Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 52
Helgarblað 21.–24. mars 201452 Fólk
S
tórleikarinn George Clooney
virðist loksins hafa fundið
ástina í lífi sínu. Hann sást
fyrst með Amal Alamuddin
lögfræðingi í október í fyrra. Þau
hafa meðal annars farið í frí saman
til Tansaníu, þar sem myndir náð-
ust af þeim að kanna dýraríkið þar
í landi, og í febrúar sáust þau hald-
ast í hendur á frumsýningu nýrrar
myndar George. Heimildarmaður
tímaritsins People segir þau afar
ástfangin. „Hún er ekki að sækjast
eftir frama í leiklist eða skemmtana-
bransanum. Ánægja þeirra er ein-
læg.“ Þrátt fyrir að enginn vafi leiki
á því að þau eigi í meira en hefð-
bundnu vinasambandi forðast þau
að sjást saman og fara jafnan leiðar
sinnar hvort í sínu lagi.
Amal Alamuddin er 36 ára
og fæddist í Beirút í Líbanon.
Hún er búsett í London og talar
reiprennandi frönsku, arabísku og
ensku. Hún hefur vakið athygli í
starfi sínu og tekist á við mýmörg
mál sem hafa ratað í fjölmiðla.
Amal var afar vinsæl á Twitter áður
en hún gerði aðgang sinn óvirkan
og var leikarinn Ashton Kutcher
meðal þeirra sem fylgdu henni.
Clooney er 52 ára og er því 16
árum eldri en Amal. Hann hef-
ur verið orðaður við ýmsar kon-
ur í gegnum tíðina en aldrei fest
ráð sitt til lengri tíma. Hann gift-
ist leikkonunni Taliu Balsman árið
1989 en hjónaband þeirra entist
aðeins í nokkur ár. Leikarinn hef-
ur þrisvar sinnum hlotið Golden
Globe- verðlaun fyrir leik sinn.
Nýjasta stórmynd kappans er kvik-
myndin Gravity, sem sló allræki-
lega í gegn, en hann er ekki síst
þekktur fyrir leik sinn í myndum á
borð við Out of Sight, Up in the Air
og Ocean's Eleven. n
ingosig@dv.is
Ást í faðmi lögfræðings
n George Clooney virðist hafa fest ráð sitt n Fór í frí til Tansaníu
„Ánægja þeirra er
einlæg“ Sambönd
stórleikarans hafa
sjaldnast verið langlíf.
Mynd ReuTeRs
UGG-skór við
brúðarkjólinn
Yngri systir poppstjörnunnar
Britney Spears, Jamie Lynn, hef-
ur alla tíð þurft að lifa í skugga
eldri systur sinnar. Jamie Lynn,
sem er 22 ára, gekk í það heilaga í
síðustu viku með viðskiptamann-
inum James Watson. Í hátíðar-
höldunum um kvöldið klæddi
hún sig í UGG-skó við brúðar-
kjólinn og vakti það athygli
ágengra ljómsyndara sem eltu
þau nýgiftu á röndum. Jamie
Lynn var aðeins 16 ára þegar hún
varð barnshafandi eftir þáverandi
kærasta sinn, Casey Aldridge, en
hún sagði frá þunguninni í viðtali
við OK!-tímaritið.
Erfiðara að
hætta að reykja
en drekka
Naomi Campbell prýðir forsíðu
aprílútgáfu tímaritsins Shape. Í
viðtalinu opnar hún sig um það
hversu erfitt það hefur reynst
henni að hætta að reykja. „Fólk
sagði við mig að það væri erfiðara
að sleppa sígarettum en áfengi,“
sagði Campbell sem hætti einnig
að drekka fyrir nokkrum árum.
„Ég trúði því ekki en vitið þið
hvað? Það er erfiðara,“ segir hún í
viðtalinu. „Bara að tala um þetta
fær mig til langa í eina. Hættum
að tala um þetta!“
„Það lenda allir
í framhjáhaldi“
Bandaríska leikkonan Cameron
Diaz segir alla munu lenda í
framhjáhaldi á einhverjum tíma-
punkti. Þetta sagði leikkonan er
hún ræddi um ástarsambönd og
framhjáhald í viðtali við nýjasta
tölublað breska tímaritsins OK!
„Það hefur verið haldið fram-
hjá öllum og það lenda allir í
framhjáhaldi. Ég get ekki lag-
að það, ég veit ekki hvernig á
að gera það. Ég dæmi engan,
ég veit ekki hvernig á að laga
vanda málið,“ sagði Diaz.
„Við erum manneskjur, við
erum flókin. Þú getur ekki farið
í gegnum lífið án þess að safna
nokkrum örum, þú getur ekki
farið í gegnum lífið óskaddaður.
Það er bara eins og það er. Þessu
er öllu ætlað að gerast, lærðu
þína lexíu, finndu út úr því og
haltu áfram.“
Stórleikarar sem aldrei
hafa unnið Óskarinn
Bruce Willis hefur ekki einu sinni verið tilnefndur
Johnny Depp Þrisvar sinnum hefur Johnny
Depp verið tilnefndur til Óskarsverðlaunanna; fyrir leik sinn í
myndunum Sweeney Todd, Finding Neverland og Pirates of the
Carribean: The Curse of the Black Pearl, og alltaf hefur hann farið
tómhentur heim af verðlaunahátíðinni. Leikarinn, sem hætti í skóla
15 ára í von um að verða rokkstjarna, er þekktastur fyrir karakterinn
Jack Sparrow, sjóræningjann sem svífst einskis.
Bruce Willis Eiturharði töffarinn Bruce Willis varð
dýrkaður og dáður um allan heim fyrir túlkun sína á John McClane
úr Die Hard-myndunum. Fyrsta myndin í þeim hasarmyndaflokki
kom út árið 1988 og er Bruce því orðinn vel sjóaður, og rúmlega það,
í kvikmyndaheiminum. Bruce hefur verið tilnefndur til ýmissa
verðlauna – en aldrei til Óskarsverðlauna og segist hann láta sér þá
staðreynd í léttu rúmi liggja.
Leonardo DiCaprio
Hvernig má það vera að Leonardo DiCaprio hafi
aldrei unnið Óskarinn? Leikarinn hefur farið með
veigamikið hlutverk í hverri stórmynd á fætur
annarri og verið óviðjafnanlegur í hlutverkum
sínum. En það hefur ekki dugað til. Leonardo sló
í gegn í kvikmyndinni um farþegaskipið Titanic
árið 1997 og hefur frá þeim tíma skipað sér í sess
meðal vinsælustu leikara Hollywood. Í fyrra
brá hann sér í gervi Jordans Belfort í myndinni
The Wolf of Wall Street og hlaut mikið lof fyrir
frammistöðu sína. Margir spáðu því að Leonardo
yrði loksins verðlaunaður fyrir magnaðan leik
sinn í henni – en allt kom fyrir ekki.
Vinsæll
Fjölskyldumaður-
inn Brad Pitt var
sannfærandi í kvik-
myndinni um Tróju.
Öflugur
Samuel L. Jackson hefur
leikið í fjölda góðra kvik-
mynda í gegnum tíðina.
Þrisvar tilnefndur Íslandsvinurinn Tom
Cruise hefur þrisvar sinnum verið tilnefndur
til verðlaunanna.