Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Blaðsíða 4
4 Fréttir 17.–19. febrúar 2012 Helgarblað
Enginn kaupsamningur
n Viðskipti Ólafs Ólafssonar og Framsóknarflokksins
E
nginn þinglýstur kaupsamn-
ingur er til vegna viðskipta
eignarhaldsfélags Ólafs
Ólafssonar, Kers hf., og Fram-
sóknarflokksins í desember 2002. Í
viðskiptunum afsalaði Ker sér hús-
inu á Hverfisgötu 33 til Framsókn-
arflokksins með tveimur afsölum,
líkt og DV greindi frá í síðustu viku.
Húsið hýsir höfuðstöðvar Fram-
sóknarflokksins í dag.
Samkvæmt afsölunum var kaup-
verðið greitt með yfirtöku skulda
sem námu 45 milljónum auk þess
sem Ker hafi gefið Framsókn veð-
leyfi upp á 9,5 milljónir króna til
veðsetja húsið fyrir láni frá Bún-
aðarbankanum árið 2009. Orða-
lag afsalanna má skilja sem svo að
hugsanlegt sé að frekari greiðslur
hafi átt sér stað fyrir húsið. Ekki er
hins vegar tilgreint hvaða greiðslur
þetta voru. DV hefur reynt að graf-
ast fyrir um þetta með því að reyna
að komast yfir kaupsamninginn
í viðskiptunum. Þetta hefur ekki
gengið þar sem starfsmaður sýslu-
mannsins í Reykjavík segir engan
þinglýstan kaupsamning vera til
vegna viðskiptanna, einungis um-
rætt afsal.
Einungis tæpum mánuði eftir
að gengið var frá afsalinu á milli
Kers og Framsóknarflokks keypti
S-hópurinn Búnaðarbankann í
janúar 2003. Ker, með Ólaf Ólafs-
son í broddi fylkingar, var einn af
hluthöfum S-hópsins. Enn ligg-
ur ekki fyrir hvernig Framsóknar-
flokkurinn fjármagnaði kaupin á
húsinu.
ingi@dv.is
Vélavandamál í vondu veðri:
Brúarfoss
rak að landi
Flutningaskipið Brúarfoss rak í
átt að landi aðfaranótt fimmtu-
dags þegar skipið var statt skammt
vestur af Garðskaga. Varðstjórar í
stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
tóku eftir þessu í ferilvöktunarkerf-
um og höfðu samband við skipið í
kjölfarið. Fengust þær upplýsingar
að skipið ætti við vélavandamál að
stríða og voru vélstjórar um borð á
vinna í málinu. Á vef Landhelgis-
gæslunnar kemur fram að ákveðið
hafi verið að kalla strax í varðskipið
Ægi sem var statt suður af Grinda-
vík en auk þess var haft samband
við togarann Höfrung 3 sem stadd-
ur var á Stakksfirði.
Voru skipin beðin um að sigla
með auknum hraða á staðinn en
veður var slæmt. Þar sem dróst
að koma vélum skipsins í gang og
skipið rak hratt að landi var þyrla
Landhelgisgæslunnar kölluð út í
viðbragðsstöðu á Garðskaga. Einn-
ig voru björgunarsveitir Slysavarn-
arfélagsins Landsbjargar á svæðinu
kallaðar út og var lögreglan upplýst
um stöðu mála.
Þegar Brúarfoss átti um 2 sjó-
mílur eftir upp að grynningum
lét skipið akkeri falla sem hægði á
reki. Jafnframt var Höfrungur 3 þá
kominn að skipinu en varðskipið
Ægir átti um einnar klukkustundar
siglingu eftir að skipunum. Vélar
Brúarfoss komust um það leyti í
gang og sigldi skipið í átt frá landi.
Hélt skipið til Vestmannaeyja í
fylgd varðskipsins Ægis.
Kvartanir vegna
Snorra í Betel
Gunnar Gunnarsson, fræðslu-
stjóri hjá Akureyrarbæ, segir að
fjórar kvartanir hafi borist inn
á borð skólastjóra Brekkuskóla
vegna starfa Snorra í Betel. Frá
þessu greinir Akureyri-Vikublað.
Þar segir Gunnar að brugðist
hafi verið við kvörtununum með
þeim hætti að kennarinn hætti
að kenna börnunum.
Þá segir Gunnar einnig að
fræðsluyfirvöldum á Akureyri
hafi verið fullkunnugt um skoð-
anir Snorra á samkynhneigðum
áður en hann var ráðinn sem
kennari á Akureyri. Hins vegar
hafi Snorri verið eini umsækj-
andinn með full kennslurétt-
indi sem sótti um auglýst starf á
sínum tíma.
Bara afsalið Enginn þinglýstur kaup-
samningur er til hjá sýslumanninum í
Reykjavík vegna viðskipta eignarhaldsfélag
Ólafs Ólafssonar, Kers hf. og Framsóknar-
flokksins í árslok 2002. Þá seldi Ker hús á
Hverfisgötu 33 til Framsóknarflokksins.
L
ítraverðið á bensíni hefur frá
árinu 2008 hækkað um nær
60 krónur á lítrann umfram al-
menna verðlagshækkun. Þar af
hefur álagning ríkisins á hvern
lítra hækkað um 24 krónur umfram
verðlag.
FÍB greindi frá því á dögunum að
árlegur eldsneytiskostnaður meðal-
stórs fjölskyldubíls hefur hækkað um
219 þúsund krónur síðustu fjögur
ár. Af þeirri upphæð hirðir ríkið 100
þúsund krónur. „Ríkið hefur í ofaná-
lag við stórfelldar hækkanir á heims-
markaðsverði eldsneytis hert skatt-
heimtu sína á eldsneyti en reynt hefur
verið að hylja þessa staðreynd ryk-
mekki með tali um að hlutfall skatt-
heimtu til vegaframkvæmda hafi stór-
lækkað.“
Næstum tvöfalt dýrara að aka
Fram kom að mánaðarleg eldsneytis-
útgjöld meðalfjölskyldu séu nú 12
þúsund krónum hærri en fyrir fjór-
um árum. „Á þessum fjórum árum
hefur bensín hækkað um 80 prósent,
úr 137 krónum í 248 krónur. Almennt
verðlag hefur hækkað mun minna en
þetta, eða um 35 prósent.“
FÍB fylgist náið með þróun bens-
ín- og olíuverðs og hefur veitt ríkinu
og olíufélögunum aðhald í þessum
efnum um árabil. Verðið á eldsneyti
hefur aldrei verið hærra. Í ársbyrj-
un 2008 kostaði ríflega 10.400 krón-
ur að aka frá Reykjavík til Akureyrar
og til baka á bíl sem eyðir 10 lítrum
á hundraði. Nú er sá kostnaður kom-
inn upp í um 19.000 krónur miðað
við sömu forsendur.
Nærri 100 þúsund beint til
ríkisins
Árskostnaður venjulegrar fjölskyldu
vegna eldsneytis er að sögn FÍB 494
þúsund krónur. Árið 2008 var kostn-
aðurinn 275 þúsund. Hækkunin er
gífurleg, 219 þúsund krónur. Þegar
tekið er tillit til verðbólgu, og raun-
hækkunin er mæld, kemur fram að
kostnaðaraukinn fyrir hverja fjöl-
skyldu er 181 þúsund krónur – ef hún
keyrir jafn mikið og hún gerði áður.
Af þeim peningum renna um 88 þús-
und krónur beint til ríkisins.
Þess má geta að þrátt fyrir að ríkið
hafi hækkað álögur á eldsneyti verð-
ur að hafa í huga að hlutdeild ríkisins
í hverjum lítra hefur minnkað frá því
fyrir fjórum árum. Skattar voru 50,63
prósent af hverjum lítra árið 2008 en
hlutfallið núna er 48,42 prósent.
Hörð gagnrýni
Á heimasíðu FÍB er að finna harða
gagnrýni á ríkið. Bent er á að því meir
sem eldsneytið hafi hækkað í verði á
heimsmarkaði, þeim mun meiri hafi
skattheimtan orðið, ekki síst í formi
virðisaukaskatts, sem leggist ofan á
innkaupsverð eldsneytisins, álagn-
ingu olíufélaganna, vörugjöld, kol-
efnisskatt, flutningsjöfnunargjöld,
bensín- og olíugjald. „Skatturinn
með hið „umhverfismilda“ nafn kol-
efnisskattur er nýr. Fullyrða má að
ekki sé einni einustu krónu af honum
varið til umhverfisverndar af nokkru
tagi.
Á þessum fjórum árum hefur rík-
isvaldið algerlega hunsað beiðnir um
hlutfallslega lækkaða skattheimtu og
ábendingar um áhrif hækkana á fjár-
hag fjölskyldna og á atvinnustig, á at-
vinnuvegina og þjóðarhag yfirleitt.
Það hefur greinilega og þvert á móti
litið á hækkandi heimsmarkaðsverð
sem kærkomna búbót fyrir ríkissjóð.“
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Ríkið tekuR helming
n Lítraverð hefur hækkað um 60 krónur umfram verðlag frá 2008
Svona skiptist
verð á bensínlítra
Innkaupsverð 93,25 kr.
Álagning, flutningur ofl. 34,10 kr.
Virðisaukaskattur 50,17 kr.
Bensíngjald 39,51 kr.
Vörugjöld 24,46 kr.
Kolefnisgjald 5,00 kr.
Fljöfnunargjald 0,40 kr.
– Útreikningar FÍB miðað við að lítrinn
kosti 246,89 krónur.
Ríkið tekur helming
Skattar 48,4%
Innkaupsverð 37,8%
Álagning, flutningur ofl. 13,8%
48,4%37,8%
13,8%
Samanburður
Eldsneytisverð: Samanburður frá 2008.
n Útsöluverð bensíns hefur hækkað
um 79%.
n Skattlagning eldsneytis skilar ríkinu
72% meiri tekjum (í krónum talið).
n Almennt verðlag hefur hækkað um
37%.
n Lítrinn kostaði 137 kr. 2008.
n Lítrinn myndi kosta 188 kr. ef verðið
hefði fylgt almennu verðlagi síðan
2008.
n Raunhækkun nemur því um 60
krónum á lítra.
„Þess má geta að
þrátt fyrir að ríkið
hafi hækkað álögur á
eldsneyti verður að hafa
í huga að hlutdeild ríkis-
ins í hverjum lítra hefur
minnkað frá því fyrir fjór-
um árum.
Mótmælt af krafti
Bensínverð hefur hækkað
gríðarlega síðan atvinnu-
bílstjórar mótmæltu
sumarið 2008.