Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Blaðsíða 37
Helgarblað 7.–10. febrúar 2014 Fólk Viðtal 29 „Ég var enginn engill“ Fór ekki í skóla Ívar segir það sitja í honum að hafa ekki gengið menntaveginn. „Ég kláraði Fellaskóla en það er eini skólinn sem ég hef farið í. Það var aldrei inni í myndinni að læra eitt- hvað. Ég vissi ekkert hvað mig lang- aði að gera og svo flugu bara árin. Ég hafði minnimáttarkennd út af þessu hér áður fyrr en ekki lengur. Ég hefði viljað hafa meiri bóklega þekkingu og ef ég hefði klárað menntaskóla hefði það opnað fleiri tækifæri en það er aldrei of seint að byrja. Fólk er að hefja nám á öllum aldri. Kannski á ég það bara eftir.“ Ívar hefur alltaf hreyft sig mik- ið og byrjaði að lyfta lóðum 22 ára. „Ég var mjög grannur að eðlisfari og þvældist í fyrsta skipti inn á líkams- ræktarstöð með Fjölni Þorgeirssyni en við spiluðum mikið saman bilj- arð þegar við vorum yngri. Ég tók lík- amsræktina svo alvarlegri tökum í kringum 1995 og hef verið að sleitu- laust síðan. Mér fannst þetta strax gaman, að læra svona á sjálfan sig og fá útrás,“ segir Ívar sem er nú hættur að keppa. „Ég hef hvergi gefið það út en já, ég er hættur. Þetta er orðið ágætt enda þarf ég ekki mikið að sanna í viðbót. Keppnin hefur mik- ið breyst. Það sem ég hef mest gam- an af, þrautakeppnin, er dottin út. Núna snýst þetta bara um að standa á sundskýlu. Spennan er því minni.“ Dóttirin í fitness Tvö elstu börn Ívars hafa fetað í hans fótspor og eru dugleg í ræktinni en dóttir hans hefur tvisvar keppt í fit- ness. Hann segist ekki hafa óttast um krakkana þegar þau ákváðu að fara að hans fordæmi. „Þótt að minn áhugi hafi minnkað eftir að þetta varð aðeins kroppasýning finnst mér þetta skemmtilegt keppni til að fylgj- ast með. Svona keppni er góð fyrir egóið og góð fyrir „showbisnessið“ þótt hún sé ekki nóg fyrir mig sem keppanda. Mér finnst ekkert að því að vera í bikiníi uppi á sviði, hvort sem það er í svona keppni eða í fegurðarkeppni. Ef fólk langar að taka þátt er það þess mál. Auðvitað eru til neikvæðir póstar í þessu eins og öðru en ef þú ert með höfuðið í lagi höndlarðu þetta en ef hugurinn fylgir ekki máli getur auð- vitað farið illa,“ segir hann og á þar við átröskun og vöðvafíkn. „Ég var ekkert efins þegar dóttir mín vildi fara þessa leið. Ég studdi hana bara áfram og hjálpaði henni að fá réttar upplýs- ingar og besta mögulega fólkið með sér. Arnar Grant fylgdi henni til að mynda í gegnum fyrsta mótið.“ Óhugnanleg steranotkun Hann segir ólöglega lyfjanotkun vissulega hafa áhrif á íþróttina. „Hér áður fyrr voru lyfjapróf í hverju lík- amsræktarmóti en nú hafa þau dottið út, því miður. Þau þóttu svo dýr. Sjálf- ur hef ég aldrei notað stera, ég hefði aldrei þorað því. Ég þyki líka ekki stór maður, bara rétt í meðallagi. Í rauninni held ég að það sé steranotkun í flestu sporti, sem er óhugnan legt, sérstaklega af því hversu margt ungt fólk er að nota þetta,“ segir hann en bætir við að hann hafi aldrei orðið vitni að stera- notkun. „Þetta er ekki það samþykkt að fólk geri þetta fyrir framan aðra. Þetta er eitthvað sem fer fram bak við lokaðar dyr. Mig hefur samt oft grun- að að þessi og hinn hafi notað ein- hver ólögleg lyf. Maður sér einkenn- in, sem eru hraður vöðvavöxtur og mikill og hraður skurður. Slíkt er vís- bending um að fólk sé að nota eitt- hvað sem ekki er hollt.“ Nauðsynlegt að hugsa um sjálfan sig Ívar starfar einnig sem einkaþjálf- ari. Hann segir algeng mistök að fólk líti á líkamsrækt sem átak. „Aðalat- riðið er að gera þetta að lífsstíl. „Aldrei dytti mér í hug að gera grín að útliti fólks
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.