Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 17
Helgarblað 21.–24. mars 2014 Fréttir 17 HREINT OG KLÁRT Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • Mán. - föst. kl. 09-18 • Laugardaga kl. 11-15 Þvottahús Úrvalið er hjá okkurFataskápar Sérsmíði Baðherbergi Góðar hirslur Innbyggðar uppþvottavélar Pottaskápar Allar útfærslur friform.is INNRéTTINGaR GLÆSILEGaR DaNSKaR Í ÖLL HERBERGI HEIMILISINS VIð HÖNNuM OG TEIKNuM fyRIR þIG Komdu með eða sendu okkur málin af eldhúsinu, baðinu, þvottahúsinu, anddyrinu eða svefnherberginu - og við hönnum, teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu í hæsta gæðaflokki og vönduð raftæki á vægu verði. þITT ER VaLIð Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum, eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir þá sem þess óska – fullkomin þjónusta, eigið verkstæði. fjÖLBREyTT úRVaL af HuRðuM, fRaMHLIðuM, KLÆðNINGuM OG EININGuM, GEfa þéR ENDaLauSa MÖGuLEIKa Á að SETja SaMaN þITT EIGIð RýMI. Sviðin jörð jörgenS n Viðskiptavinir saka hann um slæleg vinnubrögð n Sagður hafa reynt að selja fyrirtæki annars manns Heimasíðan hefur að auki nánast sömu slóð og ferðmálastofan Terra Nova, icelandtours.is. „Hann gæti verið búinn að selja fólki ferðir án þess að við vissum af því. Hann er klárlega að villa á sér heimildir. Það er erfitt að eiga við þetta, maður er settur í erfiða stöðu við að eiga við svona menn því þetta er náttúrlega bara glæpamennska,“ segir Bjarni Hrafn Ingólfsson, framkvæmdastjóri Terra Nova og Iceland Tours, í sam- tali við DV. Segir þetta leið til bola sér út Jörgen segist eiga húsið sem hann leigir út við Hrísateig ásamt fyrrver- andi kærustu sinni sem hefur óskað eftir nálgunarbanni á hann. Hann er þó ekki þinglýstur eigandi þess. „Hún er að reyna að ná helmingnum mínum með þessu,“ segir hann og á við nálgunarbannið. Í samtali við blaðamann vænir hann fyrrverandi kærustu sína um ýmislegt misjafnt. Jörgen viðurkennir að dæmi séu um að hann hafi leigt út íbúðir svart – þó hann segist „yfirleitt“ gera samn- ing. „Þetta er leigt út með samningi og öllu, eða já, oftast er þetta með samningi. Greiðslur er alltaf hægt að sanna, það er lagt inn á reikninginn minn. Oftast er það gefið upp með samningi.“ Vísar öllu á bug Jörgen Már segist kannast vel við mál Brynju Agnarsdóttur og Guðfinns Newman. Hann segist hafa labb- að út vegna þess að Guðfinnur hafi ekki vilja borga honum laun í reiðu- fé. „Hann elti mig niður í World Class einu sinni. Það er til á upptöku og ég kvartaði yfir því til Björns Leifssonar eiganda,“ segir Jörgen. „Ekkert mál að kæra“ Spurður um hvernig standi á því að hann hafi verið ítrekað kærður fyrir líkamsárás og þar af einu sinni verið dæmdur svarar Jörgen: „Það er ekk- ert mál að kæra og leigumarkaðurinn er mjög harður. Það er búið að vera þjófagengi þarna og það var annar þarna sem var í slagsmálum við kon- una sína. Þannig að þetta er harður bransi.“ Aðspurður hvort hann hafi leyfi fyrir því að skipuleggja ferðir segir hann að það leyfi sé á nafni fyrrnefnd- ar fyrrverandi eiginkonu. „Hún gaf mér leyfi fyrir því að nota þetta. Ég tek þetta bara niður ef ég má það ekki,“ segir hann. Samkvæmt Ferðamála- stofu hefur þess verið óskað að hann taki það niður. „Ég hef ekki séð neina beiðni.“ n Brynja og Guðfinnur Hjónin segja að Jörgen Már hafi hótað þeim ítrekað í heilsu- ræktarstöð eftir ósætti vegna parketslípunar. J örgen barði sambýliskonu sína ítrekað árið 2010, og hlaut fyrir það refsidóm árið 2012. Ákær- an á hendur honum vegna of- beldisins var í þremur liðum og varðaði þrjú tilfelli. Fyrsta árásin átti sér stað laugardaginn 11. mars fyrir utan Thorvaldsen. Þar sló hann hana í magann með þeim af- leiðingum að hún féll í götuna. Önnur árásin átti sér stað 1. maí 2010. Þá réðst hann á hana, sló hana í andlitið og reif í hár henn- ar og skellti henni í gólfið. Þriðja árásin átti sér stað fyrir utan Kaffi Loka í miðbæ Reykjavíkur þann 21. desember 2010, en þá spark- aði hann fast í rass hennar og sló hana í andlitið. Við það hlaut hún mar yfir nefhrygg og spjaldhrygg og tognun í hálsi. Fyrir brotin var hann dæmdur í hálfs árs fangelsi, en þar af eru þrír mánuðir bundn- ir skilorði til þriggja ára. Hann hef- ur ekki hafið afplánun vegna þessa dóms. Fékk nálgunarbann Fyrrverandi kærasta hans, sem hann var með eftir atburði ársins 2010, en hún fékk nálgunarbann samþykkt á Jörgen. Hún á húsið sem hann leigir út við Hrísateig, samkvæmt fasteignaskrá. Jörgen hefur brugðist við með því að níða hana opinberlega á Google+ vefsvæði sínu, þar sem hann segir hana hafa sængað hjá mörgum karlmönnum og vera einungis á höttunum eftir pening- um. Þá sakar hann hana um að ljúga til um faðerni barnsins síns. „Hún elskar pening og er alveg sama um barnið þitt. Svaf hjá mörg- um mismunandi mönnum og laug að þeim að þeir væru faðirinn, bað um pening,“ segir þar á rússnesku, en konan er rússnesk. n Barði sambýliskonu sína ítrekað Jörgen Már Guðnason á eftir að afplána dóm fyrir heimilisofbeldi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.