Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Qupperneq 26
N ýnasismi og aðrar öfgastefn- ur eru í uppsveiflu í Evrópu í kjölfar fjármálakreppunnar sem skall á árið 2008. And- úð og hatur á innflytjendum, sígaunum og öðrum minnihlutahóp- um er fyrirferðarmikið. Flokkar sem aðhyllast þetta njóta vaxandi stuðn- ings og í Grikklandi komst flokkur ný- nasista, Gyllt dögun, inn á gríska þing- ið í kosningum í maí, en kosið verður aftur þar í landi þann 17. júní, því ekki tókst að mynda starfhæfa stjórn í maí. Hræðsla er markmiðið ,,Þriðja ríki Hitlers, er ein besta upp- finning allra tíma.“ Eitthvað á þessa leið kemst einn helsti leiðtogi ung- verskra nýnasista að orði í nýrri franskri heimildamynd, sem ber heitið ,,Öfgamenn Evrópu“. Í henni er meðal annars lýst hvernig nýnasistar og ýmsar öfga- hreyfingar fá nú aukinn byr í segl- in í kjölfar fjármálakreppunnar árið 2008. Fylgst er með því hvernig ný- nasistar í Ungverjalandi þramma í herklæðum í gegnum þorp þar sem sígaunar búa, ógna þeim og ögra á allan mögulegan hátt. Markmiðið er að skapa hræðslu og ótta. Nýnasismi, rétt eins og upprunalegur nasismi byggir á hugmyndinni um yfirburði eins kynstofns á kostnað annarra. Aðrir kynstofnar eru óæskilegir. Sótt til Hitlers og Mussolinis Grundvöllur nasismans, sem átti rætur í fasismanum, lá í upplausn- arástandi sem skapaðist í efnahags- málum Þjóðverja eftir ósigur þeirra í fyrri heimsstyrjöldinni. Óðaverð- bólga og atvinnuleysi ógnaði samfé- laginu og Adolf Hitler nýtti sér þetta. Hann komst síðan til valda í kjölfar lýðræðislegra kosninga árið 1932 og var útnefndur kanslari árið eftir. Eitt fyrsta verk hans var að afnema lýð- ræði í Þýskalandi. Hitler hóf síðan árásar- og útþenslustefnu sína, réðst inn í Pólland 1939 og hóf þar með seinni heimsstyrjöldina. Henni lauk svo með sigri Bandamanna í Evr- ópu í maí árið 1945 og kjarnorku- árásum Bandaríkjamanna á banda- menn Hitlers, Japani, í ágúst sama ár. Hitler framdi sjálfsmorð í byrgi sínu í Berlín þann 30. apríl, ásamt eigin- konu sinni, Evu Braun. En nasisminn var þar með ekki dauður og aftur fór að kræla á „nýj- um“ nasistum um og eftir 1970–80. Fylgismenn hans hafa sama hug- myndafræðilega grunn og Hitler, það er kynþáttahyggju, útlendingahatur og andúð á samkynhneigðum, gyð- ingahatur og afneitun á helförinni, þar sem 6 milljónum gyðinga var út- rýmt. Þá er andúð gagnvart innflytj- endum og múslimum mjög áber- andi. Blaðamenn reknir af fundi Í nýafstöðnum forsetakosningum í Frakklandi fékk Marine le Pen, dótt- ir hægri öfgamannsins Jean Marie le Pen, um 20 prósenta fylgi. Með- al baráttumála hennar var það sem hún kallaði „efnahagsleg föður- landsást“. Faðir hennar vakti geysi- lega athygli árið 1987 þegar hann sagði: „Ég er ekki að segja að gas- klefarnir hafi ekki verið til, ég sá þá aldrei og hef ekkert rannsakað þetta sérstaklega. En mér finnst þetta lítil- fjörlegur hluti af seinni heimsstyrj- öldinni.“ Þingkosningar sem haldnar voru í Grikklandi í maí, skiluðu einnig nas- istaflokknum Gylltri dögun um 20 þingsætum og tæplega 7 prósenta fylgi. Á fréttamannafundi sem hald- inn var í tengslum við kosningarnar var blaðamönnum skipað að rísa úr sætum og virða leiðtoga flokksins, Nikolaos Mihaloiakos. Þeir blaða- menn sem það ekki gerðu voru rekn- ir af fundinum. Í myndbandi af fund- inum sem sjá má á Youtube hellir leiðtoginn úr skálum reiði sinnar yfir fjölmiðla, aðra stjórnmálamenn og ræðst að innflytjendum í leiðinni. Boðað hefur verið til kosningar í Grikklandi þann 17. júní, þar sem ekki tókst að mynda starfhæfa stjórn í kjölfar kosninganna í maí. Hvert fylgi grískra nýnasista verður þá kemur því í ljós um miðjan mánuðinn. Nýnasistar á sænska þinginu Nýnasistar eru einnig fyrirferðar- miklir í nágrannaríki okkar, Sví- þjóð, og í kjölfar þingkosninga árið 2010 komust „Svíþjóðardemókrat- arnir“ inn á sænska þingið, Riksda- gen. Fengu þeir 20 þingmenn, en alls eru 349 þingmenn á sænska þinginu. Fjölmiðlar töluðu um þá sem „sigur- vegara kosninganna“. Þeim hefur þó ekki tekist að hafa teljandi áhrif á sænsk stjórnmál og eru þeir ekki vin- sælir til samvinnu hjá öðrum flokk- um. Engu að síður var þetta áfall fyrir hina hefðbundnu flokka og að margra mati einnig fyrir sænskt lýð- ræði. Fyrir um áratug var þessum flokki lýst sem ógn við lýðræðið, en á núna 20 fulltrúa á þingi. Þrífst vel í Rússlandi Það sem kemur kannski mest á óvart við þróun og útbreiðslu nýnasisma er hversu mikilli fótfestu hann hefur náð í Rússlandi. Fá lönd urðu eins illa fyrir barðinu á Hitler í seinni heims- styrjöld og Rússland, sem missti um 20 milljónir manna í hildarleiknum. Samkvæmt skýrslu frá samtökum sem kalla sig SOVA og rannsaka þessi mál, voru um 80 manns myrtir árið 2009 af öfga hægrimönnum og lang- flestir þeirra sem voru myrtir, komu frá Mið-Asíulýðveldum Sovétríkj- anna sálugu. Árið 2007 birtist einnig grimmi- legt myndband á Youtube, þar sem rússneskir nýnasistar afhöfðuðu múslimskan mann. Einnig er vitað um myndbönd með svipuðu inni- haldi frá stríðsátökunum í Tsjetsj- eníu, þar sem Rússar börðust við múslimska andspyrnumenn á árun- um 1994–1996 og svo aftur frá 1999 og fram eftir fyrsta áratug þessarar aldar. Einblínt á Mið- og Austur- Evrópu Í viðtali á bandarísku útvarpsstöð- inni Natinal Public Radio (NPR), sagði Matt Goodwin, sem rannsak- ar málefni nýnasisma hjá Catham House-hugsmiðjunni í London, að rekja megi uppsveifluna til þróun- ar öryggismála eftir árásirnar á Tví- buraturnana þann 11. september árið 2001 og vaxandi straums inn- flytjenda til Evrópu. „Við verðum sér- staklega að líta til landanna í Mið- og Austur-Evrópu, þar sem þetta virð- ist fara vaxandi. Þetta eru lönd sem búa við nýfengið pólitískt frelsi og hafa ekki mjög langa lýðræðishefð, samkvæmt vestrænni fyrirmynd, að baki.“ 26 Erlent 1.–3. júní 2012 Helgarblað Pólland og Úkraína Varar við EM 2012 vegna nýnasisma Sol Campbell, fyrrverandi fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, varar Englendinga við að fara til Úkraínu og Póllands vegna framferðis nýnasista: „Verið þið heima og horfið á leikina í sjónvarpinu,“ segir Campbell og bætir við að það sé ekki áhættunnar virði að fara. Sérstaklega sé maður til dæmis af asísku bergi brotinn. „Þið gætuð einfaldlega endað í líkkistu,“ segir Campbell. Þetta kom fram í BBC-þættinum Panorama, en starfsmenn þáttarins voru í mánuð í þessum löndum og fylgdust með knattspyrnuleikjum og hegðun aðdáenda. Nasistakveðjur, niðurlægjandi hróp og svívirðingar gagnvart þeldökkum leikmönnum var meðal annars það sem upptökulið Panorama varð vitni að. Grískur nýnasisti Gyllt dögun, flokkur grískra nýnasista, fékk 7 prósenta fylgi í þingkosningunum í maí. Á blaðamannafundi voru blaðamenn, sem ekki risu upp fyrir Nikolaos Mihaloiakos, formanni flokksins, reknir af fundinum. n Þjóðernishyggja vex í Grikklandi, Frakklandi og fleiri Evrópulöndum„Ég er ekki að segja að gasklefarnir hafi ekki verið til, ég sá þá aldrei. Ungverjaland: Fasistaflokkur sá þriðji stærsti Nýnasismi og fasismi hafa verið í mikilli uppsveiflu í Ungverjalandi undanfarin misseri. Nú er svo komið að þriðji stærsti flokkur landsins er öfga hægriflokkur sem ber heitið Jobbik. Í kosningum árið 2010 tvöfaldaði flokkurinn fylgi sitt undir slagorðinu „Ungverjaland er fyrir Ungverja“, og er nú með 46 þingmenn á ungverska þinginu, af alls 386. Þá hefur flokkurinn þrjá þingmenn á Evrópu- þinginu. Í kosningamyndbandi flokksins er greinilega vegið að útlendingum og þeir sýndir sem ógn við ungverska ríkisborgara. Endar myndbandið á því að lítil padda er drepin, sem greinilega á að vera tákn fyrir innflytjendur og aðra útlendinga. Fjöldagöngur fylgjenda Jobbik-flokksins bera einnig greinilega merki aðdáunar þeirra á fasisma, með fánum og armböndum. Gunnar Hólmsteinn Ársælsson blaðamaður skrifar Nöfn í anda nasisma Dómur í New Jersey í Bandaríkj- unum hefur úrskurðað að foreldr- ar sem skírðu fjögur börn í anda nasisma fái ekki forræði yfir þeim eftir að félagsmálayfirvöld fjar- lægðu þau af heimilinu. Börnin Adolf Hitler Campbell, sex ára, yngri systir hans, Joycelynn Aryan Nation, fimm ára, og Honszlynn Hinler, fjögurra ára voru sett í fóstur í janúar 2009. Yfirvöld tóku einnig annað barn þeirra Hons Campbell, frá foreldrunum að- eins tveimur tímum eftir að hann fæddist í nóvember síðastliðnum. Hinar sérstöku aðstæður barnanna komu í ljós eftir að bak- ari neitaði að skreyta afmælisköku með áletrununni „Til hamingju með afmælið Adolf Hitler.“ 400 milljónir eftir þríhyrning Fjölskyldu manns sem lést þegar hann var í svo kölluðum þríhyrn- ingi, það er ástarleik með tveimur öðrum manneskjum, hafa verið dæmdar þrjár milljónir dala eða rétt tæpar 400 milljónir íslenskra króna í bætur. Ástæðan er sú að læknirinn hans ku ekki hafa varað manninn við líkamlegri áreynslu. Maðurinn leitaði dag- inn áður en hann lést til læknis- ins vegna verkja í brjósti. Hann fékk úthlutað tíma í áreynslupróf tveimur dögum síðar en dag- inn eftir læknisheimsóknina naut hann ásta með tveimur konum. Í miðjum ástarleiknum fékk mað- urinn hjartaslag og lést af völdum þess daginn eftir. Vildi fjölskylda mannsins meina að læknirinn hefði átt að útskýra fyrir mannin- um áhættuna sem hann tæki með því að reyna á sig líkamlega. Morðingi á flótta Yfirvöld í Kanada óttast að maður sem grunaður er um hrottalegt morð og setti upptöku af því á int- ernetið hafi flúið land. Maðurinn, sem er sagður vera klámmynda- leikari, á að hafa myrt mann með því að afhausa hann. Athæfið tók hann upp á myndband. Hann á einnig að hafa sent líkamshluta, hluta af fæti, á skrifstofu forsætis- ráðherra Kanada en lögregla náði að stöðva sendingu sem innihélt hendi og stíluð var á skrifstofu flokk frjálslyndra í sama landi. Óttast er að maðurinn hafi flúið til Bandaríkjanna en einnig á að hafa sést til hans í Frakklandi. Leit að manninum stendur yfir. ÖFGAR RÍSA Í EVRÓPU
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.