Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Síða 27
Helgarblað 7.–10. febrúar 2014 Umræða Bein lína 27
„Ég skil gremju fólks“
Oddvitinn viðraði nýstárlegar hugmyndir í samgöngumálum og talaði fyrir þéttingu byggðar á Beinni línu
Gunnar Sigurjónsson Hvað
finnst þér að þurfi að bæta í
grunnskólakerfinu okkar?
Halldór Halldórsson Það þarf að
nýta kosti gömlu bókunar fimm
(2.1.6.3) í öllum skólum. Norð
lingaskóli o.fl. nota þetta kerfi og
gefst vel. Þetta er opnara kerfi sem
býður upp á fleiri möguleika. Og við
þurfum að vinna saman að þessu,
sveitarfélög og kennarar.
Ingi Hauksson Munt þú beita
þér fyrir því að borga niður
skuldir borgarinnar og draga úr
útgjöldum ef þú kemst í stjórn?
Halldór Halldórsson Já, ekki
spurning. Það er lykillinn að því
að geta bætt skilyrði borgarbúa.
Borgin er mjög skuldsett A og B
hluti til samans. Þriðja skuld
settasta sveitarfélag landsins árið
2012.
Jóhann Páll Jóhannsson Ertu
uggandi yfir stöðu kristinnar
trúar í grunnskólum
Reykjavíkur?
Halldór Halldórsson Nei, ég er það
ekki. Ég tel stjórnarskrána tryggja
okkur trúfrelsi. Það á að vera for
eldranna að ákveða hverju er haldið
að börnunum og hverju ekki. Annars
er ákvæði um kristna arfleifð í
núgildandi grunnskólalögum.
Inga Auðbjörg Viltu heimila
byggingu á mosku í Reykjavík?
Halldór Halldórsson
Ég er hlynntur því í samræmi við
trúfrelsi og frjálslynda stefnu
Sjálfstæðisflokksins að heimila
þeim trúfélögum sem vilja byggja
sér aðstöðu að gera svo. Svo er það
útfærsluatriði í skipulagi hvar slíkar
byggingar skulu vera.
Natan Kolbeinsson Hvað áttir
þú við þegar þú sagðir að tími
samræðustjórnmála væri
liðinn?
Halldór Halldórsson Ég sagði líka
að í mínum huga hefðu stjórnmál
alltaf verið umræðustjórnmál. Það
sem ég átti við var að ef samræðu
stjórnmál þýddu að ég ætti ekki að
viðra mínar pólitísku skoðanir þá
væri ég ekki samræðustjórnmála
maður. Mér finnst þurfa að gera
meira af því að ræða um pólitík og
stefnur, hvort sem við tölum um
samræðustjórnmál eða ekki. Það
þarf að vera ljóst fyrir hvaða stefnur
pólitísk öfl standa svo kjósendur
hafi raunverulegt val.
Reynir Traustason Ertu
eindregið hlynntur aðild að
Evrópusambandinu?
Halldór Halldórsson Ég hef
alltaf verið hlynntur viðræðum
við ESB og að þeim yrði lokið með
þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar tek
ég svo afstöðu eins og aðrir. Áskil
mér rétt til þess og treysti mér og
Íslendingum almennt í það. Tel að
sjávarútvegurinn ráði úrslitum og
það myndi standa í mér að segja já
við inngöngu vegna þess.
Höskuldur Sæmundsson Jón
Gnarr hefur verið ötull
talsmaður mannréttinda og
málsvari minnihlutahópa og kúgaðra
um allan heim bæði í orði og á borði
undanfarin fjögur ár. Ef þú verður
borgarstjóri munt þú fylgja hans
fordæmi? Sæir þú fyrir þér að þú myndir
skrifa bréf til borgarstjóra Sotsjí og
Pútíns og mótmæla mannréttindabrot
um?
Halldór Halldórsson Sæll Hös
kuldur. Já, hann hefur staðið sig
vel í þessu hann Jón Gnarr. Ég styð
hann í þessum málum og myndi
vilja bæta mér í slíkum málum og
mótmæla mannréttindabrotum.
Tel okkur Íslendinga í einstaklega
góðri aðstöðu til slíks. En munum
líka eftir okkar þegnum því þar má
líka bæta.
Árný Jóhannesdóttir Hver
finnst þér vera réttlát laun
grunnskólakennara með 5 ára
háskólamenntun að baki?
Halldór Halldórsson Mér finnst við
þurfa að skapa „winwin“ aðstæður
til að geta hækkað laun. Stækka
kökuna og skipta henni. Það er
eðlilegt að sambærilegar stéttir
hafi sambærileg laun. Treysti mér
ekki til þess að nefna ákveðna tölu.
Sverrir Bollason Nú er
loftmengun, svifryk og önnur
útblástursefni, ein helsta
ógnin sem steðjar að heilsu borgarbúa.
Hvað leggur þú til að gert verði til að
verja heilsu íbúanna fyrir þessari
hættu?
Halldór Halldórsson Það þarf
að nota varanlegri slitlagsefni og
malbika þykkari lög annars spænist
þetta meira upp. Bílaflotinn er
orðinn of gamall. Endurnýjun þýðir
minni mengun vegna tæknifram
fara. Svo vil ég taka upp „citycars“
sem eru rafmagnsbílar hér og þar
um borgina sem maður getur leigt í
2–3 klst. og lengur. Pantað t.d. með
appi og á netinu.
Jökull Auðunsson Er það rétt
að þú sért ennþá formaður
Sambands íslenskra
sveitarfélaga sem varabæjarfulltrúi á
Ísafirði, en sért með lögheimili í
Reykjavík? Þiggur þú ennþá laun frá
Sambandi íslenskra sveitarfélaga? Ef
svo er, finnst þér það eðlilegt?
Halldór Halldórsson Ég er for
maður stjórnar sambandsins, það
er rétt. Ég fór þá leið varðandi þessi
mál sem mælt er fyrir um í lögum.
Mér finnst rétt að fólk geti skipt um
sveitarfélag og tel að lögin geri ráð
fyrir því.
Kristin Jonsdottir Ertu
fylgjandi því að að fjölga
mislægum gatnamótum í
Reykjavík?
Halldór Halldórsson Ég vil nálgast
þetta út frá umferðaröryggi. Ef
við neyðumst til að byggja mislæg
gatnamót til að bæta umferðar
öryggi þá gerum við það. Ég er
hins vegar ekki hrifinn af slíkum
mannvirkjum þar sem þau hafa
oft slæm áhrif á borgarlandslagið.
Svo vil ég skoða aðrar hugmyndir
sem bæta flæði umferðar eins og
t.d. samtengingu Reykjavíkur og
Álftaness. En setjum öryggismálin
ávallt í forgang.
Pétur Jónsson Ertu hlynntur
einkavæðingu í orkugeiranum?
Munt þú mæla með slíku, eða
munt þú setja það í samþykktir að það
sé bannað að selja Orkuveitu
Reykjavíkur?
Halldór Halldórsson Ég tel að
þjónustufyrirtæki sem á að veita
rafmagni og vatni sem ódýrast
fyrir borgarbúa eigi að vera í eigu
þeirra. Mér finnst rétt að aðskilja
samkeppnisrekstur þar sem
Orkuveitan er að selja rafmagn til
stóriðju frá þjónustuhlutanum.
Inga Auðbjörg Flokkar þú sorp
heima hjá þér?
Halldór Halldórsson Já,
ég geri það. Hef flokkað sorp á mínu
heimili mjög lengi. Lífrænan úrgang
í sérstaka tunnu.
Rögnvaldur Helgason
Hvernig sérðu uppbyggingu
Reykjavíkurborgar fyrir þér?
Ertu hlynntur uppbyggingu miðsvæðis,
þannig að íbúar búi þéttar og þurfi
minna á einkabíl að halda?
Halldór Halldórsson Ég er
almennt mjög mikill áhugamaður
um þéttingu byggðar. Vil að fólk
hafi val um hvar það býr. Það hefur
átt sér stað töluvert mikil þétting
byggðar á undanförnum árum bæði
hjá núverandi meirihluta og líka
þegar Sjálfstæðisflokkurinn hefur
verið í meirihluta.
Viktor Valgarðsson Hver er
skoðun þín á hugmyndum um
léttlest innan um höfuð
borgarsvæðið annars vegar og til
Keflavíkur hins vegar?
Halldór Halldórsson Ég við horfa
á höfuðborgarsvæðið í heild í um
ferðarmálum. Hef séð hugmyndir
sem tengjast léttlest. Finnst rétt að
skoða þær alvarlega. Veit að þetta
er gert í borgum af sambærilegri
stærð. Óttast að þetta verði of dýrt.
Rósanna Andrésdóttir
Treysta kjósendur Sjálfstæðis
flokksins konum ekki til
forystustarfa í borgarstjórnarflokknum
eða ertu með aðra skýringu á afhroði
kvenna í prófkjörinu sem haldið var um
daginn?
Halldór Halldórsson Jú, kjósendur
treysta konum til forystustarfa.
Oddviti Sjálfstæðisflokksins í
borginni á undan mér er kona. Ég
tel að áherslur í skipulagsmálum og
varðandi flugvöll eða ekki flugvöll í
borginni hafi haft áhrif á röðunina.
Við erum með jafna kynjaskiptingu
á listanum í heild. Sterkar konur
og sterka karla á öllum aldri. Til að
bæta við Rósanna þá hef ég meira
unnið með konum en körlum innan
Sjálfstæðisflokksins. T.d. þegar ég
byrjaði sem bæjar stjóri Ísafjarðar
bæjar voru konur í efstu þremur
sætum flokksins þar.
Karl Sigurðsson Sæll Halldór.
Þegar þú segist vilja „taka upp“
„citycars“leigu, ertu þá að
meina að Reykjavíkurborg setji slíkt á
laggirnar?
Halldór Halldórsson Reykjavíkur
borg eða einkaaðilar. Hugsanlega
gæti borgin byrjað með verkefnið.
Leiga fyrir bílana á að greiða kostn
aðinn og þess vegna kann þetta að
vera ,,bisness“ fyrir einkaaðila. En
það þarf mikið og gott samstarf.
Kostirnir við þetta eru óteljandi.
Minni fjárfesting þeirra sem ekki
þurfa oft að nota bíl. Minni meng
un, minni notkun bílastæða o.fl.
Guðrún Jónsdóttir Hvað á að
gera varðandi húsnæðismark
aðinn; þykir þér eðlilegt að allir
kaupi sér íbúð eða viltu sterkari
leigumarkað? – ef já, þá hvernig?
Halldór Halldórsson Ég vil að
fólk hafi val Guðrún. Mér finnst
ekkert hafa gerst í þessum málum á
kjörtímabilinu. Bara talað og ekkert
framkvæmt af hálfu borgarinnar.
Ég vil sjá vaxtabætur þeirra sem
kaupa og húsaleigubætur þeirra
sem leigja renna saman í húsnæðis
bætur. Og ég vil leiðir sem lækka
lóðaverð (sem er orðið alltof hátt
m.a. vegna lóðaskortsstefnu í
Reykjavík) til að lækka kaupverð
og leiguverð. Þetta er eitt af stóru
verkefnunum í Reykjavík.
Sigurður Sigurðsson
Reykjavík, Seltjarnarnes,
Kópavogur, Garðabær,
Hafnarfjörður og Mosfellsbær. Halldór,
telur þú það kost eða galla að það séu
enn svo mörg sveitarfélög í
höfuðborgarsvæðinu? Væri ekki
skynsamlegra að fækka þeim frekar?
Halldór Halldórsson Mér finnst
að sveitarfélögin á höfuðborgar
svæðinu þurfi að vinna enn þéttar
saman. Mér sýnist það vera að
batna. Ég tel stærð sveitarfélaga
á þessu svæði ekki endilega kalla
á sameiningu. Miklu mikilvægara
að sveitarfélög úti um landið nái
að stækka. Það þýðir fleiri verkefni
til sveitarstjórnarstigsins. Ég vil að
íbúar ráði þessu svo endanlega, það
er lýðræðið.
Erla Gunnarsdóttir Hver er
þín skoðun á þéttingu byggðar
í Reykjavík? Styður þú
núverandi valkost Aðalskipulags að
þétta aðallega í kringum miðbæinn eða
viltu jafnari þéttingu í allri borginni?
Halldór Halldórsson Ég vil jafnari
þéttingu Erla. Þétting í úthverfum
er líka þétting byggðar. Það eru
ákveðin svæði í miðborginni eða við
hana sem ég hef áhyggjur af. T.d.
á hafnarsvæðinu. En eins og fyrr
þá vil ég að fólk hafi raunverulegt
val í þessum málum. Ef við tölum
um ódýrt húsnæði fyrir ungt fólk
sérstaklega sé ég það ekki verða á
þessum þéttingarreitum í miðbæn
um.
Kort Sævar Ásgeirsson Hvað
finnst þér um flugvöllinn?
Halldór Halldórsson Mér
finnst flugvöllurinn og flugvallar
svæðið úr sér gengið og frekar sóða
legt. Flugbrautirnar eru reyndar
endurnýjaðar en margt hefur fengið
að drabbast niður vegna endalausr
ar biðstöðu. Fara eða vera, fara eða
vera. Höfuðborgin þarf flugvöll til
að geta sinnt sínum skyldum og
tryggt aðgengi í almenningssam
göngum. Ef Rögnunefndin finnur
annað flugvallarstæði í eða við
borgina þá er það gott. Ef ekki þá
erum við með flugvöll sem þarf
að bæta, gera snyrtilegri, byggja
upp og hætta þessari endalausu
biðstöðu.
Elliði Vignisson Sæll Halldór.
Telur þú að það sé gjá á milli
borgarinnar og landsbyggð
anna? Ef svo hvers vegna telur þú svo
vera og hvert sérð þú hlutverk
borgarstjóra/leiðtoga borgarinnar?
Gangi þér vel í því sem fram undan er.
Halldór Halldórsson Sæll Elliði.
Þakka þér fyrir. Nei, ekki gjá en
stundum er eins og við skiljum ekki
þarfir hvors annars. Það á við á
báða bóga. Ég talaði fyrir því fyrir
rúmum 10 árum að Reykjavík ætti
að taka þátt í mótun byggðaáætl
unar. Við þurfum á hvoru öðru að
halda. Ég tel hlutverk leiðtoga/
borgarstjóra að vera meðvitaður
um hlutverk höfuðborgar og rækja
það. Þannig græða allir, ekki síst
borgarbúar sem njóta þess að hafa
flestallar sameiginlegar stofnanir
sem skapa tekjur og störf í borginni.
Guðrún Jónsdóttir Ef þú ættir
að velja af eftirtöldu hvert yrði
þá kosningamálið í vor: 1.
húsnæðismál 2. grunn og leikskólar 3.
samgöngur innan borgarinnar?
Halldór Halldórsson Þetta eru
allt risastór mál Guðrún. Það sem
þarf að bregðast strax við eru
húsnæðismálin og skólamálin.
Samgöngumálin taka lengri tíma
þegar einhverju þarf að breyta þar.
Ég segi bráðavandinn er húsnæðis
mál. Þar þarf strax að taka til
hendinni. Samhliða skólamálin og
svo samgöngumálin.
Óttarr Guðlaugsson Hver er
afstaða þín til samnings um
almannasamgöngur sem
Reykjavíkurborg gerði við ríkið sem gerir
það að verkum að hér í höfuðborginni
ríki nánast framkvæmdastopp á
vegasamgöngur til 10 ára?
Halldór Halldórsson Mér finnst
sá samningur afleitur fyrir borgina
og vil að þetta verði endurskoðað.
Það er ekki hægt að vera með fram
kvæmdastopp í 10 ár. Aðalskipulag
ið gerir ráð fyrir mikilli fjölgun íbúa.
Kári Emil Helgason Þú komst
eins og þruma úr heiðskíru lofti
inn í borgarpólitíkina og á
sama tíma hurfu uppáhalds sjálfstæðis
mennirnir mínir frá, mörgum að óvörum.
Hverjum ertu að sofa hjá?
Halldór Halldórsson Það er
vont að heyra að uppáhalds
sjálfstæðismennirnir þínir hafi
horfið. Einn var reyndar hættur
áður en ég kom, kannski var hann
í þessum hópi sem þú talar um. Ég
tilheyri engum ákveðnum hópum
innan Sjálfstæðisflokksins (geri ráð
fyrir að þú sért að spyrja um það).
Hef vonandi alla burði til að verða
uppáhalds hjá þér. A.m.k. ef þú vilt
ræða hugmyndafræði og aðhyllist
frjálslynda og umbótasinnaða
stefnu.
Sigrún Skaftadóttir Halldór,
ertu femínisti?
Halldór Halldórsson Sig
rún. Ég tel að mamma hafi stuðlað
að því í uppeldinu að við systkinin
erum algjörlega með það á hreinu
að kynin eiga að hafa jöfn tækifæri
og aðgang að þeim tækifærum.
Ég þoli ekki launamun kynjanna.
Ég þoli ekki karlrembuumræðu
þar sem gert er grín að konum. Ég
þoli ekki misrétti kynjanna. Ef það
er að vera femínisti þá er ég það
væntanlega.
Inga Auðbjörg Á að skjóta
mávana á Tjörninni?
Halldór Halldórsson Það
þarf að halda þeim frá Tjörninni
hvernig sem það er gert.
Ástasigrún Magnúsdóttir
Ertu fylgjandi því að innleiða af
krafti NPA (notendastýrða
persónulega aðstoð) fyrir þá sem þess
óska frá borginni?
Halldór Halldórsson Ég er mjög
hrifinn af NPA og átti þátt í því að
semja um tilraunverkefnið sem
sveitarfélögin tóku að sér. Ríkið
setti mjög lítinn pening í það þrátt
fyrir stór orð þingmanna. Þau ger
ast nefnilega sek um það stundum
á þinginu að tala um mikilvægi
góðrar þjónustu eftir að hún er
komin til sveitarfélaganna en tala
kannski ekki um hana þegar hún
er hjá þeim sjálfum. Ég vil sjá ríkið
standa við stóru orðin og semja
við sveitarfélögin um fjármögnun
NPA. Þá er hægt að verða við fleiri
þjónustubeiðnum.
Natan Kolbeinsson Á
Reykjavík að slíta samstarfi við
Moskvu sem systurborg vegna
stöðu mannréttindamála í landinu?
Halldór Halldórsson Við eigum
að koma fram af fullum þunga í
mannréttindamálum. Ég þekki ekki
hvernig þessi samstarfssamningur
við Moskvu er. Hugsanlega virkar
að slíta honum. Get ekki sagt til um
það.
Ómar Jóhannesson Hvað
viltu gera í skólamálum í ljósi
útkomu reykvískra skóla í
PISAkönnuninni?
Halldór Halldórsson Ég vil horfa
á styrkleikann í skólunum. Börnum
líður vel þar á heildina litið. Mér
finnst ástæða til að auka sjálfstæði
skólanna, draga úr miðstýringu.
Birta reglulega árangur skólanna
svo við höfum samanburð. Nýta
viðurkenndar aðferðir í lestrar
kennslu (sem Hermundur prófessor
í Noregi hefur verið að benda á) og
bæta hana sem um munar. Fara í
stórt átak í lestrarkennslu. Virkja
foreldra betur og minna þá á stórt
hlutverk þeirra í að halda lestri
að börnum sínum. Færa meira af
heimanámi inn í skólana sjálfa.
Reynir Torfa Á StórReykja
víkursvæðinu búa tveir þriðju
landsmanna, telur þú það vera
vandamál eða kost?
Halldór Halldórsson Sæll Reynir.
Það virðist vera sama þróun og í
öðrum löndum. Það eru meira að
segja til yfirgefnir bæir á Taívan, því
þéttbýla landi. Ég tel of öra þróun í
þessa átt ekki vera kost. Við þurfum
sterka byggð um allt land og sterka
höfuðborg.
Hreiðar Hermannsson Hvar
sérð þú helstu tækifærin í að
bæta fjárhagslegan rekstur
borgarinnar?
Halldór Halldórsson Þau eru víða.
Á þessu kjörtímabili hefur A hluti
verið rekinn með halla. Á síðasta
kjörtímabili var það ekki. Það þarf
að reka án halla. Það þarf að taka
þá rekstrarþætti sem skera sig úr
landsmeðaltalinu og endurskoða
þá. Án þess að nefna ákveðna
þætti þá er auðséð að víða er borgin
yfir landsmeðaltali í rekstri sem
er ótrúlegt því borgin er svoleiðis
langsamlega stærsta sveitarfé
lagið og ætti því að njóta mikillar
stærðarhagkvæmni.
Erla Gunnarsdóttir Nú eru
margir Sjálfstæðismenn sem
leggja blint samasemmerki
milli einkabílsins og frelsis í stað þess
að gera sér grein fyrir því að það er mun
meira frelsi að hver einstaklingur geti
valið þann ferðamáta sem hentar
honum best. Hvernig finnst þér við vera
að standa okkur í almenningssamgöng
um í borginni og hvað getum við gert til
að gera almenningssamgöngur að
fýsilegri kosti fyrir fleiri?
Halldór Halldórsson Ég veit
ekki Erla hvort þetta er bundið
við sjálfstæðismenn. Ég skil
reyndar gremju fólks sem þarf á
fjölskyldubílnum að halda og getur
ekki verið án hans. Það þarf að
komast í vinnu, skutla börnum á
æfingar o.s.frv. Allt sem við getum
gert til að skapa meira valfrelsi,
t.d. í almenningssamgöngum,
„citycars“, göngu og hjólastígum
(þar sem Sjálfstæðisflokkurinn var í
fararbroddi) skapar aukið vægi fyrir
fjölskyldubílinn. Það dregur úr álagi
á umferðarmannvirki og vinnur líka
með þéttingu byggðar í úthverfum
borgarinnar því fólk sem velur fjöl
skyldubílinn þarf að komast á milli
með eðlilegum hætti. Aukin tíðni
er væntanlega aðferð til að gera
almenningssamgöngur að fýsilegri
kosti sem og fleiri beinar leiðir.
Nafn: Halldór Halldórsson
Aldur: 49 ára
Staða: Oddviti Sjálfstæðis
flokksins í Reykjavík
Menntun: MBA í viðskiptafræði
og MS í mannauðsstjórnun