Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Side 52

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Side 52
Þ að væri ekki amalegt að fá hjartalaga sykur­ mola með kaffinu upp í rúm á konudaginn. Jafnvel þótt maður taki ekki sykur í kaffið. Þetta er bara svo krúttlegt,“ segir Helga Kvam, skólastjóri Tónlistar­ skóla Svalbarðsstrandar, kennari í listljósmyndun við Myndlistarskólann á Akur­ eyri og eigandi síðunnar allskonar.is. Helga opnaði vefsíðuna í lok janúar en þar er að finna uppskriftir, jákvæðan pepp og margt annað. „Mér fannst vanta íslenska síðu með uppskriftum sem krefj­ ast ekki mikilla útgjalda. Það er til mikið af síðum sem bjóða upp á dýrari upp­ skriftir en eftir að kreppan skall á þarf fólk að hugsa um hverja krónu,“ segir Helga og bætir við að gestapennar skrifi um heilsu, förðun, lík­ amsrækt og fleira. Helga er mikill áhuga­ maður um mat og býr til allar uppskriftirnar sjálf, smakkar til og myndar. „Ég leita mér að inn­ blæstri héðan og þaðan. Ég elda kvöldmat á hverjum einasta degi svo ég hugsaði með mér að þetta yrði ekki mikil viðbót. Hugmyndin er að hafa þetta svolítið náttúrulegt og sveitó enda bý ég úti í sveit. Ég vil hafa þann púlsinn í þessu og uppskriftirnar end­ urspegla þann hraða í lífinu. Uppskriftirnar minna ekki á fimm stjörnu veit­ ingahús heldur gefa réttirnir þér orku svo þú getir farið út eftir matinn og grafið skurð,“ segir Helga sem segist hafa fengið góð viðbrögð við síð­ unni. „Viðbrögðin hafa verið vonum framar svo það voru greinilega fleirum en mér sem fannst svona síðu vanta. Ég er mest hissa á við­ brögðunum frá karlmönn­ um en þeim finnst þessi síða upp til hópa meiriháttar.“ kristjana@dv.is Tilvalin á náttborðið: Franskir draumar Bókin Dreaming in French eftir Alice Kaplan fjallar um líf þriggja merkra, amerískra kvenna sem heillast af París á ungdómsárum sínum. Þessar þrjár konur urðu seinna lykilpersónur í menn­ ingar­ og stjórnmála­ lífi Banda­ ríkjanna. Jacquel­ ine Bou­ vier (síðar Jacqueline Kennedy) var þá tvítug kaþólsk stúlka af auðugum ættum sem seinna færði ást sína á frönskum siðum inn í Hvíta húsið. Susan Sontag (síðar heimsfrægur ljósmyndari) var rúmlega tvítug og flúði til Parísar frá stjórnsamri móð­ ur og mislukkuðu hjóna­ bandi. Susan Sontag er einn áhrifamesti heimspekingur og ljósmyndari seinni tíma. Angela Davis, sem seinna varð áberandi í mannrétt­ indabaráttu svartra með Black Panther, fór til Parísar og var eina svarta stúlkan í skiptinámi í París. Síðar skrifaði hún æviminningar sínar og kallaði þær French Lessons. Notebook (2004) Tólf vasaklúta mynd um ástina og hvernig hún sigrar allt. Margir segja þetta vera allra rómantískustu mynd sem gerð hefur verið. Þau Ryan Gosling og Rachel McAdams fara með aðalhlutverkin. Gosling fellur fyrir ungri efnaðri konu og þau eiga eldheitt ástarsamband. Leiðir skilur þegar líf þeirra reynast ósam- rýmanleg. En já, ástin sigrar allt að lokum. Love Actually (2003) Ástin tekur ekki á sig ákveðna mynd og uppskriftir að henni eru alltaf ólíkar. Í Love Actually tekur ástin á sig ýmsar myndir, eldheit ást, stundarbrjálæði og ást sem aldrei verður endurgoldin. Margar örsögur mynda tengsl og úr verður ein stór ástarsaga. Þrátt fyrir að vera í eðli sínu jólamynd er hún ágætis áminning fyrir okkur sem leitum að fullkominni uppskrift – líklegast er hún ekki til. Monsoon Wedding (2001) Indversk fjölskylda undirbýr brúðkaup þar sem foreldrar brúðhjónanna hafa valið maka fyrir börn sín. Myndin gefur góða innsýn inn í raunveru- leika margra indverskra hjóna sem hafa lítið að segja um aðstæður sínar, en myndin er engu að síður bæði fyndin og hugljúf og vel þess virði að sjá. My Best Friends Wedding (1997) Julia Roberts kemst að því að fyrrverandi kærasti og besti vinur hennar er að fara að gifta sig. Þar sem hún er skelfilega frek og þver neitar hún að takast á við þennan missi og ákveður að eyðileggja brúðkaupið. Skothelt plan eða þannig en enginn getur stöðvað hana, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Julia Roberts sannar hér að hún er ókrýnd drottning rómantískra gamanmynda. French Kiss (1995) Hér fara þau Kevin Kline og Meg Ryan á kostum í gamanmynd og sýna og sanna að and- stæður eiga ágætlega saman. Meg Ryan leikur stressaða og flug- hrædda konu sem eltir fyrrverandi kærasta sinn til Parísar. Kevin Kline er smákrimmi sem gerir allt til að gera henni lífið leitt á sama tíma og hún heillar hann upp úr skónum. Hvað gæti verið rómantískara en ástarsaga sem gerist í París og á frönskum vínekrum? Ghost (1990) Það verður varla til heitari ást en sú sem nær yfir gröf og dauða. Patrick Swayze og Demi Moore sýna og sanna að ástarsam- bönd þurfa ekki að enda þrátt fyrir flóknar hindranir eins og dauðann. Myndin þykir einkar rómantísk, en Whoopi Goldberg gefur henni gamansaman blæ. Breakfast at Tiffany’s (1961) Sérlunda fólk á líka skilið að finna ástina, en það getur flækst fyrir mörgum. Holly Golightly er vinsæl, falleg en sérlunduð og leitar ástarinnar í djúpum vösum sterkefnaðra manna. En hamingjan finnst ekki á þann hátt og þegar hún hittir fátækan rithöfund í sömu stöðu breytist allt. Myndin er klassísk ástarsaga þar sem tengdar sálir finna hvor aðra. Casablanca (1942) Óhætt er að segja að Casablanca sé sú mynd sem allar aðrar róman- tískar kvik- myndir eru byggðar á og er sannkallað meistara- stykki. Myndin fjallar um tvo elskendur sem í senn reyna að lifa af ofsóknir nasista og finna leið til að vera saman. Hvað gætum við beðið um meira? 52 Lífsstíll 17.–19. febrúar 2012 Helgarblað Sögur af elskendum sem ekki fá að unnast, ást sem nær yfir gröf og dauða og ást sem sigrar ofsóknir nasista – hvað gæti verið rómantískara? DV valdi átta rómantískar myndir sem eru vel þess virði að horfa á nú þegar ástin svífur yfir vötnum í febrúar. 1 8 rómantískustu kvikmyndirnar 2 3 4 5 6 Audrey Hepburn Í hlutverki Holly Golightly í Breakfast at Tiffanys. Casablanca Humphrey Bogart og Ingrid Bergman í hlutverkum sínum. Súkkulaði- ást! Fátt er rómantískara en að deila eftirrétti með þeim sem maður elskar. Njóttu þess að fá þér þennan eftir­ rétt með þeim sem á hjarta þitt. Bræddu saman slatta af súkkulaði, tvær teskeiðar af ósöltuðu smjöri, hálfan bolla af vatni, einn fjórða bolla af mjólk og tvær te­ skeiðar af sýrópi. Þetta er allt brætt saman og sett í fal­ lega skál. Síðan eru skornir niður ávextir eftir smekk, til dæmis jarðarber, epli, perur eða bananar, allt er leyfi­ legt. Einnig getur verið gott að dýfa sykurpúðum ofan í. Síðan er bara að stinga prjón eða gaffli í ávextina eða sykurpúðana og dýfa þeim í súkkulaði og svo er bara að njóta! Hjartalaga sykurmolar með kaffinu n Sniðugar hugmyndir á síðunni allskonar.is Hjartalaga sykur- molar Helgu Kvam „Það eina sem við þurfum er silíkonklaka- eða konfektform, sykur og örlítið af vatni. Þú setur sykur í skál, bætir örlitlu (byrja á 1–2 tsk.) af vatni út í, hrærir vel og lengi. Sykurinn á rétt að loða saman, hann má alls ekki vera rennblautur. Sykurinn er svo settur í mót og honum þrýst vel niður, látið hann síðan stirðna í 6–12 klst. á þurrum og hlýjum stað. Og þá ertu komin/n með sykurmola eftir eigin höfði.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.