Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Side 26
26 Kosningar 2013 26.–28. apríl 2013 Helgarblað
Í
slenskir stjórnmálaflokkar eru
meira og minna allir vinstra
megin við miðju og frekar frjáls-
lyndir. Þetta sýnir úttekt á kosn-
ingaprófi DV sem 266 frambjóð-
endur fjórtán stjórnmálahreyfinga
svöruðu. Á hefðbundnum vinstri/
hægri skala stjórnmálanna, sem
tekur til félagshyggju eða markaðs-
hyggju, og frjálslyndis/forsjárhyggju
skala mælast aðeins tveir flokkar
hægra megin við miðju og átta flokk-
ar nær forsjárhyggju en frjálshyggju.
Hægri flokkarnir tveir
Sjálfstæðisflokkur mælist örlítið
hægra megin við miðju og Hægri
grænir líka. Litlu munar á flokkunum
tveimur á hægri/vinstri skalanum.
Það kann kannski ekki að koma á
óvart að flokkar sem kenna sig sjálfir
við hægri væng stjórnmála. Það sem
kemur hins vegar á óvart er hversu
nálægt miðjunni þessir flokkar eru
í alþjóðlegum skilningi. Flokkarn-
ir eru hins vegar óumdeilanlega yst
á hægri væng stjórnmálanna miðað
við íslenskt stjórnmálalíf.
Flokkarnir eru hins vegar hvor
sínum megin við miðjuna þegar
kemur að frjálslyndis/forsjárhyggju
skalanum. Þar mælast Sjálfstæðis-
menn sem forsjárhyggjuflokkur en
Hægri grænir sem frjálslyndur flokk-
ur. Sjálfstæðisflokkurinn er þó mjög
nálægt miðjunni og vantar ekki mik-
ið upp á að hann mælist frjálslynd-
ur. Svipaða sögu er að segja af Hægri
grænum sem mælist rétt við miðju
en þó frjálslyndur.
Alþýðufylkingin
lengst til vinstri
Af þeim stjórnmálaflokkum sem
mælast til vinstri á skalanum er Al-
þýðufylkingin yst á þeim væng.
Flokkurinn mælist vinstri sinn-
aðri en allir hinir flokkarnir þó að
Húmanistaflokkurinn, Vinstri græn
og Regnboginn mælist á svipuðum
slóðum. Regnboginn og Alþýðufylk-
ingin eru bæði klofningsframboð frá
Vinstri grænum.
Þegar litið er á frjálslyndis/for-
sjárhyggju skalann eru flokkarn-
ir hins vegar á mjög mismunandi
slóðum. Húmanistaflokkurinn og
Vinstri græn mælast rétt forsjár-
hyggjumegin við miðjuna, Regn-
boginn talsvert langt í átt að for-
sjárhyggjunni, en Alþýðufylkingin
mælist örlítið frjálshyggju megin við
miðjuna.
Björt Framtíð og
Píratar svipaðir
Af flokkunum fjórtán eru Björt fram-
tíð og Píratar frjálslyndustu flokkarn-
ir. Björt framtíð mælist örlítið frjáls-
lyndari en Píratarnir en báðir eru á
sama stað þegar kemur að vinstri/
hægri skalanum. Flokkarnir eru á
svipuðum slóðum og Lýðræðisvakt-
in, Samfylkingin og Dögun á þeim
skala. Dögun og Samfylkingin mæl-
ast svo á svipuðum slóðum, nálægt
miðjunni, þegar kemur að skalan-
um frjálslyndi/forsjárhyggja. Sam-
fylkingin mælist örlítið nær for-
sjárhyggju en Dögun aðeins nær
frjálshyggju. Lýðræðisvaktin er hins
vegar staðsett aðeins frá miðjunni í
átt að frjálslyndi.
Framsóknarflokkurinn mælist
sér á báti, nokkuð til vinstri og nokk-
uð í átt að forsjárhyggju. Flokkurinn
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Nær eingöngu vinstri
flokkar á Íslandi
n Sex frjálslyndir flokkar í boði n Bara tveir hægri flokkar n Framsókn sér á báti
Frjálslyndi
V
in
st
ri Hæ
gri
Stjórnlyndi
Björt
framtíð
Píratar
Lýðræðisvaktin
Samfylkingin
Dögun
Vinstri græn
Húmanista-
flokkurinn
Regnboginn
Framsókn
Flokkur
heimilanna
Sjálfstæðis-
flokkurinn
Hægri
grænir
Landsbyggðar-
flokkurinn
Alþýðu-
fylkingin
Íslenski
áttavitinn
Af þeim sextíu og sex spurningum
sem eru á Alþingisprófi DV voru svör
við fjörutíu og fjórum skoðuð með
tilliti til þess hvort afstaða til viðkom-
andi spurninga færði menn til vinstri
eða hægri eða í átt að frjálslyndi eða
forsjárhyggju. Fjórar spurningar höfðu
áhrif á báða skalana. Svona raðast
flokkarnir á hinn pólitíska áttavita.
er í meðallagi vinstri sinnaður en á
pari við Flokk heimilanna og Regn-
bogann þegar litið er á hinn skal-
ann. Flokkarnir mælast allir talsvert
í átt til forsjárhyggju.
Félagar á svipuðum slóðum
Landsbyggðarflokkurinn er stað-
settur í kringum miðjuna, en vert er
að hafa í huga að afstaða flokksins
byggir aðeins á svörum tveggja fram-
bjóðenda. Afstaða flokkanna byggir
á svörum frambjóðenda þeirra í 1.
til 5. sæti á Alþingisprófi DV. Á með-
al flokkanna dreifast frambjóðend-
ur yfir nokkuð stórt svæði alla jafna
þó þeir séu flestir á svipuðum slóð-
um. Nokkur dæmi eru um að flokkar
séu bæði með frekar hægrisinnaða
frambjóðendur og mjög vinstrisinn-
aða. Þá eru líka nokkur dæmi þess að
flokkar séu með frambjóðendur sem
mælast frekar í átt að forsjárhyggju
á meðan aðrir frambjóðendur sama
flokks mælast talsvert í átt að frjáls-
hyggju. n
Í aðra áttina Aðeins tveir flokkar mælast hægra megin við miðju á hinum klassíska vinstri/hægri skala stjórnmálanna. Íslensk stjórnmál
virðast því hallast til vinstri. Mynd KArl PeterSSon