Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Page 60
Helgarblað 7.–10. febrúar 201452 Fólk
Þarf að hugsa um sjálfa sig
Ríkustu fata-
hönnuðirnir
1 Miuccia PradaÍtalski fatahönnuðurinn Miuccia
Prada er ríkasti fatahönnuður heims en
eiginfé hennar er metið á 12,4 milljarða
Bandaríkjadala. Prada rekur samnefnt
tískuvörufyrirtæki ásamt eiginmanni
sínum, Patrizio Bertelli.
2 Giorgio Armani
Ítalski fatahönnuð-
urinn Giorgio Armani
er einn sá farsælasti í
heimi. Armani stofnaði
samnefnt fyrirtæki árið 1975
og hefur náð gríðarlega góðum árangri
innan tískuiðnaðarins, en fyrirtæki
hans veltir 1,6 milljörðum Bandaríkja-
dala á ári og er eiginfé hans metið á 8,5
milljarða dollara.
3 Ralph Lauren
Hinn 74 ára Ralph
Lauren er meðal
þeirra ríkustu í heimi.
Þessi bandaríski
fatahönnuður er hvað
þekktastur fyrir Polo-línuna sína en
hann hefur náð góðum árangri innan
tískuheimsins og er eiginfé hans metið á
7,7 milljarða dollara.
4 Patrizio Bertelli
Patrizio Bertelli er
eiginmaður Miucciu
Prada og jafnframt
meðal ríkustu hönnuða
í heimi. Hann rekur tískuvörumerkið
Prada ásamt eiginkonu sinni og er fram-
kvæmdastjóri þess, en eiginfé Bertelli er
metið á 6,7 milljarða dollara.
5 Domenico Dolce og
Stefano
Gabbana
Ítalska tvíeykið
Domenico Dolce og
Stefano Gabbana hafa
rekið tískumerkið Dolce & Gabbana
saman síðan árið 1985. Eiginfé þeirra
beggja er metið á tvo milljarða Banda-
ríkjadala, sem raðar þeim á lista ríkustu
fatahönnuða í heimi.
topp 5
Selena Gomez í meðferð
B
andaríska söngkonan Selena
Gomez fór í laumi í meðferð
í janúar. Gomez skráði sig á
meðferðarheimilið Dawn at
the Meadows í Arizonafylki í Banda-
ríkjunum þann 5. janúar og dvaldi
þar í tvær vikur. Fjölmiðlafulltrúi
söngkonunnar segir hana hafa skráð
sig sjálfviljuga í meðferð en þó ekki
vegna áfengis- og vímuefnafíknar en
útskýrði ástæðuna þó ekki nánar. Á
vefsíðu Dawn at the Meadows stend-
ur að stofnunin sé fyrir ungmenni á
aldrinum 18 til 26 ára sem glíma við
tilfinningalegt áfall, fíkn eða tvíþætta
sjúkdómsgreiningu.
Ekki er langt síðan Gomez olli að-
dáendum sínum miklum vonbrigð-
um er hún hætti við hluta af tón-
leikaferðalagi sínu, en hætt var við
alla tónleika söngkonunnar í Ástralíu
í desember síðastliðnum. Í tilkynn-
ingu sem Gomez sendi á fjölmiðla
kom fram að hún þurfi nú að eyða
tíma í að sinna sér.
„Það er mér og mínum nánustu
ljóst að eftir að hafa sett vinnuna
í forgang í mörg ár þarf ég að
verja svolitlum tíma í sjálfa
mig til þess að geta verið ég
sjálf í minni bestu mynd,“
sagði meðal annars í tilkynn-
ingunni. n
Í meðferð Hvað amar að Selenu?
Þreytt Gomez
hefur sett vinnuna í
forgang undanfarin
ár og vill nú einbeita
sér að sjálfri sér.
Fræga fólkið
á lokaballinu
E
ins og flestir vita þá eru loka-
böll menntaskólans á meðal
hápunkta í lífi margra banda-
rískra ungmenna. Hér eru
myndir af nokkrum þekktum stjörn-
um á sínu lokaballi.
n Stjörnurnar á menntaskólaárunum
Snoop Dog
Lady Gaga
Will Farrell
Ellen DeGeneres
Brad Pitt
Jennifer AnistonDemi LovatoJessica Alba