Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Page 18
Á
lögur á hesthús í íbúðabyggð
munu lækka verði frumvarp
innanríkisráðherra að lögum
líkt og meirihluti umhverf-
is- og samgöngunefndar Al-
þingis leggur til. Yfirfasteignanefnd
úrskurðaði í janúar í fyrra að hest-
hús í þéttbýli skyldi flokka í hæsta
álagningarflokk enda gilti heimild
laga um tekjustofn sveitarfélaga til
lægri álagningar hesthúsa aðeins
til þeirra bygginga sem stæðu á bú-
jörð. Með frumvarpinu verður lög-
um breytt svo lækka megi álögur á
hestamenn.
Lægri tekjur sveitarfélaga
Lagabreytingin mun væntanlega geta
af sér tekjulækkun fyrir þau sveitar-
félög sem lagt hafa fasteignaskatt á
hesthús utan bújarða samkvæmt efsta
álagningarliði. Í greinargerð frum-
varpsins er sú tekjulækkun metin á
bilinu tíu til tuttugu milljónir króna.
Nefndarmenn viðruðu þau sjón-
armið hvort verið væri að mismuna
skattaðilum með því að lækka álagn-
ingarhlutfall á hesthús en ekki önnur
hús sem notuð eru undir tómstunda-
starfsemi á grundvelli þess hvaða
tómstundir þeir ákveða að stunda. Er
þar til að mynda átt við golfskála eða
mannvirki til menningarstarfsemi
sem falla í hæsta gjaldflokk.
Gripa- en ekki íþróttahús
„Sérstaða hestaíþrótta miðað við
aðrar íþróttir er nokkur, þar sem
hún óhjákvæmilega krefst þess að
þeir sem hana stunda eigi eða hafi
aðgang að húsnæði undir hesta
sína. Hestar eru lifandi dýr sem
þurfa aðhlynningu, fæði og vernd
gegn veðri og vindum,“ sagði Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir, formað-
ur umhverfis- og samgöngunefnd-
ar, í þinginu. „Meirihlutinn bendir
á að hesthús er gripahús en ekki
íþróttahús. Færa má rök fyrir því
að reiðhöll sé hús þar sem íþrótt er
stunduð en hús þar sem húsdýr eru
geymd falla eðli málsins samkvæmt
ekki í þann flokk,“ sagði Guðfríður
Lilja um meirihlutaálit nefndar-
innar.
Hesthús undir atvinnu
Róbert Marshall, fulltrúi Samfylk-
ingarinnar í umhverfis- og sam-
göngunefnd, fagnaði breyting-
unni. „Hins vegar er í þeim innleitt
misræmi sem stenst ekki skoðun.
Með þeim eru hestaleigur, tamn-
ingastöðvar og atvinnustarfsemi
í hesthúsum sett í lægri flokk en
til dæmis hjólaleigur, golfklúbbar,
klifurhús, ferðafélög og alls kyns
íþrótta- og tómstundastarf. Án rök-
stuðnings og ástæðu,“ sagði Ró-
bert sem hyggst leggja fram breyt-
ingatillögu þess eðlis að álögur á
hesthús undir atvinnustarfsemi
falli undir sama flokk og önnur at-
vinnustarfsemi. „Hestamennska er
göfug íþrótt og holl þeim sem hana
stunda en atvinnustarfsemi henni
tengd er ekki göfugri en önnur at-
vinnustarfsemi og um hana eiga
ekki að gilda aðrar reglur og íviln-
un.“
Mörk tómstundar og atvinnu
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokks og vara-
fulltrúi í umhverfis- og samgöngu-
nefnd, spurði hvar draga ætti mörkin
milli atvinnustarfsemi og tómstunda.
Róbert Marshall lagði til að mörkin
yrðu miðuð við rekstrarleyfi starf-
semi húsanna og að þannig yrði fast-
eignaskattur atvinnuhúsnæðis inn-
heimtur af þeim hesthúsum þar sem
rekstrarleyfisskyld starfsemi færi
fram.
Almenn sátt virtist um tillöguna í
þinginu en þeir þingmenn sem tóku
til máls fögnuðu ýmist frumvarpinu
eða þökkuðu fyrir þægilegt samstarf
við úrvinnslu þess á Alþingi. Frum-
varpið á þó enn eftir að fara til þriðju
umræðu.
FÁ SKATTALÆKKUN
18 Fréttir 1.–3. júní 2012 Helgarblað
Gjaldtökuflokkar
fasteignagjalda
A flokkur
Allt að 0,5% af fasteignamati.
Flokkur eigna:
n Íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðar-
réttindum, erfðafestulönd í dreifbýli
og jarðeignir, útihús og mannvirki á
bújörðum sem tengd eru landbúnaði,
öll hlunnindi og sumarbústaðir ásamt
lóðarréttindum.
B flokkur
1,32% af fasteignamati ásamt lóðar-
réttindum.
Flokkur eigna:
n Sjúkrastofnanir samkvæmt
lögum um heilbrigðisþjónustu, skólar,
heimavistir, leikskólar, íþróttahús og
bókasöfn.
C flokkur
Allt að 1,32% af fasteignamati, ásamt
lóðarréttindum.
Flokkur eigna:
n Aðrar fasteignir, svo sem iðnaðar-,
skrifstofu- og verslunarhúsnæði, fisk-
eldismannvirki, veiðihús og mannvirki
sem nýtt eru fyrir ferðaþjónustu.
n Álögur á hesthús í íbúðabyggð lækka n Samvinnufúsir þingmenn fögnuðu frumvarpinu
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Þyngri pyngja Verði frumvarpið að lögum má vænta þess að eitthvað aukist innihaldið í
veskjum hestamanna.