Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Blaðsíða 56
Þú hefur ekki lengur áhuga. Möguleg orsök: Of lágt magn af karlhormóninu testósteróni. Það geta legið margar ástæður að baki minnkaðri kynhvöt; svo sem stress, ástleysi og svefnleysi. Hvað er hægt að gera? Láttu athuga hormónamagnið. Sam- kvæmt kynlífsfræðingnum John Mulhall við Cornell-háskólann í New York er testósterón mikilvægasta efnaskiptahormón karla- manna. „Ef magn þess er of lágt aukast líkur á beinþynningu, sykursýki, hjarta- og efna- skiptasjúkdómum og ótímabæru andláti.“ Þú hefur ekki áhuga – og þú ert líka niðurdreginn. Möguleg orsök: Þunglyndi eða lyf við þunglyndi. Minni kynhvöt getur verið merki um þunglyndi. Að sama skapi getur meðferð við þunglyndi haft sömu áhrif. Hvað er hægt að gera? Ef þú hefur ekki verið greindur með þung- lyndi skaltu segja lækni þínum frá dvínandi kynhvötinni og andlegri vanlíðan. Ef þú ert hins vegar á þunglyndislyfjum skaltu spyrja lækninn þinn hvort þú getir prófað önnur lyf sem mögulega hafa ekki áhrif á kynhvötina. Þú lendir ítrekað í því að halda ekki reisn. Möguleg orsök: Undirliggjandi hjarta- vandamál. „Ef þú ert tiltölulega hraustur maður á miðjum aldri, í örlítilli yfirvigt, og ferð að finna fyrir risvanda skaltu prísa þig sælan,“ segir Mulhall sem segir stinningarvanda- málið geta verið merki um alvarlegra vandamál. „Tveir þriðju hlutar karlmanna sem hafa fengið hjartaáfall höfðu glímt við stinningarvandamál.“ Hvað er hægt að gera? Láttu mæla kólesterólmagnið í blóðinu. Samkvæmt Mulhall er magnið óeðlilegt hjá 75% karlmanna sem halda ekki stinningu. „Holdrisvandamál lýsa ekki aðeins lélegu kynlífi heldur getur einnig verið merki um lélega heilsu,“ segir Mulhall sem mælir með reglulegri líkamsrækt og heilsusamlegu mataræði. Þú átt óvænt við risvandamál að stríða. Möguleg orsök: Stífluð slagæð, sérstaklega ef þú finnur einnig dularfullan sársauka í fæti. „Slappur limur endrum og eins getur stafað af minnkandi hormónamagni með hækk- andi aldri og breyttum samböndum,“ segir þvagfærasérfræðingurinn Adam Tierney en bætir við að skyndilegur vandi með holdris geti stafað af Leriche-heilkenninu. Tierney segir reykingamenn, menn með of háan blóðþrýsting, Parkinson- og sykursýki- skjúklinga sem og MS-sjúklinga vera í meiri hættu með tilliti til heilkennisins. Hvað er hægt að gera? Talaðu við lækni. Þú finnur til í limnum við samfarir. Möguleg orsök: Peyronie’s-sjúkdómur. Sjúkdómurinn er óalgengur en getur þróast á öllum aldursskeiðum. Hvað er hægt að gera? Samkvæmt Mulhall er alltaf rétt að rann- saka sársauka sem merki um að eitthvað sé að. Talaðu við lækni. Makinn snertir þig og finnur eitthvað óeðlilegt. Möguleg orsök: Blöðruhálskrabbamein. Sjúkdómurinn er einkennalaus, þ.e.a.s. sársaukalaus, en oft finnst bólga á eistum sem getur fundist með sjálfsskoðun eða í kynlífi. Hvað er hægt að gera? Ef þú finnur hnúð í eista skaltu leita strax til læknis. Ef sjúkdómurinn er greindur snemma eru næstum 100% líkur á lækningu. Mundu að skoða þig sjálfur einu sinni í mánuði. Of brátt sáðlát. Möguleg orsök: Ofvirkni skjaldkirtils . Of brátt sáðlát er bölvun ungra manna en getur hent menn á öllum aldri. Hversu fljótt er of fljótt er smekksatriði en almenna reglan er sú að um of brátt sáðlát sé að ræða ef það gerist ítrekað og án nokkurrar stjórnar tveimur mínútum eftir innsetningu og fyrr en báðir aðilar kæra sig um. Tveir þriðju karlmanna eiga við þetta vandamál að stríða einhvern tímann á ævinni. Hér áður fyrr töldu læknar að sálfræðilegar ástæður lægju ávallt að baki en í dag vita læknar að orsökin getur verið líkamleg. Hvað er hægt að gera? Þótt mörgum karlmönnum þyki erfitt að ræða um vandamálið er hægt að fá lausn á vandanum. Talaðu við lækni. Rétt lyf geta gert kraftaverk fyrir kynlífið. Þú finnur til við sáðlát. Möguleg orsök: Blöðruhálskirtils- bólga. Hvað er hægt að gera? Samkvæmt Mulhull getur reynst erfitt að lækna sársauka við fullnægingu. Sumir velja að lifa með óþægindunum en aðrir leita til sérfræðinga í von um lækningu. Það kemur ekkert úr honum við fullnægingu. Möguleg orsök: Lyf sem þú tekur inn vegna blöðruhálskirtilsbólgu. Ástand sem lýsir sér í litlu sem engu sæði við fullnægingu. Lyf eru líklegur sökudólgur. Sumir sjúklingar með sykursýki þekkja til vandamálsins vegna taugaskemmda. Hvað er hægt að gera? Tierney segir flesta karlmenn ekkert aðhafast þar sem flestum sé sama. „Par sem á við ófrjósemi að stríða gæti fengið lyf eða gengist undir smásjármeðferð.“ Það tekur þig óratíma að fá það – ef þú nærð því yfir- höfuð. Möguleg orsök: Sykursýki. Rótin að vandamálinu er sálfræðileg hjá níu af hverjum tíu mönnum. Hjá 10% snýst þetta hins vegar um skynjun sem oftast orsakast af taugaskemmdum vegna sykursýki, segir Tierney og bætir við að aðrar vísbendingar um sykursýki séu doði í fótum, þorsti, kláði, aukin þörf fyrir þvaglát og þreyta. Hvað er hægt að gera? Leitaðu til læknis og taktu upp hollari lífshætti. „Margir vilja pillu til að laga öll vandamál en stundum er best að huga betur að heilsunni. Reyndu að forðast álag, minnkaðu mittismálið og farðu í allsherjar- læknisskoðun,“ segir Tierney. 56 Lífsstíll 17.–19. febrúar 2012 Helgarblað é g er ófær um að elska,“ sagði ég miður mín við vinkonu mína fyrir nokkrum árum. Henni fannst það fyndið og hló að mér. Sjálfri fannst mér þetta ekkert fyndið, ekki þá. Enda bug- uð af ástleysi og sannfærð um að ég myndi aldrei geta elskað aftur. Ég var stödd á slæmum stað til- finningalega, nýstigin upp úr ástarsorg og einstaklega meðvituð um karmað mitt sem ég krumpaði rækilega einhverjum árum áður. Ég nefnilega reitti heilag- an Valentínus til reiði á degi elskenda og var handviss um að dýrlingurinn hefði lagt á mig bölvun fyrir vikið. Glæpur minn var jú al- varlegur, ég dömpaði kær- astanum mínum. Refsingin hlaut að verða sú að leitin að ástinni á ný yrði þrautaganga. é g gerði mér enga grein fyrir því að um væri að ræða Val- entínusardag, fyrir mér var bara venjulegur föstudagur. Íslenskir kaupmenn voru á þess- um tíma rétt að byrja að uppgötva að ástin væri söluvara og hefðin að halda upp á hana varla farin að ryðja sér til rúms að neinu ráði. Maðurinn sem ég dömpaði var einn af þeim fáu Íslendingum sem ætlaði sér þó að halda upp á dag- inn, með mér, kærustunni sinni. Ég komst að því skömmu síðar. E ftir að hafa rifið hjartað úr manninum á þessum helga degi snéri ég heim til mín. Þar kom í ljós að hann hafði ætlað að koma mér á óvart. En ekki hvað? Á eldhúsborðinu stóð blómvöndur og þar við hlið- ina lá hráefni í dýrindis róman- tískan kvöldverð sem hann hafði væntanlega ætlað að elda. Á þeirri stundu rann það upp fyrir mér hvaða dagur var. Þökk sé innreið amerískra hefða á Íslandsmarkað lá það nú ljóst fyrir að ég var ég ömurleg manneskja. Eins og það væri ekki nógu slæmt að ég hefði rifið hjartað úr manninum mínum á degi elsk- enda, þá lá það líka þarna á borð- inu fyrir framan mig og dældi ást- úð út um allt. Þetta gat einhvern veginn ekki verið verra. Fyrstu refsinguna ákvað ég sjálf. Ég fylgdist með blómvendin- um fölna og visna í vasa á eldhúsborðinu næstu þrjá mán- uðina. Það var það minnsta sem ég gat gert. Valent- ínus myndi svo sjá um restina ásamt karmanu. E ftir þetta hefur mér ekki tekist að gleyma Valentínusardeg- inum þrátt fyrir að hafa aldrei haldið upp á hann. Enda hef ég, eins og gefur að skilja, töluverða óbeit á honum. Það er líka allt of mikil pressa að ætla að halda sérstaklega upp á ástina einu sinni ári með tilheyrandi blómahafi, hjartaflóði og bangsa- her. Það er miklu fallegra að dreifa ástinni bara yfir allt árið. Gefa blóm á miðvikudegi í maí eða bangsa á sunnudegi í september. Hvort bölvun Valentínusar hvíli enn á mér veit ég ekki, en ég ætla rétt að vona að það sé ein- hver fyrningardagur á henni. „Ég er ófær um að elska“-frasinn er allavega bara notaður í gríni í dag. „Ég er ófær um að elska“ Líf mitt í hnotskurn Sólrún Lilja Ragnarsdóttir 10 atriði fyrir karlmenn Hvað segir kynhvötin um heilsuna? Kynlíf er frábært. Alveg þangað til það er það ekki lengur. Þegar eitt- hvað fer úrskeiðis er auðvelt að skella skuldinni á erfiðleikatímabil eða slæmt samband. En gæti líkaminn verið að reyna að segja þér eitt- hvað? 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.