Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Síða 18
18 Fréttir 17.–19. febrúar 2012 Helgarblað
„Skapar gríðarlega
sérstakar aðstæður“
n Þeir sem tóku gengistryggð lán vinna annan sigur n Fólk með verðtryggð lán situr eftir
M
ikill munur er á vaxta-
greiðslum á ólöglega
gengistryggðu láni sé far-
ið eftir niðurstöðu Hæsta-
réttar frá því á miðvikudag
annars vegar og því hvernig lánin
voru endurreiknuð af fjármögnunar-
fyrirtækjum og lánastofnunum á síð-
asta ári hins vegar. Munurinn getur
hlaupið á milljónum króna. DV fékk
sérfræðinga hjá fyrirtækinu Sparnaði
sem aðstoðað hefur fjölda Íslend-
inga við að finna út stöðu sinna lána
eftir að gengistryggð lán voru dæmd
ólögleg af Hæstarétti en fyrirtækið
starfar óháð lánafyrirtækjum.
Gífurlegur munur
Vaxtamunur á tveggja milljóna króna
bílaláni með jöfnun afborgunum til
48 mánaða sem tekið var í ársbyrjun
2007 nemur rúmlega hálfri milljón
króna sé miðað við samningsvexti
lánsins en ekki vexti Seðlabank-
ans. Sá sem tók slíkt lán og greiddi
samviskusamlega af því til síðasta
greiðsludags ofgreiddi lánardrottni
sínum tæplega 349 þúsund krónur í
vexti. Sá hinn sami á hins vegar rétt
á vöxtum og verðbótum af ofgreiðsl-
unni frá fjármögnunarfyrirtækinu
og á því í raun kröfu á félagið upp á
rúmlega hálfa milljón króna. Hefði
sams konar lán verið tekið í byrj-
un árs 2005 væru ofgreiddir vextir
hins vegar lægri eða um 253 þúsund
krónur. Útskýrist það af því að vext-
ir Seðlabankans voru lægri á tíma-
bilinu 2005–2008 en þeir voru 2007–
2010.
Samningsvextir gengistryggðu
lánanna voru talsvert lægri en al-
mennt gerðist með önnur lán og tals-
vert lægri en vextir Seðlabankans.
Það útskýrir þennan gífurlega mun
á vaxtagreiðslum í endurútreikningi
lánanna núna eftir dóm Hæstaréttar
frá því á miðvikudag.
Húsnæðislán talsvert stærri
Eins og gefur að skilja er dæmið tals-
vert stærra og flóknara þegar kemur
að útreikningi húsnæðislána. Tals-
vert hærri upphæðir voru almennt
teknar vegna slíkra lána en bílalána.
Það þýðir einnig að talsvert hærri
fjárhæðir liggja að baki vaxtapró-
sentunni sem miðast er við.
Tökum dæmi um átján milljóna
króna fasteignalán með jöfnun af-
borgunum sem bundið var ólög-
mætri gengistryggingu og 3,1 pró-
sents vöxtum og tekið var til 40 ára
árið 2007. Aðili með slíkt lán hef-
ur greitt bankanum sínum tæplega
3,9 milljónir króna í ofgreidda vexti
miðað við fyrri endurútreikning. Það
er gífurlegur munur og getur skipt
mörg heimili gífurlega miklu máli.
Sé sama lán reiknað miðað við að
það hafi verið tekið árið 2005 kem-
ur í ljóst að ofgreiddir vextir af lán-
inu miðað við fyrri endurútreikning
nemur 5 milljónum króna.
Saga gengistryggðra lána
20082001 2010 2011
15. febrúar 2011
Hæstiréttur Íslands
dæmir lögin sem
Árni Páll Árnason
mælti fyrir og sam
þykkt voru á Alþingi
í desember 2010,
ólögmæt. Það hefur
í för með sér að við
endurútreikninga
lána verður ekki
stuðst við Seðla
bankavextina, eins
og lögin kveða á um,
heldur verður miðað
við samningsvexti.
9. júní 2011 Hæstiréttur
Íslands kvað upp dóm
í máli sem Lands
bankinn höfðaði gegn
þrotabúi Motormax ehf.
Rétturinn komst að þerri
niðurstöðu að lán sem
tekist var á um fyrir dómi
hafi ekki verið erlent
lán heldur hefði það
verið ákveðið í íslenskum
krónum og falið í sér
ólögmæta gengistrygg
ingu. Dómurinn var í
samræmi við dóminn frá
því í júní 2010, en þessi
dómur tók á fyrirtækja
lánum á meðan sá dómur
tók á einstaklingslánum.
18. desember 2010
Alþingi samþykkti
lög sem sett voru til
þess að bregðast við
dómi Hæstaréttar
frá því í júní sama ár.
Með lagasetningunni
skyldu lánin endur
reiknuð eins og þau
hefðu verið veitt með
verðtryggðum vöxtum
Seðlabankans, en það
hafði í för með sér að
lánin báru hærri vexti. 30. júní 2010 Seðlabanki Íslands og
Fjármálaeftirlitið gáfu út tilmæli um
hvernig skyldi endurreikna gengis
tryggð lán. Miða átti við lægstu vexti
sem þá giltu en ekki við upphaflega
vexti lánanna, sem voru í kringum 3%.
16. júní 2010 Hæstiréttur Íslands dæmdi erlend gengistryggð
myntkörfulán ólögmæt. Dómurinn snéri að fjármögnunarfyrir
tækjunum Lýsingu og SP fjármögnun og lánum þeirra til bílakaupa.
Dómurinn var fordæmisgefandi fyrir önnur gengistryggð lán. Það
hafði í för með sér að fjármögnunarfyrirtæki sem höfðu veitt slík
lán þurftu að ráðast í umfangsmikla endurútreikninga lána þar
sem ólöglegt var að gengistryggja lán sem væru veitt í krónum.
2001 Fjár
málafyrir
tæki hófu
að veita
gengis
tryggð lán.
Október 2008 Gengis
tryggð lán lögðust af í
kjölfar bankahrunsins og
setningu neyðarlaganna.
Hagsmunasamtök heimil
anna hafa bent á að þrátt
fyrir að lánastofnanir hafi
hætt að veita slík lán hafi
þau innheimt þau af hörku
á forsendum sem samtökin
telja að stríði gegn
samningalögum,
vaxtalögum,
lögum um
neytendalán og
stjórnarskrá.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
„Ekki borð
fyrir báru“
Eftir að Hæstiréttur kvað
upp dóm sinn á mið
vikudag sendi Fjármála
eftirlitið frá sér yfirlýsingu
þar sem fram kemur að
niðurstaða dómsins muni
hafa neikvæð áhrif innan
kerfisins en þó ekki að því
marki að það ógni fjármálastöðugleika.
„Áhrifin gætu orðið mismikil eftir fjármála
fyrirtækjum og í sumum tilvikum gætu
þau jafnvel verið óveruleg. Því er á þessari
stundu ekki ljóst hver áhrif dómsins verða
að lokum. Þá er eiginfjárstaða viðskipta
bankanna langt umfram þær kröfur sem
Fjármálaeftirlitið gerir.“
Á fundi sem FME hélt með blaðamönnum
í október á síðasta ári kom hins vegar fram
að eftirlitið teldi að bankarnir hefðu ekki
mikið borð fyrir báru hvað varðar frekari
afskriftir á lánum.
Ekki fengust afgerandi svör við því þá
hvort bankarnir hefðu svigrúm til frekari
afskrifta.
Fræðikonan
lagði Frjálsa
Það voru hjónin
Maria Elvira Méndez
Pinedo og Sigurður
Hreinn Sigurðsson
sem stefndu Frjálsa
fjárfestingarbank
anum og báru sigur úr
býtum í málinu sem
er fordæmisgefandi
fyrir aðrar lánastofnanir og hefur þar af
leiðandi áhrif á fjölda fólks.
Elvira er fædd á Spáni en er íslenskur
ríkisborgari. Hún er lögfræðingur að
mennt og með doktorspróf í Evrópurétti.
Hún starfar sem dósent við lagadeild Há
skóla Íslands. Hún hefur gefið út nokkrar
fræðibækur um lögfræði. Meðal dómara
í málinu eru samkennarar hennar við
lagadeild HÍ, en tveir dómarar lýstu yfir
vanhæfi vegna tengsla við Elviru. Þeir eru
Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæsta
réttar, og Viðar Már Matthíasson.