Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Qupperneq 25
Umræða 25Helgarblað 7.–10. febrúar 2014 Spurningin Hvernig leggst kennaraverkfall í þig? E inhverju sinni sagði ég frá því í einni af barnabókum mínum, að drengir veltu fyrir sér þjóð- erni. Og þá mun hnokki nokk- ur hafa látið þau orð falla, að tiltekinn náungi væri að öllum líkindum 70% Íslendingur, þótt hann segðist sjálfur vera Kani, þar eð hann væri búinn að lifa á íslensku vatni í áraraðir. Reyndar má ábyggilega fullyrða að vatnið, sem slíkt, spyrji ekki að landamærum. Ský fara sína leið – óháð deilum, samböndum, banda- lögum; tollgæslu og vopnaleit. Vatn- ið fer sína leið og sú staðreynd situr eftir, að mannslíkaminn er u.þ.b. 70% vatn, og það sem meira er: vatn hef- ur merkilegan töframátt – það hefur minni; eiginleika sem við getum komið auga á með því að taka mynd- ir af kristöllum þess. Á netinu má finna umfjöllun um kristalla og ljósmyndir sem teknar hafa verið af kristöllum vatns, þar sem hið ljósmyndaða vatn er í ým- iss konar ástandi. Um getur verið að ræða vatn sem hefur verið sérstak- lega blessað … og þá verða myndir kristallanna fallegar. Eða vatnið getur verið frá vondum stað og þá verður útkoman ekki neitt sérstaklega falleg. Ég kann á þessum kristallamynd- um þá skýringu eina, að um sé að ræða birtingarmyndir jákvæðni og svo birtingarmyndir neikvæðni. Ef við erum jákvæð þá líður okkur vel og ef við erum neikvæð þá líður okk- ur illa. Þetta er, einsog við Íslendingar segjum: beisikklí, kommonsens. Ef við erum 70% jákvætt vatn þá erum við jákvæð. Auðvitað get ég verið viss um að ykkur þyki þetta ekkert merkilegt. (En ég leyfi mér ekkert slíkt, vegna þess að ég er jákvæður). Ég geri ekki nokkra kröfu um að orðum mínum verði trúað. En mig langar einungis að gauka þessu að ykkur í formi hug- leiðingar. Mig langar að hugleiða það hér og nú, hvort verið geti að okkar bíði betri heimur ef við gef- um hugsun okkar lausan taum gagn- vart öllu sem jákvætt getur talist. Og þegar þetta er hugleitt, er nærtækt að spyrja: -Getur verið að fögur hugsun – ein og sér – geti læknað? Þið þurfið ekki að leita lengi áður en umfjöllun um kristalla birtist á skjánum. Netið er svo yndislega já- kvætt þegar við þurfum að finna já- kvæða strauma. Og ef okkur langar virkilega að horfa frá græðgi, grimmd og neikvæðni, getum við með nán- ast engri fyrirhöfn gert okkur lífið létt. Ég held að nægjusemi og ein- lægni séu hugtök sem farið geti létt með að fylgja okkur fyrstu skrefin. Og ég held einnig að tenging við núið sé eitt af þeim tækjum sem við verðum að stóla á. Að fara ekki fram úr sér og vera ekki heldur í stöðugri baráttu við fortíðina, hlýtur að vera æskilegt fyrir þann sem vill finna jákvæða hugsun í núinu. Kannski læt ég þetta hljóma einsog þetta sé alveg skelfilega ein- falt. Og ef mér tekst að láta þetta hljóma þannig, þá hef ég náð að hitta á rétta tóninn. Þetta er nefnilega al- veg skelfilega einfalt. Það eins sem þú þarft að gera, yndislegi lesandi, er að leyfa þér að finna eitthvað já- kvætt, trúa því virkilega að jákvæðni sé af hinu góða og vera viss um að þér muni líða betur. n Innra með mér á ég trú sem öllu fær að bifa; í hjarta mínu hér og nú hlýt ég vel að lifa. Við erum vatn Kristján Hreinsson Skáldið skrifar Myndin Vér mótmælum... Baráttuandinn skein úr augum framhaldsskólanema á Austurvelli á fimmtudag. Þar voru nemendur samankomnir til að sýna kennurum stuðning í baráttu þeirra fyrir bættum kjörum. Mynd Sigtryggur Ari Á rangur Samfylkingarinnar í borgarstjórnarkosningun- um í vor mun byggja á far- sælu meirihlutasamstarfi við Besta flokkinn og áherslu á klassísk gildi jafnaðarmanna. Ákvarðanir sem teknar eru í borg- arstjórn snerta daglegt líf fólks með margvíslegum hætti og stærstu ver- kefnin sem borgin stendur frammi fyrir á næsta kjörtímabili eru mál- efni barnafjölskyldna og þeirra sem eiga í vandræðum vegna neyðará- stands á húsnæðismarkaði. Eitt stærsta velferðarmálið Uppsprengt leiguverð og hátt hús- næðisverð í sögulega samhengi miðað við tekjur og skerta lána- möguleika bitnar verst á ungu fólki og þeim sem misstu allan eignarhlut sinn í íbúðum í hruninu. Til að ná jafnvægi á húsnæðismarkaði þarf uppbyggingu almenns leigumark- aðar sem verður valkostur fyrir alla. Þar hefur Reykjavík tekið forystu og leggja þarf alla áherslu á að þau áform hennar nái fram að ganga. Skólakerfi á krossgötum Mikil umræða hefur verið um skólamál undanfarna mánuði, sem er gott, en umræðan þarf að rista dýpra því það má ekki bara ræða skipulag skólahalds og laun kennara þegar kosningar eru hand- an við hornið eða í miðjum niður- skurði. Menntakerfið stendur á krossgötum. Reykjavík á að gegna lykilhlutverki í umfangsmiklu sam- starfi ríkis, sveitarfélaga, skóla, fjölskyldna og aðila vinnumark- aðarins um að móta heildstæðar tillögur sem kveða á um umbætur á menntakerfinu. Þá er brýnt að brúa bilið milli fæðingarorlofs og dagvistunarúr- ræða borgarinnar. Það skapar ungu fólki sem er að fóta sig á vinnu- markaði eða að feta menntaveg- inn mikil vandræði. Byrðarnar sem því fylgja lenda þyngst á konum og þeim sem eru efnaminni. Borgin á því að færa almenn dagvistunarúr- ræði neðar í aldri. Jafnaðarstefnan höfð að leiðarljósi Samfylkingin á að sækja fram, full sjálfsöryggis og full bjartsýni, með áherslu á klassísk gildi jafnaðar- manna, og tala fyrir umbótum í skólamálum og meiri velferð. Þannig nær Samfylkingin vopnum sínum á ný og endurheimtir fylgi sitt meðal ungs fólks og annarra borgarbúa. Magnús Már Guðmundsson, framhaldsskólakennari, sækist eftir 4.–5. sæti í flokksvali Samfylkingar- innar í Reykjavík sem fram fer 7.–8. febrúar. n Erindi Samfylkingarinnar í borgarstjórn Magnús Már guðmundsson frambjóðandi í flokksvali Samfylk- ingarinnar í Reykjavík Kjallari Ég þurfti að skjótast heim og gefa brjóst ragnhildur Steinunn Jónsdóttir hefur í mörg horn að líta. – DV Pólverjar vinna ekki bara í fiski Alicja Wiktoria berst fyrir bættri ímynd Pólverja á Íslandi. – DV Ég er bara drulluhræddur um líf þeirra unnsteinn Jóhannsson óttast um líf samkynhneigðra vina sinna í Rússlandi. – DV „Mér líst bara frekar illa á þetta.“ Jón Atli Guðlaugsson 16 ára nemi „Mjög illa af því að ég vil klára önnina og ekki falla í sumar.“ Halldór Dagur Jósefsson 16 ára nemi „Það væri bæði gott og ekki. Fínt að fá frí en mig langar ekki að tapa önninni.“ Eyþór Örn Baldursson 16 ára nemi „Það leggst illa í mig því ég vil klára önnina á réttum tíma.“ Dofri Fannar Guðnason 17 ára nemi „Það leggst mjög vel í mig. Mig langar bara í smá frí.“ Baldur Þór Haraldsson 16 ára nemi Könnun n Lífið kviknar á ný n Til þín n Þangað til ég dey n Aðeins ætluð þér n Enga fordóma Hvaða lag finnst þér best í seinni umferð Söngvakeppninnar? 3,6% 33,2% 31% 27,1% 5,1%
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.