Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Síða 62
Helgarblað 7.–10. febrúar 201454 Fólk
A
f öllu sem ég hef séð og
heyrt og hlustað á þá er
hann númer eitt,“ segir
Ólafur Páll Gunnarsson, út-
varpsmaður á Rás 2 og for-
fallinn Neil Young-aðdáandi. Líkt
og greint hefur verið frá er Young
væntanlegur til Íslands í júlí þar sem
hann mun spila á tónlistarhátíðinni
All Tomorrow‘s Parties í Laugardals-
höllinni ásamt hljómsveitinni Crazy
Horse. Óli Palli segist gríðarlega
spenntur en hann hefur séð Young
margoft áður á tónleikum og segir
tónleikagesti mega búast við góðu.
Náttúruverndarsinni
Óli Palli er einn helsti aðdáandi
Neil Young hér á landi og þótt
víðar væri leitað, en hann lítur
ekki eingöngu upp til átrúnaðar-
goðsins tónlistar lega séð.
„Hann er einstakur. Hann er
af '68 kynslóðinni og var í raun-
inni ímynd hippans á sínum tíma.
Og er það í hjartanu svolítið enn-
þá, því hann
er enn með
þær hug-
sjónir sem
hipparnir
stóðu fyrir;
náttúru-
vernd og frið
og allt þetta.
Það var
núna síðast
bara í jan-
úar, þegar
Neil fór í
tónleikaferð
um Kanada,
sem hann
tók sér
stöðu með
frumbyggj-
um í Al-
berta gegn
olíurisum heimsins,“ segir Óli.
„Svo er hann sjálfum sér sam-
kvæmur á þann hátt að hann kem-
ur sífellt á óvart og gerir bara ná-
kvæmlega það sem honum sýnist.
Og þeir sem hafa unnið með hon-
um segja að þeir séu búnir að læra
það að ef hlutirnir eru ekki gerðir
eins og hann vill, þá séu þeir bara
ekki gerðir yfirhöfuð. Hann er svo-
lítill sérvitringur.“
Átrúnaðargoð Eddie Vedder
„Mér finnst hann svo mikill fyrir-
myndarmaður. Og það segi ég án
þess að hafa nokkurn tímann hitt
hann, en ég hef lesið bækur um
hann og hlustað mikið á músíkina
hans og svo hef ég séð hann mörg-
um sinnum á tónleikum,“ segir
hann og bætir við að margir líti á
Young sem fyrirmynd.
„Það líta voða margir tónlistar-
menn upp til hans. Til dæmis
Eddie Vedder, söngvari Pearl Jam,
er einn af hans lærisveinum og
hann segir hreinlega að í raun-
inni hafi Neil Young og Bruce
Springsteen bjargað lífi hans með
því að sýna honum hvernig hægt
sé að takast á við þetta líf sem
hann lifir; hvernig er hægt að vera
rokkstjarna í dag en lifa það af og
komast út úr því sem almennileg-
ur maður.“
Rokk og ról í Höllinni
Óli Palli segir tónleikagesti mega
búast við góðri skemmtun en að
þó sé aldrei að vita hverju Young
taki upp á. Hann hafi gert kántrí-
plötu, rokkabillíplötu og plötu
sem var undir áhrifum þýsku raf-
hljómsveitarinnar Kraftwerk.
„Eitt af því sem er einkennandi
við hann er að maður veit aldrei
hvað kemur næst. Hann gerir bara
einhvern veginn það sem honum
sýnist. En það sem hann hefur
verið að gera núna undanfarið
með hljómsveitinni Crazy Horse,
þar er hann á heimavelli. Þetta er
mikið rokk og mikill hávaði, bara
„rock and roll“.“ n
Hörn Heiðarsdóttir
horn@dv.is
„Gerir það sem
honum sýnist“
n Neil Young er hippi og sérvitringur n Rokk og ról í Laugardalshöll„Eitt af því sem er
einkennandi við
hann er að maður veit
aldrei hvað kemur næst.
Náttúruverndarsinni
Young er mikill náttúru-
verndarsinni og lagði nýlega
frumbyggjum í Alberta í
Kanada lið gegn olíurisum
heimsins. MyNd REutERs
Mikill aðdáandi Óli Palli hefur margoft farið á tónleika með Neil Young. MyNd EyþóR ÁRNasoN
Eignaðist
barn 48 ára
Lýtlæknirinn Þórdís Kjartansdótt-
ir eignaðist sitt þriðja barn í nóv-
ember, 48 ára gömul. Þórdís prýðir
forsíðu nýjasta tölublaðs tímarits-
ins MAN og í viðtali í því segir hún
frá gleðinni yfir óvæntri óléttu. „Ég
er ekki frá því að það yngi mann að
eignast barn á þessum aldri og það
er næsta víst að hún mun halda
manni við efnið næstu árin. Í dag
finnst mér ég aldrei vera bundin
yfir barni heldur einungis jákvætt
að sinna þessum demanti, ég er
ekki að missa af neinu.“
5 ára ábyrgð*
* Nánar á heimasíðu
Allt að 80%
sparnaður
Best í prófun hjá SP í Svíþjóð
Fujitsu LTCN - Loft í loft varmadæla
Margra ára reynsla við íslenskar aðstæður og hundruð
ánægðra viðskiptavina segir allt sem segja þarf.
Loft í vatn
fyrir heitt vatn
og ofnakerfi
Raunverulegur sparnaður
með varmadælum
Frekari upplýsingar á www.deltalausnir.is Símar 895 0640 eða 895 6640
Jóhanna á
hækjum
Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrver-
andi forsætisráðherra, hefur haft í
nægu að snúast síðan hún yfirgaf
heim stjórnmálanna. Á dögunum
fór hún í liðskiptaaðgerð og styðst
nú við hækjur. „Margt hefur gerst
í fjölskyldunni á fyrstu vikum
ársins. Skömmu eftir fæðingu sjö-
unda barnabarnsins lést elskuleg
tengdamóðir mín, Fríða Björg
Loftsdóttir. Sjálf er ég að koma úr
löngu tímabærri liðskiptaaðgerð
og verð því að styðjast við hækjur
fram á vor,“ segir hún á sam-
skiptasíðunni Facebook og birtir
meðfylgjandi mynd af sér með.