Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Síða 37
Rómantík og konur 37Helgarblað 17.–19. febrúar 2012
Hvað finnst þér rómantískt? „Ég er
amerísk bíómynd þegar kemur að róman-
tík. Það að gefa sér tíma fyrir hvort annað
finnst mér rómantískt. Að kúra, knúsast og
gera sér dagamun þrátt fyrir ekkert tilefni.
Leiðast, horfast í augu og eiga jafnvel
þagnir saman þar sem ekkert skiptir máli
nema bara að vera saman.“
Hvað finnst þér ekki rómantískt?
„Mér finnst ekki rómantískt þegar karlmenn
eða kvenmenn ávarpa maka sinn sem
„kallinn“ eða „kellingin“. Ég sé alltof oft
þar sem pör tala niður til hvors annars, og
þá aðallega í fjölmenni. Ég veit ekki hvort
það er töffaraskapur, en mér finnst það ekki
smart.“
Má konan fara niður á hné og biðja
um hans hönd? „Mér finnst alls ekki neitt
að því. En persónulega myndi ég aldrei gera
það. Ég er kannski bara svona sveitó að
mér finnst að karlmaðurinn megi fá að hafa
þetta fyrir sig.“
Eru konur rómantískari en karl-
menn? „Ég held að konur séu mun
rómantískari í hugsun þrátt fyrir að ég telji
þær ekki sýna það í verki. Mér finnst konur
tala rosalega mikið um að makinn gefi þeim
aldrei blóm, eða dekri við þær en svo kemur í
ljós að þær gera það heldur aldrei.“
Þýða blóm á öðrum degi en á afmæli
og konudegi að hann hafi gert eitt-
hvað af sér?„Nei. Mér finnst að fólk eigi
að vera duglegt við að koma hvort öðru á
óvart, hvort sem það sé með blómum eða
einhverju öðru. Blóm, góður matur eða nudd
á ekki að vera eitthvað sem fólk gerir af því
það þarf. Við verðum að vera dugleg við að
gleðja hvert annað.“
Maðurinn þinn lætur húðflúra nafn
þitt á bringuna. Þín viðbrögð?
„Ertikkva ruglaður?!“
Gæinn sem þú ert að deita gefur þér
hjartalaga sælgæti og bangsa með
ísaumuðum ástarjátningum? Hvað
finnst þér? „Mér finnst það æðislegt. En
ef hann myndi gefa mér þetta og kveikja
svo á leiknum þá yrði ég frekar sár. Gjafir
koma ekki í stað tíma saman.“
Bónorð? Er eitthvað bannað í þeim
efnum? „Að mínu mati finnst mér að
bónorð eigi að vera innileg stund milli
tveggja aðila.“
Gjafir á konudaginn. Eru titrandi egg
að taka við af blómum? „Ég vona ekki.
Titrandi egg og blóm?“
Hvað er rómantískt? Það er svo margt
sem mér finnst rómantískt. Mér finnst
til dæmis mjög rómantískt að sitja með
manninum mínum og drekka te og spjalla.
Svo hittir alltaf í mark hjá mér að fara út á
róluvöll að róla eða í gönguferð einhvers
staðar úti á landi. Annars er góður matur við
kertaljós og góða tónlist alltaf rómó.
Hvað finnst þér ekki rómantískt? Að
keppa. Ég er voðalega sjaldan í róman-
tískum pælingum á meðan ég keppi.
Má hún biðja um hönd hans? Það má
alveg. Fólk gerir þessa hluti á sinn hátt og
það sem fólki finnst rétt fyrir sig er hið allra
besta mál, þegar kemur að því að biðja um
hönd einhvers.
Eru konur rómantískari en karl-
menn? Ég held að það sé jafn misjafnt og
við erum mörg. Ég tel mig vera mjög róman-
tíska og maðurinn minn er það líka. Svo
þekki ég pör þar sem enginn er rómantískur.
Held að það sé allur gangur á þessu.
Heldur þú að hann hafi gert eitthvað
af sér ef hann kaupir handa þér
blóm á öðrum degi en konudeg-
inum? Alls ekki. Afi minn keypti blóm
handa ömmu oft í mánuði vegna þess að
henni þótti svo vænt um að hafa lifandi
blóm nálægt. Hann hélt því meira að segja
áfram eftir að amma dó. Mér finnst það
mjög fallegt. Ef það gerist bara upp úr þurru
samt eftir einhverra ára samveru hjá fólki
að maðurinn kemur með blóm þá gæti það
kannski þýtt að hann sé með eitthvað á
samviskunni.
Maðurinn þinn lætur húðflúra nafn
þitt á bringuna. Þín viðbrögð? Ég
myndi hlæja að honum. Svo myndi ég
örugglega slá hann fyrir að gera eitthvað
svona vitlaust og segja mér ekki frá því svo
ég hefði getað stoppað hann áður.
Gæinn sem þú ert að deita gefur
þér hjartalaga sælgæti og bangsa
með ísaumuðum ástarjátningum?
Hvað finnst þér? Það fer eftir ýmsu. Ég
elska fíla og ef ég myndi fá fíla-bangsa með
ástarjátningu á þá myndi ég bara brosa og
knúsa hann. Ef ég fengi nammi og eitthvert
ferlíki af bangsa sem væri jafnstór og ég
er þá myndi ég örugglega setja kallinn í
skammarkrókinn.
Bónorð? Er eitthvað bannað í þeim
efnum? Það er ekkert bannað þegar
kemur að bónorðum. Ef fólk vill trúlofa
sig og gifta sig þá finnst mér bara ekkert
fallegra en að fólk geri það nákvæmlega
eins og það vill. Hvort sem það er hefð-
bundið eða ekki.
Gjafir á konudaginn. Eru titrandi
egg að taka við af blómum? Ég veit
ekki með það. Ef maðurinn þekkir konuna
sína vel þá ætti hann að geta glatt hana
með því sem hún vill. Ég myndi til dæmis
elska að fá eitthvað dekur í Blue Lagoon
spa eða sogæðanudd hjá stelpunum
í Líkamslögun. Smá sushi myndi ekki
skemma fyrir heldur.
Eins og rómantísk bíómynd
Sushi, dekur og sogæðanudd
Íris Hólm söngkona
Ragnheiður Ragnarsdóttir sunddrottning
Bryndís Gyða Michelsen fyrirsæta og förðunarfræðingur
Konur tjá sig um rómantík
Hvað finnst þér ekki rómantískt?
„Það er hægt að gera nánast hvað sem er
rómantískt. En það sem mér dettur í hug og
er langt frá því að vera rómantískt er þegar
maðurinn þinn prumpar stanslaust yfir
rómantískum kvöldverði.“
Maðurinn þinn lætur húðflúra nafn
þitt á bringuna. Þín viðbrögð?
„Úff, að vissu leyti myndi mér ekki finnast
það sniðugt, en það er auðvitað líka sætt
og sýnir að makinn er skuldbundinn manni.
Ég er samt á því að svona nafnatattú séu
aldrei góð hugmynd, hef alltof oft séð það
fara illa.“
Hjartalaga sælgæti og bangsar með
ísaumuðum ástarjátningum? Hvað
finnst þér um það?
„Það getur alveg verið sætt en ég væri meira
fyrir eitthvað frumlegra.“
Bónorð? Hvernig á kærastinn ekki
að biðja þín?
„Í miðju kynlífi.“
Gjafapakkning frá kynlífsbúð á
konudaginn. Eru það núna titrandi
eggin sem tala en ekki blómin?
„Blóm segja auðvitað alltaf sitt þó að mér
fyndist mun skemmtilegra að fá það fyrr-
nefnda.“
Hvað finnst þér rómantískt?
„Þegar manneskjan sem maður elskar
leggur sig fram við að gera eitthvað fallegt
með manni – það er hugsunin sem gildir.“
Ekki rómantískt að prumpa
Sími: 561 1433
• Austurströnd 14
• Hringbraut 35
• Fálkagötu 18
• Lönguhlíð
góðar
ástæður
til að heimsækja
...okkur
3
mánudaga-föstudaga...........7.30 -17.30
laugardaga.........................8.00 -16.00
KONUDAGUR....................8.00 -18.00
BOLLUDAGUR....................7.30 -18.30
B
O
LLU
R
Á
B
O
LLU
D
A
G
IN
N
U
R
Á
UU
D
U
D
U
D
G
A
G
A
G
A
G
INININ
NNN
B
R
A
U
Ð
O
G
R
Ú
N
STY
K
K
I
A
LLA
D
A
G
A
B
R
A
U
Ð
O
G
R
Ú
N
S
A
L
A
L
A
LLALALA
DDD
G
A
G
A
G
A
G
AAA
B
O
LLU
O
B
O
B
O
B
O
LLLLLLUUUU
STY
K
K
I
K
A
K
A
Á
R
SIN
S 2
0
1
2
Á
K
O
N
U
D
A
G
IN
N
P
R
EN
TU
N
.IS