Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 22
22 Fréttir Erlent Helgarblað 7.–10. febrúar 2014
Bitin þrisvar en vill
ekki láta lóga Boris
n Angela stórslasaðist í öll skiptin n „Bitin voru mér að kenna,“ segir hún
B
reski hundurinn Boris hefur
þrisvar ráðist á eiganda sinn
og bitið hann í andlitið, eyrun
og hendur. Eigandinn, Ang-
ela Fielder, stórslasaðist í öll
skiptin og hefur þurft að dvelja lang-
dvölum á spítala. Þrátt fyrir þetta vill
hún hvorki lóga honum né gera brott-
rækan af heimili sínu, enda segist hún
elska hann og að árásirnar hafi ver-
ið henni að kenna. „Bitin voru mér
að kenna,“ segir Fielder og bætir við:
„Hann réðst fyrst á mig eftir að ég
skammaði hinn hundinn minn, Wall-
is, sem er dóttir hans. Eftir árásina sá
ég að hann var fullur eftirsjár; hann
var alltaf að koma til mín vælandi og
vildi kela við mig. Margir hefðu ef til
vill látið lóga honum vegna þessa. En
myndi það láta lóga barni sínu ef það
fengi reiðikast af þessu tagi? Af hverju
ættu aðrar reglur að gilda um hunda?“
Önnur árás
Þrátt fyrir meinta eftirsjá, leið ekki á
löngu þar til Boris, sem er af tegund-
inni bullmastiff, eða bolameistari á
íslensku, lét til skarar skríða á ný. Aft-
ur var það vegna samskipta Field-
er við Wallis. Fielder var að skamma
Wallis fyrir að naga húsgögnin í eld-
húsinu, þegar Boris stökk á hana og
sökkti tönnum sínum inn í handlegg
hennar. „Ég náði að rífa mig lausa
og rauk svo upp á spítala. Læknarnir
þar hlúðu að sárum mínum og vildu
að ég yrði eftir á spítalanum í nokkra
daga,“ segir Fielder sem lét ekki segj-
ast, enda farin að sakna Boris. „Ég
vissi að hann væri lafandi hræddur
heima, með áhyggjur af móður sinni
– og fullur eftirsjár.“
Tveimur vikum síðar var Fielder
heppin að sleppa lifandi frá Boris. Aft-
ur var hún að skamma Wallis og aft-
ur brást Boris ókvæða við, hoppaði á
Fielder og beit hana margsinnis; bæði
í handlegginn og andlitið þannig að
fossblæddi. „Hann beit vinstri kinn
mína næstum af,“ segir hún, en 24
spor voru saumuð í andlitið og 40 í
handlegginn. Eftir árásina gat hún
ekki hreyft handlegginn og þurfti að
fara í aðgerð.
Ástarör
Nú er Fielder með ör úti um allan lík-
amann vegna hundsins grimma en
hún lætur samt engan bilbug á sér
finna og segist hafa fundið lausn til
að koma í veg fyrir að atvik af þessu
tagi endurtaki sig. „Boris er ekki
árásarhneigður, en vill hins vegar
vernda dóttur sína. Núna loka ég
hann alltaf inni áður en ég skamma
Wallis,“ segir Fielder og bætir við: „Ég
hef elskað Boris frá því að ég sá hann
fyrst. Hann er litla barnið mitt. Við
eiginmaður minn höfum reynt í tíu
ár að eignast okkar eigið, en án ár-
angurs. Boris fyllir það tóm.“ n
Baldur Eiríksson
baldure@dv.is
Móðir og barn Þegar þessi mynd var tekin lék allt í lyndi. Svo hefur ekki alltaf verið; þrisvar
hefur Boris ráðist á „móður“ sína.
Sterkt varðeðli
Bullmastiff eru stórir hundar. Rakkar
geta orðið 70 sentimetra háir og 60
kíló. Þeir eru iðulega húsbóndahollir
og rólegir, en hafa sterkt varðeðli. Þeir
eiga það til að ráðast að fólki, telji þeir
húsbónda sínum eða afkvæmum ógnað.
Ör Boris er
bitvargur.
„Bitin
voru
mér að kenna
Situr þú uppi með húsfélagið?
Eignaumsjón sér um innheimtu og bókhald
húsfélagsins, sækir um endurgreiðslu virðisaukaskatts
og veitir ráðgjöf þegar vafa- og deilumál koma upp
í húsfélögum. Oft getur skipt sköpum að hafa hlut-
lausan aðila sem engra hagsmuna hefur að gæta. Það
stuðlar að betri og hreinskiptnari samskiptum íbúa.
Við sjáum um húsfélagið þitt.
»
www.eignaumsjon.is
Ör Boris er
bitvargur.
Sterkt varðeðli
Bullmastiff eru stórir hundar. Rakkar
geta orðið 70 sentimetra háir og 60
kíló. Þeir eru iðulega húsbóndahollir
og rólegir, en hafa sterkt varðeðli. Þeir
eiga það til að ráðast að fólki, telji þeir
húsbónda sínum eða afkvæmum ógnað.