Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Síða 38
38 Rómantík og konur 17.–19. febrúar 2012 Helgarblað
Hvað er svona rétt við herra Rangan?
E
inhleypur karlmaður á fertugs-
aldri, farinn að grána í vöngum
og í góðu formi sækist eftir nán-
um kynnum við ofurfyrirsætu,
sem er almennt hrifin af ferðalögum,
lauslæti og stuttum kynnum.
Er þetta lýsingin á draumakær-
astanum? Rannsóknir sýna að konur
vilja helst karlmenn sem eru áreið-
anlegir og tryggir. Það er hins vegar í
andstæðu við aðdáun þeirra á körlum
eins og seggnum honum Don Draper,
durtinum James Bond og hrokagikkn-
um Rhett Butler. Mennirnir sem fylla
drauma kvenna eru allt annað en
yndislegir.
Persónuleikabrestir eru að sjálf-
sögðu nauðsynlegir til að halda uppi
góðri ræmu á hvíta tjaldinu en getur
verið að hrifning kvenna á herra
Röngum risti dýpra?
Peter Jonasson er prófessor í sál-
fræði við Háskólann í Vestur-Flórída
og hefur rannsakað aðdráttarafl karla
á konur í kvikmyndum og í raunveru-
leikanum. Niðurstöður hans eru afar
áhugaverðar en í þeim kemur meðal
annars í ljós að hrifning okkar á pers-
ónuleikabrestum er oft meiri en á já-
kvæðum persónueiginleikum.
Samkvæmt Peter búum við öll yfir
neikvæðum eiginleikum í mismiklum
mæli. Svo sem stjórnsemi, sjálfhverfu
og geðsýki. Hann nefnir sem dæmi að
allir taki til þess bragðs að ljúga, séu
stundum sjálfselskir eða stjórnsamir.
Þessir eiginleikar geti jafnframt reynst
gagnlegir. Fólk sem býr yfir neikvæð-
um eiginleikum er oftast með gott
sjálfstraust og er lítið kvíðið og Jonas-
son kemst að því að karlmenn sem
búa yfir þessum eiginleikum séu mjög
lagnir í að laða að sér konur. Þeir eru
líklegri til að hafa átt fleiri ástmeyj-
ar en meðaljóninn og vænu skinnin.
En hvers vegna? Hvað er svona rétt
við herra Rangan? Jonasson á engin
skotheld svör við því. En hann veltir
vöngum yfir því í niðurlagi rannsókn-
ar sinnar hvort það geti átt sér bæði
sálrænar og félagslegar orsakir. „Kon-
ur með lítið sjálfsöryggi leita í karl-
menn með neikvæða eiginleika. Það
er ráðgáta sem gæti stafað af sálræn-
um þáttum en líka félagslegum. Við
erum til dæmis alin upp á þessum
andstæðum í kvikmyndum og dæg-
urmenningu. Konan er meðvirk og
góð, karlinn er ráðandi og slæmur.“
kristjana@dv.is
Gleddu konuna
á einfaldan hátt
n Makar gleðja gjarnan konur sínar á konudaginn
B
lóm gleðja og eru alltaf vel
þegin en það er hægt að gera
annað og meira til að gleðja
konuna sína á konudaginn.
Það þarf ekki að kosta mikla fyrir-
höfn eða mikil fjárútlát og hér eru
nokkur dæmi um ódýr en skemmti-
leg stefnumót sem koma sér vel á
sunnudaginn kemur.
Heitt bað Láttu renna í freyðibað fyrir hana og settu
ilmolíu út í vatnið. Kveiktu á kertum og og settu rólega
tónlist á. Vertu til taks til að rétta henni allt sem hún þarf
meðan á baðinu stendur. Ekki er úr vegi að skella sér ofan
í til hennar eftir smá tíma þegar hún hefur fengið að slaka
aðeins á, og gefa henni axlanudd.
Lautarferð Þó það sé ennþá vetur er vel hægt að
fara í rómantíska lautarferð. Settu í körfu flösku af
góðu rauðvíni, osta og vínber. Taktu með teppi, bæði
til að sitja á og til að breiða yfir ykkur. Bjóddu henni
í bíltúr og segðu henni að klæða sig vel. Stoppaðu í
Öskjuhlíðinni, Heiðmörk eða á svipuðum stað þar sem
skjól er af trjám og vertu búin/n að finna
góða laut þar sem þið getið sest niður
og gætt ykkur á nestinu. Ef veðrið er
ómögulegt fyrir setu utandyra má vel
færa lautarferðina inn í hlýja stofuna.
Karókíkeppni Í góðu sambandi er
mikilvægt að geta hlegið saman. Karókí er
góður vettvangur til að hlægja saman og að
hvort öðru því fátt er í raun fyndnara en að
horfa og hlusta á maka sinn syngja gamla
slagara. Hægt er að taka karókíkeppni í
stofunni heima eða fara á einhverja af þeim
stöðum sem bjóða upp á slíkt. Það er bara
spurning um hversu feimin þið eruð.
Vídeómaraþon Að kúra saman
uppi í sófa yfir góðri mynd er uppskrift
að góðu kvöldi. Gerðu það ennþá
betra með því að leyfa henni að ráða
myndinni. Mundu að sama hvaða
kvikmyndasmekk þú ert með; ekki mót
mæla! Útvegaðu allt það snarl og drykki
sem þið munuð neyta yfir myndinni og
stjanaðu við hana. Svo er alltaf hægt
að taka þetta alla leið og skipuleggja
vídeómaraþon og þá má horfa á heila
seríu af þáttum eða kvikmyndum.
Vertu þjónn-
inn hennar
eitt kvöld
Vertu bókstaflega
þjónninn hennar og
dekraðu við hana.
Bjóddu henni í
heimatilbúinn mat
þar sem þú sérð
um að elda matinn,
leggja á borðið, færir
henni drykki, vaskar
upp og gefur henni
jafnvel fótanudd
á eftir. Súkkulaði
húðuð jarðarber
með kampavíni er
tilvalinn eftirréttur.
Bjóddu henni í dekur
Það er fátt betra en að láta
nudda sig frá toppi til táar og
fara í gufu á eftir. Kauptu handa
konunni dekur þar sem hún fær
nudd og andlitsmaska og hún
mun koma til baka brosandi
út að eyrum. Maki getur einnig
séð um nuddið og dekrið sjálfur.
Það sparar ekki einungis pening
heldur er miklu persónulegra og
huggulegra.
Morgunmatur í rúmið Það er alltaf góð byrjun á
konudeginum að færa henni morgunmatinn í rúmið. Það
þarf ekki endilega að vera flottasti morgunverður sem
hún hefur fengið. Það er hugsunin sem skiptir máli. Kaffi
og ristað brauð geta alveg glatt jafn mikið.
Hrokagikkir og durtir Jonasson kemst að því að karlmenn sem búa yfir neikvæðum
eiginleikum séu mjög lagnir í að laða að sér konur.
Hafðu trú á
makanum
Það borgar sig að gefa makanum
stig fyrir að reyna, ef marka má
rannsókn sem gerð var í Weinberg-
háskólanum. Þar kemur fram að
því meira sem þú trúir á getu mak-
ans til að breyta og bæta sig í sam-
bandinu, því líklegri en hann til að
bæta sig. „Ef þú hefur enga trú á að
maki þinn geti breyst, jafnvel þegar
hann leggur sig fram, eru litlar líkur
á að honum takist ætlunarverk sitt.
Lykillinn að góðu sambandi virðist
felast í því að sýna makanum að þú
kunnir að meta það þegar hann ger-
ir eitthvað fyrir þig og getir staðist
þá freistingu að núa honum því um
nasir þótt hann hefði getað gert enn
meira,“ segir Chin Ming Hui, höf-
undur rannsóknarinnar sem birtist
í Personality and Social Psychology
Bulletin í síðasta mánuði.
Elsta parið
á Twitter
Hvernig höldum við lífi í ástar-
glæðunum út ævikvöldið? Það er
mörgum ráðgáta. En ekki þeim Lionel
og Ellen Buxton. Þau hafa verið gift í
76 ár og segja frá ráðgátunni á Twitter.
Þau segjast ekki hafa eytt meira en
einni nóttu fjarri hvort öðru frá því
þau giftust árið 1936 og hafa svarað
spurningum um ástina frá aðdáend-
um sínum á Twitter.
Ellen er 100 ára og Lionel er 99 ára
og spurð hvað sé allra farsælast segja
þau einfaldlega: „Að deila hugsunum
sínum er mikilvægast.“
Þeir sem vilja fylgjast með Lionel
og Ellen geta skoðað síðu þeirra á
Twitter á slóðinni: @lionelandellen.
Einfalt kort
frá börnunum
Einföld kveðja frá börnunum
gleður móðurhjartað mikið.
Hjálpaðu börnunum að búa til
kort handa móður sinni á konu-
daginn. Allt sem þarf til er pappír,
skæri og puttamálning eða þekju-
litir og litlir lófar!
Karlmenn
„feika það“ líka
Samkvæmt rannsókn eiga karl-
menn það til að gera sér upp
fullnægingu. Konur hafa í gegn-
um árin verið spurðar í rann-
sóknum hvort þær hafi nokkurn
tímann „feikað það“. Niðurstöð-
urnar hafa yfirleitt verið á þá
leið að um það bil tveir þriðju
hlutar aðspurðra kvenna hafa
viðurkennt að hafa gert sér upp
fullnægingu einhvern tímann
á ævinni. Vísindamenn við há-
skólann í Kansas spurðu 281
nemanda (180 karlmenn og 101
konu) þessarar vinsælu spurn-
ingar. Niðurstöðurnar voru þær
að 67% kvennanna svöruðu
játandi og 28% karlmannanna.
Niðurstöðurnar gáfu einnig til
kynna að þeir einstaklingar sem
höfðu þóst fá það stunduðu
einnig meira kynlíf en hinir og
voru ævintýragjarnari í rúminu.