Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 40
Helgarblað 21.–24. mars 201440 Neytendur Jesús fullur af vori og von n Niðurstöður úr páskabjórsmökkun DV n Jesús nr. 24 er bestur en Páskagull sístur J esús er besti páskabjórinn sam- kvæmt bragðprófi DV. Í öðru sæti var sigurvegarinn frá í fyrra, Vík- ing Páskabjór. Jesús er uppseld- ur í Vínbúðum en hann er enn fáanlegur á veitinga- og öldurhúsum. Almennt þótti bjórinn frekar góð- ur og voru meðaleinkunnir um það bil tveimur heilum hærri en fyrir ári. DV fékk góðfúslega leyfi til að halda bragðkönnunina á Microbar í Austur- stræti og sá Steinn Stefánsson um að bera fram bjórinn. Bragðprófið var blint, það er, þátttakendur vissu ekki um hvaða bjór var að ræða þegar þeir smökkuðu. Allur bjórinn var kældur og borinn fram í eins glösum. Eftir að búið var að dæma alla bjórana og gefa þeim einkunn voru umbúðirnar metnar sérstaklega. Dómnefndin Dómnefndina skipuðu Egill Óskars- son leikskólakennari, Rakel Garðars- dóttir, framkvæmdastýra Vesturports, stofnandi Verðandi, samtaka gegn sóun matvæla og knattspyrnustjóri FC Ógnar, Unnur Tryggvadóttir Flóvenz háskólanemi, Ylfa Helgadóttir, yf- irkokkur á Kopar, og Ævar Örn Jós- epsson krossgátugerðarmaður. Þess var farið á leit við bjórfram- leiðendur að þeir útveguðu DV bjór til smökkunar og urðu Vífilfell, Bruggsmiðjan og Brugghús Steðja góðfúslega við þeirri bón. Eru þeim færðar þakkir fyrir. Gæðing- ur – Öl var búinn að senda frá sér allan páskabjórinn og ekki náðist í Ölgerðina þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir. DV keypti þó framleiðslu Ölgerðarinnar til að hafa með og því nær bragðprófið til allra þeirra páskabjóra sem seldir eru fyrir þessa páska. Tístandi páskaungar „Heilt yfir eru þetta bragðgóð- ir bjórar með skemmtilegan karakter og mismunandi stíl,“ segir Ylfa. Unnur tekur undir það. „Þeir voru allir góðir og enginn sem ég gæti ekki hugsað mér að drekka aftur,“ segir hún. „Þetta voru nokkuð góðir bjórar svona almennt þótt sumir séu minna afgerandi en aðrir. Þeir skera sig lítið frá jólabjóralínunni nema Jesús sem bregður skemmtilega út af línunni,“ segir Ævar og hin taka í sama streng. Almennt eru þau sammála um að þeir séu óþarflega dökkir og þungir. „Það vantar allan vorfíling í þessa bjóra. Þei eru of dökkir og þungir. Hvar er tístandi gleðin í páskaungunum?“ Sóun að sulla niður Sala á páskabjórnum hófst á ösku- dag, 5. mars síðastliðinn, en stendur til 19. apríl samkvæmt upplýsingum á heimasíðu ÁTVR. Það er miðviku- dagur í dymbilviku. Um sjálfa páskahelgina verður því ekki hægt að kaupa páskabjór í Vínbúðum. Rakel er stofnandi samtakanna Verðandi sem berjast gegn sóun matvæla. Hún segir mikilvægt að þessu verði breytt. Nokkur umræða spannst í þjóðfé- laginu um það þegar jólabjórnum var fargað í janúar en eftir að Vínbúðirn- ar taka árstíðabundinn bjór úr sölu eiga framleiðendur erfitt með að koma honum í sölu annars stað- ar. „Af því að framleiðendurnir fá áfengisgjaldið endurgreitt þá er það hvati fyrir þá til að hella hon- um niður,“ segir hún en gjaldið er um 100 krónur á hvern bjór. „Það eru fordæmi fyrir því að hafa út- sölur í ÁTVR,“ segir hún og þau hin taka undir. „Þetta myndi tæmast fyrir hádegi, fólk er alltaf til í ódýrt áfengi,“ samsinnir Unnur. Léttur en með karakter Áður en bragðprófið hófst voru þátttakendur spurðir að því hvað þeim þætti einkenna páskabjór. Þátttakendur voru sammála um að páskabjórinn væri fyrst og fremst markaðsbragð en samt skemmtileg- ur. „Páskabjór er léttari en jólabjór- inn en samt með karakter,“ segir Ylfa og hin samsinna því. Rakel er á því að páskabjór eigi að minna á vorið, vera léttur og vekja fólki von í brjósti. „Ég vona að það sé enginn að fara að vera sniðugur og setja súkkulaði í bjór- inn,“ segir Ævar. Nú spinnast umræður um möguleikann á gerjun kakóbauna til bjórgerðar og áður en samkund- an leysist upp í vitleysu er ákveðið að hefja bragðkönnunina. n Auður Alfífa Ketilsdóttir fifa@dv.is 1 Jesús nr. 24 Meðaleinkunn: 8,7 Framleiðandi: Ölgerðin Egill Skallagrímsson Styrkleiki: 7% Verð: 700 kr. Lýsing: Gullinn. Létt meðalfylling, sætuvottur, meðalbeiskja. Heilhveiti, banani, sítrus, blóm, tunna. Egill: Gulur og fínn eftir alla dökkleitu bjórana. Ger og vanilla og kakó í lykt og bragði. Frískur og skemmtilegur. Góður bjór. Mesti páskabjórinn. Rakel: Eini ljósi félaginn í hópnum. Gefur mér vorvon. Ferskur og frískur, alveg frábær þangað til í eftirbragði sem er ekki að mínum smekk. Fullur af vori, lífi og von. Unnur: Skrítin gerlykt. Ferskur með ávaxtakeim. Minnir á vorið eins og páskabjór á að gera. Þessi passar ágætlega með páskalambinu. Ylfa: Ferskir sítrustónar án þess að vera súr. Mikill karakter og góður. Stendur undir sín- um fyrirheitum sem páskabjór. Mjög góður. Ævar: Gullinn, flatur að sjá, lítil lykt. Dísætur ávaxtakeimur. Gengur líka með mat. Allt öðruvísi en útlitið bendir til. Kemur á óvart. Umbúðir: „Standard frá Borg.“ „Of mikið auglýsingastofu.“ „Less is more lúkkið höfðar til mín.“ 3 Þari Meðaleinkunn: 7,6 Framleiðandi: Brugghús Steðja Styrkleiki: 4,8% Verð: 444 kr. Lýsing: Rafgullinn. Ósætur, meðalfylltur, lítil beiskja. Malt, humlar, grösugur. Egill: Fallegur í glasi. Algjört sæl- gæti í lykt, karamella, súkkulaði og allskonar sætt. Sama í bragði. Mjög bragðgóður og góð fylling. Rakel: Rosalegur súkkulaði- eða karamellubjór. Minnir um margt á páskaegg. Rosalega sætur og mildur. Unnur: Súkkulaði og kaffilykt. Pínu nammibragð. Mjög rauður miðað við bragðið. Kaffibragð er allt í lagi en samt ekkert spes. Hvar er súkkulaðikeimurinn? Þessi er pínu eins og Júdas sem svíkur mann. Ylfa: Sætur og góður Páskabjór. Fín fylling og bragð. Fallegur á litinn og girnilegur. Ævar: Fallegur litur, engin froða, skrítin lykt, grunsamleg, spennandi. Bragðið stendur ekki undir þessari lykt. Allskonar í lyktinni en varla neitt í bragðinu. La-la. Umbúðir: „Rokkstig fyrir að meika engan sens.“ „Heiðursverðlaun Gylfa Ægissonar.“ „Vonlaust nafn.“ „Elska súru „homemade“ merkingarnar.“ 4 Víking Páska Bock Meðaleinkunn: 7,5 Framleiðandi: Víking Styrk- leiki: 4,8% Verð: 429 kr. Lýsing: Rafbrúnn. Þétt meðalfylling, ósætur, meðalbeiskja. Léttristað malt, karamella, humlar. Egill: Skrýtinn bjór því það er lítil lykt en mikið bragð. Malt og lakkrís. Talsverð sæta. Þetta er fínn bjór sem kemur á óvart. Rakel: Rosalega vetrarlegt útlit. Lyktarlaus en rosalegt saltlakk- rísbragð. Mildur fyrir utan lakkrískeiminn. Fínasti bjór en þó of þungur til að minna á vorið. Það er greinilega ekki markmiðið í ár hjá fram- leiðendunum. Vantar allan ferskleika en sem jólabjór hefði þessi slegið í gegn. Unnur: Lyktarlaus en bragð- mikill. Kom skemmtilega á óvart. Rosa gott og mikið eftirbragð. Þessi fær stórt læk. Ylfa: Saltlakkrískeimur, „stout“-bragð. Ekki alveg fyrir mig. Þungt beiskt og ramt eftirbragð. Ævar: Mjög lítil lykt en mikið bragð. Ekki kannski til að drekka með mat. Sérstakur bjór, ekkert miðjumoð. Góður, kemur á óvart. Um umbúðir: „Minnir frekar á hóstasaft en páska.“ „Hvar er sköpunargleðin?“ 5 Gæðingur Páskabjór Meðaleinkunn: 7,3 Framleiðandi: Gæðingur – Öl Styrkleiki: 4% Verð: 370 kr. Lýsing: Rafgullinn, skýjaður. Ósætur, beiskur. Malt, humlar. Egill: Skýjaður og fallegur. Hellingur í gangi í lykt og bragði. Ger, ávextir og humlar í góðu jafnvægi. Vel heppnaður bjór. Rakel: Gruggugur og ljótur á litinn. Rosalega yfirgnæfandi ilmvatnslykt tekur á móti manni. Sopinn er rammur, fyrir minn smekk er þetta allt of „busy“ bjór. Höfðar ekki til mín. Fæ höfuðverk við tilhugsunina af öðrum sopa. Unnur: Rosalega góð ávaxta- lykt. Minnir á Mikkeller Hoppy Christmas sem er uppáhalds. Afgerandi ávaxtabragð sem er rosa gott. Ylfa: Hveitibjórseinkenni. Þungur og ramm- ur en samt góður í drykkju. Örugglega ekki góður með mat. Ævar: Skýjaður, gerlykt, afgerandi bragð. Of afgerandi til að dekka með mat, sjálfsagt alveg í samræmi við það sem að var stefnt en fellur ekki að mínum smekk. Umbúðir: „Flott lógó.“ „Alltaf ógeðslega flott.“ „Flottasta flaskan.“ 6 Páskakaldi Meðaleinkunn: 6,3 Framleiðandi: Bruggsmiðjan Styrkleiki: 5,2% Verð: 395 kr. Lýsing: Rafbrúnn. Létt meðalfylling, ósætur, miðlungsbeiskja. Ristað korn, humlar, karamella. Egill: Rauðleitur, lítur ágætlega út í glasi. Súr lykt sem lofar meiru en bjórinn stendur við. Ekki slæmur á bragðið en ekki í góðu jafnvægi, vantar fyllingu. Rakel: Mjög rauður á lit, minnir á malt án maltsins. Hann er svona hvorki né. Sætur, svo- lítið beiskt eftirbragð. Vantar vorið í þennan. Minnir of mikið á veturinn en ekki vorið sem ég vil finna í páskaöli. Unnur: Pínu súr lykt. Vantar bjórbragðið. Er að spá í að blanda þennan með appelsíni. Ég myndi ekki drekka meira en einn. Ekkert vorbragð. Ylfa: Fallega rauðbirkinn á litinn. Vantar fyllinguna. Minnir á jólabjór. Ágætis bjór. Ævar: fallegur litur, lítil froða, súr lykt, súrt bragð en bragðlítill. Lítil tilþrif. Umbúðir: „Minnir á dauðann.“ „Föstu- dagurinn langi.“ „Nokkuð flott.“ „Ekki spennandi.“ 7 Páskagull Meðaleinkunn: 6,1 Framleiðandi: Ölgerðin Egill Skallagrímsson Styrkleiki: 5,2% Verð: 309 kr. Lýsing: Rafgullinn. Meðalfylling, ósætur, lítil beiskja. Korn, malt. Egill: Sætur. Gerlykt og sæta í bragði. Vantar smá karakter, svolítið óræður. Auðdrekkanlegur en skilur ekki mikið eftir sig. Rakel: Frísklegur, góð froða. Svolítið stamt eftirbragð. Ágætur bjór. Dökkleitur en léttur. Lítið um karakter. Auðdrekkan- legur. Fínasti bjór. Unnur: Pínu bragðlítill, léttur á bragðið og ferskur en hvorki né. Týpískur fyllerísbjór. Ylfa: Mildir karamellutónar, auðdrekkan- legur. Vorkeimur. Engin sterk karakterein- kenni. Ævar: Sætbeiskur, mildur. Beiskjan situr meira eftir en sætleikinn. Flatur og alveg laus við tilþrif. Ekkert spes en gengur örugg- lega vel með mat. Umbúðir: „Öll gleðin í gulu dósinni.“ „Krakkalegt. Maður annaðhvort fílar þetta eða hatar.“ „Hallærislegt.“ 2 Víking Páskabjór Meðaleinkunn: 8,3 Framleiðandi: Vífilfell Styrkleiki: 7,8% Verð: 339 kr. Lýsing: Rafbrúnn. Meðalfylling, ósætur, meðalbeiskja. Malt, humlar, karamella, kaffi. Egill: Fallegur litur. Áhugaverðir hlutir í lykt, sjórinn? Vel smíð- aður bjór, gott jafnvægi og flott eftirbragð. Rakel: Fallega brúnn, mildur en með góða sætu. Rennur ljúflega niður og æðislegt eftirbragð. Frábær páskábjór. Bæði góður og fagur. Unnur: Góð blanda af mildu en miklu bragði. Frískandi sætur og gott eftirbragð. Rosalega passlega rammur/ sætur. Rosalega fallegur og góð lykt. Ég gæti auðveldlega drukkið fleiri. Ylfa: Keimur af brenndum sykri, smá beiskur, mikið jurtabragð. Ævar: Fallegur litur, góð froða. Beiskur en samt mátulega sætur. Ferskur, gott eftir- bragð. Bragðgóður og fínn. Eðalbjór bæði einn og sér og með mat. Umbúðir: „Vondir, vondir litir.“ „Myndi ekki kaupa hann út á útlitið.“ „Þetta stingur í augun.“ Barþjónninn Steinn Stefánsson bar fram bjórinn. Dómnefndin Rakel Garðarsdóttir, Ylfa Helgadóttir, Unnur Tryggva- dóttir Flóvenz, Egill Óskarsson og Ævar Örn Jósepsson. MYnDiR SigTRYggUR ARi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.