Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2013, Qupperneq 53
Fólk 53Helgarblað 8.–10. febrúar 2013
Þ
ríburarnir Bryndís, Ásdís og
Njáll Reynisbörn á Djúpa-
vogi sem DV fjallaði um fyrir
28 árum urðu þrítugir þann
6. febrúar síðastliðinn. „Við átt-
um góða stund með fjölskyldu og
vinum,“ segir Bryndís fyrir hönd
systkina sinna. „Við ætlum svo að
halda almennilega upp á afmælið
í mars. Eitt okkar býr erlendis og
kemur þá heim, þá höldum við upp
á þrefalt þrítugsafmæli, það verður
þá níræðisafmæli,“ segir Bryndís.
Umfjöllun um þríburana vakti
nokkra eftirtekt og lýsti móðir þeirra,
Guðmunda Brynjólfsdóttir venju-
legum degi hjá sér í uppeldinu. „Já,
mér skilst að á þessum tíma hafi
glasafrjóvganir verið sjaldgæfar og
þess vegna þótti þetta sérstakt. Það
höfðu ekki fæðst þríburar í nokkur
ár á Íslandi.“
Í greininni sagði móðir þeirra frá
því að þó að það slettist stundum
upp á vinskapinn væru þau sam-
rýmd og þegar eitt þeirra vantaði
þá væri eins og annað væri að leita
því. Eru þau þannig enn þann dag í
dag? „Nei, ekki alveg. Við erum enn-
þá miklir vinir en erum ekkert endi-
lega að leita að hvert öðru þegar eitt
vantar. En við höfum haldið hópinn
og erum miklir vinir.“
É
g er nú að undirbúa mig fyrir
frekar stórt próf á næstunni
þannig að ég held nú ekki upp
á þetta strax,“ segir Eiríkur
Rafn Stefánsson sem varð 25 ára
á fimmtudaginn. Eiríkur er með-
limur í hinni rómuðu hljómsveit
Valdimar og spilar þar á trompet
en syngur einnig í hjáhlaupum.
„Ég hef nú ekki haldið upp á af-
mælið að neinu ráði undanfarin
ár þannig að ég stefni á að slá upp
heljarinnar veislu þegar kjörað-
stæður eru til þess,“ segir Eiríkur,
sem er mikill karókímaður og mun
því eflaust nýta tækifærið til þess
að grípa í hljóðnemann.
Þrátt fyrir annirnar mun Eirík-
ur gefa sér tíma til þess að snæða
eitthvað ljúffengt: „Ætli ég fái mér
annars ekki bara eitthvað gott að
borða og slaki jafnvel á með vin-
um í kvöld.“ Aðspurður um gjafir í
tilefni dagsins segir Eiríkur: „Móðir
mín gaf mér nú einkar fallega bolla
í innbúið.“
Þrítugir þríburar
á Djúpavogi
„Stefni á að slá upp
heljarinnar veislu“
Enn miklir vinir
Eiríkur Rafn Stefánsson varð 25 ára á fimmtudaginn
Djúpstæð vinátta
M
eð Lindu Pétursdóttur og
sjónvarpsmanninum lit-
ríka Jeremy Clarkson hef-
ur tekist djúpstæð vin-
átta. Clarkson er frægastur fyrir að
stjórna bílaþættinum Top Gear og
hefur nokkrum sinnum komið til
Íslands. Þau kynntust hins vegar í
fyrrasumar þar sem þau skemmtu
sér saman í Notting Hill. Linda
birti þá mynd af þeim tveimur á
Twitter-síðu sinni.
Clarkson hafði áður látið þess
getið á Twitter-síðu sinni að hann
væri úti að borða með nokkrum
Íslendingum og að einn þeirra
hefði verið kjörinn fegursta kona
heims 1988.
Síðan þá hafa þau verið í sam-
bandi og kærleikur með þeim.
Linda sagði hann á Facebook
vera tengdason Íslands, en að
það muni hafa verið í gamni gert.
Á milli þeirra er aðeins vináttan
kær.
kristjana@dv.is
n Linda Pétursdóttir og Jeremy Clarkson ná vel saman
Vinir Hér má sjá
vinina Lindu og Jeremy
kampakát saman.
É
g ætla nú bara að halda upp á
þetta með fjölskyldunni í ró-
legheitum. Ég er nú að vonast
til að sambýlismaðurinn minn
komi mér á óvart, ég ætla að auka á
pressuna með því að segja það op-
inberlega,“ segir Rósa Björk Brynj-
ólfsdóttir sem fagnar 38 ára afmæli
sínu á laugardaginn.
Rósa starfar sem fjölmiðlafull-
trúi í fjármálaráðuneytinu en er um
þessar mundir í fæðingarorlofi. „Við
gerum okkur glaðan dag fjölskyldan,
nýfæddi strákurinn okkar og stelp-
an okkar sem er níu ára,“ segir Rósa
enn fremur: „Ég bíð eftir næsta stór-
afmæli – þá held ég veislu.“
Rólegheit
Rósa Björk Brynjólfsdóttir er 38 ára á laugardag
I
nnblásturinn að baki Coal eru
kolateikningar Andreu, tilfinn-
ingin að vinna með kol, lyktin
og hljóðið sem þau gefa frá sér.
Ilmurinn sjálfur er steinefna-
kenndur og dekkri en hefur ein-
kennt fyrri ilmvötn Andreu. Einnig
verða til sýnis og sölu í Spark þrjú
ljósmyndaverk Andreu sem unnin
voru út frá kolateikningum í sam-
vinnu við Vigfús Birgisson.
Andrea Maack er myndlistar-
maður sem unnið hefur í samstarfi
við nokkra ilmvatnsgerðarmenn
á síðustu árum. Ilmvötnin eiga
uppruna sinn í myndlistarverkum
Andreu en þessi nálgun hefur vakið
athygli í ilmvatnsheiminum og hefur
meðal annars verið fjallað um þau í
Financial Times, Vogue og Elle.
Árið 2010 komu fyrstu þrjú ilm-
vötnin á markað; Smart, Sharp og
Craft. Árið 2011 bættust Silk og Dark
við. Þau eru unnin úr hágæða olíum
og eru ætluð fyrir bæði
kynin. Varan fæst nú í
verslunum víðsvegar
um heiminn meðal
annars í Harvey Nichols
í London, Henri Bendel
í New York, Printemps í
París og Storm í Kaup-
mannahöfn.
Margt góðra gesta
var í boði Andreu og
brá hún sjálf á leik og
stillti sér upp fyrir ljós-
myndara DV.
Andrea kynnir
nýjan ilm, Coal
n Á fimmtudag kynnti listakonan ilminn í Spark galleríi
Margt góðra gesta
Margir lögðu leið sína í
Spark á Klapparstíg á
fimmtudag.
Myndir PressPHotos.biz