Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Side 60
60 Lífsstíll 17.–19. febrúar 2012 Helgarblað
L
angflestir Íslendingar
notað internetið dag-
lega og flestir þeirra
nota samskiptasíður á
borð við Facebook eða
Twitter. Það er þó ekki hægt að
gera ráð fyrir að nema hluti af
þeim skilji allar skammstafan-
irnar, slanguryrðin og broskall-
ana sem eru notaðir á þessum
vefsíðum sem og í textaskila-
boðum sem send eru með far-
símum. DV tók saman lista yfir
nokkur algengustu slanguryrð-
in og broskallana.
LOL líklega frægast
Flestir hafa án efa séð skamm-
stöfunina LOL sem meira að
segja einhverjir eru farnir að
nota í töluðu máli. Skamm-
stöfunin er líklega sú frægasta
en hún hefur verið notuð mjög
lengi í netsamskiptum. LOL
stendur fyrir „laughin out loud“,
sem á íslensku myndi útleggjast
sem hlegið upphátt. Önnur út-
gáfa er ROFL sem stendur fyrir
„rolling on the floor laughing“,
sem myndi á íslensku útleggj-
ast sem veltist um á gólfinu af
hlátri. Þriðja útgáfan sem er
einnig mjög algeng er LMAO
en hún stendur fyrir „laughing
my ass off“, eða hlæ mig mátt-
lausa(n) í lauslegri þýðingu.
Þessar skammstafanir urðu
til þar sem fólk vildi koma á
framfæri viðbrögðum sínum
við einhverju sem gerðist í sam-
skiptum sem áttu sér stað á
textaformi. Fyrir tíma mynd-
samtala í gegnum netið voru
netsamskipti takmörkuð við það
sem mátti lesa en eins og allir
vita er það oft það sem maður
sér í samskiptum við annað fólk
sem skiptir lykilmáli.
Hreinn tímasparnaður
Það á auðvitað við allar þess-
ar skammstafanir að þeim er
ætlað að spara tíma. Sumar
skammstafananna eru hins
vegar alls ekki til þess ætlaðar
að útskýra einhver viðbrögð við
samskiptum. Sumar þeirra eru
einfaldlega til þess að láta fólk
vita að maður ætli að bregða
sér frá tölvunni. Dæmi um það
er BRB en það stendur fyrir
„be right back“, sem á íslensku
myndi útleggjast kem aftur eftir
smá. Það má því eiginlega segja
að BRB sé dæmi um algenga
internetstyttingu sem er ein-
göngu notuð í þeim tilgangi að
spara tíma við að skrifa án þess
að vera notaðar í samhengi við
samskiptin að öðru leyti.
BTW er önnur stytting sem
er bara notuð í tímasparnaði
en ekki til að lýsa einhverju
sérstökum viðbrögðum fólks.
BTW stendur fyrir „by the
way“ sem á íslensku myndi út-
leggjast meðan ég man eða en
svona í leiðinni.
adalsteinn@dv.is
n Algengustu skammstafanir á netinu n Broskallar og slangur útskýrt
Hvað þýða þessar
skammstafanir?
Broskallar eru sérgrein
>:] :-) :) :o) :] :3 :c) :> =] 8)
=) :} :^)
Venjulegur broskall í nokkrum mis-
munandi útgáfum.
>:D :-D :D 8-D 8D x-D xD X-D
XD =-D =D =-3 =3 8-)
Broskall sem er notaður til að tákna
hlátur eða mikla gleði.
:-))
Broskall sem táknar mikla gleði eða
ánægju.
>:[ :-( :( :-c :c :-< :< :-[ :[ :{
>.> <.< >.<
Venjulegur fýlukall í nokkrum mis-
munandi útgáfum.
:-||
Fýlukall sem lýsir reiði eða von-
brigðum.
D:< D: D8 D; D= DX v.v D-’:
Notað til að lýsa vanþóknun eða
viðbrögðum við einhverju ógeðslegu.
>;] ;-) ;) *-) *) ;-] ;] ;D ;^)
Hefðbundinn blikkkall í nokkrum
mismunandi útgáfum.
>:P :-P :P X-P x-p xp XP :-p
:p =p :-Þ :Þ :-b :b
Broskall með tunguna úti. Notað til
að tákna gleði eða stríðni.
>:o >:O :-O :O °o° °O° :O o_O
o_0 o.O 8-0
Broskall sem notaður er til að sýna
undrun.
>:\ >:/ :-/ :-. :/ :\ =/ =\ :S
Tákn um efa, pirring, óákveðni eða
hik.
:| :-|
Lýsir vanþóknun á einhverju eða
viðbragðaleysi.
>:X :-X :X :-# :# :$
Þegar þú getur ekki sagt frá einhverju
eða skammast þín geturðu notað
þessi tákn.
O:-) 0:-3 0:3 O:-) O:) 0;^)
Englatákn eða tákn um sakleysi.
>:) >;) >:-)
Notað til að tákna illkvittni.
o/\o ^5 >_>^ ^<_<
Ef þú vilt gefa einhverjum fimmu
geturðu gert það með þessum
táknum.
|;-) |-O
Að vera svalur eða þreyttur. Hægt að
nota til að tákna geispa.
}:-) }:)
Tákn sem á að sýna djöfullegt
augnaráð.
:-& :&
Þegar þér vefst tunga um tönn
geturðu notað þetta tákn.
#-) %-) %)
Notað til að gefa til kynna að við-
komandi hafi verið að skemmta sér
eða sé drukkinn.
:-###.. :###..
Til að tákna veikindi.
:’-( :’( :’-) :’)
Tákn um grát. Ef sviginn er að opnast
er það grátur út af sorg en ef hann er
að lokast er það vegna gleði.
<:-|
Tákn um kjánaskap eða vitleysu.
(-_-)
Þegar gefa á til kynna mjög milt bros.
Byrjaði einfalt Broskallar og önnur tákn sem notuð eru í skriflegum sam-
skiptum byrjuðu með einföldum, klassískum broskalli. Síðan þá hafa mörg
tákn bæst við í flóruna.Mynd Sigtryggur Ari JóHAnnSSOn
Skammstafanir
LOL Stendur fyrir: Laughing
out loud
Á íslensku: Hlegið upphátt
rOFL Stendur fyrir: Rolling on
the floor laughing
Á íslensku: Veltist um á gólfinu
af hlátri
LMAO Stendur fyrir: Laughing
my ass off
Á íslensku: Hlæ mig mátt-
lausa(n)
BrB Stendur fyrir: Be right
back
Á íslensku: Kem aftur eftir smá
BtW Stendur fyrir: By the way
Á íslensku: Meðan ég man eða
svona í leiðinni
Það sem netnotendur verða líka varir við eru mismunandi
tegundir af brosköllum. Í raun er það sérgrein út af fyrir sig
að kunna skil á öllum þýðingum broskallanna. DV hefur
tekið saman lista yfir algenga broskalla sem fólk kann að
rekast á og útskýringar á þeim.
L
okið á salerninu er
staðsett ofan á klósett-
inu af ástæðu en er
ekki bara til skrauts,
eins og margir vilja
halda. Þetta er niðurstaða
Marks Wilcox, prófessors
við sjúkrahús í Leeds, sem
segir að það að sturta nið-
ur með klósettsetuna uppi
geti dreift sýklum sem valdi
hættulegum sjúkdómum.
Wilcox og félagar við háskól-
ann í Leeds gerðu rannsókn á
áhrifum þess að sturta niður
með klósettið opið á dreif-
ingu baktería, sérstaklega
inni á sjúkrahúsum. Þeir not-
uðu sótthreinsuð salerni og
hermdu eftir áhrifum maga-
pestar á klósettskálina með
því að nota hægðasýni smit-
uð af hættulegri veirusýk-
ingu. Í ljós kom að veirusýk-
ingin dreifði sér í kringum
klósettið í allt að 24 senti-
metra fjarlægð og var enn til
staðar í loftinu 90 mínútum
síðar. Veiran náði að dreifa
sér út í loftið þótt klósettlokið
væri niðri en þá var útbreiðsl-
an mun minni og settist ekki
á hluti í kring. Með því að
nota plastfilmu yfir klósett-
ið komust vísindamennirnir
einnig að því að yfir 50 drop-
ar af klósettvatni dreifast úr
klósettinu í hvert skipti sem
sturtað er niður. „Það kald-
hæðnislega í okkar rannsókn
er sú niðurstaða að mörg kló-
sett á sjúkrahúsum eru án
loks,“ sagði Wilcox í samtali
við Mail Online. Wilcox seg-
ir að þótt það að hafa lokið
niðri þegar sturtað sé niður
hafi ekki stórkostuleg áhrif á
útbreiðslu sjúkdóma bendi
niðurstöður þeirra á að þeir
sjúklingar sem séu smitaðir
af hættulegum veirusýking-
um ættu að nota sér salerni.
Settu setuna niður!
n Hættulegir sýklar slettast upp úr klósettinu
Salerni Samkvæmt rannsókn
setjast sýklar á umhverfið í
kringum klósettið ef sturtað er
niður án þess að loka setunni.
Ræktað inni
Fólk með græna fingur er
óhuggandi hafi það ekki
garðskika til að planta í eða
svalir til að koma sér upp
lítilli gróðurstöð. Það getur
þó fengið útrásina innan-
dyra með ýmsum leiðum.
Margir taka til þess bragðs að
rækta jurtir með einhverjum
hætti á veggjum íbúða sinna.
Það má notast við krukkur
og festa þær með einföldum
hætti á þil eða spýtur
Snúið og
skemmtilegt
Smá blómavír, skapandi
lýsing og kröftugt ímynd-
unarafl. Þetta eru tól ljós-
myndarans Terry Border en
hann hefur slegið í gegn með
myndum sínum þar sem
salthnetur, pilluglös, sykurp-
úðar eða hvað annað sem
honum kemur til hugar er
í aðalhlutverki. Terry hefur
sett myndir sínar á netið og
blogg sitt Bent Objects og á
þær horfa milljónir manna.
„Þessar myndir eiga ekki
endilega að vera fyndnar,“
segir Terry. „Ég býst við að
allir hafi sitt sjónarhorn á
lífið en mitt er líklega ansi
skrýtið og snúið.“
Börnin drekka
„babyccino“
„Babyccino“ er kaffidrykkur
fyrir börn, gerður
úr litlum
skammti
af koffín-
lausu kaffi
eða bara
flóaðri mjólk
með svo-
litlu af kanil
stráð á topp-
inn. Hann
er markaðssett- ur
fyrir börn og framreiddur í
pappamáli. Drykkur þessi er
gríðarlega vinsæll í Brooklyn
og foreldrar kaupa drykk-
inn í máli handa börnum
sínum um leið og þeir fá sinn
eigin drykk. Kaffihús eins og
Fort Greene og Park Slope
bjóða upp á þennan drykk
við miklar vinsældir en það
er ekki óumdeilt. Þeir sem
harðast gagnrýna þessa nýj-
ung kaffihúsanna nefna að
það sé verið að ala upp til-
vonandi koffínfíkla. „Hvað er
að því að gefa börnum venju-
lega mjólk eða ávaxtasafa?“