar spelkur sem hann
fær til eignar. „Þær eru miklu betri
en þær sem eru niðri á Grensás. Ég
fæ þær einhvern tíma í ágúst. Þá get
ég bara gengið heima hjá mér.“
Pétur hefur allt frá því að slysið
átti sér stað um áramótin verið bjart-
sýnn og alltaf sagt að hann ætli ekki
að láta slysið stoppa sig. „Ég sé þetta
þannig fyrir mér að ég fái spelkurn-
ar og gangi á þeim í einhvern tíma
og svo bara einn góðan veðurdag,
þá sleppi ég að fara í þær og labba
venjulega.“
Alltaf vonarneisti
Þrátt fyrir að útlitið hafi ekki verið
mjög bjart í fyrstu höfðu Pétur og
fjölskylda hans alltaf trú á því að
ástandið myndi batna. „Þó að það
sé erfitt að horfa upp á þetta verður
maður að hugsa um að hann komist
kannski á fætur sjálfur. Maður verð-
ur að trúa því að það sé smá von-
arneisti,“ sagði Guðmundur Geir
Sigurðsson, faðir Péturs Kristjáns, í
byrjun janúar þegar sonur hans var
enn ekki kominn til landsins eftir
slysið. Hann var fluttur með flugvél
Landhelgisgæslunnar frá Innsbruck
í Austurríki, þar sem hann slasaðist,
og heim til Íslands.
Pétur segir að þessi aukni kraft-
ur sem kominn er í fætur hans gefi
honum von um að vera bjartsýnn á
framtíðina. „Þetta gefur mér aukinn
kraft og aukna von. Þetta bara eyk-
ur allt jákvætt,“ segir Pétur. „Ég ætla
að labba eðlilega eftir eitt eða tvö ár.
Það hefur alltaf verið markmiðið.“
n Pétur Kristján Guðmundsson hefur
fengið kraft í fæturna n Lamaðist í slysi
í Austurríki n „Þetta gefur mér aukinn
kraft og aukna von“ n Ætlar að geta
gengið án aðstoðar eftir eitt til tvö ár
Getur gengið með aðstoð
Pétur Kristján getur nú gengið með aðstoð
spelkna en hann lenti í alvarlegu slysi í Inn-
sbruck í Austurríki um áramótin.
Mynd SiGtryGGur Ari JóHAnnSSon
lamaður að
ganga á ný
„Ég sagði frá
byrjun að ég
ætlaði alla leið.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Hrægammar eiga
bankana
„Við höfum
sagt áður að
á meðal kröfuhafa
okkar eru flestir
stærstu bankar í
Vestur-Evrópu og
Bandaríkjunum,“
segir Árni Tómas-
son, endurskoð-
andi og formaður
skilanefndar Glitnis, aðspurður um
hverjir standi að baki eignarhaldinu
á Íslandsbanka. Hann segir að þar
séu einnig margir alls konar sjóðir, en
spurningin sé auðvitað hvað menn
vilji kalla sjóðina. Ýmsir sjóðir, hvort
sem það eru vogunar- eða lífeyris-
sjóðir, hafi keypt skuldabréf gömlu
bankanna og þannig orðið að kröfu-
höfum. Skilanefnd Glitnis fer með 95
prósenta eignarhlut í Íslandsbanka
fyrir hönd kröfuhafa.
Fíklar útvega lækna-
dóp auðveldlega
„Maður
þarf oft ekki
nema að fara til
læknis og segjast
vera sorgmædd-
ur, þá fær maður
rítalín,“ segir kona
sem var árum
saman í harðri
fíkniefnaneyslu.
Eftir að hafa farið í viðhaldsmeðferð á
Vogi er hún laus úr viðjum eiturlyfja
og hefur verið það í nokkur ár. Þegar
konan var sem dýpst sokkin gekk hún
á milli lækna og fékk skrifað upp á lyf
sem hún segir hafa viðhaldið fíkn-
inni. Hún var góð vinkona mannsins
sem DV fjallaði um í síðasta helgar-
blaði, en hann fór í hjartastopp inni
á salerni á Domus Medica eftir að
hafa fengið lyfseðil fyrir morfínlyfi
hjá lækni.
Braut rúður hjá
kaþólsku kirkjunni
„Ég bara
sá þetta í
blaðinu og missti
mig alveg. Ég fatt-
aði bara þegar ég
las lýsingarnar
að ég hafði lent
í mjög svipuðu
og sú sem sagði
sögu sína í Frétta-
tímanum,“ segir Valgarður Bragason,
sem aðfaranótt síðastliðins föstudags
braut 21 rúðu á skrifstofu kaþólsku
kirkjunnar við Hávallagötu. Hann
segist hafa gert það í bræði eftir að
hafa áttað sig á því að hann átti svip-
aða reynslu að baki og að lýsingar
fórnarlambs séra Georgs í Frétta-
tímanum hafi rifjað upp fyrir honum
löngu gleymt atvik. Í blaðinu lýsti
fórnarlambið því hvernig presturinn
misnotaði hana.
Fréttir vikunnar í DV
1 2 3
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Opið virka daga kl. 9 -18, lokað á laugardögum 1. maí til 31. ágúst
Ferðanuddbekkur
• Stillanlegur höfuðpúði
• Stuðningur fyrir handleggi
• Hæðarstilling 59-86 cm
• Burðargeta 250 kg
• Þyngd 16 kg
Verð 59.890 kr.