Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2011, Síða 43
Fókus | 43Helgarblað 2.–4. september 2011
Hvað er að gerast?
n Hausttónleikar Harðar Torfa
Söngvarinn góðkunni, Hörður Torfason,
heldur í kvöld sína árlegu hausttónleika. Að
þessu sinni fara tónleikarnir fram í Borgar-
leikhúsinu en þetta mun vera í þrítugasta
og fimmta sinn sem þeir eru haldnir. Hörður
notar tónlistina til að koma á framfæri
hugðarefnum sínum, hvort sem þau snúa
að skemmtun eða ýmsum baráttumálum.
Hann segir sögur milli laganna og skýrir
frá tilurð þeirra eða hendir fram skemmti-
sögum. 23. plata Harðar er einnig nýkomin
út en það er platan Vatnssaga. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20 og aðgangseyrir er 3.500
krónur.
n Tískusýning og tónleikar
Rvk Underground í samstarfi við fata-
hönnuðinn Munda efnir til dansveislu á
skemmtistaðnum Square á föstudagskvöld.
Kvöldið hefst á tískusýningu eftir Munda og
svo dansveislu eftir hana. Þar mun plötu-
snúðurinn Aeroplane halda uppi fjörinu
ásamt góðum hópi annarra plötusnúða. Þar
á meðal eru Oculus, Óli ofur, Gísli Galdur og
Benni B ruff, Dj Addi Intro og 7. Víddin. Það er
20 ára aldurstakmark. Fjörið hefst klukkan
23 og það kostar 1.500 krónur inn.
n Sage Francis á Sódómu
Rapparinn Sage Francis treður upp á
skemmtistaðnum Sódómu í kvöld. Sage er
töluvert mikils metinn innan rappheimsins
en það eru níu ár síðan hann spilaði síðast á
Íslandi og ættu því íslenskir aðdáendur hans
að gleðjast við komu hans nú. Sage er einnig
eigandi plötufyrirtækisins Strange Famous.
Hann varð frægur þegar hann vann Super
Bowl-battlið í Boston 1999 og Scribble
Jam árið 2000. Fyrsta plata hans í fullri
lengd kom út árið 2002 og fékk frábæra
dóma. Húsið verður opnað klukkan 22 og
aðgangseyrir er 3.000 krónur.
n Partyzone á NASA
Partyzone í kvöld á NASA í kvöld. Heiðurs-
gestur kvöldsins er plötusnúðurinn Henrik
Schwarz frá Danmörku. Ásamt honum
munu þeir Sean Danke, Bensol og Dj Margeir
halda uppi stuðinu í dansveislunni. Sérstakt
forpartí verður fyrr um kvöldið en þar munu
Reykveek sjá um að hita dansþyrsta gesti
upp fyrir kvöldið. Í forpartíinu verða veigar
í boði Corona Extra og Partyzone sem
miðahafar hafa aðgang að. Forpartíið hefst
klukkan 21 en dansveislan á NASA hefst
klukkan 23 og það kostar 2.000 krónur inn.
n Hátíðartónleikar Ljósanætur
Tónleikarnir Með blik í auga þar sem reynt er
að fanga tónlist og tíðaranda áranna 1950
til 1970. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni af
Ljósahátíð í Reykjanesbæ. Það verður boðið
upp á tónlist listamanna eins og Hallbjargar
Bjarnadóttur, Ellýjar Vilhjálms, Hauks
Morth ens og Ragga Bjarna auk Hljóma,
Villa Vill, Flowers og Trúbrots. Tónleik-
arnir fara fram í Andrews Theater á Ásbrú
í Reykjanesbæ klukkan 16 og svo aftur um
kvöldið klukkan 20. Það eru söngvarar af
Suðurnesjum sem stíga á svið, þar á meðal
þau Valdimar Guðmundsson, Fríða Dís
Guðmundsdóttir og Bríet Sunna Valdemars-
dóttir auk fleiri. Það er svo fjórtán manna
hljómsveit sem spilar undir.
n Dægurlagaperlur Erlu Þorsteins
Tónleikar til heiðurs dægurlagasöngkon-
unni Erlu Þorsteinsdóttur. Erla söng mörg af
vinsælustu dægurlögum þjóðarinnar, eins
og Kata rokkar, Þrek og tár, Vagg og velta
og fleiri góð. Flytjendur á tónleikunum eru
ungir og efnilegir tónlistarmenn sem allir
hafa stundað nám í FÍH og gera flestir enn.
Tónleikarnir fara fram í salnum í Kópavogi
og hefjast klukkan 20. Aðgangseyrir er
2.500 krónur.
2
sep
Föstudagur
3
sep
Laugardagur
4
sep
Sunnudagur
Ú
tskriftarnemar úr fatahönn-
unardeild Listaháskólans
bjóða til veislu í Brocken
Clock Gallerý að Klappar-
stíg 19. „Við ætlum að sýna afrakst-
ur tveggja vikna kúrs sem við erum
búin að vera í með erlendum gesta-
kennara,“ segir Halla Hákonar-
dóttir, einn af útskriftarnemunum.
„Gestakennarinn heitir Geraldo Da
Conceicao og hann hefur meðal
annars unnið hjá tískurisum eins og
Yves Saint Laurent og Prada. Þetta
er frekar óvenjuleg nálgun á þessu
því hann hefur meðal annars látið
okkur gera vídeóverk.“
Á sýningunni verður hægt að
berja augum afrakstur námskeiðs-
ins en nemendurnir hafa unnið að
ýmsu með gestakennaranum. „Við
erum búin að hanna föt og sauma
og alls konar bróderí og skemmti-
legt. Við erum svolítið að vinna út
frá austurevrópskum áhrifum,“ segir
hún.
Partíið hefst klukkan 18 á laugar-
daginn og Halla segir alla vera vel-
komna að skoða sýninguna sem þau
ætla að setja upp. „Þetta verður von-
andi alveg rosalega flott. Það verða
list og léttar veigar í boði. Þetta
verður eitthvað frameftir þannig við
búumst alveg við að þetta þróist í
gott partí og við vonum bara að sem
flestir mæti,“ segir hún hlæjandi.
List og veigar
Undir austurevrópskum áhrifum
Útskriftarnemar Listaháskólans bjóða
gestum og gangandi á sýningu á verkum
sem urðu til á tveggja vikna námskeiði
sem þau sóttu á dögunum.
n Bjóða til veislu í Brocken Clock Gallerý
M
ystery Ísland er fram-
leiðslufyrirtæki sem
framleiðir kvikmyndir,
stuttmyndir, heimildar-
myndir og sjónvarps-
þætti. Að fyrirtækinu standa þeir
Árni Filippusson, Davíð Óskar Ólafs-
son og Hreinn Beck. Fyrirtækið hlaut
fyrst athygli fyrir framleiðslu á mynd-
inni Sveitabrúðkaup árið 2008. Síðan
þá hefur fyrirtækið framleitt kvik-
myndina Kóngaveg 7 og nú frum-
raun Hafsteins Gunnars Sigurðsson-
ar, Á annan veg. Fyrirtækið stendur
í stórræðum og nú standa yfir tökur
á nýrri gamanþáttaröð með strák-
unum í Mið-Íslandi og eftir áramót
eru á teikniborðinu að minnsta kosti
tvær kvikmyndir í fullri lengd.
Á tökustað
Árni Filippusson er í upptökuveri
með strákunum í Mið-Íslandi þeg-
ar blaðamaður hefur samband við
hann. Hláturrokur heyrast í bak-
grunninum, greinilega stuð á töku-
stað. Það er mikið af verkefnum í
framleiðslu og á teikniborðinu hjá
þeim Árna, Davíð og Hreini í Mystic
Ísland.
„Þættirnir eiga eftir að koma
skemmtilega á óvart,“ segir Árni
um gamanþættina Mið-Ísland. Það
verða Ari og félagar hans í grínhópn-
um Mið-Íslandi, þeir Bergur Ebbi,
Jóhann Alfreð og Dóri DNA, sem
fara með aðalhlutverkin í þessum
þáttum. Þættirnir verða átta talsins
og sýndir á Stöð 2 seint á þessu ári
eða byrjun þess næsta. Ari heldur
utan um handritsgerðina sem allir
í hópnum taka þátt í ásamt Ragnari
sem mun leikstýra.
Báðu um greiða
Spurður hvort það sé erfitt að koma
nýjum verkum á koppinn og hvort
að fjármögnun standi í vegi fyrir
því segist Árni ekki velta sér upp úr
hindrunum. „Kvikmyndaiðnaður
er þröngur vegur. Við höfum aldrei
fengið almennilega þóknun fyrir
verk okkar. Við keyrum þetta áfram
á brosinu. Á annan veg er mynd sem
er gerð fyrir afar lítinn pening. Hún
er gerð af drifkrafti okkar sem stönd-
um að baki henni. Stundum er það
þannig.
Aðalástæðan var sú að okkur
langaði í ákveðin verkefni með Haf-
steini. Það stóð til dæmis til að fram-
leiða myndina Hvíldardagar eft-
ir skáldsögu Braga Ólafssonar. Það
stoppaði hins vegar allt á því að sú
mynd væri hans fyrsta. Við vildum
sýna fram á að hann gæti þetta og
höfðum það mikla trú á honum að
við stukkum af stað í þetta verkefni
og báðum alla mjög fallega um að
liðsinna okkur.“
Gerum ekki myndir fyrir
markaðinn
Þeir félagar hafa sýnt og sannað að
þeir eiga fullt erindi á markaðinn.
Fyrsta mynd þeirra í fullri lengd var
djarft byrjendaverk. Kvikmyndin
Sveitabrúðkaup var tekin upp á sjö
dögum víðs vegar um landið og með
sjö tökumönnum.
„Við vorum með fjórar mynda-
vélar og tvö hljóðteymi og þessu var
stýrt nánast eins og dansatriði. Þetta
var mjög skemmtilegt verkefni,“ segir
Árni. „Við vorum að skrifa lokasen-
una í húsbíl áður en við fórum inn
í tökur á lokadegi. Flækjustigið var
hátt í þessu verkefni en einmitt þess
vegna lærðum við mikið á því að að
koma þessari mynd á koppinn. Við
höfum fulla trú á okkur og teljum
okkur eiga erindi á markaðinn.
Oft er litið á kvikmyndagerð sem
ástríðu einnar manneskju sem er til-
búin að fórna öllu til að búa til kvik-
myndina sína,“ segir Árni. En það er
ekki þannig sem við vinnum.
Metnaðurinn er til staðar og við
erum samstilltur hópur sem kemur
að framleiðslu og leikstjórn. Okkar
markmið eru að vinna að vönduðum
myndum með vönduðu fólki. Við
vinnum með hugmyndir og höfum
reynt að skapa okkur sérstöðu. Við
viljum til að mynda ekki gera mynd-
ir sem þjóna markaðnum. Við vilj-
um einfaldlega segja fallega sögu og
koma henni til skila til áhorfandans.“
Nína er helsta fyrirmyndin
Árni er bróðir leikkonunnar Nínu
Filippusdóttur og þau vinna mik-
ið saman og reyndar segir Árni að
hún sé ein af sínum sterkustu fyrir-
myndum.
„Við vinnum mikið saman, erum
mikið saman og það eru sterk tengsl
á milli okkar og hafa alltaf verið í
gegnum mín uppvaxtarár. Hún hef-
ur haft mikil áhrif á mig og ég tel
hana eina af mínum helstu áhrifa-
völdum.
Nína hefur kennt mér margt og
svo er það auðvitað stoð að hún og
félagar hennar í Vesturporti glæða
allt lífi. Ég vona að okkur takist það
líka,“ segir Árni og hlær.
kristjana@dv.is
Keyrum þetta
áfram á brosinu
n Framleiðslufyrirtækið Mystery Ísland stendur í stórræðum
n Ný gamanþáttaröð með Mið-Íslandi
Lætur hindranir ekki stöðva sig Árni
vildi sýna fram á að Hafsteinn væri öflugur
leikstjóri og bað því um fjölda greiða til að
framleiða myndina Á annan veg.