Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2014, Blaðsíða 24
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Viktoría Hermannsdóttir • Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéttASkot 512 70 70FR jál S t, ó Háð DAg b l Að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AðAlnÚmeR RitStjóRn áSkRiFtARSími AUglýSingAR Sandkorn 24 Umræða Helgarblað 21.–24. mars 2014 Ég ætla að reyna að ná sambandi við þig Þetta var svo sannarlega ekki það sem ég óskaði eftir Við búum í umhverfi sem mismunar fólki Týndur forsætisráðherra Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir leitar að þjófnum sem stal skónum hennar. – Facebook Ásdís Guðný Pétursdóttir þarf að skila hundi sem hún keypti á bland.is. – DV Sigrún Daníelsdóttir berst gegn fitufordómum. – DV S igmundur Davíð Gunn­ laugsson forsætisráðherra er opin ber persóna í vinnu hjá þjóðinni. Um starf forsætisráð­ herra, eins og annarra ráðamanna, gilda strangar reglur og krafan um gott siðferði ætti að vera hávær. For­ sætisráðherranum er treyst til þess að ganga um almannafé og eigur með það fyrir augum að standa vörð um hag almennings. Hann á að vera fyrirmynd annarra manna í þessum efnum. Við Íslendingar höfum gjarnan átt forsætisráðherra sem báru virðingu fyrir hlutverki sínu og um­ gengust eigur almennings af alúð og virðingu. Þeirra á meðal var Jón Þorláksson, formaður Sjálfstæðis­ flokksins, sem áður hefur verið vitn­ að til í leiðurum DV. Eftirfarandi orð hans eru sem meitluð í stein og ættu að vera öllum stjórnmálamönnum leiðarljós: „Það er gott að vera vin­ ur vina sinna, ekki nema loflegt, að skólastjóri sýni lærisveinum sínum rausn eða flokksforingi fylgismönn­ um, eftir sinni getu. En takmörk eru dregin milli hins leyfilega og óleyfi­ lega í þessu sem öðru. Af eigin efn­ um eða með frjálsu fengnu fé verður lausnin að ljúkast, svo að leyfilegt sé. Lyklar að ríkisféhirslunni eru engum fengnir til þess að að sækja þangað vinargjafir eða fylgdarlaun.“ Það verður ekki með nokkru móti séð að núverandi forsætisráðherra sé upptekinn af boðskap Jóns Þor­ lákssonar. Gráa svæðið er leikvang­ ur hans. Styrkir eru veittir til vina flokksins með smáskilaboðum. For­ sætisráðherrann fer í boðsferð til útlanda eins og hver önnur puntu­ dúkka og rökstyður það með óljós­ um fundarhöldum. Á meðan stjórn­ málin eru í fullkomnu uppnámi og þingið logar í deilum og aðgerðaleysi hverfur hann fyrirvaralaust úr landi. Þegar fjölmiðlar spyrja eftir ráðherr­ anum er fátt um svör. Hliðverðirnir í forsætisráðuneytinu gæta þess vand­ lega að segja sem minnst og svara loðið og óljóst með spuna. Ríkis­ stjórnarfundur var blásinn af vegna týnda forsætisráðherrans sem virt­ ist ekki mega hugsa til þess að sam­ starfsflokkurinn leiddi fundi. Skila­ boðin til almennings eru þau að fólki komi ekki við hvar hann sé. Meira að segja forseti þingsins hafði ekki hug­ mynd um það hvar forsætisráðherr­ ann væri á jarðkringlunni. Sama var að segja um samstarfsflokkinn. Núverandi forsætisráðherra hófst til valda á þeirri bylgju sem varð í kringum Icesave og tilraunir þáver­ andi stjórnvalda til að semja um ránsfeng íslensku bankanna á spari­ fé Breta og Hollendinga. Mikið and­ óf varð og krafa kom frá grasrótinni um að þjóðin fengi að ráða því með hvaða hætti gengið yrði frá málum. Tugþúsundir skrifuðu undir áskor­ un til forsetans um að vísa mál­ inu til þjóðarinnar. Krafan var skýr: Valdið til fólksins. Framsóknarflokk­ urinn staðsetti sig í miðju lýðræðis­ byltingarinnar og fólkið sem kaus flokkinn trúði að það væri að kjósa umbætur. En nú er öldin önnur. Sigmundur Davíð bar fram feitu­ stu kosningaloforð lýðveldissögunn­ ar þegar hann boðaði lausnir fyrir skuldara, afnám verðtryggingar og slátrun hrægammanna sem voka yfir Íslandi. Sundurtætt kosningalof­ orðin liggja sem hráviður um hinn pólitíska völl. Skuldalausn heimil­ anna er í skötulíki og verðtryggingin lifir góðu lífi. Valdið til fólksins er innantómt slagorð sem tilheyrir for­ tíðinni. Þjóðaratkvæðagreiðsla á ekki upp á pallborð hinna spilltu. Undir­ skriftir tugþúsunda Íslendinga skipta engu máli. Forsætisráðherra situr við kjötkatlana og passar upp á að sumir fái sitt. Ferðalag hans um lendur rík­ isins og til útlanda er mörgum óskilj­ anlegt. Hann er kominn óravegu frá þeim hugsjónum sem komu honum áleiðis á stól forsætisráðherra: Sig­ mundur Davíð er týndur. Það er nauðsynlegt að koma skikk á forsætisráðuneytið. Eðlilegt er að Sjálfstæðisflokkurinn setja mann­ inum stólinn fyrir dyrnar. Það er þó líklega ekki raunhæft því flokkurinn á takmarkaða möguleika á samvinnu við aðra flokka. Hann situr því uppi með Svarta Pétur og ber ábyrgð á for­ sætisráðherranum og öllu hans liði. Raunhæfasta leiðin væri sú að kjósa aftur og að þessu sinni um svikin sem áttu sér stað vorið 2013. Það þarf kjark og áræði heiðarlegra stjórn­ málamanna til að stíga það skref og losa þjóðina úr prísundinni. n Leki Mikaels Mikael Torfason, aðalritstjóri 365, vann nokkurn sigur þegar hann fékk hina umdeildu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkis­ ráðherra til að koma í þátt sinn, Mína skoðun. Bjuggust einhverjir við hörkuspurningum og þá sér­ staklega um lekamál ráðuneytis­ ins. En þetta fór á annan veg og reyndin varð drottningar viðtal. Hið skondna í málinu er að Mik­ ael spurði um lekann en svo sem kunnugt er þá veit hann sem rit­ stjóri Fréttablaðsins hver lak til að koma höggi á hælisleitend­ urna og þurfti því ekki að spyrja. Líklegt er að samið hafi verið fyrir fram um einstaka liði drottn­ ingarviðtalsins. Illugi týndur Illugi Gunnarsson menntamála­ ráðherra hefur staðið í ströngu með kennara, gráa fyrir járnum, í verkfalli. Ráð­ herrann er einnig í umtalsverðum vandræðum vegna ráðningar Hrafnhildar Þor- valdsdóttur, ná­ frænku Davíðs Oddssonar, sem forstjóra LÍN. Áminning sem hún hafði fengið í umhverfisráðuneytinu var afn­ umin með ráðherraboði. Þá var hún ekki efst á lista þeirra sem stjórn Lánasjóðsins mælti með en Illugi fór gegn því áliti og réð hana til starfa. Illugi er þekktur fyrir að svara fjölmiðlum undir öllum kringumstæðum og þyk­ ir hreinskiptinn. En í þessu máli kveður við nýjan tón og hann læt­ ur ekki ná í sig. Einn grjótharður Magnús Geir Þórðarson útvarps­ stjóri ætlar ekki að sitja með hendur í skauti við stjórn Ríkis­ útvarpsins. Hann byrjaði á því að taka völdin með því að segja upp öllum fram­ kvæmdastjórun­ um sem teljast flestir til hirðar Páls Magnússonar, fyrrverandi út­ varpsstjóra. Reiknað er með að fæstir þeirra verði endurráðnir. Grunsemdir eru uppi um að sett hafi verið upp leikrit þar sem löngu fyrirséð tap var gert að stórmáli. Menn bíða þess spennt­ ir að sjá hverja Magnús velur með sér til að reisa Ríkisútvarpið við. Stjörnufall á Mogga Stjörnublaðamaðurinn Agnes Bragadóttir hefur um áratuga­ skeið fylgt Mogganum og átti á árum fyrr góða spretti. Síðustu ár hefur hún verið fréttastjóri við­ skipta á blað­ inu og lítið sést af hennar gömlu töktum. Nú má búast við að Agnes taki við sér aftur eftir að hún missti titilinn og varð aftur óbreyttur blaðamaður. Reynir Traustason rt@dv.is Leiðari MynD SIGTRyGGuR ARI Guðbjartur Hannesson þingmaður Kjallari „Aðhaldsaðgerð- ir ríkisstjórnarinnar sem greiðast af sjúkum, öldruðum og öryrkjum eru þannig um 550–600 milljónir króna alls.M eð nýju frumvarpi fjármála­ ráðherra um gjaldskrárlækk­ anir í tengslum við kjara­ samninga á almennum markaði birtist enn á ný afleit for­ gangsröðun ríkisstjórnarinnar. Kjarasamningarnir byggðust á því mikilvæga markmiði að halda niðri verðbólgu og gerð var krafa um að ríki og sveitarfélög leggðu þar sitt af mörk­ um. Reykjavíkurborg reið á vaðið og tilkynnti að borgin myndi hætta við almennar gjaldskrárhækkanir og flest sveitarfélög fylgdu í kjölfarið. Ríkisstjórnin lofaði síðan við af­ greiðslu fjárlaga að endurskoða gjald­ skrárhækkanir og nú loks hafa þær til­ lögur verið lagðar fram. Ekki er gerður ágreiningur um markmiðið að kveða niður verðbólgudrauginn, en athyglis­ vert að skoða hvert framlag ríkisins er. Bensínlækkun um 3–7 kr. á dag? Forgangsröðun ríkisstjórnarinnar birtist hér með skýrum hætti. Lækk­ un gjalda á eldsneyti, áfengi og tóbak eiga að halda niðri neysluvísitölu og bjarga kjarasamningum, hækkun sem var ákveðin 3% í fjárlögum en verð­ ur 2%. Á sama tíma hækka önnur gjöld langt umfram verðlagsforsend­ ur samninga. Forvitnilegt er að skoða hvaða áhrif þessar gjaldalækkanir hafa á heimilisreksturinn. Svo virðist sem álagning ríkisins á bensín lækki um 1,2 krónur á bensínlítra. Bíleig­ andi sparar þannig um 1.200–2.400 kr. á ári ári (3–7 kr. á dag) ef olíufyrirtækin skila lækkuninni að fullu út í verðlag. Sparnaðurinn er mismunandi eftir stærð og bensíneyðslu bíls, en miðað er við 20.000 km. akstur á ári. Samtök atvinnulífsins reiknuðu út áhrif mismunandi gjaldalækkana rík­ isins á neysluvístölu og þar með ráð­ stöfunartekjur heimilanna og birtu í janúar 2014. Þar er forvitnilegt að sjá að hækk­ un innritunargjalda í ríkisháskól­ um um 15.000 kr. vegur mun meira til hækkunar neysluvísitölu (0,114%) en boðuð lækkun gjalda á eldsneyti, áfengi og tóbak samtals (0,08%). Lýðheilsa, forvarnir og umhverfismál Til gamans er forvitnilegt að skoða fyrir hugaða gjaldalækkun í samhengi við stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnar­ innar. Veit vinstri höndin ekki hvað sú hægri gjörir? Í stefnuyfirlýsingunni stendur: Bætt lýðheilsa og forvarnar­ starf verður meðal forgangsverk­ efna ríkisstjórnarinnar. Er þetta fyrsta skrefið í átt til aukinnar lýðheilsu og liður í forvörnum? Þar stendur einnig: Ríkisstjórnin mun vinna að því að Ísland verði í fararbroddi í umhverfismálum á heimsvísu og öðrum þjóðum fyrir­ mynd á sviði umhverfisverndar. Í þeim tilgangi lækkar ríkisstjórnin bensín­ og umhverfis­ og auðlinda­ skatta! nemendur og sjúklingar borga meira Rétt er að minna á að í fjárlaga­ frumvarpi ríkisins fyrir árið 2014 var ákveðið að setja gjald fyrir innlögn sjúklinga á sjúkrahús. Sem betur fer tókst að hrinda þeim áformum. Eft­ ir lifði þó hækkun á komugjöldum í heilsugæslu um 20% og með nýjum samningum við sérgreinalækna hækka komugjöld til þeirra um 10– 20%. Þá var ákveðin hækkun á nef­ sköttum s.s. áður nefndum innritun­ argjöldum í opinbera háskóla um 15.000 á ári og hækkun á útvarps­ gjaldi, sem hvorug renna þó til við­ komandi stofnana. Í fjárlögum er hinum eigna­ og tekjuhæstu í samfélaginu hlíft öðrum fremur m.a. með ákvörðun um að leggja af auðlegðarskatt og að hækka frítekjumark vegna vaxtatekna. Þá ákvað ríkisstjórnin að hlífa ferða­ mönnum við hækkun virðisaukaskatts á gistingu og veiðileyfagjöld útgerða voru lækkuð. Á sama tíma fá launþegar, lífeyris­ þegar og öryrkjar með tekjur undir 250.000 kr. á mánuði enga skattalækk­ un. Lögð voru viðbótargjöld á sjúk­ linga vegna sjúkraþjálfunar og annarrar þjálfunar, reglur þrengdar og lögð á aukin gjöld vegna nauðsyn­ legra hjálpartækja eða búnaðar og reglur um aðstoð við öryrkja vegna bílakaupa þrengdar. Aðhaldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar sem greiðast af sjúkum, öldruðum og öryrkjum eru þannig um 550–600 milljónir króna alls. Niðurstaðan er að ríkisstjórnin lækkar lítillega kostnað þeirra sem keyra mikið eða nota mikið áfengi og tóbak í stað þess að lækka álögur á láglaunafólk, sjúklinga og öryrkja. n Undarleg forgangsröðun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.