Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Síða 42
34 Neytendur Helgarblað 7.–10. febrúar 2014
Ekki pakka of
miklu niður
Nokkur ráð til að komast af
með eingöngu handfarangur
Flestir hafa lent í því að skilja eitt
hvað eftir heima sem þeir vildu
gjarnan hafa með þegar farið er í
ferðalag, en fleiri hafa þó líklega
frekar ferðast með allt of mikið
sérstaklega eftir að mörg flugfé
lög fóru að rukka sérstaklega fyrir
farangur.
1 Fáðu þér litla og létta tösku Sumir kjósa helst
bakpoka eða axlartösku en það er
mikilvægt að það sé þægilegt að
bera hana. Töskur með hjól eru
vinsæl en í mörgum af eldri borg
um Evrópu gera þær lítið gagn
þar sem hellusteinar og tröppur
tefja för.
2 Skoðaðu veðurspá Þannig er auðvelt að ákveða
hverju skal pakka. Ef útlit er fyrir
sólskin er sólarvörn mikilvægari
en þykkar úlpur og peysur.
3 Föt sem passa saman Eitt pils eða einar buxur
sem hægt er að klæða bæði
upp og niður með
stuttermabol eða
hlýrabol, fínni
blússu eða skyrtu,
getur verið nóg í
nokkurra daga ferð.
4 Vertu með nóg af nærfötum Gott er að miða
við að geta ferðast í fimm daga
án þess að þvo nærföt og sokka.
Sumir ferðast með þvottaefni
í litlum skömmtum en vel má
komast af með handsápu eða
sjampó í nokkru skipti. Þrír til
fjórir alklæðnaðir er meira en
nóg í ferðalög og kemur í veg
fyrir að óhreint tau hlaðist upp.
Þau sem hafa tilhneigingu til að
versla mikið í útlöndum geta svo
minnkað farangurinn enn meir.
5 Tvö pör af skóm Mikilvægt er að skórnir séu
þægilegir að ganga í en ef annað
parið blotnar eða fer að meiða þá
er gott að geta skipt. Annað parið
þarf helst að vera nógu fínt til að
geta farið í því út að borða eða á
skemmtistaði sem
sumir hafa reglur
um skóbúnað.
Í fluginu er
þyngra parið á
fótunum til að
spara pláss.
6 Skipulegðu pökkunina Það er mikilvægt að nýta
vel plássið í töskunni, fylla upp
í allar holur og svo er sígilt ráð
að rúlla upp fötum til að minnka
krumpur.
7 Pakkaðu snyrtivörunum rétt Fljótandi snyrtivörur
eiga allar heima í sama veski og
mikilvægt er að farið sé eftir regl
um flugvalla hvað varðar stærð
umbúða og pökkun. Hægt er að
fá litlar flöskur undir sjampó og
slíkt í apótekum og smáhluta
verslunum eins og Tiger.
8 Pakkaðu skynsamlega Handáburður, sólgleraugu,
nesti, eyrnatappar, bók og annað
sem gæti þurft að grípa til á
ferðalaginu á að sjálfsögðu heima
efst í töskunni, í
utanáliggjandi
hólfum þannig
að auðvelt sé að
ná til þeirra.
F
lestir hafa þá hugmynd um
ferðalög að þau séu frábær
leið til að gera sér dagamun
og margir reyna að komast til
útlanda með reglulegu milli
bili. Með því að undirbúa sig vel og
gera fjárhagsáætlun er oft hægt að
lengja ferðina til muna eða eyða meiri
peningum í tónleika, leikhús eða aðra
þá afþreyingu sem fólk sækist eftir.
Ódýrt flug
Ýmsar leitarvélar bjóða upp á aðstoð
við að finna ódýrasta flug milli áfanga
staða. Ein þeirra er dohop.is, íslensk
leitarvél sem leitar að öllum flugleið
um á milli áfangastaða og raðar þeim
svo eftir verði. Jóhann Þórsson í mark
aðsteymi Dohop segir vélina leitast
eftir því að para saman lággjaldaflug
félögin öll. „Við reynum að sýna allt
þannig að neytandinn fái alltaf besta
dílinn og reynum að vera eins ítarleg
og við getum,“ segir hann. Fólk þarf
svo sjálft að bóka flugmiða á heima
síðum flugfélaganna. Fyrirtækið fær
greidda þóknun frá flugfélögunum
fyrir að vísa viðskiptavinum á þau en
þó birtir það niðurstöður frá flugfélög
um á flugleiðum án þess að hafa slík
an samning við flugfélögin. „Til dæm
is birtum við niðurstöður frá Ryan Air
þó þeir borgi okkur ekkert og við þurf
um að greiða 100 pund á ári í góð
gerðafélag til að fá að sýna verðið frá
þeim,“ segir Jóhann.
Leitarvélin ekki biluð
„Fólk hefur hringt hingað til að láta
mig vita að eitthvað sé bilað því verðið
sé svo lágt. Þetta á sérstaklega við um
fólk sem er að fljúga þangað sem ekki
er flogið beint frá Íslandi. Við erum
oft miklu ódýrari en aðrir því við pör
um saman lággjaldaflugfélögin,“ seg
ir hann. „Þú þarft á móti kannski að
sækja töskuna þína og skrá þig inn
aftur á flugvellinum þar sem þú milli
lendir en það er kannski allt í lagi ef þú
ert að spara tugi þúsunda.“
Lesa smáa letrið
Þegar flug er bókað með lággjalda
flugfélögum er mikilvægt að lesa alla
skilmála vel. Mörg flugfélög rukka sér
staklega fyrir farangur og það kostar
oftast mun meira við innritun á flug
vellinum. Það er vel þess virði að
reyna að skera niður farangur því
næstum alltaf er hægt að ferðast með
10 kílóa handfarangurstösku.
Eins er mikilvægt að vera vakandi
fyrir því hvort flugfélögin vilji að fólk
innriti sig fyrirfram í flugið en annars
getur fólk þurft að greiða sérstaklega
fyrir innritun, og oft háar fjárhæðir.
Mörg fyrirtæki rukka sérstaklega
fyrir að fá að velja sér sæti en ef fólk
mætir ekki allt of seint á flugvöllinn
er yfirleitt hægt að fá sæti með ferða
félögum sínum. Ef ekki má alltaf
kynnast nýju fólki eða bara lesa góða
bók. Þá eru flugvallarskattar ekki
alltaf innifaldir í verðinu og mörg
flugfélög rukka sérstaklega fyrir far
þegatryggingu eða möguleikann á að
breyta miðanum.
Best að eiga vini
Ódýrasta leiðin til að gista í útlönd
um er að heimsækja vini sína eða ætt
ingja og fá að gista hjá þeim. Það er
þó ekki alltaf mögulegt en ferðasam
félagið Couchsurfing tengir saman
ferðalanga alls staðar að úr heiminum
og þá sem eiga aukaherbergi. Fólk býr
til eigin síðu, svipaða og á Facebook,
þar sem það lýsir lífsviðhorfum sín
um og áhugamálum. Couchsurfing er
ekki aðallega hugsað sem sparnaðar
tæki heldur leið til að kynnast heima
mönnum og eignast vini um allan
heim.
Ef Couchsurfing er of ævintýralegt
er önnur leið að greiða fyrir gistingu
á einkaheimilum til dæmis gegnum
síður eins og Airbnb. Þannig er oft
hægt að fá ódýra gistingu á góðum
stað og hafa jafnframt samskipti við
heimamenn. Á airbnb.com er einnig
hægt að leigja íbúðir, einbýlishús eða
sumarbústaði.
Margir hafa góða reynslu af heim
ilaskiptum en kosturinn við þau er að
oft fylgir bíll með í kaupunum og fólk
sleppur því bæði við gistikostnað og
að greiða fyrir bílaleigubíl. Nokkrar
heimasíður bjóða upp á þessa
þjónustu, þeirra á meðal intervac
homeexchange.com.
Tjaldsvæði oft miðsvæðis
Þá má ekki gleyma því að í flestum
borgum og bæjum eru tjaldsvæði
mjög vel tengd miðborginni þannig
að ef fólk hefur ekki á móti því að gista
í tjöldum getur það verið mjög ódýr og
góður kostur. Gisting í tjaldi getur ver
ið bæði ódýrari og boðið upp á meira
næði en gisting á farfuglaheimilum.
Tjaldsvæði eru flokkuð eftir stjörnu
kerfi, líkt og hótel, eftir því hversu
mikla þjónustu er boðið upp á á þeim,
sums staðar þarf ekki einu sinni að
koma með tjald.
Lesa smáa letrið á hótelsíðum
Vilji fólk hins vegar gista á hótelum
eru nokkrar leiðir til að finna ódýra
gistingu. Þannig býður dohop.com
upp á leit að hótelgistingu á lágu verði,
eins heimasíðan lastminute.com og
hotels.com. Um bókanir á ódýrum
hótelum gegnum slíkar heimasíður
gildir það sama og um flugið, það þarf
að lesa vel bókunarskilmála.
Öll við erum samferða
Víða um lönd eru starfræktar heima
síður eins og samferða.is sem tengja
þá sem eru að keyra milli staða með
tóma bíla og þá sem þurfa að kom
ast ódýrt milli staða. Yfirleitt greiða
farþegar hluta eldsneytiskostnaðar.
Heimasíðan carpooling.com tengir til
dæmis um 40 lönd í Evrópu saman og
þannig er hægt að ferðast mjög ódýrt.
Ef fólk hefur nægan tíma og er að
ferðast milli borga er oft bæði ódýrt
og skemmtilegt að ferðast með lestum
eða rútum. Almenningssamgöngur
eru víðast hvar miklu betri en við eig
um að venjast og það er ótrúlega slak
andi að þurfa ekki að hugsa um um
ferðina. Yfirleitt er hægt að gera góð
kaup á lestarmiðum ef þeir eru keypt
ir fram í tímann og sömu sögu er að
segja af rútufargjöldum.
Tryggingar dýrar
Leitarvélar internetsins geta verið
mjög árangursríkar þegar leitað er að
ódýrum bílaleigubílum en áðurnefnd
Dohopheimasíða býður til dæm
is upp á leit að ódýrum tilboðum.
Þegar þau eru skoðuð er þó mikil
vægt að hafa í huga að sjaldnast eru
tryggingar með í pakkanum, þær geta
oft allt að því tvöfaldað verðið. Stund
um eru tryggingar valfrjálsar en fæst
ir eru tilbúnir að taka slíka áhættu.
Yngri bílstjórar en 25 ára þurfa gjarn
an að greiða hærra verð fyrir bílinn
og algengt er að aðeins sé innifalinn
lítill fjöldi kílómetra á dag. Þá er gott
að vinna heimavinnuna sína og vita
hvaða bensínstöðvar bjóða upp á
ódýrasta bensínið.
Í borgum má spara háar fjárhæðir
með því að nota almenningssam
göngur því fargjöld í leigubíla eru
fljót að safnast saman. Þetta á sér
staklega við ferðir til og frá flugvöll
um en stórir flugvellir eru mjög vel
tengdir miðborgum með almenn
ingssamgöngum.
Borðið ódýran mat í hádeginu
Að borða framandi mat er frábær hluti
af því að ferðast til annarra landa. Ef
fólk vill gera vel við sig í mat og drykk
er tilvalið að gera það í hádeginu því
þá er oft boðið upp á ódýrari matseðla.
Á kvöldin má svo borða nesti á torgum
eða eiga viðskipti við litla og skringi
lega götusala eða skyndibitabúllur.
Einn helsti kosturinn við að gista í
heimahúsi er að geta borðað morgun
mat heima og hellt upp á morgun
kaffi. Þá er tilvalið að smyrja nesti til
dagsins og borða það í almennings
görðum eða á torgum á meðan mann
lífið er skoðað. Það getur sparað tölu
verðar fjárhæðir miðað við að kaupa
tilbúinn mat. n
Flugfargjöld, gisting, samgöngur og matur eru stærstu útgjaldaliðirnir
Ódýrari ferðalög
Auður Alfífa Ketilsdóttir
fifa@dv.is
Sumarfrí Það er hægt
að eiga ánægjulegt
sumarfrí í útlöndum án
þess að fara á hausinn.