Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2012, Blaðsíða 36
Makar í kosningabaráttu
36 Úttekt 1.–3. júní 2012 Helgarblað
M
akar forsetaframbjóð-
enda ráða ef til vill ekki
vali kjósenda á kjördag
en þrátt fyrir það hafa
þeir margir verið í lykil-
hlutverki í kosningaslagnum í ár.
Svavar Halldórsson svaraði fyr-
ir eiginkonu sína Þóru þegar hún
var bendluð við þátttöku í stjórn-
málastarfi á vegum Samfylking-
arinnar og Ólafur Ragnar Gríms-
son sitjandi forseti sá ástæðu til
að gagnrýna hann á opinberum
vettvangi fyrir fréttaflutning sinn
á RÚV þar sem hann taldi hann
hafa nýtt sér aðstöðu sína Þóru í
hag. Dorrit fór ríðandi á hesti inn
í settið á amerískum spjallþætti og
setti rífandi gang í kosningabaráttu
eiginmanns síns og birtist seinna
í viðtali í Fréttatímanum þar sem
hún rakti eigin stefnumál ítarlega.
Þá er hún með eigin Facebook-síðu
vegna kosningabaráttunnar og
heimasíðu baráttu Ólafs er haldið
úti í beggja nafni á slóðinni: olaf-
urogdorrit.is
Minna fer fyrir þessum
áherslum í kosningabaráttu hinna
frambjóðendanna. Ástþór býðst
þó til þess að koma í kaffi til fólks
með eiginkonu sinni Natalie. Ari og
María, Andrea og Hrafn, Hannes
og hin norska Lotta virðast fremur
halda sér til hlés þó þau styðji aug-
sýnilega við maka sína.
Ólafur Ragnar og Þóra tefla
fram mökum sínum
„Ef við skoðum þetta í ljósi sögunnar
þá var Vigdís makalaus en samt kos-
in,“ segir Einar Mar um áhrif maka í
kosningabaráttu. „Í kosningabarátt-
unni árið 1980 eru minnisstæðar um-
ræður í sjónvarpssal þar sem maka-
leysið kom upp. Karlar í framboði
gátu ekki séð Bessastaði fyrir sér án
húsfreyja. Kjósendur létu ekki stoppa
sig þá og kusu Vigdísi.“
Einar Mar telur greinilegt að þeir
tveir frambjóðendur sem mælast
með mest fylgi, Ólafur Ragnar og Þóra
stilli sínum mökum þétt sér til hliðar.
„Ólafur hefur gert þetta áður í kosn-
ingunum 1996 þar sem Guðrún Katr-
ín var mjög áberandi og margir tala
um að hún hafi gert kosningabaráttu
hans mjög gott. Einhverjir hafa geng-
ið svo langt að segja að hún hafi unnið
kosningarnar fyrir hann. En það eru
engar mælingar til um þetta. Í þeim
kosningum líka voru frambjóðendur
flestir með sína maka sína sér við hlið
og voru áberandi.“
Dorrit vinsæl hjá þjóðinni
Einar Mar telur miður að lítið hafi
borið á öðrum frambjóðendum.
Hugsanlega telji vinsældir maka hvað
það varðar.
„Því miður hefur vægi annarra
frambjóðenda í baráttunni verið lít-
ið hingað til. Það má auðvitað alltaf
velta því fyrir sér hvaða áhrif vinsæld-
ir maka hafa í raun og veru.
Við vitum að Dorrit er afskaplega
vinsæl hjá þjóðinni. Svavar er þekktur
líka og ég tel að honum sé teflt mark-
visst fram. Það er verið að sýna fram
á það að barnið á pabba sem getur
hugsað um það. Enda þarf að svara
þessum röddum sem hafa áhyggjur af
því að Þóra taki sér barneignarleyfi.“
Því minni upplýsingar – því
meira vægi maka
„Það er afskaplega erfitt að meta
hvaða áhrif hvaða makinn hefur,“
segir Einar Mar. „Við höfum allt-
af dæmið um Vigdísi sem reynd-
ist sterkur leiðtogi. Hún braust gegn
þessum staðalmyndum með áhrifa-
ríkum mætti og náði til fólksins. Ef
Herdís nær til fólksins þá held ég að
makaleysið ætti ekki að vera henni
til trafala frekar en Vigdísi á sínum
tíma. Ég held að það sé ekki ástæð-
an fyrir því að hennar fylgi hefur ekki
tekist á flug.
En maki sem kemur vel fyrir og er
vinsæll eins og Dorrit getur hjálpað
mikið til. Sér í lagi ef fólk er að kjósa
ímynd. Því minni upplýsingar sem
fólk hefur, því fyrr sem það er í ferl-
inu við að móta hugmyndir sínar, því
meiri möguleikar eru fyrir makana
að hafa einhvers konar áhrif,“ segir
Einar Mar.
Spurður hvort áhrif makans geti
náð svo langt að það hafi áhrif á mat
fólks á persónuleika forsetafram-
bjóðenda segist hann telja svo.
„Makinn getur haft áhrif á mat
fólks á persónuleika forsetafram-
bjóðendanna, sérstaklega ef fólk veit
ekki mikið um frambjóðendurna.“
Hver eru þau? Makar forsetaframbjóðendanna sem
virðast í stóru hlutverki í slagnum um forsetaemb-
ættið. DV spurði maka forsetaefna spurninga og fékk
Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðing til að rýna í
vægi maka í kosningabaráttunni.
„Makinn getur haft
áhrif á mat fólks
á persónuleika forseta-
frambjóðendanna.
Fyrir utan Bessastaði Hrafn,
Natalia, Svavar, Lotta og María.
Dorrit sá sér ekki fært að mæta
til myndatöku. SamSett mynD.
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is