Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2013, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2013, Qupperneq 30
30 Viðtal 8.–10. febrúar 2013 Helgarblað Þ ú skalt ekki halda það í eina sekúndu að þú skiptir mig nokkru máli,“ segir Kári Stef­ ánsson, forstjóri Decode, hastarlegur og hvassbrýndur við ljósmyndara DV við upphaf við­ tals blaðsins við hann. Við erum staddir á skrifstofu Kára í höfuðstöðv­ um Decode í Vatnsmýrinni og byrj­ um á því að taka myndir af honum. Ljósmyndarinn hefur kankvíslega orð á því við forstjórann, sem klæddur er í gráar, þykkar ullarbuxur og vesti yfir hvíta skyrtu, að gott sé að sjá að hann hafi klætt sig upp á fyrir mynda­ tökuna. Kári drepur þann misskiln­ ing hins vegar í fæðingu, með ofan­ greindum orðum, að hann hafi valið föt sín með viðtalið í huga – veðrið og kuldinn réð klæðavalinu. Ætlunin er að spyrja Kára út í ný­ lega sölu á Decode til bandaríska lyfja þróunarfyrirtækisins Amgen fyr­ ir rúmlega 50 milljarða króna og áhrif sölunnar á framtíð fyrirtækisins. Kári byrjar hins vegar viðtalið á því að láta í ljós skoðun sína á ljósmyndaranum, sömuleiðis þegar hann ætlar að stilla Kára upp við hvíta töflu sem á hafa verið skrifaðar jöfnur og alls kyns töl­ ur sem forstjórinn virðist vera að velta fyrir sér. „Þessi beiðni þín lýsir slíkri vanþekkingu á eðli fags þíns,“ seg­ ir Kári og vísar til þess að fáránlegt sé að taka mynd af manni í hvítri skyrtu við hvítan bakgrunn og segir svo: „Æ, fyrir gefðu vinurinn“ við ljósmyndar­ ann. Í loftinu svífur einhver skemmti­ lega súr gamansemi sem þó er erfitt að ná utan um. Skemmtir sjálfum sér Svona er Kári kenjóttur og óútreiknan­ legur. Ásamt því að vera þekktur sem forstjóri Decode og andlit þess fyrir­ tækis þá er hann einnig þekktastur fyrir þetta sérstæða viðmót sitt: Að skjóta fólki skelk í bringu, taka það úr jafnvægi, með ögrandi athugasemd­ um. Flestir hafa heyrt um einhver slík tilsvör Kára í gegnum tíðina eða heyrt talað um annars konar uppá­ tæki hans í daglega lífinu sem teljast vera sérstök. Þegar Kári er spurður út í þetta við­ mót sitt og tilsvör; hvort hann reyni viljandi að ögra fólki, segir hann: „Ég er bara svona skrítinn maður. Ég nota sjálfsagt skringilegt hegðunarmynstur til að skemmta sjálfum mér, ætli það sé ekki rétt. Á endanum skemmti ég sennilega sjálfum mér meira en öðr­ um með þessu, það mætti segja mér það.“ Þegar blaðamaður segir Kára að af honum gangi fjölmargar sögur, með­ al annars þar sem hann sagður hafa tekið fólk hálstaki eða boðið því í slag í kjölfar rökræðna, en að líklega ber­ ist þessar sögur honum ekki til eyrna af því fólk sé svo hrætt við hann, segir Kári: „Ef þú heldur því fram að þetta hafi gerst þá ætla ég ekki að neita því. En ég kann engar slíkar sögur […] Hvernig getur fólk verið hrætt verið við þennan ljúfa mann? Já, ég er alltaf að grínast, langoftast er þetta bara húmor. Mér þykir vænt um fólk. En mér finnst skelfileg tilhugsun að leið­ ast.“ Blaðamaður spyr þá: „Er þetta vörn gegn leiðindum, ertu að hrista upp í hversdagsleikanum?“ „Já, kannski en aðallega er ég að hrista upp í sjálfum mér til að halda mér vakandi,“ segir Kári. Þá vitum við það. Sú tilfinning mín að Kári hefði bara verið að stríða ljós­ myndaranum þegar hann hreytti í hann ónotum við komu okkar var lík­ lega rétt. En kannski ekki; maður veit ekki alveg með Kára því hann er ólík­ indatól. Decode á tímamótum Decode stendur á miklum tímamót­ um eftir söluna til Amgen. Fyrirtæk­ ið er nú í fyrsta skipti í eigu erlends lyfjafyrirtækis, eða lyfjaþróunarfyrir­ tækis í tilfelli Amgen. Þegar fyrirtækið var endurfjármagnað árið 2010 komst það í eigu bandarískra áhættufjárfesta sem ekki höfðu beina hagsmuni af þeim uppgötvunum sem Decode ger­ ir heldur var hugsun þeirra að ávaxta sitt pund. Amgen hyggst hins vegar nýta vinnu Decode við þá lyfjaþróun sem fyrirtækið stundar og hefur Kári sagt opinberlega að Decode muni vinna að því að auka „líkurnar á því að Amgen þrói betri lyf og komi þeim á markað“. Kári segir hins vegar að eðli starf­ semi Decode muni ekki breytast eftir kaup Amgen á fyrirtækinu. „Þeir keyptu okkur út af því hver við erum en ekki af því að þeir vildu breyta okk­ ur í eitthvað annað. Þær forsendur sem við erum að vinna eftir eru að við verðum sjálfstætt dótturfyrirtæki sem heldur áfram að vinna á sama hátt og hingað til, fyrir utan það að mark­ aðssetning og sala er ekki lengur á okkar borði. Þeir eru í sjálfu sér ekki að kaupa annað en getu okkar til gera uppgötvanir,“ segir Kári. Amgen mun því nota uppgötvanir Decode til að hjálpa sér við lyfjaþróun sína og hugs­ anlega lyfjaframleiðslu. Tryggja rekstrargrunninn Vegna sölunnar til Amgen hefur Decode fengið borð fyrir báru í ein­ hvern tíma og þarf ekki að hafa áhyggjur af því að rekstrarfé félags­ ins verði uppurið. „Okkar framtíð er hins vegar ekki trygg nema við höld­ um áfram að skila árangri, sýnum við fram á notagildi okkar fyrir Amgen þá reikna ég með að Amgen haldi áfram að fjármagna þetta fyrirtæki,“ segir Kári. Fyrir kaup Amgen á Decode í lok síðasta árs voru sagðar fréttir af því að rekstrarfé fyrirtækisins væri orðið af skornum skammti. Kári segir að ekki hafi verið auðvelt að fjármagna fyrir­ tækið árið 2010, skömmu eftir banka­ hrunið á Íslandi árið 2008 og alþjóð­ legu fjármálakreppuna. „Þetta voru erfiðir tímar á markaði alls staðar, allt var í rusli. Í vissum skilningi vorum við heppnir að ná að fjármagna fyrir­ tækið aftur þarna árið 2010.“ Margfaldur hagnaður Í lok árs 2012 var Decode hins vegar að verða búið með það fjármagn sem lagt hafði verið inn í fyrirtækið 2010 og var kominn tími á að fjárfestarnir létu meira fé inn í félagið. „Við vor­ um að verða búnir með það fé sem upphaflega var sett inn og vorum að undirbúa fjármögnun númer tvö, hjá þáverandi hluthafahópi, þegar söluna bar að. Fjárhagsstaðan var mjög svipuð því sem búist var við; vorum að reyna að draga inn fleiri áhættufjárfesta og vorum búnir að skilgreina fjárþörf fyrirtækisins fyrir næstu tvö árin. Það var ekkert óeðli­ legt að gerast. Þessir menn voru búnir að koma með um 50 milljónir dollara inn í fyrir tækið og þeir voru ekkert að fara að láta það hverfa.“ Kári segir að fleiri lyfjafyrirtæki en Amgen hafi haft áhuga á því að kaupa Decode. Starfsemi Decode er dýr og hefur félagið ekki skilað rekstrarhagnaði frá stofnun þess. Rekstrarféð hefur hins vegar verið notað til að búa til fyrir­ tæki sem orðið er þekkt og virt á al­ þjóðavettvangi; fyrirtæki sem aðilar á markaði eru reiðubúnir að borga háar fjárhæðir fyrir – rúma 50 milljarða; það er að segja: Verðmætt fyrirtæki. Kári segir að fjárfestarnir sem lögðu Decode til fjármuni árið 2010 hafi með sölunni til Amgen um það bil áttfaldað þá upphæð sem þeir lögðu fyrirtækinu til. „Þetta voru aðilar sem vildu búa til peninga úr peningum og hafa gert það býsna gott. Þeir fengu svona áttfalt út úr þessu sem er býsna gott á minna en þremur árum. Þeir voru mjög kátir.“ Strax árangur Kári segir að nú þegar hafi vinna Decode skilað sér með beinum hætti til Amgen því Decode hafi gert uppgötvun sem hafi leitt til þess að bandaríska lyfjaþróunarfyrirtækið hafi stöðvað vinnu við þróun á einu tilteknu hjartalyfi. Hann segir að þar sem vinna við þróun einstakra lyfja sé afar dýr, milljarður dala til eins og hálfs milljarðs, og taki að jafnaði tíu til fimmtán ár, megi segja að Amgen hafi fengið fjárfestingu sína til baka tvöfalt. „Þó það sé ekki nema rétt rúmur mánuður síðan Amgen keypti Decode þá eru þeir þegar búnir að stöðva vinnu við eitt lyf út af okkar uppgötvun. Bara með því að stöðva það prógramm eru þeir búnir að fá andvirði Decode til baka tvöfalt,“ segir Kári. „Við þurfum ekki margar slíkar uppgötvanir til að réttlæta þessa fjárfestingu hjá Amgen.“ Kári segir enn frekar að það verð­ mæti sem Decode leggur til Amgen sé ekki endilega verðmæti sem ís­ lenska fyrirtækið hefði getað nýtt sér í sinni starfsemi þar sem Decode vinni ekki við lyfjaþróun. „Ef fjár­ hagslegt verðmæti Decode liggur í getunni til að gera svona uppgötv­ anir þá erum við margfalt verðmæt­ ara fyrirtæki en við vorum fyrir fimm eða tíu árum: Við erum orðin flinkari í okkar iðn. En verðmætið sem við leggjum til Amgen er ekki endi­ lega verðmæti sem við hefðum get­ að nýtt sjálf þar sem Decode er ekki lyfjafyrir tæki. Decode er hins vegar mjög mikilvægt hjól í heildarstarf­ semi Amgen,“ segir Kári. Breytir engu fyrir blóðsýnin Þegar Kári er spurður að því hvort starfsmenn Amgen fái aðgang að þeim gögnum sem Decode varð­ veitir – blóðsýnum úr 120 þúsund Ís­ lendingum og hálfri milljón erlendra einstaklinga – segir forstjórinn að eigendaskiptin á Decode breyti engu um aðganginn að gögnunum. „Decode á ekki þessi gögn og Amgen ekki heldur. Decode er bara vörslu­ aðili fyrir þessi gögn. Sem vörslu­ aðili erum við ekki eigendur þessara gagna og erum undir eftirliti Vís­ indasiðanefndar og Persónuverndar og það er ekki einu sinni fyrirtækið sjálft sem er vörsluaðili heldur ein­ staka vísindamenn. Við megum ekki selja þessi gögn, við megum ekki selja þessa upplýsingar, við megum ekki veðsetja þetta. Þó að Amgen eigi núna Decode þá hafa þeir engan umráðarétt yfir þessum gögnum. Ef þeir myndu misbjóða mér, eða þeim vísindamönnum sem hér vinna, þá geta starfsmenn Decode gengið héð­ an út með gögnin og lífsýnin. Þetta skiptir mjög miklu máli því það hefur ekkert verið selt út landi,“ segir Kári. Forstjórinn tekur sem dæmi að í lok vikunnar sé von á vísindamanni frá Amgen til Decode til að útskýra fyrir starfsmönnunum að hverju Amgen sé að vinna að í Bandaríkj­ unum. „Ég er alveg handviss um það að hann hefur einhvers konar hug­ myndir um að hann fái að vinna með okkar gögn. En svarið við því er: Nei. Vegna þess að hann fær ekki að­ gang að þeim nema hann sé hluti af okkar teymi. Hann gæti slegist í hóp­ inn og byrjað að vinna hér en þá yrði hann líka að vera búsettur hér og vinna að þessu í langan tíma. Ég var alveg gersamlega hreinskilinn með þetta þegar við vorum að semja við Amgen. Ég sagði við þá: Það sem þið eruð kaupa, ef þið kaupið Decode, er geta okkar til að gera uppgötvanir. Þið getið ekki flutt þessi gögn úr landi, þið hafið ekki aðgang að þess­ um gögnum: Þetta er það sem þið eruð að kaupa og ef þið sættið ykk­ ur ekki við það þá skuluð þið ekki kaupa Decode. En ég er alveg hand­ viss um að þeir munu reyna að fá aðgang að gögnum samt sem áður,“ segir Kári en aðeins ákveðinn hópur starfsmanna Decode hefur aðgang að þessum gögnum sem eru í varð­ veislu hjá fyrirtækinu. Keyptu réttinn til forskots á upplýsingar Kári segir að það eina sem Amgen hafi í reynd keypt hjá Decode sé rétturinn til að nýta sér í sínum lyfjaiðnaði þær niðurstöður sem „ Mér finnst ég vera heppnasti maður á jarðríki „Eins og barn í sandkassa“ Kári Stefánsson andar léttar eftir kaup Amgen á Decode en segir að bandarískt eignarhald á félaginu sé ekki óskastaða. Í framtíðinni segir Kári að hann vilji að Decode verði eign íslensku þjóðarinnar. Kári segir Inga F. Vilhjálmssyni frá sölunni á Decode og hverju hún breyti fyrir fyrirtækið. Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Viðtal „Mér þykir vænt um fólk Sáttari en áður Kári segist vera sáttari en áður þar sem búið sé að tryggja rekstrargrundvöll Decode til nokkurs tíma með sölunni til Amgen.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.