Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Page 42
42 | Fókus 2.–4. september 2011 Helgarblað
Hvað ertu að gera?
mælir með...
KVIKMYND
Andlit norðursins
„Myndin er með stórkostlegt auga fyrir
hlutunum en litla tungu og minni mænu.“ –
Erpur Eyvindarson
KVIKMYND
The Greatest
Movie Ever Sold
„Myndin er skemmtileg fyrir
þá sem kunna að meta eitt-
hvað dýpra en Hollywood-sumarmyndir.“
– Aðalsteinn Kjartansson
BÓK
Skurð læknirinn
„Skurðlæknirinn er hröð
og spennandi lesning.“ –
Kristjana Guðbrandsdóttir
Þórður Helgi Þórðarson (Doddi litli)
útvarpsmaður
Hvaða bók ert þú að lesa?
„Ég er að lesa ævisögu James Brown og hún
er algjör snilld.“
Hvaða tónlist er í uppáhaldi?
„Ég hef aldrei hlustað jafn mikið á tónlist og
þessa dagana en það er nánast sama hvað
ég hlusta á það heldur mér engin plata.
Byrja margar voða sexí en svo er ég búinn
að fá nóg áður en þær klárast. Sú plata sem
hefur haldið mér best í ár er gömul plata frá
Terry Hall og heitir Home. Af því nýja þá er
það Build a Rocket Boys með Elbow.
Hvert ferð þú út að borða ef þú mátt
ráða?
„Ég er er algjör „sökker“ fyrir Serrano því
ég get sagt við fitupúkann á öxlinni minni:
„Þetta er svo hollt og ekkert fitandi.“
Hvaða bíómynd sást þú síðast og
hvernig líkaði þér hún?
„Ég man það ekki, hef ekki séð merkilega
mynd lengi. Aftur á móti er ég sjúkur í nýju
Breaking Bad-seríuna. Það eru eðalþættir.“
Hvað ætlar þú að gera um helgina?
„Ég ætla að syngja í samkvæmi sem knatt-
spyrnumaðurinn Guðmundur Steinarsson
mun halda á Ljósanótt, margir halda að ég
verði á stóra sviðinu en svo er ekki. Það er
rómantíska sviðið hjá Gumma.“
„Sökker“
fyrir Serrano
Ú
tvarpsleikhús RÚV hefur hlot-
ið tilnefningu til evrópsku
ljósvakaverðlaunanna, Prix
Europa, í flokki útvarpsleik-
rita, fyrir Djúpið eftir Jón Atla Jónas-
son. Hátíðin sem nú er haldin í 25.
skipti í Berlín fer fram dagana 22.–
29. nóvember. Keppt er um besta
efnið bæði í útvarpi og sjónvarpi en
alls bárust í keppnina 159 verk frá 35
löndum.
„Þetta er stór verðlaunahátíð og
það eru flestallar Evrópuþjóðirnar
sem senda inn efni,“ segir útvarpsleik-
hússtjórinn, Viðar Eggertsson. „Stöðv-
arnar senda það sem þær álíta sjálf-
ar vera best og svo er valið úr því. Við
ákváðum að senda Djúpið,“ segir Við-
ar en Djúpið hlaut Grímuna á þessu
ári í flokki útvarpsleikrita og hlaut
Norrænu útvarpsleikshúsverðlaunin.
Þetta er þriðja árið í röð sem Ís-
land á verk á hátíðinni. „Við vorum
þarna í fyrra og árið á undan þann-
ig að við höfum verið að gera góða
hluti. Það er virkilega gaman að
keppa þarna við risa eins og BBC,“
segir Viðar sem er eini fasti starfs-
maður útvarpsleikhússins.
„Það er svolítið gaman að vera
bara svona litla sæta útvarpsleik-
húsið og vera að mæta þarna. Norð-
urlöndin eru til dæmis mjög sterk
þarna og hafa verið að raða sér í
efstu sætin. Það er alltaf gaman að
hitta kollegana frá Norðurlöndunum
því það kannski mæta tíu starfsmenn
frá Danmörku en ég alltaf einn frá Ís-
landi. En það er nú þannig að það er
spurt um gæði en ekki magn.“
Viðar þorir alveg að vera vongóð-
ur um sigur. „Við eigum jafnmikla
möguleika og hver annar en auðvi-
tað stillir maður væntingunum í hóf,“
segir Viðar Eggertsson. tomas@dv.is
Gaman að keppa við risana
n Djúpið tilnefnt til stórra verðlauna
Eini starfsmaðurinn Viðar er eini
fastráðni starfsmaður útvarpsleikhússins
sem er nú tilnefnt þriðja árið í röð.
mælir ekki með...
BíÓMYND
Horrible Bosses
„Myndin er ágætis afþreying
en fjarri því að vera þess
virði að borga fullt verð á
hana í bíó.“ – Aðalsteinn Kjartansson
BíÓMYND
Rise of the Planet
of the Apes
„Handritið virkar eins og
það hafi legið og safnað
ryki í mörg ár.“ – Jón Ingi
Stefánsson
Á
annan veg er fyrsta kvik-
mynd Hafsteins Gunnars Sig-
urðssonar leikstjóra. Mynd-
in er lágstemmd kómedía
og í henni segir frá tveimur
starfsmönnum Vegagerðarinnar sem
stunda tilbreytingarsnauða vinnu á
afskekktum fjallvegum á 9. áratugn-
um. Með aðalhlutverk fara Hilmar
Guðjónsson, Sveinn Ólafur Gunn-
arsson og Þorsteinn Bachmann.
Kvikmyndin var frumsýnd á
fimmtudagskvöld og hefur verið til-
nefnd til Kutxa-leikstjórnarverð-
launanna á kvikmyndahátíðinni í
San Sebastian á Spáni. Fimmtán
myndir keppa um verðlaunin sem
nema tæpum 15 milljónum króna.
Þetta eru góð tíðindi fyrir leik-
stjóra sem kynnir frumraun sína.
Hann kemur nýr og ferskur á vett-
vang íslensks kvikmyndaiðnaðar
með hlýlegar áherslur.
Áherslur Hafsteins eru á þá sögu
sem er komið til skila. „Ég hef mest-
an áhuga á því að segja góða sögu.
Sagan er það sem gæðir góða kvik-
mynd lífi fyrir mér.“
Hafsteinn lærði bókmenntafræði
í Háskóla Íslands áður en hann
fluttist til New York þar sem hann
nam kvikmyndafræði í hinum virta
Columbia-háskóla. „Áherslurnar í
náminu voru á fólk og sögur. Mikið
var lagt í gæði frásagnar, handrits-
gerð og hugmyndavinnu.“
Þegar Hafsteinn sneri aftur úr
námi fyrir þremur árum ætlaði hann
sér að gera kvikmynd eftir skáldsögu
Braga Ólafssonar, Hvíldardagar.
Hrunið kom í veg fyrir framleiðslu
þeirrar myndar og Hafsteinn leitaði
ódýrari leiða til að koma sinni fyrstu
mynd á hvíta tjaldið. Myndin er að
miklu leyti unnin í sjálfboðavinnu
og Sveinn Ólafur Gunnarsson leik-
ari tók þátt í handritsvinnunni. Hún
hefur líka verið unnin á skömmum
tíma. „Ég ákvað að gera ódýra mynd
og vinna hana hratt. Ferlið hefur
verið stutt. Það var í raun ekki nema
eitt og hálft ár frá því að ég fékk hug-
myndina þangað til að hún var tekin
til sýninga.“
Hafsteinn ákvað að setja sér skil-
yrði við vinnslu myndarinnar, með-
al annars til að lágmarka kostnað.
„Ég ákvað að takmarka mig við tvær
persónur. Þetta voru skilyrði sem ég
setti mér. Einhvern veginn fór þetta
að vinda upp á sig. Ég fór að velta
því fyrir mér hvað væri hægt að gera
við þessar tvær persónur. Vegagerð
og vegir eru myndrænt fyrirbæri.
Myndin gerist sumsé nítján hundr-
uð áttatíu og eitthvað og ég fór að
stúdera vinnuaðferðir og annað frá
þeim tíma sem voru frumstæðar.
Mér fannst það heillandi og sá það
myndrænt fyrir mér. Á þessum tíma
voru línur handmálaðar á vegina og
stikurnar reknar niður í vegkantinn
með sleggju. Sögusviðið er mjög
einangrað. Þeir hafa ekkert nema
hvor annan og sambandið við um-
heiminn er takmarkað.“
Hljóðheimur úr kassettutæki
Svipur níunda áratugarins er
ríkjandi og gefur myndinni svolítið
skemmtilegan tón í leikmynd, bún-
ingum og tónlist.
Hafsteinn segir enga eiginlega
kvikmyndatónlist vera í myndinni.
„Við vinnum með hljóðin í nátt-
úrunni en svo eru þeir með kass-
ettutæki sem þeir kveikja stundum
á og spila músík við vinnuna. Það-
an kemur tónlistin. Og þá rekast á
eitístónlist og íslensk náttúra sem
eru skemmtilegar andstæður. Þetta
er að megninu til íslensk tónlist
nema eitt lag með Kim Larsen.“
Næsta mynd um feðga á
Flateyri
Tvær kvikmyndir eru á teikniborðinu
hjá Hafsteini og fara í vinnslu á næst-
unni. Önnur þeirra er Hvíldardagar
en sú næsta fer í tökur eftir áramót og
verður gamanmynd með alvarlegu
ívafi. „Hún fjallar um feðga og sam-
band þeirra og gerist á Flateyri,“ segir
Hafsteinn. „Handritið er eftir Huldar
Breiðfjörð en við höfum unnið sam-
an áður þegar hann skrifaði fyrir mig
handritið að stuttmyndinni Skrölt-
ormum.“
Á annan veg hefur nú verið í kvik-
myndahúsum í nokkra daga og Haf-
steinn er ánægður með viðtökurn-
ar. Honum finnst þó að Íslendingar
megi vera duglegri að fara í bíó.
„Það sem ratar í kvikmyndahús-
in eru þessar risa Hollywood-met-
sölumyndir. Allt annað þykir vera á
jaðrinum sem er auðvitað fráleitt.
Íslendingar flykkjast ekki í bíó og
myndir sem flokkast ekki með þeim
risavöxnu eru frekar sýndar á kvik-
myndahátíðum. Þetta mætti breyt-
ast. Ég vil sjá meira úrval og meiri
breidd í kvikmyndahúsum.“
Hans eigin kvikmyndasmekk-
ur er breiður að eigin sögn. „Ég hef
áhuga á myndum sem fjalla um fólk
og segja góða sögu. Ég hef lítinn
áhuga á sci-fi-myndum. Þær höfða
ekki til mín.“
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson frumsýndi á
fimmtudagskvöld sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd.
Myndina Á annan veg, lágstemmda gamanmynd
um tvo vegavinnumenn. Hafsteinn kom heim í miðju
hruni en lætur það ekki stöðva sig.
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Viðtal
Lét hrunið ekki
stöðva sig „
Sagan er
það sem
glæðir góða kvik-
mynd lífi fyrir mér.
Helstu áhrifavaldar
Raymond Carver
Ingmar Bergman
Kraftwerk
Robert Altman
Werner Herzog
Kynnir frumraun sína á hvíta
tjaldinu Á annan veg er fyrsta kvikmynd
Hafsteins Gunnars Sigurðssonar leikstjóra.
Hann hefur verið tilnefndur til Kutxa-leik-
stjórnarverðlaunanna á kvikmyndahá-
tíðinni í San Sebastian á Spáni.