Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 8
Helgarblað 21.–24. mars 20148 Fréttir Héldu sömu stefnu og vinstristjórnin n Íslendingar lögðu upp með að halda sínum hlut n Engin stefnubreyting E ngin stefnubreyting varð hjá íslenskum stjórnvöldum í samningaviðræðum við Evrópusambandið, Noreg og Færeyjar í makríl­ deilunni þegar ný ríkisstjórn tók við. Þetta kemur fram í svari sjávar­ útvegs­ og landbúnaðarráðuneyt­ isins við fyrirspurn DV um málið. „Það varð engin stefnubreyting við ráðherraskipti síðastliðið vor enda hefur frá upphafi verið haft víðtækt þverpólitískt samráð um málið og ríkt góð samstaða um stefnuna,“ segir í svarinu. Markmiðin breyttust „Íslendingar lögðu upp með það að halda hlut sínum í veiðunum eins og hann var þegar strandríkis­ réttur Íslands var viðurkenndur og að veiðarnar skyldu byggjast á vís­ indalegri ráðgjöf. Jafnframt var leitað eftir aðgangi til makrílveiða í lögsögu ESB og Noregs,“ segir Þórir Hrafnsson, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins, í svari við fyrirspurn­ inni. Þetta þýðir þó ekki að ekkert hafi breyst í kröfum Íslands meðan á samningaviðræðunum stóð. „Markmið um hlutdeild og aðgang þróuðust síðan í viðræðunum eftir því sem metið var raunhæft,“ segir hann einnig en ekki liggur fyrir í hverju þessar breytingar fólust. Samningaviðræður í makríld­ eilunni hafa verið á hendi þriggja mismunandi ráðherra á Íslandi. Fyrst var það Jón Bjarnason, síðan Steingrímur J. Sigfússon og nú síð­ ast Sigurður Ingi Jóhannsson. Nú­ verandi ríkisstjórn hefur setið und­ ir ámæli fyrir að hafa látið koma sér í opna skjöldu þegar tilkynnt var um að samkomulag hefði náðst á milli allra deiluaðilanna að Íslandi undanskildu. Gáfust upp á Íslandi DV hefur áður greint frá því að Fær­ eyingar freistuðu þess að ná samn­ ingum við Evrópusambandið og Noreg eftir að samningafundur með ríkjunum þremur ásamt Ís­ landi sigldi í strand í Edinborg í byrjun mánaðarins. „Við reyndum að semja á milli fjögurra aðila en það virtist ómögulegt. Þegar Ísland var farið frá Edinborg reyndum við að ræða við Noreg og Evrópusam­ bandið og það var okkar skilningur að þar væri grundvöllur fyrir samn­ ingum,“ sagði Jacob Vestergaard, sjávarútvegsráðherra Færeyja, í samtali við DV í síðustu viku. Krafa Íslands um vísindalega ráðgjöf hefur verið nefnd af ís­ lenskum ráðamönnum sem helsta ástæðan fyrir því að ekki var hægt að ná samningum og lausn á deilunni. Samningur ríkjanna þriggja, sem Íslandi býðst enn að koma að, gerir hins vegar ráð fyrir því að ráðgjöf Alþjóðahafrann­ sóknaráðsins næstu ára verði fylgt. Aðeins er gert ráð fyrir umfram­ veiði miðað við ráðgjöf í ár. Ekki liggur fyrir hvort Ísland muni reyna að komast inn í samninginn eins og Maria Damanaki, sjávarútvegs­ stjóri Evrópusambandsins, hefur gefið vilyrði fyrir þegar byrjað verð­ ur að fylgja vísindalegri ráðgjöf. n Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is Ráðgjöfin Sigurður Ingi hefur sagt að Evrópusam- bandið, Noregur og Færeyjar hafi gefið upp á bátinn að fylgja vísindalegum ráð- leggingum um heildarkvóta. Mynd FRAMsóKnARFloKKuRinn „Það varð engin stefnubreyting við ráðherraskipti síðastliðið vor. Munaði of miklu á tilboðum Of mikill munur var á tilboðum í útboðum Seðlabanka Íslands þar sem bankinn hugðist kaupa evrur fyrir krónur og þeirra sem bárust frá erlendum eigendum aflandskróna í öðru útboði sem fór fram samhliða þar sem bank­ inn ætlaði að selja evrur fyrir krónur. Bankinn hafnaði öllum tilboðum sem bárust. Þetta kem­ ur fram í svörum Stefáns Jóhanns Stefánssonar, ritstjóra bankans, á vefsíðunni Spyr.is. „Ákveðið var að hafna öllum tilboðum þar sem of mikið verðbil var á milli tilboða sem gerð voru í útboðum þar sem bankinn kaupir evrur fyrir krónur og tilboðanna sem bárust frá erlendum eigendum aflandskróna í útboðinu þar sem bankinn selur evrur fyrir krónur,“ segir hann. Ekki var hægt að para nema um einn milljarð króna á milli útboðanna og þótti það ekki ásættanleg niðurstaða. Vill vita um aðlögun Guðbjartur Hannesson, þingmað­ ur Samfylkingarinnar, hefur lagt fram fyrirspurn til allra ráðherra sem snýr að hugsanlegri aðlögun Íslands að Evrópusambandinu undanfarin ár. Spurningin er í þremur liðum og snýst um hvaða breytingar hafi orðið á lögum á málefnasviði hvers ráðuneytis eða stofnunum þess frá því að sótt var um aðild að Evrópusambandinu. „Hvaða breytingar sem orðið hafa á lögum á málefnasviði ráðu­ neytisins eða á stofnunum þess frá 2009 má rekja til aðlögunar að Evrópusambandinu?“ spyr Guð­ bjartur ráðherrana. Hann spyr líka hvaða breytingar voru ein­ göngu vegna aðildarumsóknar og viðræðna við Evrópusambandið og hvaða breytingar urðu á sama tíma fyrst og fremst vegna aðildar Íslands að EES. Styður baráttu háskólakennara Rúnar Vilhjálmsson, formaður Félags prófessora við ríkishá­ skóla, lýsir yfir fullum stuðningi við yfirstandandi aðgerðir Félags háskólakennara í kjaramálum. Í yfirlýsingu Rúnars minnir hann á að launakjör háskólakennara hafi versnað undanfarin ár og sífellt er verið að draga saman í rekstri háskólans. „Afar brýnt er að snúa við bágri kjaraþróun og bæta starfsskilyrði háskólakennara. Jafnframt þarf að endurreisa fjár­ hag opinberra háskóla á Íslandi. Líta má á aðgerðir Félags háskóla­ kennara í kjaramálum sem ákall og kröfu um slíka endurreisn,“ segir í yfirlýsingunni. Heilt kjördæmi án fulltrúa Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra vill efla samráð við stjórnarandstöðuna J afn mörg atkvæði féllu dauð í síð­ ustu alþingiskosningum og sem nemur öllum kjósendum í Norð­ vesturkjördæmi. „Heilt kjördæmi á engan fulltrúa á Alþingi,“ sagði vara­ þingmaðurinn Björn Leví Gunnars­ son, sem nú situr á þingi fyrir Pírata, í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi á fimmtudag þegar hann spurði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráð­ herra um breytingar á kosningalögum. „Tólf prósent er hærra hlutfall en heimili í vanskilum húsnæðis eða leigu. 23 þúsund kjósendur eru fleiri en allir kjósendur í Norðvesturkjör­ dæmi. Tólf prósent og 23 þúsund er sama talan. Hún telur þann fjölda manns sem mætti á kjörstað 27. apríl 2013 og kaus en á engan fulltrúa á Al­ þingi Íslendinga,“ sagði hann og bætti við að ríkisstjórnin tæki 100 prósent ákvarðana í umboði innan við 50 pró­ senta greiddra atkvæða. Hanna Birna sagðist ekki getað tek­ ið undir allt í máli Björns en sagðist þó geta tekið undir að það ætti stöðugt að vera að endurskoða þessi mál. „Kosn­ ingalöggjöfin þarf að vera þannig að um hana ríki full sátt og að henni verði ekki breytt þegar ríkisstjórnir koma og fara,“ sagði hún en bætti við að kosn­ ingalöggjöfin gæti aldrei orðið full­ komin. Hanna Birna hvatti þingmenn til að ræða kosningalögin í stjórnar­ skrárnefnd en hún lýsti sig tilbúna til að vinna með öllum flokkum að breytingunum. Hún sagðist þó vera þeirrar skoðunar að það væri stjórn­ málahefðin en ekki lögin sem gerðu það að verkum að stjórnarmeirihluti réði venjulega öllu. „Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að efla það samráð sem við getum, tryggja það að fleiri hafi aðkomu að verkefnum og bíð ennþá eftir þeim degi að þannig verði það á hinu háa Alþingi,“ sagði hún. n adalsteinn@dv.is Vill samráð Hanna Birna sagðist á fimmtudag bíða eftir þeim degi þegar hægt yrði að efla samráð allra aðila á þingi við ákvarðanatöku. Mynd siGtRyGGuR ARi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.