Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Page 44
44 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 17.–19. febrúar 2012 Helgarblað
V
aldimar fæddist að
Efri-Steinsmýri í
Meðallandi og ólst
upp í Meðallandinu.
Hann hefur stundað
margvísleg störf til sjós og
lands. Þá dvaldi hann og starf-
aði í útlöndum um árabil.
Valdimar hefur sinnt mynd-
list um áratugaskeið og haldið
þó nokkrar málverkasýning-
ar í gegnum tíðina en málverk
hans skipta hundruðum.
Fjölskylda
Systkini Valdimars: Björn Gísli
Bjarnfreðsson, f. 24.7. 1913,
d. 30.4. 1980, verkamaður á
Hvolsvelli, var kvæntur Arn-
heiði Sigurðardóttur húsmóð-
ur; Vilborg Bjarnfreðsdóttir, f.
19.6. 1915, d. 30.5. 1995, var bú-
sett á Selfossi, var gift Ásmundi
Siggeirssyni verkamanni; Sig-
urbergur Bjarnfreðsson, f. 30.9.
1916, d. 8.2. 2002, sjómaður og
verkamaður í Vestmannaeyj-
um; Haraldur Bjarnfreðsson,
f. 23.12. 1917, d. 29.1. 1940,
sjómaður í Reykjavík; Guðjón
Bjarnfreðsson, f. 3.3. 1919, d.
28.1. 2009, garðyrkjumaður og
kvæðamaður í Reykjavík; Lár-
us Bjarnfreðsson, f. 18.5. 1920,
d. 23.12. 1975, málari í Reykja-
vík, var
kvæntur
Guðrúnu
Benja-
mínsdótt-
ur; Aðal-
heiður
Bjarnfreðs-
dóttir, f.
8.8. 1921,
d. 26.4. 1994, alþm. og for-
maður verkakvennafélagsins
Sóknar, var búsett á Hvols-
velli; Jóhanna Bjarnfreðsdótt-
ir, f. 31.12. 1922, d. 4.10. 1910,
var bókavörður í Kópavogi;
Ólöf Bjarnfreðsdóttir, f. 24.7.
1924, fyrrv. verkakona í Reykja-
vík, nú til heimilis á dvalar-
heimilinu Kumbaravogi; Ingi-
björg Bjarnfreðsdóttir, f. 16.8.
1925, d. 10.12. 1985, húsmóð-
ir í Reykjavík, var gift Óskari
Guðmundssyni bifvélavirkja;
Eygerður Bjarnfreðsdóttir, f.
4.1. 1927, d. 4.4. 1991, lengi
starfsstúlka á Landakotsspít-
ala í Reykjavík; Ármann Bjarn-
freðsson, f. 20.3. 1928, d. 9.6.
1988, lengi fiskmatsmaður í
Vestmannaeyjum, var kvænt-
ur Kristínu Óskarsdóttur; Að-
alsteinn Bjarnfreðsson, f. 9.7.
1929, d. 9.4. 2005, kaupmaður
í Reykjavík, var kvæntur Báru
Sigurðardóttur húsmóður;
Steindór Bjarnfreðsson, f. 26.6.
1930, fyrrv. sjómaður í Reykja-
vík; Magnús Bjarnfreðsson, f.
9.2. 1934, var fréttamaður og
dagskrárgerðarmaður fyrir
sjónvarp, auglýsinga- og kynn-
ingarfulltrúi og fyrrv. bæjar-
fulltrúi í Kópavogi, nú búsettur
í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu
Árnadóttur húsmóður; Sveinn
Andrés Bjarnfreðsson, f. 27.8.
1935, d. 17.1. 1941; Ólafur
Bjarnfreðsson, f. 28.12. 1936,
fyrrv. sjómaður í Reykjavík;
Vilmundur Siggeir Bjarnfreðs-
son, f. 3.9. 1939, d. 21.11. 1964,
verkamaður í Reykjavík; Þór-
anna Halla Bjarnfreðsdóttir,
f. 7.9. 1942, d. 31.1. 1981, hús-
móðir í Reykjavík, var gift Ás-
geiri Hraundal verkamanni.
Foreldrar Magnúsar voru
Bjarnfreður Ingimundarson,
f. 13.9. 1889, d. 13.9. 1964, b. á
Efri-Steinsmýri, og kona hans,
Ingibjörg Sigurbergsdóttir, f.
3.11. 1893, d. 20.7. 1945, hús-
freyja.
Ætt
Bjarnfreður var sonur Ingi-
mundar, í Vestmannaeyjum
Árnason. Móðir Bjarnfreðs var
Sigurveig Vigfúsdóttir, systir
Brynjólfs, langafa Jóns Arnar
Marinóssonar tónlistarstjóra.
Móðir Sigurveigar var Ingi-
björg, systir Guðrúnar, lang-
ömmu Sveins Einarssonar,
fyrrv. þjóðleikhússtjóra, Jóns
Aðalsteins Jónssonar orðabók-
arritstjóra og Haraldar Matth-
íassonar, íslenskukennara á
Laugarvatni, föður Ólafs, fyrrv.
alþm., föður Haraldar pólfara.
Ingibjörg var dóttir Bjarna, b.
í Árbæ Stefánssonar, b. þar,
bróður Ólafs á Fossi, langafa
Odds, hreppstjóra á Sáms-
stöðum, langafa Davíðs Odds-
sonar Morgunblaðsritstjóra.
Brandur var einnig bróðir Jóns
í Vindási, afa Stefáns, langafa
Guðmundar, afa Jóhönnu Sig-
urðardóttur forsætisráðherra.
Stefán var sonur Bjarna, ætt-
föður Víkingslækjarættar Hall-
dórssonar. Móðir Stefáns var
Guðrún Eyjólfsdóttir.
Ingibjörg var systir Gísl-
rúnar, móðir Sigurbjörns Ein-
arssonar biskups, föður Karls
biskups og Þorkels tónskálds.
Ingibjörg var dóttir Sigurbergs,
b. í Háu-Kotey í Meðallandi
Einarssonar, b. í Bakkakoti
Magnússonar. Móðir Einars
var Ingibjörg Gísladóttir, systir
Ragnhildar, langömmu Sveins,
afa Sveins Runólfssonar land-
græðslustjóra.
Móðir Ingibjargar var Árný
Eiríksdóttir, systir Eyjólfs, lang-
afa Hilmars Jónssonar stór-
templars.
J
ón Ingiberg fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp
í Breiðholtinu. Hann var
í Seljaskóla, stundaði
nám við Fjölbrautaskól-
ann í Breiðholti og lauk þaðan
stúdentsprófi af myndlistar-
braut árið 2002, stundaði nám
við Iðnskólann í Reykjavík um
skeið og síðan við Listaháskóla
Íslands þar sem hann lauk
prófum sem grafískur hönnuð-
ur vorið 2011.
Jón Ingiberg vann á bíla-
verkstæðinu ALP á framhalds-
skólaárum, vann við grafíska
hönnun á árunum 2004–2008,
starfaði hjá VÍS, Vátrygginga-
félagi Íslands, og hjá BYKO,
með námi á árunum 2008–
2011 og hefur verið grafískur
hönnuður hjá auglýsingastofn-
unni Hvíta húsinu frá vori 2011.
Á unglingsárunum vann Jón
Ingiberg við gerð myndasagna
með svo kölluðum Blekhóp
sem gaf út hasarblaðið Blek.
Hann hefur auk þess stundað
myndlist frá því á unglingsár-
unum, hefur tekið þátt í sam-
sýningum og hélt einkasýningu
í Gallerí Geysi haustið 2001.
Sjá má verk eftir Jón Ingiberg á
heimasíðu hans, joningiberg.
com. Þá hefur hann sýslað við
tónlist frá árinu 2000, hefur ver-
ið virkur þátttakandi í Blúshátíð
í Reykjavík frá 2005 og er með-
limur í Blúsfélagi Reykjavíkur.
Jón Ingiberg er um þessar
mundir að leggja lokahönd á
sína fyrstu sólóplötu.
Fjölskylda
Kona Jóns Ingibergs er Vikt-
oría Sigurgeirsdóttir, f. 14.10.
1985, sjúkraliði og þroska-
þjálfi.
Sonur Jóns Ingibergs og
Viktoríu er Róbert Elí Jónsson,
f. 4.10. 2011.
Bræður Jóns Ingibergs eru
Elvar Freyr Jónsteinsson, f.
12.8. 1966, kaupmaður á Sel-
fossi; Grétar J. Jónsteinsson, f.
25.3. 1971, bílamálari, búsett-
ur í Reykjavík.
Foreldrar Jóns Ingibergs:
Jónsteinn Jónsson, f. 12.10.
1945, húsasmíðameistari í
Reykjavík, og Þóranna Sig-
ríður Jósafatsdóttir, f. 23.12.
1947, d. 14.9. 2010, leikskóla-
kennari, bæði frá Siglufirði.
G
uðbjörg fæddist í
Reykjavík og ólst þar
upp á Melunum í
Vesturbænum. Hún
var í Melaskóla og
Hagaskóla, stundaði nám við
Menntaskólann í Hamrahlíð og
stundaði nám í leiklist við Rose
Bruford College í London og
lauk þaðan námi árið 2010. Þá
stundaði hún þjálfun hjá Bred
in the bone í Grotowski-mið-
stöðinni í Wroclaw í Póllandi
árið 2010 og hefur verið með-
limur þess leiklistarhóps síðan.
Guðbjörg hefur starfað hjá
Blindrabókasafninu með hlé-
um frá 2007, fyrst við ýmis störf
en hefur verið lesari hjá safn-
inu síðustu árin. Þá kennir hún
við söng- og leiklistarskólann
Sönglist um þessar mundir.
Guðbjörg lék í sýningu fyrir
erlenda ferðamenn hér á landi,
Lets talk Iceland, árið 2011 og
lék auk
þess með
enskum
leikhópi í
London,
Fake ID, sl.
sumar.
Guð-
björg er
einn stofn-
enda Leikaraviðhaldsins, sem
er vikuleg símenntun fyrir leik-
ara í Tjarnarbíói. Þá situr Guð-
björg í stjórn Málbjargar sem er
félag um stam.
Fjölskylda
Systir Guðbjargar er Hólm-
fríður Jónsdóttir, f. 9.11. 1978,
deildarstóri hjá Booking.com
í Kaupmannahöfn.
Foreldrar Guðbjargar eru
Hulda Ásgrímsdóttir, f. 13.4.
1951 bókasafnsfræðingur og
Jón Júlíusson, f. 19.12. 1942,
leikari og leikstjóri.
Ó
skar fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp í
Breiðholtinu. Hann
var í Seljaskóla, stund-
aði nám við Iðnskól-
ann í Reykjavík og lauk þaðan
prófum í tölvufræði árið 2002.
Óskar starfaði við Árbæj-
arsundlaugina á sumrin með
námi. Hann hóf störf sem
forritari á eigin vegum fyrir
tveimur árum og er nú að
hefja fast starf sem forritari
við fyrirtæki.
Fjölskylda
Systkini Óskars eru Birgir
Karl Ragnarsson, f. 29.8. 1979,
nemi, búsettur í Reykjavík;
Berglind Ragnarsdóttir, f. 31.8.
1988, starfsmaður við Árbæj-
arskóla, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Óskars: Ragnar
Guðsteinsson, f. 5.10. 1954,
húsgagnasmiður í Reykjavík,
og Magdalena Svanhildur
Gissurardóttir, f. 7.12. 1952, d.
10.4. 2004, var starfsmaður við
Droplaugarstaði í Reykjavík.
S
igurvin fæddist í
Þernuvík í Ögur-
hreppi og ólst þar upp
til sjö ára aldurs en
síðan í Bolungarvík.
Hann var í Barnaskóla í Bol-
ungarvík og stundaði nám við
Héraðsskólann í Reykjanesi
við Djúp í tvo vetur. Þá stund-
aði hann nám Iðnskólann í
Reykjavík og var á samningi
hjá Stálsmiðjunni í Reykjavík,
lauk prófum í plötu- og ketil-
smíði, stundaði síðan nám við
Vélskólann í Reykjavík og lauk
þaðan vélstjóraprófi 1964.
Sigurvin var vélstjóri á bát-
um 1964–67, stundaði versl-
unarstörf í Reykjavík 1967–68,
stundaði viðgerðir á þunga-
vinnuvélum á verkstæði
Reykjavíkurborgar 1968–70,
starfaði í skipasmíðastöð
Kockums í Malmö 1969, var
vélstjóri á Gretti, dýpkunar-
skipinu, var síðan einn af
stofnendum heildverslunar-
innar Goss hf., Reykhólaskips
hf. og Dýpkunarfélags Siglu-
fjarðar hf. Hann var vélstjóri á
Sunnuberginu frá Vopnafirði
í nokkur ár og var síðan vél-
stjóri á Lundey frá Vopnafirði.
Fjölskylda
Sigurvin kvæntist 17.9. 1960
Sigrúnu Jónasdóttur, f. 25.7.
1942, húsmóðir. Hún er dótt-
ir Jónasar Jónssonar og Fann-
eyjar Jónasdóttur er bjuggu í
Reykjavík. Sigurvin og Sigrún
skildu 1996.
Börn Sigurvins og Sigrún-
ar eru Svala Sigurvinsdóttir, f.
31.12. 1960, kennari í Reykja-
vík; Hannibal Sigurvinsson,
f. 15.2. 1965, vélvirki í Reykja-
vík; Arnór Sigurvinsson, f. 6.6.
1967, tækniteiknari og iðn-
hönnuður í Noregi; Harpa Sig-
urvinsdóttir, f. 20.4. 1972, flug-
freyja í Reykjavík.
Kona Sigurvins er Arn-
þrúður Margrét Jónasdóttir,
f. 27.1. 1948, framreiðslukona
við Hótel Tanga og matráðs-
kona hjá HB Granda á Vopna-
firði. Foreldrar hennar voru
Anna Guðrún Jóhannesdóttir
og Jónas Aðalsteinsson en þau
bjuggu á Brúarlandi í Þistil-
firði.
Börn Arnþrúðar Margrétar
frá fyrra hjónabandi eru Krist-
jana Sólveig, f. 1965, búsett í
Grindavík; Jónas Aðalsteinn,
f. 1967, búsettur á Húsavík;
Sylvía Kristín, f. 1981, búsett á
Vopnafirði.
Systkini Sigurvins eru
Guðríður Hannibalsdóttir, f.
3.3. 1938, d. 9.10. 2009, var
kennari í Mosfellsbæ; Jón
Hannibalsson, f. 17.6. 1939,
var kennari í Mosfellsbæ;
Lilja Hannibalsdóttir, f. 28.6.
1940, hjúkrunarfræðingur í
Reykjavík; Haukur Hanni-
balsson, f. 18.9. 1941, fyrrv.
verkstjóri í Kópavogi; Hulda
Hannibalsdóttir, f. 4.2. 1943,
húsmóðir og hóteleigandi í
Borgarfirði; Ásdís Hannibals-
dóttir, f. 20.3. 1944, húsmóðir
í Reykjavík; Bragi Hannibals-
son, f. 9.12. 1945, skrifvéla-
virki í Reykjavík; Sigríður
Halldóra Hannibalsdóttir, f.
17.12. 1947, matartæknir í
Kópavogi; Sigrún Hannibals-
dóttir, f. 21.4. 1950, húsmóðir
og verktaki í Kópavogi; Mar-
grét Hannibalsdóttir, f. 25.1.
1952, bóndi að Neðra-Núpi í
Miðfirði; Jóhann Hannibals-
son, f. 27.7. 1954, bóndi að
Hanhóli í Bolungarvík; Fjóla
Hannibalsdóttir, f. 22.4. 1953,
ræstitæknir í Danmörku; Re-
bekka Hannibalsdóttir, f.
13.2. 1956, húsmóðir í Kópa-
vogi; Þorsteinn Hannibals-
son, f. 10.9. 1961, verktaki í
Hveragerði.
Foreldrar Sigurvins:
Hannibal Guðmundsson, f.
24.4. 1907, d. 9.12. 1984, bóndi
á Hanhóli í Bolungarvík, og
k.h., Þorsteina Jónsdóttir, f.
16.11. 1914, d. 27.11. 2004,
húsfreyja.
Ætt
Hannibal var sonur Guð-
mundar Steinssonar, sjó-
manns í Bolungarvík, og Guð-
ríðar Hannibalsdóttur.
Þorsteina Kristjana var
dóttir Jóns Jónassonar, b. á
Birnustöðum í Ögurhreppi,
og Guðmundínu Hermanns-
dóttur.
Sigurvin Hannibalsson
Vélstjóri á Vopnafirði
Valdimar Bjarnfreðsson
Fyrrv. verkamaður og málari í Reykjavík
Jón Ingiberg
Jónsteinsson
Grafískur hönnuður hjá Hvíta húsinu
Guðbjörg Ása Jóns-
dóttir Huldudóttir
Leikkona í Reykjavík
Óskar Ragnarsson
Forritari í Reykjavík
75 ára á föstudag
80 ára sl. fimmtudag
30 ára á föstudag
30 ára á föstudag
30 ára á föstudag