Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2014, Síða 64
Helgarblað 7.–10. febrúar 2014
11. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is
Skapti og
Skafti?
„Nakið fólk hefur
engin áhrif“
n Sessunautarnir Þorbjörn
Þórðarson, fréttamaður á Stöð
2, og Kjartan Hreinn Njálsson
mættu fyrir tilviljun eins klæddir
í vinnuna. Þorbjörn setti mynd af
sér og Kjartani á netið, þar sem
má sjá þá í eins jakka og skrifaði
Þorbjörn við myndina að hann
„hafi verið á undan“. Þorbjörn,
sem hefur vakið mikla athygli á
sjónvarpsskjánum, vitnar í Oscar
Wilde í athugasemd við myndina
sem segir að „fötin skapi mann-
inn. Nakið fólk hefur lítil sem
engin áhrif á samfélagið.“
Keppa í
bloggskrifum
n Sagnfræðingurinn Stefán Páls
son hefur nú hafið samkeppni við
stærðfræðinginn Pawel Barto
szek í að skrifa hundrað færslna
bloggbálk. Bálkur Pawels nefnist
„Þegar ég var átta ára undir stjórn
Jaruzelskis“ meðan bálkur Stef-
áns heitir „Fótboltasaga mín“.
Segja má að rígur þeirra hafi hafist
þegar Stefán spáði því að árið 2014
myndi Pawel skrifa pistil sem byrj-
aði ekki á orðunum: „Þegar ég var
átta ára undir stjórn Jaruzelskis“.
Heldur hallar þó á
Stefán í fjölda
blogga og
ef hann
ætlar að
ná Pawel
þarf hann
að gefa í.
Stefán hefur
skrifað ellefu
af hundrað
meðan Pawel
er búinn með
tuttugu og
sex.
Íhugar pásu í
femínisma
n Hildur Lilliendahl greindi frá
því á miðvikudaginn að deilur
hennar við Frosta og Mána, um-
sjónarmenn útvarpsþáttarins
Harmageddon á X-inu 977, hafi
tekið svo á að hún íhugi að taka sér
hlé í femínisma. „Harmageddon-
mál hið síðara er svo óendanlega
og viðbjóðslega leiðinlegt að ég er
mikið að spá í að taka þennan kall í
kvöld,“ skrifar Hild-
ur og deilir tengli
á grínsíðuna On-
ion þar sem sagt
er frá konu sem
tekur sér pásu í
femínisma með-
an hún horfir á
sjónvarpsþátt.
„Ískalt og fullt af útlendingum“
Leoncie er flutt aftur til Íslands og heldur tónleika á laugardag
S
öngkonan Leoncie flutti nýverið
aftur til Íslands frá Bretlandi og
heldur hún sína fyrstu tónleika
í langan tíma næstkomandi
laugardag. Í samtali við DV lofar hún
nýju efni og leggur hún áherslu á að
tónleikagestir mæti tímalega, en tón-
leikarnir fara fram á Gamla Gauknum.
„Ég veit ekki klukkan hvað tónleikarn-
ir byrja en ég ætla að vera akkúrat á
réttum tíma. Seinast þegar ég hélt tón-
leika á Gauknum þá kom ég á réttum
tíma en var svo látin bíða í tvo klukku-
tíma. Það er ég sem er alltaf stundvís.
Núna ætla ég að spila á slaginu,“ segir
Leoncie.
Leoncie segir margt breytt síðan
hún var á Íslandi síðast. „Það eru all-
ir með jeppadellu í dag. Þetta er eitt-
hvað nýtt,“ segir poppprinsessan.
Hún segist auk þess hafa tekið eftir því
að það sé mikið meira um útlendinga
á Íslandi í dag. „Það er ískalt hérna og
fullt af útlendingum. Stundum þegar
ég fer út að versla í búðum fyrir hitt
og þetta þá skil ég ekki hvað fólk er
að segja. Þau tala ekki íslensku. Mað-
ur þarf að leita að Íslendingum sem
skilja mann,“ segir Leoncie.
Hún leggur auk þess
áherslu á það að götur
á Íslandi séu hrein-
legar í samanburði
við breskar götur
sem hún segir
vera ógeðslegar.
Leoncie segir
sömuleiðis að
íslensk hús
séu mikið
sterkbyggðari
og fallegri
en þau bresku. „Þau eru öll
byggð á leir í Bretlandi svo
þau sökkva niður. Þau
eru líka öll skökk og við-
bjóðsleg,“ segir hún í sam-
tali við blaðamann. n
hjalmar@dv.is
Poppprinsessa
Leoncie segir erfitt
að gera sig skilj-
anlega við af-
greiðslufólk
í búðum á
Íslandi.